Þjóðviljinn - 22.11.1986, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 22.11.1986, Blaðsíða 14
Forval Alþýðubandalagsins í.Reykjavík 2 FRAMBJÓÐENDA Forval Alþýöubandalagsins í Reykjavík vegna Alþingiskosninga ferfram laugardaginn 29. og sunn- udaginn 30. nóvember nk. Þeir sem ekki geta komiö því við að_ vera í Reykjavík forvalsdagana er gefinn kostur á að kjósa utan forv- alsfundar í sérstakri forkosningu, sem hefst nk. laugardag kl. 13.00. Atkvæðagreiðslan í forvalinu fer_ þannig fram, að kjósandi ritar töl- urnar 1 - 7 við nöfn á listanum eins og hann vill að mönnum verði raðað á framboðlista. (2. sæti er sá kjörinn, sem flest atkvæði fær í_ hvert sæti. í 2. til 7. sæti er sá kjör- inn, sem flest atkvæði fær í hvert sæti. Við talningu atkvæða í hvert sæti fyrir sig skulu talin án vægis þau atkvæði sem frambjóðandi_ hefur hlotið í efri sætum. Rétt til að greiða atkvæði í forvali hefur hver sá félagi ABR, sem fullgildur er samkvæmt flokks- og félagslögum og nánari skil- greiningu félagsstjórnar, eðá gengur í félagið ( síðasta lagi 60 klst. fyrir upphaf forvalsfundar, Álfheiður Ingadóttir f. 1.5.1951, blaðamaður, Fjólu- götu7. Álfheiður lauk B.Sc. prófi ílíf- fræði frá Háskóla íslands 1975 og kenndi líffræði við Mennta- skólann í Reykjavík 1975-1976. Álfheiður hefur verið blaðamað- ur á Þjóðviljanum frá 1977. Hún var varaborgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins 1978-1982 ogfor- maður umhverfismálaráðs fyrra kjörtímabilið. Álfheiður tók þátt í stofnun Kvennaathvarfsins í Reykjavík og er nú gjaldkeri Samtaka um kvennaathvarf. Hún á sæti í stjórn ABR og er varafor- maður framkvæmdastjórnar Al- þýðubandalagsins. Arnór Pétursson Fæddur 14.11.1949, fulltrúi í líf- eyrisdeild Tryggingarstofnunar, Stífluseli 2. Arnór er gagnfræðingur frá Gagnfræðaskóla Akraness 1966 og lauk stýrimannsprófi frá stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1971. Arnórer formaður íþrótt- afélags fatlaðra í Reykjavík og hefur verið það frá stofnun þess að einu ári undanskildu. Hann hefur unnið að félags- og réttind- amálum fatlaðra á ýmsum svið- um sl. 10 ár. Hann er fulltrúi BSRB í stjórnskipaðri nefnd sem fjallar um réttindamál fatlaðra. Árnór hefur átt sæti í stjórn ABR sl. fjögur ár og er formaður Breiðholtsdeildar félagsins. Hann hefur átt sæti í miðstjórn AB frá 1982 og er varafulltrúi ABR í íþróttaráði frá sama tíma og umferðarnefnd frá síðastliðnu vori. Ásmundur Stefánsson Fæddur í Reykjavík 21. mars 1945. Lauk hagfræðinámi frá Kaup- mannahafnarháskóla 1972. Starf- aði hjá Hagvangi 1972-1974. Ráðinn hagfræðingur ASÍ1974. Lektor við Háskóla íslands 1978- 1979. Framkvæmdastjóri ASÍfrá árinu 1979. Kjörinn forseti ASÍ 1980 og endurkjörinn 1984. Hef- ur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Alþýðusambandið. Fyrst kjörinn í miðstjórn Alþýðu- bandalagsins 1976. Situr nú í framkvæmdastjórn Alþýðu- bandalagsins og stjórn verkalýðs- málaráðs. Guðni A. Jóhannesson f. 27.11.1951,formaður Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík, Greni- mel 33. Próf í eðlisverkfræði f rá Tækni- háskólanum í Lundi 1976 og doktorspróf í húsagerð frá sama skóla 1981. Stundaði kennslu og rannsóknir við byggingarverk- fræðideild skólans frá 1976-81. Vann sem sérfræðingur við Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaðarins frá 1982-84, en hefur síðan rekið eigin verkfræðiþjón- ustu. Fulltrúi AB í milliþinganefnd um húsnæðismál. Formaður Búseta- Landssambands og fulltrúi þess í NBO (samtökum norrænna fé- lagslegra íbúðahreyfinga). Guðrún Helgadóttir, fæddíHafnarfirði7. sept. 1935. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1955. Rektorsritari við MR 1957-67. Deildarstjóri Tryggingarstofnunar ríkisins 1973-80. Borgarfulltrúi 1978-82. Kjörin á Alþingi 1979. Endur- kjörin 1983. í stjórn BSRB um árabil. Á sæti í Norðurlandaráði. í framkvæmdastjórn Alþýðu- bandalagsins. Guðrún hefur á Alþingi beitt sér fyrirfjölmörgum breytingum á almannatryggingum ogfélagslög- gjöf, málefnum kvenna og barna og erfðalögum og flutti frum- varpið um Þýðingasjóð íslands. Hefur tekið virkan þátt í friðar- málum og hefur á yfirstandandi þingi flutt frumvarp um Banka- eftirlit ríkisins og Umboðsmann barna. Guðrún hefurskrifað 10 bækur og er félagi í Rithöfunda - sambandi íslands. Haraldur Jóhannsson erfæddurí Reykjavík 1926, en alinn upp á Akranesi. Hann gekk í Æskulýðsfylkinguna 1942 og Sósíalistafélag Reykja- víkur 1945, en starfaði líka með Sósíalistafélagi Akraness á fyrstu árum þess. Hann var í framboði fyrir Sósíalistaflokkinn í Borgar- fjarðarsýslu 1953. ForsetiÆ.F. var hann 1954-55. í hagfræði lauk hann B.Sc. (Econ)-prófi við Háskólann í London 1951 ogM.Sc.