Þjóðviljinn - 22.11.1986, Síða 1
Laugardagur 22. nóvember 1986 267. tölublað 51. órgangur
Þá var kynnt skýrsla starfshóps
Rannsóknarráðs ríkisins um
stefnumótun á sviði tölvu- og
upplýsingatækni hér á landi í
framtíðinni. Páll sagði við það
tækifæri að öll vestræn ríki væru
komin með áætlun um þessi mál
og íslendingar gætu náð í skottið
á þessari þróun ef vel væri staðið
að málum. Páll sagðist hins vegar
ekki vera bjartsýnn á að nægi-
legar fjárveitingar fengjust til
þessara verkefna.
Tillögur nefndarinnar eru í
stuttu máli á þá leið að tölvu- og
upplýsingatækni verði efld hér á
landi og hún nýtt betur í þágu
atvinnulífsins. Veitt verði sérstök
fjárveiting til þess að byggja upp
upplýsingaiðnað, að jafnaði 65
milljónir króna á ári í 4 ár, áætl-
unin og fjárveiting til hennar
verði þó endurskoðuð árlega.
Ekki voru allir aðilar þessarar
skýrslu jafn svartsýnir og Páll.
ASÍ
Formennirnir
funda
Formannafundur ASÍ verður
haldinn á morgun, en þar verður
tekin ákvörðun um það hvernig
staðið verður að næstu kjara-
samningum og hvaða áherslur
verða settar á oddinn í kröfugerð-
inni.
Að sögn Ásmundar Stefáns-
sonar forseta ASÍ hefur mið-
stjórnarsamþykkt ASÍ víðast
hvar fengið góðan hljómgrunn
innan Alþýðusambandsins, en
þar er lögð áhersla á hækkun
Íægstu launanna, afnám launam-
isréttis kynjanna og á milli
landshluta, auk þess sem þar er
lagt til að hlutur fastakaupsins í
bónuskerfinu verði hækkaður.
Ásmundur taldi líklegt að í
ákveðnum málum verði heildars-
amflot og í öðrum geri félögin og
samböndin sérsamninga.
Að sögn Ásmundar hefur lítið
áþreifanlegt komið á borðið eftir
viðræður sambandanna við VSÍ.
Pórarinn V. Þórarinsson formað-
ur VSÍ virtist frekar svartsýnn
eftir viðræðurnar: „Mitt mat er
að þetta verði örugglega mjög
erfitt og að lausn finnist ekki
nema með heildarstefnumótun
verkalýðshreyfingarinnar" sagði
Þórarinn.
-K.Ól.
Pétur Pétursson með bókina nýútkomnu á sögulsóðum við Suðurgötu 14. Þangað var stefnt 400 manna liði vopnuðu..
65 ár
„Hvrta stríðið" enn viðkvæmt
Ný bók með frumheimildum um átökin útaf rússneska drengnum
Amorgun 23. nóvember, eru 65
ár liðin sfðan þau furðulegu
tfðindi urðu í Reykjavík, að 400
manna vopnað lið umkringdi hús
þess fræga alþýðuforingja Ólafs
Friðrikssonar við Suðurgötu í
Reykjavík til að taka þaðan með
valdi rússneskan fósturson Ólafs
og senda hann nauðugan úr landi.
Þetta mál dró langan slóða á eftir
sér um þjóðlffíð segir Pétur Pét-
ursson sem hefur safnað til
heimildarrits um þessa atburði
sem nú er út komið.
Bókin heitir „Réttvísin gegn
Ólafi Friðrikssyni og fleirum" og
kemur út í Ritsafni Sagnfræði-
stofnunar sem Jón Guðnason rit-
stýrir. Pétur Pétursson og Har-
aldur Jóhannsson sáu um útgáf-
una.
Pétur sem hefur margt skrifað
um þetta efni, skrifar ítarlegan
inngang um málið, og rekur þar
með tilvísunum til skjala, blaða-
greina, kveðskapar, fundargerða
verkalýðsfélaga ofl. hve margvís-
legar afleiðingar „drengsmálið"
Ólafs hafði út um þjóðlífið. í
stuttu spjalli við blaðið lét hann
þess getið, að engu væri líkara en
að mál þetta væri viðkvæmt enn í
dag. Til dæmis hefði orðið fyrir-
staða á því að hann fengi afhent
gögn er málið varðar í Ríkis-
skjalasafninu danska (þar er á
þeim sérstakt áttatíu ára bann) -
en hafði þó áður tekist að ljósrita
ýmislegt úr því safni. Þá var það
og til trafala að margt hefur farið
úrskeiðis með varðveislu gagna
er varða lögreglustjóraembættið í
Reykjavík.
