Þjóðviljinn - 08.11.1986, Blaðsíða 8
MENNING
-MENNINGARMOLAR-
Ástin grípur
unglingana
Út er komin hjáMáliog menn-
ingu bókin MEÐ STJÖRNUR í
AUGUM eftir Andrés Indriða-
son. Andrés er þekktur höfundur
margra bóka handa börnum og
unglingum auk þess sem hann
hefur samið leikrit og handrit
fyrir sjónvarp og kvikmyndir.
MEÐ STJÖRNUR í
AUGUM er saga um ungt fólk
fyrir ungt fólk. Hún segir frá Sif
sem er sautján ára í fjórða bekk
MR og verður ástfangin í skóla-
bróður sínum, Arnari, sem er ári
eldri.
Niðjatal
Magnúsar Ormssonar, hafn-
sögumanns og skipasmiðs frá
Gróubæ á Eyrarbakka, og konu
hans, Gróu Jónsdóttur, er komið
út. Þau bjuggu á Bakkanum í 50
ár og eru afkomendur þeirra 210.
Framættir hjónanna eru í bók-
inni, teknar saman af Sigurgeir
Þorgrímssyni ættfræðingi. Nafna-
skrá er aftast og telur um 1180
nöfn. Bókina hefur Magnús Þor-
bjömsson tekið saman og er hann
jafnframt útgefandi.
BLÖKKUKONA
vaknar af svefni
Alice Walker. Purpuralltur.
Ólöf Eldjárn þýddl. Forlagið.
Ekki er erfitt að skilja það,
hvers vegna þessi metsöluskáld-
saga Alice Walker hefur notið
mikilla vinsælda. Hún er að formi
til sendibréf blökkukonu í Suður-
ríkjunum, fyrst til guðs en síðan
til systur hennar í Afríku - og
framan af að minnsta kosti - er
hvert bréf hlaðið atburðum sem
enst hefðu mörgum nítjándu
aldar höfundum í heila skáld-
sögu. Framvindan er hröð og
ekki sparaðir sterkir litir. Þar að
auki er þetta þroskasaga sem
lætur óskir margra rætast:
blökkukona, fædd í eymd og
niðurlægingu, rís upp, skiptir um
vitund, sigrast á aðstæðum.
Alice Walker kann margt til
þeirra hluta sem halda athygli les-
andans vakandi. Best nýtur hún
sín í fyrrihluta sögunnar - áður en
Celie, sögukonan, skiptir um
ham, gerir sína uppreisn gegn
guði og körlum og hvítum
mönnum. Við sjáum fyrir okkur
samfélag sem einkennist af hin-
um hörmulega tröppugangi of-
beldisins: hvítir menn sparka í
svarta, svartur karlmaður lemur
svo konuna sína og börnin. í
þessum heimi skín ekki sól. Faðir
Celie (sem betur fer reynist hann
„bara“ stjúpi hennar þegar upp-
íýsingar eru fram dregnar síðar)
nauðgar henni og barnar hana
tvisvar - og kemur henni síðan af
höndum sér til sæmilega efnaðs
PÚLITZER-VF.HOLAUNIN 1»B3
PURPURA
LITURINN
AI.1CE WAI.KEIi
svertingja, sem er engu skárri
þrælahaldari gagnvart konu og
börnum en hvítir menn hafa ver-
ið. Eina huggunin er að þetta líf
sé bráðum búið. Eina uppreisnin
sem möguleg er er að hrækja í
glasið hjá einhverjum karlfjand-
anum.
Síðan kemur Shug Avery,
blússöngkona sem maður Celie,
Albert, hefur alltaf elskað, inn í
líf hennar og loks fer sólin að
skína með grun um að öðruvísi líf
sé mögulegt og með styrk í vin-
áttu við Shug, sem ber sterkan
lesbiskan keim. En nú fer allt að
verða reyfaralegra - það gamla
bragð rómansins, að týndu bréfin
koma fram seint um síðir, tekur
við því að reka söguna áfram um
stund. Bréfin hefur eiginmaður-
inn falið - þau eru frá Nettie,
systur Celie, sem flúði eymdina
fyrir margt löngu og starfar með
svörtum trúboðshjónum í Afr-
íku, en þau hafa einmitt tekið að
sér bömin hennar Celie og
gengið þeim í foreldra stað. Boð-
skapur þessara bréfa og sjálf sú
staðreynd, að eiginmaðurinn hef-
ur stfað þeim systrum sundur,
verða til að fylla mælinn. Celie
segir skilið við sinn karl, gerist
sjálfstæð saumakona í skjóli Shug
- segir meira að segja upp holl-
ustu við þann gamla hvíta skrögg
sem hún hafði kallað guð („Hann
lætur alveg eins og allir hinir karl-
arnirsem égþekki. Ómerkilegur,
gleyminn og smáskítlegur.").
