Þjóðviljinn - 30.10.1986, Side 13

Þjóðviljinn - 30.10.1986, Side 13
FRETTIR Sambandið Frystihúsreksturinn endurskoðaður SÍS stofnar eignahaldsfélag sem á að taka yfir rekstur frystihúsanna á Djúpavogi, Þorlákshöfn, Keflavík, Grundarfirði, Suðureyri, Patreksfirði og í Reykjavík Samband íslenskra samvinn- ufélaga hefur ákveðið að stofna eignarhaldsfélag, sem starfa mun á sviði útgerðar og fiskvinnslu. Stefnt er að því að félagið taki til starfa 1. janúar n.k. Stjórnir Sambandsins og Fé- lags Sambandsfiskframleiðenda hafa fjallað um málið á fundum sínum undanfarið og segir í bókun Sambandsstjórnar að „markmið hins nýja eignar- haldsfélags verður að efla arð- bæra útgerð, fiskvinnslu og versl- un með sjávarafurðir á vegum samvinnumanna.“ Ólafur Jónsson, sölustjóri og staðgengill framkvæmdastjóra Sjávarafurðadeildar Sambands- ins, mun verða framkvæmda- stjóri hins nýja fyrirtækis. í fyrstu mun starfsemi hins nýja félags beinast að rekstri sjö frystihúsa í eigu Sambandsins, dótturfyrirtækja þess og heima- manna á Djúpavogi, Þorláks- höfn, Keflavík, Grundarfirði, Suðureyri, Patreksfirði og í Reykjavík. Hátt á annað þúsund manns vinna við þessi fyrirtæki og í sumum tilfellum er um þýðingar- mesta vinnustað byggðarlagsins að ræða. Ólafur mun að líkindum taka sæti í stjómum allra þessara fyrirtækja og samræma rekstur í anda markmiða eignarhaldsfé- lagsins, segir í frétt frá Samband- inu. Sendiherrar Nýir frá Portúgal og Rúmeníu Hitaveitustjórar Harma afsögn Wilhelms Vestmannaeyjar Togbanni aflétt Þann 22. júlí 1986 gaf sjávarút- vegsráðuneytið út reglugerð um bann við togveiðum við Vest- mannaeyjar vegna mikils magns smáfisks í afla báta. Eftirlitsmaður ráðuneytisins kannaði svæðið á togbát frá Vestmannaeyjum um síðustu helgi og fengust á svæðinu fáeinir stórþorskar og dálítið af kola. Þar sem forsendur lokunar eru brostnar hefur ráðuneytið ákveð- ið að fella þegar úr gildi ofan- greinda reglugerð. Stjórn Sambands íslenskra hitaveitna hefur sent frá sér ályktun þar sem hörmuð er sú á- kvörðun bæjarstjórnar Akureyr- ar að víkja Wilhelm V. Steindórs- syni úr starfl sem hitaveitustjóra: „Stjórn SÍH harmar mjög þá ákvörðun bæjarstjórnar Akur- eyrar að víkja Wilhelm V. Stein- dórssyni úr starfi sem hitaveitu- stjóra. Wilhelm hefur unnið mjög gott starf á sviði hitaveitumála bæði hvað varðar tæknileg og fjárhags- leg málefni og nýtur víðtæks trausts þeirra sem að hitaveitu- málum starfa. Hitaveitumenn um land allt fylgjast vel með og hafa valið Wilhelm V. Steindórsson til forystu í samtökum sínum undan- farin ár og nú er Wilhelm einnig forseti samtaka norrænna hita- veitna. Stjórn SÍH telur það uggvæn- legt ef starfsmenn opinberra fyr- irtækja eiga það á hættu að vera sagt upp störfum fyrirvaralaust vegna þess að þeir halda opinber- lega fram sjálfstæðum skoðunum um rekstur fyrirtækjanna sem ekki falla að stefnu kjörinna bæjarfulltrúa,“ segir í samþykkt- inni. í stjórn Sambands íslenskra hitaveitna eiga sæti þeir Ingólfur Hrólfsson, hitaveitustjóri, Ingvar Baldursson, hitaveitustjóri, Jó- hannes Zoéga, hitaveitustjóri, Ingólfur Aðalsteinsson, hita- veitustjóri og Guðlaugur Sveins- son, hitaveitustjóri. Mýskipaður sendiherra Rúm- eníu, frú Cornelia Filipas, ný- skipaður sendiherra Portúgal, hr. Jósé Luis de Oliveira Nunes og nýskipaður scndiherra írak, hr. Peter Yousuf Jejonie afhentu í dag forseta ísiands trúnaðarbréf sín að viðstöddum utanríkisráð- herra, hr. Matthíasi Á. Mathie- sen. Síðdegis þáðu sendiherrar boð forseta Islands ásamt fleiri gest- um. Sendiherra Rúmeníu hefur að- setur í Kaupmannahöfn, sendi- herra Portúgal í Osló og sendi- herra írak í Helsinki. MINNING Þorbjörg Sigurðardóttir Fædd 15. júníl896 - Dáin 17. október 1986 Þorbjörg Sigurðardóttir and- aðist hinn 17. október á Hrafn- istu í Reykjavík. Henni auðnað- ist að lifa langan dag, því hún var nýlega orðin níræð. Það er æði hár aldur. Hún átti við mikið heilsuleysi að stríða síðustu ár ævinnar. Segja má að hvfldin hafi verið henni mjög kærkomin. Þorbjörg var fædd 15. júní 1896 á Þrándarstöðum, Borgar- fírði eystra. Foreldrar hennar voru hjónin Guðríður Jónsdóttir og Sigurður Steinsson. Faðir hennar stundaði jöfnum