Þjóðviljinn - 17.10.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 17.10.1986, Blaðsíða 15
IÞROTTIR Handbolti Svisslendingar ekki bjartsýnir Ekki reiknað með að St. Othmar eigi mikla möguleika gegn Víkingum Svissiendingar eru ekki bjart- sýnir á gengi St. Othmar gegn Víkingum í Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik. A.m.k. kemur það fram í blaðinu Sport sem fjallar um mótherja svissnesku liðanna í Evrópu- mótunum. Fimm lið frá Sviss leika í 2. um- ferð, karla og kvenna, og tvö eru talin eiga raunhæfa möguleika - BSV Bern í IHF-keppninni gegn Sittardia frá Hollandi og ATV Basel í meistarakeppni kvenna, gegn Ookmer frá Hollandi. Andstæðingar hinna þriggja eru taldir mjög sterkir, Víkingar, Tecnisa Alicante frá Spáni sem leikur við Amicitia í keppni bik- arhafa og sænska kvennaliðið Kristján Jónsson. Tyresö. Sagt er að í liði Víkinga séu fjórir leikmenn úr HM-liði fs- lands og greinilegt er að Sviss- lendingar búast ekki við míklu af St. Othmar. St. Othmar hefur unnið tvo leiki en tapað einum í svissnesku 1. deildinni í vetur. Tapið var gegn Amicitia, 17-18, á heima- velli en þessi lið háðu einvígi um meistaratitilinn í fyrra og St. Ot- hmar „stal“ honum í síðustu um- ferð. St. Othmar komst áfram í Evrópukeppninni á kostnað Herschi Geleen frá Hollandi, sem mættu FH fyrir tveimur árum. St. Othmar vann fyrri leikinn, í Hollandi, 23-15 en tap- aði síðan heimaleiknum 20-21. -VS Knattspyrna Kristján í Fram? Líkur cru á að Kristján Jónsson landsliðsmaður úr Þrótti gangi til liðs við Islandsmeistara Fram fyrir næsta keppnistímabil. „Eg hef hug á að leika í 1. deild næsta sumar og Fram kemur sterk- lega til greina. En ég hef ekki tekið neina cndanlega ákvörðun ennþá,“ sagði Kristján í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. Hann á 9 A-Iandsleiki að baki, þar af 3 á þessu ári. -VS Knattspyrna ttalir unnu fyni ítalir sigruðu Spánverja 2-1 í fyrri úrslitaleik Evrópukeppni landsliða undir 21 árs sem fram fór í Róm í fyrrakvöld. Ramon Caldere kom Spánverjum yfir en Gianluca Valli og Giuseppe Gi- annini tryggðu ítölum sigur. Síðari leikurinn fer fram í Valla- dolid á Spáni eftir hálfan mánuð. Eins og menn muna börðust Spánn og ísland um sigur í sínum riðli undankeppninnar og Spán- verjar unnu báða leikina naum- lega, 1-0. -VS/Reuter Jón Kr. Gíslason, ÍBK, og Þor- valdur Geirsson, Fram, voru í eldlín- unni í gaerkvöldi og Jón hafði öllu bet- ur. Keflavík 16. október ÍBK-Fram 86-46 (41-29) 4-9, 13-20, 21-20, 25-29, 41-29 - 49-33, 63-37, 70-40, 79-44, 86-46. Stlg ÍBK: Guðjón Skúlason 19, Sig- urður Ingimundarson 15, Jón Kr. Gíslason 15, Hreinn Þorkelsson 11, Falur Harðarson 8, Gylfi Þorkelsson 6, Ólafur Gottskálksson 4, Matti Ó. Stef- ánsson 4, Ingólfur Haraldsson 2, Skarphéðinn Héðinsson 2. Stig Fram: Þorvaldur Geirsson 14, Jón Júlíusson 11, Ómar Þráinsson 9, Jóhann Bjarnason 9, Guðbrandur Lár- usson 3. Dómarar: Ómar Scheving og Kristbjörn Albertsson - góðir. Maöur leiksins: Guðjón Skúlason, IBK. Grindavík Jón Örn hetja ÍR ÍR-ingar sluppu með skrekkinn í gærkvöldi þegar þeir sigruðu UMFG 71-70 í 1. deildinni í körfuknattleik í Grindavík í gærkvöldi. Leikurinn var hnífjafn allan tímann, heimamenn 36- 34 yfir í