(Econ)- prófi 1956. Hann var formaður Utflutningssjóðs 1957-1960. Og var einn forystumanna samtak- anna gegn inngöngu íslands í Efnahagsbandalag Evrópu 1961- 1962 og ritaði ýmislegt um þau efni. Lektor í hagfræði var hann við Háskólann í Malaja 1964- 1968 og við Háskólann á Witwat- ersrand (Jóhannesarborg) 1969- 1971. Hörðum orðum fór hann um klofning Alþýðubandalagsins 1967, sem hann taldi hafa orðið fyrir togstreitu um völd, en ekki málefnalegan ágreining. Var hann í Sósíalistafélagi Reykjavík- ur fram í janúar 1972, en starfaði síðan með frjálslyndum og vinstri mönnum, (síðastmeð Bjarna Guðnasyni), fram á vor 1974, að hann sneri aftur til Alþýðubanda- lagsins. Verkalýðsflokkana telur hann standa á tímamótum og Alþýðu- bandalagið þurfa að marka lang- tíma sjónarmið sín og afstöðu til annarra flokka, einkum Alþýð- uflokksins, en j afnframt að varð- veita alþjóðahyggju sína með því að halda uppi málsvörn fyrir sós- íalísk lönd annars vegar og hins vegar að taka tillit til stefnumála verkalýðsflokka í Vestur- Evrópu. Þá hljóti það að halda vöku sinni íherstöðvamálinu. Haraldur hefur tekið saman allmargar bækur, á meðal þeirra Klukkan vareitt, -samtöl við Ólaf Friðriksson og Pétur G. Guðmundsson og Upphafsam- taka alþýðu, viðtöl við Þorstein Pétursson. Hann er áhugamaður um sögu og hefur samið nokkrar stuttar sagnfræðilegar ritgerðir, síðast í kringum íslendingabók. Hörður J. Oddfríðarson erfæddur9.11.1964, íReykja- vík. Hann er búsettur í Hörðalandi 16. Foreldrarhanseru Oddfríður Lilja Harðardóttir hjúkrunar- stjóri á slysadeild Borgarspítal- ans og Jón Þór Jónsson. Eftir grunnskólapróf vorið 1980, lá leið Harðar í Verzlunarskóla ís- lands. Þar stundaði hann nám til vorsl985. Hann starfaði í sumarafleysing- um og með skóla á vetrum hjá Sláturfélagi Suðurlands í Glæsi- bæ, frá í febrúar 1980 fram í fe- brúar 1985 að undanskildu sumr- inu 1984, en þá starfaði Hörður í gjaldeyrisdeiid Útvegsbanka ís- landsíKópavogi. Þann2. júlí 1985 hóf hann störf hjá Mikla- garði og starfaði þar til 28. apríl 1986, er hann tók við starfi af- reiðslustjóra hjá Þjóðviljanum. félagsmálum hefur Hörður ver- ið mjög virkur, þá sérstaklega eftir að hann byrjaði í Verzlunarskólanum. Hann tók verulegan þátt í allflestum upp- ákomum þar á bæ, hvort sem um var að ræða listalíf, málfundi eða skemmtidagskrár. Hann sat í rit- stjórn Verzlunarskólablaðsins 1981-1982, og í stjórn Nemenda- félagsV.Í. 1983-1984, semrit- stjóri Verzlunarskólablaðsins. Hann stýrði því blaðinu á fimmtíu ára afmælis þess. Hörður er virkur félagi í V. R. Jóhannes Gunnarsson f. 3.10.1949, útgáfustjórihjá Verðlagsstofnun, Álakvísl 55. Jóhannes lauk námi f mjólkuriðn íDanmörku 1971,starfaðií mjólkursamlögum hér heima og í Danmörku fram til ársins 1980, en hóf þá störf h j á V erðlagsstofn- un og annast gerð verðkannana. Gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Mjólkurfræðingafélag ís- lands. Hann hefur tekið virkan þátt í starfi opinberra starfs- manna, er í stjórn Starfs- mannafélags ríkisstofnana, vara- formaður útbreiðslunefndar BSRB og átti sæti í verkfalls- stjórn BSRB í verkfallinu 1984. Jóhannes á sæti í framkvæmda- stjórn AB og er í verkalýðsmála- ráði flokksins. OlgaGuðrún Árnadóttir, rithöfundur, f. í Reykjavík 31.8. 1953. Lauk stúdentsprófi frá MR1973. Stundaði nám við Tónlistar- skólann í Reykjavík um árabil og kenndim.a. píanóleik viðTón- skólann í Neskaupstað og Tón- skóla Sigursveins D. Kristins- sonar. Hefur auk þess unnið fjöl- 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. nóvember 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.