höndum búskap og sjósókn, eins og þá var algengt í sjávarplássum. Þorbjörg ólst upp hjá foreldr- um sínum ásamt 9 systkinum. Eins og gefur að skilja hefur verið nóg að starfa á bænum þeim, svona barnmörgu heimili. En þá var líka sjálfsagt, að börn færu snemma að hjálpa til við dagleg störf. Ugglaust hefur Þorbjörg átt góða og skemmtilega æsku með sinni stóru fjölskyldu. Annars er ég ekki nægilega kunnugur til að segja frá æsku hennar eða ung- lingsárum. Ung að árum fór Þor- björg að heiman, og stundaði m.a. húsmæðranám í skóla Jón- ínu Sigurðardóttur á Akureyri. Og ekki er það vafamál að sú fræðsla, sem hún fékk hjá þessari þjóðkunnu og mikilhæfu konu, hefur hjálpað henni mikið í líf- inu. Enda varð raunin sú að matr- eiðsla varð hennar lífsstarf. Segja má að hún hafí stundað matreiðslu og ráðskonustörf alla tíð. Og í öllum landsfjórðungum vann hún sem ráðskona í lengri eða skemmri tíma. En lengst var hún ráðskona hjá Þorsteini Þor- steinssyni, er lengi rak Litlu- Bflastöðina í Reykjavík. Það eru rétt um 40 ár síðan ég og fjölskylda mín kynntumst Þor- björgu fyrst. Hún leigði herbergi á sömu hæð og nánast í sömu íbúð og við. Kynnin urðu þegar mjög náin, enda var Þorbjörg ljúf í við- móti. Hún var vel greind og skemmtileg og átti sérdeilis auðvelt með að halda uppi sam- ræðum við hvern sem var. Okkur hjónunum verður löngum minnisstætt hve sonur okkar, Bragi Þór, þá 3ja ára, varð fljótt hrifinn af Þorbjörgu. Og þær urðu margar stundirnar, sem hann átti inni í herberginu hjá henni. Og þær voru líka margar sögurnar, sem hún sagði syni okkar, af álfum og góðlyndum tröllum, sem m.a. voru tengdar heimabyggð hennar. Einnig sagði hún Braga frá hin- um mikla listmálara, Jóhannesi Kjarval, er málaði ódauðleg lista- verk af hinum tignu og ægifögru fjöllum, sem gnæfa yfir Borgar- firði eystra. Og áður en Þorbjörg fluttist frá okkur höfðum við eignast tví- bura, Bryndísi og Björk, ög þeim reyndist hún eins og syni okkar mjög vel. Sambýlið við Þorbjörgu varaði í 6 ár. Og við erum henni þakklát fyrir þá vináttu, er hún sýndi okk- ur þessi ár og allar stundir síðan. Segja má að tengsl okkar við Þorbjörgu hafi haldist allt frá fyrstu kynnum, því að síðar bjuggum við í næsta nágrenni við hana og systur hennar Sigur- laugu. En þær systurnar áttu heimili saman í allmörg ár. Sigur- laug var ákaflega ljúf kona og el- skulegt að kynnast henni. Annars voru systurnar um margt ólíkar, en báðar miklar mannkosta kon- ur. Sigurlaug lést fyrir nokkrum árum. Og nú hefur Þorbjörg okkar lagt upp í ferðalagið mikla, eins og við gerum öll að lokum. Gísli Guðmundsson Fimmtudagur 30. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 FLÓAMARKAÐURINN Mig vantar vel með farið sófasett, ekki mjög stór. Sími 16818. Eigið þið vél í Skoda? Við eigum Skoda í fullkomnu á- standi utan þess að vélin er ónýt. Ef þið viljið kaupa Skodann (árg. 1980) eða selja okkur vél í hann, þá endilega hafið samband í síma 35899. Sv/hv sjónvarp Óska eftir sv/hv sjónvarþstæki. Þarf að vera í lagi. Uppl. í síma 27461. Tveir páfagaukar búr og fylgihlutir óskast fyrir tóm- stundaheimilið í félagsmiðstöðinni Árseli. Uppl. í síma 78944. Svört 21/2 mán. læða sem pissar í kassa og er hvers manns hugljúfi óskar eftir eigend- um. Uppl. í síma 28892 eftir kl. 4. Til sölu Auto-Bianci '78 Selst ódýrt. Sími 13269. Tvöfaldur eldhúsvaskur með stálborði og blöndunartækjum á kr. 500 og einfaldur eldhúsvaskur á k r. 100.-. Luxor lampi á kr. 200.-, og Ijóskastari á kr. 100.-. Sími 84716. Rafvirkjameistarar athugið Óska eftir vinnu við rafvirkjun. Þarf starfsþjálfun í faginu. Vs. 44921 næstu daga. Hjónarúm óskast Óskum eftir að kaupa notað en vel með farið hjónarúm á um það bil 10 þúsund kr. - Uppl. í síma 688365, eftir kl. 17. Til sölu Barnarimlarúm án dýnu. Einnig kemur til greina að skipta á því og góðu íslensku ullarteppi. Sími 33010. Til sölu skrifborð á kr. 2.500.- Uppl. í síma 20145, eftir kl. 16. Verkamannafélagið Dagsbrún Félagsfundur Verkamannafélagið Dagsbrún heldur félagsfund í Iðnó sunnudaginn 2. nóvember n.k. kl. 14. Fundarefni: 1. Félagsmál 2. Kjaramálin Framsögumaður: Þröstur Ólafsson.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.