hléi, og Jón Orn Guðmunds- son skoraði sigurkörfu ÍR rétt fyrir leikslok. Jón Örn gerði 6 síðustu stig ÍR í leiknum og skoraði 20 alls en Vignir Hilmarsson 10. Hjá UMFG var Hjálmar Hallgrímsson stigahæstur með 17 stig en Guðmundur Bragason gerði 16. ÍR hefur 6 stig eftir 4 leiki, Þór 2 stig eftir 1 leik, UMFG 2 eftir 2 leiki en ÍS, Breiðablik og Tindastóll hafa öll leikið einn leik og tapað. -VS Úrvalsdeildin Fjörtíu stiga sigur ÍBK! Fram skoraði 17 íseinni hálfleik Það tók Keflvíkinga megnið af fyrri hálfleik að ná undirtökunum í leiknum við nýliða Fram í úrvals- deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. En eftir að þeir höfðu skorað síðustu 16 stig fyrri hálfleiksins voru úrslitin ráðin. Forysta ÍBK óx jafnt og þétt í síðari hálfleik, mótspyrnan varð sí- fellt minni og minni og í lokin munaði 40 stigum, 86-46. „ Við höfum misst þá litlu æfingaað- stöðu sem við höfðum og höfum nán- ast ekkert getað æft í hálfan mánuð. Við slíkar aðstæður er lítið hægt að gera,“ sagði Birgir Guðbjörnsson þjálfari Fram. Hans menn höfðu ekki úthald til að halda í við Keflvíkinga - Þorvaldur Geirsson og Ómar Þráins- son voru nánast tveir um að reyna að standa uppi í hárinu á þeim og þeir félagar náðu reyndar fjölmörgum frá- köstum. En hittnin var engin eins og stigaskorið sýnir. Guðjón Skúlason var besti maður IBK og skoraði m.a. fjórar 3ja stiga körfur, þaraf þrjár í röð. Hreinn og Jón Kr. voru drjúgir og Ólafur Gott- skálksson var harðastur í fráköstun- um. -SÓM/Suðurnesjum Staðan f úrvalsdeildinni í körfuknattleik: UMFN.................2 2 0 162-125 4 Valur................1 1 0 61-50 2 Haukar...............2 1 1 141-135 2 IBK..................2 1 1 136-107 2 KR................1 0 0 1 67-89 0 Fram..............2 0 0 2 108-169 0 Haukar-KR leika kl. 14. á laugar- dag og Valur-UMFN kl. 20 á sunnu- dagskvöld. England Metaðsókn hjá Tottenham? Beðið með óþreyju eftirfyrsta heimaleik hins belgíska Claesens Það er reiknað með mesta áhorfendafjölda á White Hart Lane, heimavelli Tottenham, í taep tvö ár þegar Sheffleld We- dnesday, lið Sigurðar Jónssonar, kemur þangað í heimsókn á morgun. Tvennt kemur til, Tott- enham er að nálgast toppinn í 1. deild ensku knattspyrnunnar eftir góð úrslit undanfarið - og það sem vegur þyngra er að Nico Claesen, belgíski landsliðsmið- herjinn, lcikur þarna sinn fyrsta heimaleik með Tottenham. Claesen var keyptur frá Stand- ard Liege fyrir 600 þúsund pund fyrir skömmu og átti góðan leik um síðustu helgi þegar Totten- ham lagði Liverpool að velli á Anfield Road. Hann skoraði mark sem dæmt var af og búist er við miklu af honum, ekki síst þar sem hann var markahæsti leik- maður Belga í heimsmeistara- keppninni í Mexíkó. Búist er við áhorfendur á heimaleik Totten- ham fari í fyrsta sinn yfir 30 þús- und á þessu keppnistímabili en met í fyrra var rúm 33 þúsund í leikjum við West Ham og Arse- nal. En tæplega verður uppselt, 48 þúsund, eins og síðast átti sér stað vorið 1985 þegar Everton kom í heimsókn. -VS/Reuter Ólympíuleikar Kosið umborgir í dag Flestir tefla fram frœgum fulltrúum. Gífurlegum fjármunum hefur verið varið íkynningar. Góð fjárfesting hvernig sem allt endar í 13 borgum, þar af 11 evr- ópskum, ríkir mikil