Þjóðviljinn - 08.11.1986, Page 6
r
ÍÞRÖTTIR
Manchester United
Ferguson
■ ■ ■ ■ &L
tekinn vio
Stýrir liðinufyrsta skipti í dag,
gegn Oxford á útivelli
Alex Ferguson var í gærmorg-
un ráðinn framkvæmdasljóri
Alex Ferguson — verður hann jafn
sigursæll hjá Man. Utd og hjá Aber-
deen?
enska knattspyrnuliðsins Manc-
hester United, í staðinn fyrir Ron
Atkinson sem var sagt upp störf-
um í fyrradag.
Eins og fram kom í gær fóru
stjórnarmenn Manchester Unit-
ed beint til Skotlands í fyrradag
til að ræða við Ferguson, einn sig-
ursælasta framkvæmdastjóra á
Bretlandseyjum síðari ár. Á átta
árum hjá Áberdeen gerði hann
félagið þnvegis að skoskum
meisturum, fjórum sinnum varð
liðið bikarmeistari og sigraði í
Evrópukeppni bikarhafa árið
1983 - vann síðan Stórbikar Evr-
ópu síðar sama ár.
Ferguson stjórnar Manchester
United í fyrsta skipti í dag, í erfið-
um útileiic gegn Oxford.
-VS/Reuter
Hollandsmótið
„Eins lélegur og
hinir voru góðir!“
Hörmulegur leikur og24-26 tap gegn Hollandi. Leikið við
Holland-b í dag og Noreg á morgun. Bjarnifarinn
„Þessi leikur var eins lélegur og
hinir tveir fyrstu voru góðir. ís-
lenska liðið gerði sig sekt um
ótrúlegar klaufavillur, vörnin var
gatasía og markvarslan engin.
Það var alger óþarfi að tapa þess-
um leik, eðlileg úrslit miðað við
getu liðanna hefði verið 5-6
marka sigur íslands," sagði Þórð-
ur Sigurðsson, fararstjóri ís-
lenska landsliðsins í handknatt-
leik í samtali við Þjóðviljann I
gærkvöldi.
ísland tapaði þá 24-26 fyrir a-
liði Hollands á alþjóðlega mótinu
í Haarlem. Holland komst í 4-0,
ísland jafnaði 6-6 og náði forystu,
10-8. Staðan í hálfleik var 11-10,
íslandi í hag. Síðan var jafnt að
13-13, þá komst Holland í 16-13
og áfram í 21-18. ísland jafnaði,
22-2, þegar þrjár mínútur voru
eftir. „Lokamínúturnar voru
tómt rugl fram og til baka, Hol-
land skoraði tvö mörk, Héðinn
Gilsson minnkaði muninn, Hol-
land skoraði aftur þegar mínúta
var eftir, 26-24, og þar við sat,“
sagði Þórður.
Bjarni Guðmundsson stóð
uppúr í íslenska liðinu, Héðinn
kom inná þegar stutt var eftir og
gerði þrjú mörk, aðrir léku langt
undir getu. Mörkin gerðu Bjarni
9, Steinar Birgisson 6, Þorgils
Óttar Mathiesen 3, Héðinn Gils-
son 3, Árni Friðleifsson 2 og Jú-
líus Jónasson 1.
ísland leikur við b-lið Hollands
í dag og verður þá án Bjarna
Guðmundssonar. Hann keyrði
heim til Vestur-Þýskalands í gær-
kvöldi en hann á leik með
Wanne-Eickel á morgun. B-liðið
er búið að sigra bæði Noreg og
Bandaríkin á mótinu og er til alls
líklegt. Loks leikur Island við
Noreg á sunnudag en þá verða
Kristján Arason og Páll Ólafsson
mættir til leiks.
Holland-a er með 6 stig, ísland
og Holland-b 4 hvort, Noregur 2,
Bandaríkin og ísrael ekkert.
Noregur og ísrael léku seint í
gærkvöldi en úrslit lágu ekki fyrir
þegar blaðið fór í prentun.
-VS
Nottingham Forest
Clough hótar!
UEFA-bikarinn
Uerdingen-Barcelona!
