Þjóðviljinn - 17.10.1986, Side 14

Þjóðviljinn - 17.10.1986, Side 14
Menningarsjóður Norðurlanda Hlutverk Menningarsjóðs Norðurlanda er að stuðla að norrænni samvinnu á sviði menningarmála. f þessum tilgangi veitir sjóðurinn styrki til norrænna samstarfsverkefna á sviði vísinda, fræðslumála og almennrar menningarstarfsemi. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag styrkveitinga úr sjóðnum eru birtar í Lögbirtingablaðinu. Umsóknareyðublöð og frekari upplýs- ingar má fá frá skrifstofu sjóðsins: Nordisk kulturfond, Nordisk ministerráds sekretariat, St. Strandstræde 18, DK-1255 Köben- havn K (sími: (1) 11 47 11), svo og í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. Milliveggir Raðveggir í íbúðina, skrifstofuna og lagerinn. Fjalar hf. Sími 96-41346 Söluskrifstofa Bíldshöfða 19, sími 672725. Utboð Óskað er tilboða vegna kaupa á eftirtöldum vöru- flokkum árið 1987 vegna innkaupanefndar sjúkrahúsa Bleiur (dag-nætur-barna) WC-pappír Eldhúsrúllur Miðaþurrkur Pappír (rúllur) á skoðunarbekki Útboðsgögn eru seld á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, á kr. 300.- hver flokkur. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Gólfefni á íþróttahús Tilboð óskast í lagningu íþróttagólfa í íþróttahús íþróttakennaraskóla Islands, Laugarvatni og íþróttamiðstöð á Húsavík. Gólf á Laugarvatni eru um 1700 m2 og um 1520 m2 á Húsavík. Verkunum skal að fullu lokið 15. febrúar 1987. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 5.000.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 14. nóvember 1986, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Auglýsing Viðskiparáðuneytið óskar að ráða ungling til sendilsstarfa nú þegar. Umsóknir sendist viðskiptaráðuneytinu Arnar- hvoli fyrir 23. þ.m. Viðskiptaráðuneytið, 13. október 1986. Eiginkona mín og móðir okkar Sigríður Gísladóttir frá Stóra-Hrauni lést að heimili sínu Hrauntungu 29 16. október. Fyrir hönd ættingja Per Krogh Gísli Pétursson Sólveig Pétursdóttir Mikhaíl Gorbatsjof, sagði m.a. í sjónvarpsræðu sinni í Sovétríkjunum á þriðjudagskvöldið, að forysta Bandaríkjanna ætti allt sitt undir hergagnaiðnaðinum, undirfjölmörgum auðhringum, sem hefðu gert vígbúnaðarkapphlaupið að viðskiptum. Gorbatsjof í sovéska sjónvarpinu: Skellum ekkí hurðum, látum ekki hugfallast Vígbúnaðargróðinn er Þrándur í Götu „Þessi fundur var stór- viðburður. Það hefur skapast annað ástand. Enginn getur hegðað sér eins og hann gerði fyrir fundinn. Fundurinn var gagnlegur. Hann var liður í mögulegu skrefi fram á við, til raunverulegra breytinga tii hins betra, ef Bandaríkin fara að lokum að taka raun- hæfa afstöðu. Við látum ekki hugfallast, við skellum ekki hurðum...“ Á þessa leið m.a. dró Gorbat- sjof saman niðurstöður Reykja- víkurfundarins í ávarpi til so- vésku þjóðarinnar sem hann flutti í sovéska sjónvarpið í fyrra- kvöld. Geimvarnadeilan Gorbatsjof rakti gang viðræðn- anna skref fyrir skref og ítrekaði það mat sitt, að Bandaríkjamenn hefðu mætt svotil tómhentir til leiks. Hann vék m.a. sérstaklega að þeirri staðhæfingu Reagans, að SDI (geimvamaáætlunin) væri varnarkerfi sem frelsi Bandaríkj- anna væri nauðsynlegt gegn uppátækja einhverra brjálæð- inga, eða undanbragða Sovét- manna. Gorbatsjof spurði á móti: „Hvers vegna þarf að tryggja „frelsi Bandaríkja- manna,“ og vina þeirra fyrir kjarnorkueldflaugum Sovétríkj- anna - þær verða ekki lengur til. “ (ef samið er um afvopnun eins og á borðinu lá). Þegar Reagan minntist á að Bandaríkjamenn mundu láta So- vétmönnum í té afnot af niður- stöðum sínum af geimvarnarann- sóknum þá kvaðst Gorbatsjof hafa svarað á þessa leið: „Ég tek þessa hugmynd yðar ekki alvarlega herra forseti. Þér vilduð ekki láta okkur í té upplýs- ingar um olíubúnað ykkar, ekki um búnað fyrir mjólkurbú og svo dettur yður í hug að við trúum loforðum um að við fáum aðgang að geimvarnaráætluninni. Það væri auðvitað „bandarísk bylting númer tvö“ en byltingar eru sjaldgæfar." Yfirsjónir Reagans Gorbatsjof bar fram sína skýr- ingu á framgöngu bandarísku sendinefndarinnar í Reykjavík og sagði þá m.a.: „Atriðið er að forysta þessa mikla lands á allt sitt undir hergagnaiðnaðinum, undir fjölmörgum auðhringum, sem hafa gert vígbúnaðarkapp- hlaupið að viðskiptum og gróð- auppsetningu, að lífsviðurværi sínu. Mér finnst að Bandaríkjamenn geri tvær meginvillur í mati sínu á ástandinu. Önnur er taktísk. Þeir gera ráð fyrir að Sovétríkin muni fyrr eða síðar sætta sig við tilraunir til að koma aftur á bandarísku einræði,' muni samþykkja að takmarka og fækka aðeins sovéskum vígbún- aði. Gera það vegna þess að þau hafi meiri áhuga á samningum um vígbúnaðartakmarkanir en Bandaríkin, að því er látið er veðri vaka. En þetta er reginvilla. Og það er best fyrir Bandaríkin að losa sig sem fyrst við hana. Hin villan er strategísk. Bandaríkin ætla sér að þreyta So- vétríkin í efnahagslegu tilliti með því að koma á kapphlaupi á sviði geimbúnaðar. Þeir vilja koma okkur í sem flest vandræði, þará meðal á félagslega sviðinu, hvað lífskjör varðar, vilja vekja óá- nægju meðal þjóðarinnar með forystu landsins og stefnu henn- ar. Þeir hafa einnig í huga að tak- marka möguleika Sovétríkjanna í efnahagslegu tilliti við hin sósíal- ísku lönd og önnur lönd. Þeir hafa ekki áhuga á því að skoða gaumgæfilega þær breytingar, sem eiga sér stað í landi okkar og komast að viðeigandi niðurstöðu fýrir sig og stefnu sína. Þama er einnig fyrir hendi önnur ósk. Það er að viðhalda miklum vígbúnaði, halda áfram spennunni í heiminum, og þarna eru Bandaríkin að vonast til þess að tryggja sér traust eftirlit með bandamönnunum, halda áfram að arðræna þjóðirnar í þróunar- löndunum. Það er auðvitað erfitt að sjá fyrir allar afleiðingar slíkr- ar stefnu til langframa. En við vitum nú þegar að hún gefur eng- um neitt, getur ekki haft neitt já- kvætt í för með sér. Ekki heldur fyrir Bandaríkin.“ (ívitn. í texta frá APN) 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. október 1986

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.