Um leið verður Nettie vitni að
hörmungum efnahagslegrar ný-
lendustefnu og upphafi afrískrar
vakningar. Málalok eru farsæl.
Fyrri hluti sögunnar laðar les-
andann að sér, freistar hans með
sínum hráa trúverðugleika. En
uppreisnin, vitundarvakningin
og Afríkusagan uppfylla ekki
sömu kröfur. Stökkið sem Celie
tekur er ótrúlega stórt og það
kemur ekki heim og saman við
sögutímann. Á skammri stund er
þessi lítt læsa og fáfróða blökku-
kona og vinkona hennar búnar að
koma sér upp ekki aðeins sjálfs-
virðingu, viðleitni til að skilja við
það líf sem þær hafa lifað. Nei -
við eigum að trúa því, að þær séu
þegar fyrir röskum fjörutíu árum
búnar að koma sér upp hugmynd-
um sem einkenna síðustu bylgju
kvennahreyfingarinnar - svartri
kvennaguðfræði í bland við norn-
aseið - (Celie hneppir bónda sinn
í álög og gengur það allt eftir).
Auk þess er Afríkusagan öll eins
og „saumuð með hvítum þræði“ á
söguvefinn, og skrifuð eins og úr
fjarlægð hálfþekkingar - sem
verður bagalegt í samanburði við
þá trúverðugu nálægð sem setur
svip sinn á fyrrihlutann.
I rauninni er miklu betur sögð
og trúverðugri saga Sofiu, kon-
unnar sem stjúpsonur Celie tók
saman við, Sofiu sem barði frá
sér, sem svaraði bæjarstjóranum
fullum hálsi og galt fyrir með
frelsi sínu, og vísar að lokum frá
sér ungri hvítri konu, sem hún
hafði alið upp, þegar þessi fóstur-
dóttir gerir kröfu til að eiga henn-
ar tilfinningar áfram og flytja þær
yfir á barn sitt.
Ólöf Eldjárn hefur þýtt þessa
bók og lendir í þeim vanda að
íslenska er hvergi nærri eins lag-
skipt mál og amrísk enska. Án
samanburðar við enska textann
sýnist lesanda í fljótu bragði að
hún hafi komist allvel frá þeirri
raun - má þó vera að óþarft hafi
verið að sleppa ýmsu sem við
erum vön að hafa með í íslensk-
um setningum í þeirri von að frá-
sagnarmáti lítt lærðrar blökku-
konu komi betur fram. Best fer á
því í þýðingunni þegar stílað er
blátt áfram á einfaldleikann ei-
lífa. ÁB.
Stjörnugjöf: ★ ★★★ frábær, ★★★ mjög góð, ★★ sæmileg, ★ uppfyllir lágmarks kröfur, 0 léleg
Nokkrar af
BÆJARINS
BESTU
Með dauðann á hælunum
(Stjörnubíó) Stella í orlofi ★★★
(Austurbæjarbíó) Purpuraliturinn ★*
(Austurbæjarbíó) Mona Lisa ★ ★1/2
(Bíóhöllin) Eftir miðnætti ★ ★
(Bíóhöllin) Hanna og systurnar ★ ★★
(Regnboginn) Hálendingurinn ★ ★★★
(Regnboginn) ★ ★1/2
Lísa á grafarbakkanum
★★
Draumabarn (Dreamchlld)
Ensk-amerísk, 1985.
Lelkstjórl: Gavln Mlllar. Handrit:
Dennis Potter. Framlelðandl:Rlck Mc-
Callum. Kvlkmyndataka: Bllly Wllli-
ams. Tónllst: Stanley Myers. Brúður:
Jim Henson.
Helstu lelkarar: Coral Browne, Nlcola
Cowper, lan Holm, Peter Callagher,
Amella Shankley og Jane Asher.
Það er viss spenna því samfara, að
bregða sér í bíó og sjá mynd, sem
maður veit svo gott sem ekkert um.
Væntingarnar eru svo til engar, suma
leikaranna kannast maður við, aðra
ekki, leikstjórann hefur maður
aldrei heyrt nefndan, og eftir að hafa
lesið auglýsingu í dagblöðum og séð
plakat myndarinnar, er ómögulegt
að segja til um hvort hér er á ferðinni
barna- eða fullorðinsefni. Og það
leiðir hugann, í þessu ákveðna til-
felli, að öðru: Var Lísa í Undralandi
skrifuð fyrir börn eða fullorðna, eða
kannski hvort tveggja?