Mörg stórlið koma til greina sem sigurvegarar í keppninni
Leikið vel, annars í landsleikjabann
Bayer Uerdingen, lið Atla Eð-
valdssonar og Lárusar Guð-
mundssonar, dróst í gær gegn
spænska stórliðinu Barcelona frá
Spáni í 16-liða úrslitum UEFA-
keppninnar í knattspyrnu. Uer-
dingen hefur enn ekki fengið á sig
mark í fjórum leikjum í keppn-
inni en það verður erfitt verkefni
að halda sóknarmönnum á borð
við Gary Lineker og Mark Hug-
hes í skefjum.
Dregið var í Zurich í gær en 3.
umferð UEFA-bikarsins verður
leikin 26. nóvember og 10. des-
ember. Að henni lokinni verður
dregið til 8-liða úrslita í öllum
Evrópumótunum þremur.
Þessi lið mætast í 3. umferð
UEFA-bikarsins:
borð við Barcelona, Inter Mi-
lano, Torino, Mönchengladbach
og Rangers koma sterklega til
greina sem sigurvegarar, Spartak
Moskva leikur sóknarknatt-
spyrnu eins og hún gerist best og
það er ekki hægt að útiloka að lið
á borð við Uerdingen, Gauta-
borg, pukla Prag og Beveren geti
sett strik í reikninginn.
-VS/Reuter
„Ef þið spilið ekki eins og menn
í Coventry á morgun kemur ekki
til greina að þið fáið að leika
landsleikina í næstu viku!“ til-
kynnti Brian Clough, fram-
kvæmdastjóri enska knattspyrn-
uliðsins Nottingham Forest, leik-
mönnum sínum í gær.
Clough var ekki ánægður með
frammistöðu Forest, efsta liðsins
í 1. deild, gegn Crystal Palace úr
2. deild í deildabikarnum á mið-
vikudagskvöldið en Forest vann
1-0.
Ef Clough stendur við hótun
sína rústar hann 21-árs landsliði
Englands en þar á Forest fjóra
leikmenn. Neil Webb er í A-
landsliðshóp Englands og þeir
David Campell og Gary Fleming
eru í Iiði Norður-írlands.
-VS
Knattspyrna
Sterkt lið Dana
Fatlaðir
Fundur í
Reykjavík
í dag, 8. nóvember, standa íþrótt-
asamband Fatlaðra og Svæðisstjórn
um málefni fatlaðra í Reykjavík fyrir
kynningu á starfsemi ÍF í Laugardals-
höUinni. Fulltrúar frá ÍF halda fyrir-
lestra, sýna stutt myndband og svara
fyrirspumum. Síðan verður efnt til
fþróttakeppni þar sem þátttakendur
fá tsekifæri til að spreyta sig á hinum
ýmsu íþróttagreinum sem fatlaðir
leggja stund á. Þarna geta allir, faU-
aðir sem ófatlaðir, kynnst af eigin
raun hvaða möguleika fatlaðir hafa til
íþrótta- og tómstundastarfa.
Dundee United-Hajduk Split
Ghent-Gautaborg
Groningen-Guimaraes
Dukla Prag-lnter Milano
Rangers-Mönchengladbach
Torino-Beveren
Uerdingen-Barcelona
Spartak Moskva-Swarovski Tyrol
UEFA-bikarinn hefur sjaldan
verið litríkari en í ár. Stórlið á
Kópavogur
Aðalfundur
ÍK
Aðalfundur íþróttafélags Kópa-
vogs verður haldinn í Þinghóli við
Hamraborg laugardaginn 15. nóvem-
ber og hefst kl. 16. Á dagskrá em
venjultg aðalfundarstörf.
Glíma
John Holllns má búast við upp-
sögn fljótlega ef slakt gengi Chelsea
heldur áfram.
Elkjær og Laudrup aftur með
Preben Elkjær og Michael
Laudrup, framherjarnir snjöllu,
eru á ný I landsliðshópi Dana fyrir
Evrópuleikinn gegn Tékkum f
Bratislava á miðvikudaginn.