Virðisaukaskattur
Almenningur borgar meira
Frumvarp um virðisaukaskatt til stjórnarliða eftir helgi. Gert ráð fyrir
gildistöku í ársbyrjun ’87. Matvörur hœkka um tíu prósent
r
| frumvarpi um virðisaukaskatt
sem tekið verður til umræðu í
þingliði stjórnarflokkanna strax
eftir helgi er gert ráð fyrir að
skatturinn verði 24% og leggist á
1. janúar 1987. Við umskiptin frá
söluskatti í virðisaukaskatt er
gert ráð fyrir að matvörur hækki
að meðaltali um rúm 10 prósent,
og er í plöggum stjórnarinnar
gert ráð fyrir að árshækkun á
framfærsluvísitölu verði 1,2%
við breytinguna. Forystu-
mönnum stjórnarandstöðu var
kynnt frumvarpið í gær.
Virðisaukaskattur uppá 24% á
að gefa af sér 18,1 miljarð, og er
gert ráð fyrir að þar af renni 2,65
miljarðar í sérstakar mildunar-
ráðstafanir, 1150 miljónir til
hækkunar á barna- og lífeyrisbót-
um og til að greiða niður húshit-
unarkostnað, 550 miljónir til að
bæta uppá afnám tolla og vöru-
gjalds á matvöru, og 950 miljónir
til að auka niðurgreiðslur á bú-
vöru.
Þó er gert ráð fyrir að matvara
hækki að meðaltali um 10-11
prósent.
Hlutur almenningsneyslu í
virðisaukaskattinum er í fylgi-
plöggum frumvarpsins talinn um
80% en er um 70% af söluskattin-
um, og minnkar hlutdeild fyrir-
tækja í skattgreiðslunni að sama
skapi.
- m
Tölvu- og upplýsingatœkni
Jaðrar við stórslys
Ný skýrsla kynnt um tölvu- og upplýsingatœkni. Hörð gagnrýni
höfunda á þátt yfirvalda. Páll Kr. Pálsson, á Iðntœknistofnun: Stjórnvöld hafa
sýnt tómlœti og lítið gert þessum málum til framdráttar
Kjarninn í þessu máli nú er sá
að síðustu 10 til 15 ár hefur
verið skrifað og skrifað um þessi
mál, hver skýrslan kynnt af ann-
arri, eins og þessi nú, en ekkert
hefur gerst, yfirvöld hafa sýnt
þessu tómlæti, lítið gert til að
skapa forsendur þess að eðlileg
þróun verði í þessum málum hér á
landi, sagði Páll Kr. Pálsson,
framkvæmdastjóri Iðntækni-
stofnunar Islands í gær.
Páll Jensson hjá Reiknistofnun
Háskólans, sagðist hafa trú á að
þessi áætlun næði fram að ganga
þar sem hér væri um svo geysi
mikilvægt verkefni að ræða.
„Þessi mál koma til með að hafa
víðtæk áhrif á allar atvinnugrein-
ar í landinu og daglegt líf almenn-
ings“, sagði Páll. „Það er þó
ljóst“, bætti hann við, „að það
jaðrar við að mikið stórslys sé að
eiga sér stað hvað varðar aðstöðu
Háskóla íslands til að sinna þess-
um málum.“
-IH
Ólymípuskákin
Með fræknum sigri á sterku
liði Argentínu skaust íslenska
sveitin á Ólympíumótinu i Dubai í
efsta sætið sem hún deilir með
stjörnuliði Sovétmanna, skipuðu
núverandi, fyrrverandi og tilvon-
andi heimsmeisturum. íslending-
arnir tefla að öllum líkindum við
Sovétmenn í dag.
Jóhann og Margeir unnu and-
stæðinga sína á öðru og fjórða
borði í gær, Helgi og Jón L. gerðu
jafntefli, - og þarmeð hefur ís-
lenska sveitin snemma f mótinu
unnið eftirminnilegt afrek.
Sjá SÍÖU 3 ~ m