Þjóðviljinn - 30.10.1986, Síða 3

Þjóðviljinn - 30.10.1986, Síða 3
__________________FRETTIR_______________ BJ Mælirinn er fullur Starfandi Bandalagsmenn kœra Stefán Benediktsson fyrir Rannsóknar- lögreglunni vegna bankabókar íIðnaðarbankanum. Fasteignamarkaðurinn Stórtiækkun á íbúðaverði Blokkaríbúðir hafa hœkkað um 18% á síð- ustumánuðum. Paraf um8% íseptember. Söluverð íbúða hefur stór- hækkað á síðustu mánuðum, en mest hækkun varð í september. Þannig var verð blokkaríbúðar í Reykjavík rúmlega 30% hærra en gildandi fasteignamat í sept- ember, en þegar íbúðaverð var lægst á árinu í aprfl sl. var mun- urinn aðeins 12.2% Þetta jafngildir 16% hækkun söluverðs á fimm mánuðum og þar af varð rúm 8% hækkun í september. Þessar upplýsingar koma fram í nýjasta fréttabréfi Fasteigna- mats ríkisins. Einbýlishús á höf- uðborgarsvæðinu virðast á þess- um sama tíma hafa hækkað um 13% og aðrar íbúðastærðir á líka mikið. - lg etta er gjörsamlega út í hött. Nú er mælirinn fullur, sagði Stefán Benediktsson þingmaður í gær eftir að núverandi liðsmenn BJ höfðu kært hann til Rannsóknarlögreglu ríkisins m.a. vegna gruns um fjárdrátt. Þáttaskil urðu í gær í deilum fyrrverandi og núverandi liðs- manna BJ. Hinirnúverandi, Þor- steinn Hákonarson, Alfreð Guð- mundsson og Örn S. Jónsson, kærðu Stefán, Kristínu Waage, starfsmann þingflokksins og Iðn- aðarbanka Islands fyrir að halda fyrir sér fjármunum sem þeir ættu með réttu. í kærunni er því m.a. slegið fram að grunur leiki á að Stefán Benediktsson hafi notað fé úr þessum sjóði þeirra í eigin þágu. Fyrrverandi liðsmenn BJ endurheimtu hins vegar eftir langt þref bankabókina umdeildu í fyrradag og ætla að skila ríkisfé- hirði innistæðunni 5-600 þúsund krónum í dag. Um er að ræða bankabók með sjóði BJ; styrk til starfsemi þing- flokksins sem nefnd á vegum al- þingis úthlutar árlega skv. fjár- lögum. Fyrir hálfum mánuði þeg- ar deilurnar um reytur BJ tóku að harðna brugðu fyrrverandi liðs- menn BJ á það ráð að leita til lögfræðinga og Kjartans Gunn- arssonar formanns nefndarinnar sem úthlutar þessu fé. „Það var samdóma álit þessara manna að fénu bæri að skila til ríkisféhirð- is,“ sagði Stefán, „og það gerum við á morgun. Ef Iðnaðarbank- inn hefði hins vegar ekki tekið sér 10-12 daga umhugsunarfrest um það hver hefði umráðaréttinn yfir fénu, hefðum við verið búin að skila þessu fyrir löngu. Ég tel Iðn- aðarbankann hafa skaðað hagsmuni okkar verulega," sagði Stefán, „og fráleitt af bankanum að kyrrsetja fé fyrir þeim sem sannanlega hafa umráðaréttinn yfir því.“ Um ásökun þremenninganna um fjárdrátt sagði Stefán: „Þetta er gjörsamlega út í hött. Þeir taka stöðu á efnahagsreikningi BJ. í desember 1984, þar sem skráð er inneign á mínu nafni vegna út- lagðs kostnaðar og saka mig um óheiðarleika vegna þessa. Auðvitað hefur verð gerð grein fyrir þessum peningum ýmist með reikningum eða endur- greiðslum af hálfu alþingis. Ég mun íhuga hvort ég kæri þessa menn fyrir ærumeiðandi um- mæli, en það er athugandi um hvaða menn við erum að tala: Þeir sögðu allir af sér trúnaðar- störfum fyrir BJ 29. september sl. en fengu síðan áhuga á að fara í framboð, stilltu sjálfum sér upp á lista og vantar nú peninga í kosn- ingabaráttuna.“ -ÁI Kennarar Atkvæði um sameiningu HÍK-menn í skoðanakönnun um aðsamein- ast KÍ í BK. Talið þarnæstu helgi Igær og fyrradag fór fram skoð- anakönnun meðal rúmlega 1100 félaga í Hinu íslenska kenn- arafélagi um það hvort þeir sam- þykktu að leggja félagið niður og ganga til samstarfs við kennara í Kennarafélagi íslands í nýju fé- lagi, sem stofnað yrði uppúr BK, Bandalagi kennarafélaga, sem nú -ÖRFRÉTTIR— Ferðamenn til landsins í september voru rúm- lega 24 þúsund þar af um 10 þús. útlendingar. 9 fyrstu mánuði árs- ins komu rúmlega 180 þús. ferðamenn til landsins sem er 22 þúsund fleiri en á sama tíma í fyrra. Þar af eru tæplega 100 þús. erlendir ferðamenn. Súpukeppni sú fyrsta sinnar tegundar hér- lendis verður haldin á sviðinu í Broadway 13. nóvembern.k. Allir útlæröir matreiöslumeistarar fá að taka þátt í keppninni og fá þeir 15 mínútur til að laga sína úr- valssúpu. 