Báðir misstu af leiknum við Finna
á dögunum og Dönum gekk herfi-
lega illa uppvið markið án þeirra
en tókst þó að merja 1-0 sigur.
Flestar stjörnur Dana eru í
hópnum, svo sem Morten Olsen,
John Sivebæck, Sören Lerby, Jan
Mölby, Jesper Olsen, Klaus
Berggren og þeir Laudrup og El-
kjær.
-VS/Reuter
England *
Hollins
næstur?
Chelsea stendur höllumfœti
Sýningarflokkur af stað
GLÍ búið að ráðaframkvœmdastjóra. Kynningarframundan
Glímusamband íslands hefur
komið á fót sérstökum sýningar-
flokki með það að markmiði að
sporna við fótum og hefja þjóðar-
íþróttina til vegs og virðingar á
nýjan leik. Flokkurinn er þegar
tekinn tU starfa, var strax pantað-
ur tU sýningar í skóla í fyrra-
kvöld.
Sigurður Jónsson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Glím-
usambandsins og verður á skrif-
stofu þess í húsakynnum ÍSÍ á
miðvikudögum kl. 10-12.30 og
13.30-18.30. Hann hefur umsjón
með sýningarflokknum og mun
starfa að útbreiðslustarfi og
kynningu á íþróttinni, m.a. með
því að útvega þjálfara og
leiðbeinendur fyrir skóla og félög
víðsvegar um landið. „Við stefn-
um að því að ná til gamalla glímu-
manna og fá þá til að aðstoða við
útbreiðsluna. Hjá okkur er ný-
lokið kennaranámskeiði þar sem
10 þjálfarar voru útskrifaðir
þannig að við stöndum þokka-
lega að vígi,“ sagði Sigurður.
Reglugerð um gráðukerfi er í
smíðum hjá Glímusambandinu
og verður það með svipuðu sniði
og kerfi þau sem júdó- og karate-
menn keppa eftir. Væntanlega
verður byrjað að keppa eftir því á
næsta ári.
í Reykjavík eru tvö félög með
reglulegar æfingar, KR-ingar í
Melaskóla kl. 19 á þriðjudögum
og föstudögum, og Víkverjar í
Steinabæ (undir Laugardalsstúk-
unni) kl. 18.50 á mánudögum og
fimmtudögum. Auk þess er
Glímusambandið með kennslu í
Steinabæ kl. 18.50 á miðviku-
dögum. -VS
Ron Atkinson var rekinn í
fyrradag - annar stjóri í ensku
knattspyrnunni stendur mjög
höllum fæti og fær sennilega að
fjúka einhvern næstu daga nema
stórvægilegar breytingar eigi sér
stað. Það er John Hollins hjá
Chelsea, en lið hans hefur verið á
svipuðum slóðum og Manchester
United það sem af er keppnis-
tímabilinu, við botn 1. deildar.
Chelsea leikur gegn Everton á
útivelli í dag. Erfiður leikur og
ekki bætir úr skák að Steve Wicks
og John Bumstead eiga við
meiðsli að stríða og óvíst hvort
þeir geti leikið. Hinsvegar leikur
fyrirliðinn Colin Pates með á ný
en hann hefur misst af tveimur
leikjum vegna meiðsla. Trevor
Steven, landsliðsmaður hjá
Everton, er meiddur en leikur
samt sennilega með.
Paul Goddard leikur sinn
fyrsta leik með Newcastle en
hann var keyptur frá West Ham.
En landsliðsmiðherjinn Peter
Beardsley verður ekki við hlið.
hans í framlínu liðsins, hann er
meiddur og missir líklega af
landsleik Englands og Júgóslavíu
í næstu viku.
Ian Bowyer, fyrirliði Notting-
ham Forest, leikur á ný með liði
sínu gegn Coventry, sem hefur
endurheimt markaskorarann
Cyrille Regis. Báðir þessir hafa
verið meiddir.
Bryn Gunn leikur væntanlega
sinn fyrsta leik í marki Norwich í
dag, gegn Tottenham, en hann
var keyptur frá Aberdeen fyrir
150 þúsund pund fyrir skömmu.
-VS/Reuter
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 8. nóvember 1986