Áður en lengra er haldið, er rétt
að geta þess, að kvikmyndin sem hér
á að vera til umfjöllunar heitir því
væmna nafni Draumabarn, og fjallar
um ferðalag gamallar konu og ungr-
ar hjálparhellu hennar til Bandarfkj-
anna árið 1932. Þessarar gömlu
konu, sem heitir Alice Hargreaves
(Coral Browne), bíður heiðursdokt-
orsnafnbót við Kólumbíuháskóla í
New York, í tilefni aldarafmælis
Lewis Carrolls, þess sem skrifaði
furðuævintýrið um Lísu í Undra-
landi. Þessi gamla kona, sem einu
sinni var ung og heillandi stúlka með
auðugt ímyndunarafl, var fyrirmynd
Carrolls, eða Charles Dodgsons eins
og hann hét víst, að hnátunni Lísu.
Og hvernig er svo myndin? Jú,
þokkaleg, kom reyndar þægilega á
óvart. Hér er að vísu ekkert stórvirki
á ferðinni, en frásögnin hefur yfir sér
ákveðinn sjarma.
Milli þess sem Alice gamla reynir
að fóta sig í Undralandi
milljónaborgarinnar, sækja að henni
æskuminningar, minningarnar um
hinn einkennilega og viðkvæma
Dodgson, sem sagði skrýtnar sögur
af hégómagjörnum héra og furðu-
legum hattara, sögur sem hann
seinna gaf út og tileinkaði drauma-
dísinni sinni, sem var alltof ung til
þess að skilja ástina að baki gjöfinni.
En það er ekki einungis Dodgson
sem sækir að gömlu konunni. Það
gera nefnilega hérinn og hattarinn
einnig. Á leið sinni að grafarbakkan-
um rambar Alice gamla milli ólíkra
Undralanda, úr takti við stað og
stund.
Coral Browne fer hreint prýðilega
með hlutverk aldraðrar Lísu og
sömuleiðis Amelia Shankley með
hlutverk unglambsins. Nicola Cow-
per er einkar heillandi fylgismær
gömlu konunnar og Ian Holm dregur
upp skýra mynd af Dodgson, alias
Carroll. Hann leikur á þessum
lúmsku millinótum, sem einkenna
aðdáun eldri manna á litlum stúlk-
um. Það er aldrei hægt að segja til
um það með fullri vissu af hvaða
toga, eða hvers kyns slík aðdáun er.
Ég er ekki frá því að Gunnar Eyjólfs-
son hafi einmitt náð þessu í Átóm-
stöðinni (þótt fiðringur Búa Ár-
lands, stórkaupmanns og doktors,
hafi eflaust verið grárri).
H.O.
Vegurinn
til Mekka
frumsýndur á sunnudag
Leikritið Vegurinn til Mekka eftir s-afríska leikrita-
skáldið Athol Fugard verður frumsýnt hjá Leikfélagi
Reykjavíkur á sunnudag. Fugard er í hópi þekktustu
leikritahöfunda samtímans, og fjallar þetta verk hans um
rétt manneskjunnar til frelsis og sjálfstæðis og rétt henn-
ar til þess að takast á við eigin örlög. Fjallar leikurinn um
roskna konu sem fæst við höggmyndalist og átök hennar
við samfélagið, og á konan sér fyrirmynd í raunveruleik-
anum í suðurafrísku þorpi, en Fugard hafði spurnir af
henni og samdi um hana þetta leikrit. Leikstjóri sýning-
arinnar er Hallmar Sigurðsson, en leikendur eru þau
Sigríður Hagalín, Guðrún Gísladóttir og Jón Sigur-
björnsson. Með þessari sýningu er jafnframt haldið upp á
40 ára leikafmæli Sigríðar Hagalín.
Sigríður Hagalín í hlutverki Helen í Vegurinn til Mekka.
Café Teatret
frá Kaupmannahöfn á Litla sviðinu
Rétt er að vekja athygli leikhúsunnenda á gestaleik
sem fluttur verður á Litla sviðinu í Þjóðleikhúskjallaran-
um á þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld í
næstu viku, en þá mun Café-teatret frá Kaupmannahöfn
bjóða upp á sýningu á suður-afríska leikritinu Woza Al-
bert, sem flutt verður af suður-afrísku blökkumönnunum
Michael Simpson og Nik Abraham og tónlistarmannin-
um Risenga Makondo. Þótt leikritið sé flutt á frummá-
linu, þ.e. blöndu af ensku, zulu og afrikönsku, þá hefur
það notið óhemju vinsælda jafnt í S-Afríku, Lundúnum,
New York eða Kaupmannahöfn, en leikurinn fjallar um
upprisu Jesú í S-Áfríku, og hafa gagnrýnendur lýst
leiknum sem „sprenghlægilegri túlkun á ljótu kerfi“ að-
skilnaðarstefnunnar, er veiti aðra innsýn í heim blökku-
manna en þá sem yfirleitt er gefin í fjölmiðlum. Heim-
sókn þessi er liður í leikför Café-teatret um öll Norður-
lönd. ólg.