40.430 dilkum var slátrað hjá Kaupfélagi Skag- firðinga í haust, en það er 560 færra en í fyrrahaust. Þá var lógað 5.541 fullorðinni kind sem er um 2000 fleiri en í fyrra. Meðal- þunginn í ár var 14.2 kg. en 14.5 í fyrrahaust. Karlþurrð blasir við í kennarastétt á næstu árum því konur virðast ætla að einoka kennarastarfið í æ ríkara mæli. Þannig voru aðeins 15 karlmenn af 122 nýjum nemend- um við Kennaraháskóla íslands í haust. Alþjóðleg danskeppni hefst í Súlnasal Hótel Sögu í kvöld. Þá verða dansaðir stað- aldansar en á sunnudagskvöld verður keppninni framhaldið og þá keppt í latín-dönsum. Auk ís- lenskra keppenda taka þátt dansarar frá Englandi, Noregi, Austurríki og Ástralíu. er samstarfsvettvangur HÍK og KI. Urslit könnunarinnar verða kunn um þarnæstu helgi. KÍ sagði sig fyrir nokkru úr BSRB og hefur fengið samnings- rétt gegnum BK, en HÍK á enn aðild að Bandalagi háskóla- manna. Grunnskólakennarar eru fjölmennastir í KÍ og framhaids- skólakennarar í HAK, en þau mörk eru þó mjög óglögg. Úrslit könnunarinnar eru til leiðbeiningar á næsta þingi HÍK sem samkvæmt lögum á að halda eftir ár. Þeir HÍK-menn sem lýst hafa jákvæði í könnuninni vilja að félögin sameinist í BK og starfi sem eitt félag, - og seinna meir jafnvel í einu félagi með enn öðr- um kennurum (í háskóla og Tækniskóla). Nei-atkvæði eru helst rökstudd þannig að best sé að BK sé bandalag allra kennar- afélaganna sem ekki verði lögð niður. - m Úr kennarastofunni í Ármúlaskóla í gær. Jóna Guðmundsdóttir gengur frá atkvæði sínu f HÍK-könnuninni. Eiríkur Páll Eiríksson settur trúnaðarmaður félagsins í skólanum fylgist með. (mynd: Sig). Vestfirðir/Forval Spenna á sunnudag Sjö nöfn tíðrœdd ífyrsta sœtið. Mikill áhugifyrir Svavari. Seinniumferðin23. nóvember Fyrri umferð í forvali Alþýðu- bandalagsmanna á Vestfjörð- um fer fram á sunnudag og eiga þátttakendur þá að tilncfna sex menn. Talsverð spenna ríkir um úrslit í fyrri umferðinni þarsem þar gefast bendingar um fyrsta mann á G-listanum, en sá sem þar sat, Kjartan Ólafsson, gefur ekki kost á sér nú. Taldar eru allgóðar líkur á að Alþýðubandalagið fái mann kjörinn á Veslfjörðum í næstu kosningum. Einn þeirra sem helst koma til greina, Þuríður Pétursdóttir bæjarfulltrúi á ísafirði, hefur þegar lýst yfir að hún gefi kost á sér í efstu sæti listans, en ekki virðist hafa skapast straumur um neinn einn mann í efsta sætið. Enn mun talsverður áhugi á að fá Svavar Gestsson í framboð vestra þótt hann hafi lýst yfir þátttöku í forvali í Reykjavík og er talið víst að hann fái margar tilnefningar í forvalinu. Magnús Ingólfsson bóndi í Önundarfirði, nú formað- ur kjrödæmisráðsins, og Sveinbjörn Jónsson formaður verkalýðsfélagsins á Súganda eru einnig umræddir, einnig þeir Kristinn H. Gunnarsson á Bol- ungarvík, sem þar vann góðan bæjarstjórnarsigur í vor, og hinn ísfirski fjölmiðlamaður Finnbogi Hermannsson. Síðustu daga hef- ur einnig æ oftar heyrst nefnt nafn Péturs Péturssonar læknis á Bolungarvík, bróður Páls Fram- sóknarþingmanns og Más hér- aðsdómara. Þá hafa heyrst raddir um Ólaf Ragnar Grímsson sem rekur ættir til ísafjarðar. Seinni umferð forvalsins fer fram sunnudaginn 23. nóvember. Utankjörstaðaatkvæða- greiðsla í fyrri umferðinni stend- ur yfir hjá trúnaðarmönnum í héraði og á flokksskrifstofu AB í Reykjavík. Þátt taka flokksmenn og þeir sem undirrita stuðnings- yfirlýsingu við flokkinn. Fimmtudagur 30. október 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Kosningalög Lausanefnd skipuð Neðri deild alþingis kaus í gær sérstaka nefnd til að fjalla um til- lögur að nýjum kosningalögum. Sú brey ting varð á eins og í öðrum 7 manna nefndum að fulltrúi Kvennalistans datt út, en Fram- sóknarmenn fengu tvo í stað eins fulltrúa áður. Kristín HaUdórs- dóttir hafði verið í þessari nefnd sl. 3 ár. í nefndina voru kosnir: Friðrik Sófusson, Gunnar G. Schram, Halldór Blöndal, Guðmundur Bjarnason, Páll Pétursson, Svav- ar Gestsson og Guðmundur Ein- arsson. Áhöld eru uppi um hvar staðsetja beri Guðmund Einars- son í kjördæmamálinu. Hann er sem stendur þéttbýlisþingmaður, kjörinn í Reykjanesi fyrir BJ en hyggur á framboð á Austurlandi fyrir krata. Þar ku ekki vera vin- sæl krafa þéttbýlisins um jöfnun atkvæðisréttar, hvað þá krafa BJ um eitt atkvæði á mann. Það eru því áhöld um hvort þéttbýlið eða strjálbýlið hefur meirihluta í nefndinni! _ ÁI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.