spenna í dag. Atkvæðagreiðsla Alþjóða Ólympíunefndarinnar um hvar halda skal sumar- og vetrarleik- ana árið 1992 fer fram í Lausanne í Sviss í dag og til hennar mæta 89 af 90 meðlimum nefndarinnar, en einn situr í fangelsi! Spennan er þó ekki öll tilkomin af íþrótta- áhuga, allir umsækjendurnir bíða milli vonar og ótta þar sem þeir hafa kostað til geysilegum fjárhæðum í kynningar á um- sóknum sínum. Sex borgir hafa sótt um sumar- leikana og tefla fimm þeirra fram frægum fulltrúum í Lausanne í dag: Barcelona á Spáni er talin lík- legasta borgin af þessum sex. Fulltrúar hennar verða Pasqual Maragall borgarstjóri og Felipe Gonzalez, forsætisráðherra Spánar. París, höfuðborg Frakklands, þykir einnig líkleg. Sjálfur Jacqu- es Chirac, forsætisráðherra Fra- kklands og borgarstjóri Parísar, verður í Lausanne. Með honum mætir Guy Drut, ólympíu- meistari í grindahlaupi 1976. Brisbane í Ástralíu teflir fram glæsilegasta fulltrúanum - borg- arstjóranum Sally Atkinson, og með henni er Herb Elliott, ólym- píumeistari í 1500 m hlaupi 1960. Birmingham, enska iðnaðar- borgin, sendir þrjár íþrótta- stjörnur. Sebastian Coe, hlaup- arann heimsfræga, Tessu Sander- son sem er ólympíumeistari í spjótkasti kvenna og síðast en ekki síst Bobby Charlton, ein- hvern frægasta knattspyrnumann í heimi fyrr og síðar. Amsterdam í Hollandi sendir knattspyrnusnillinginn Johan Cruyff og Fanny Blankers-Koen sem varð fjórfaldur ólympíu- meistari 1948. Með þeim í för er forsætisráðherra Hollands, Ruud Lubbers. Belgrad í Júgóslavíu er með látlausustu fulltrúana en enginn þeirra er þekktur utan heima- lands síns. Enginn á að hagnast á að halda leikana, samkvæmt hinni ólym- písku hugsjón. Þrátt fyrir það sat Los Angeles uppi með um 215 miljónir dollara, rúma 8 miljarða ísl. kr., í gróða eftir sumarleikana 1984. Það eru aðallega tekjur af sölu á sjónvarpsréttindum og auglýsingum sem mala gull fyrir gestgjafana. Þetta er ástæðan fyrir stórauknum áhuga á leikun- um en fyrir sumarleikana 1984 var Los Ángeles eini umsækjand- inn. Ekki er um jafnstórar fúlgur að tefla fyrir þá sem halda vetrar- leikana, enda eru þeir mun smærri í sniðum en sumarleikarn- ir. Það gerir minni bæjum kleift að blanda sér í slaginn og alls eru sjö á höttunum eftir vetrarleikun- um 1992. Það eru Falun í Sví- þjóð, Lillehammer í Noregi, Berchtesgaden í V.Þýskalandi, Cortina á Ítalíu, Albertville í Frakklandi, Anchorage í Banda- nkjunum (Alaska) og Sofia í Búlgaríu. Þessir sjö bæir kynntu sig fyrir Ólympíunefndinni í gær. Falun og Albertville voru fyrirfram taldir líklegustu kandídatarnir en þóttu ekki standa sig vel í kynn- ingunni. Berchtesgaden og Cort- ina þóttu sækja á en ekki er reiknað með að Anchorage, Lill- ehammer og Sofia eigi mikla möguleika þrátt fyrir jákvæða kynningu. Það er öllum umsækjendunum sameiginlegt að þeir hafa notað miljónir króna til að koma nafni sínu á framfæri, og til að kynna sig fyrir meðlimum Alþjóða Ól- ympíunefndarinnar. Állir eru þeir þó fullvissir um að fé og fyrir- höfn sé ekki kastað á glæ þó þeir verði ekki fyrir valinu, heldur sé þetta góð fjárfesting. Nafn þeirra er komið á landakortið. -BP/Noregi/V S/Reuter

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.