Þjóðviljinn - 22.11.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 22.11.1986, Blaðsíða 16
Lauoardaour 22. nóvember 1986 267. tölublað 51. órgangur Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Fiskmarkaður Tvö félög að fæðast Stofnfundur hjá Hafnfirðingum í dag og íReykjavík í nœstu viku. Dalvíkingar og Akureyringar komnir áfullaferð. Beðið eftir viðbrögðum ráðherra . ».V.V .... ' ,Á Fyrsta skóflustunga að Listasafni Gerðar Helgadóttur í Kópavogi var tekin í gær. Það verk framkvæmdi Snorri, bróðir Gerðar en systkini hennar ánöfnuðu Kópavogskaupstað öll hennar verk eftir lát hennar 1975. Byggingin mun rísa á næstu tveimur árum við Borgarholtið, austan Kópavogskirkju. Mynd: E.ÓI. Sjá Sunnudagsblað síðu 15. ísafjörður Afmœli 100 ára Hundrað ára er í dag, Steinunn Þórðardóttir sem ættuð er úr Suðursveit. Steinunn fluttist ung til Eskifjarðar og bjó þar lengst af ævinnar en hefur síðustu árin dvalið á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupsstað. Steinunn er við sæmilega heilsu og hefur fótavist á hverjum degi. Hún var nágranni Þórbergs Þórðarsonar á æskuárunum og man vel eftir honum sem ungum dreng í byrjun aldarinnar. -hb./Neskaupstað. Alþýðubandalagið Forval á Austurlandi Austfirskir Alþýðubandalags- menn ganga til sfðari forvalsferð- ar nú um helgina og á þá að raða frambjóðendum í fimm efstu sæti. Urslit verða vart Ijós fyrren um aðra helgi. Fimmtán gefa kost á sér á Austurlandi, þau Aðalbjörn Björnsson, Álfhildur Ólafsdótt- ir, Björn Grétar Sveinsson, Einar Már Sigurðarson, Elna Jónsdótt- ir, Hermann Guðmundsson, Hjörleifur Guttormsson, Oddný Vestmann, Sigurður Ingvarsson, Sigurjón Bjarnason, Unnur Sól- rún Bragadóttir, Þóra Guð- mundsdóttir, Þorgnmur Sigfús- son, Þórhallur Jónasson og Þu- ríður Bachmann. Atvinnulaust í tvær vikur Starfsfólkið ífrystihúsinuí áhyggjufulltvegnahráefnisskorts oggámaútflutnings Mikill skriður er á fiskmarkaðs- málum þessa dagana. I dag verð- ur haldinn formlegur stofnfundur rekstraraðila um fiskmarkað f Hafnarfirði en á undirbúnings- fundi fyrir skömmu söfnuðust hlutafjárloforð uppá nær 13 miy- ónir. Eftir helgina verður síðan að öllum lfkindum haldinn stofn- fundur um fiskmarkað í Reykja- vfk en borgaryfirvöld munu standa fyrir þeim fundi. Auk Hafnfirðinga og Reykvík- inga er mikill áhugi fyrir stofnun fiskmarkaðar á Akureyri, Dalvík og á Suðurnesjum. Bæjaryfirvöld á Dalvík hafa þegar skipað vinnu- hóp til að undirbúa stofnun fisk- markaður og fulltrúar hafnar- stjórnar á Akureyri voru á ferð í Hafnarfirði í vikunni þar sem þeir kynntu sér undirbúning heima- manna fyrir fiskmarkað. Þegar hefur verið ákveðið að fiskmarkaður í Reykjavík verði staðsettur í Faxaskála til að byrja með. Gera þarf lagfæringar á húsnæðinu fyrir um 5 miljónir áður en markaður getur tekið þar til starfa en það er ráðgert í febrú- ar á næsta ári. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa samþykkt að reisa hús undir fiskmarkað við Óseyrarbryggju og eru samning- ar við Hagvirki um byggingu hússins á lokastigi. Þá hafa bæjar- yfirvöld boðið húseign Bæjarút- gerðarinnar á Hvaleyrarholti fyrir markaðinn nú þegar meðan Iokið er við byggingu nýja húss- ins. Þrátt fyrir mikinn áhuga áð- urnefndra aðila og hagsmuna- samtaka í sjávárútvegi um rekstur fiskmarkaða er enn óvíst um viðbrögð stjórnvalda og verðlagsráðs sjávarútvegsins. Hafnarnefnd Hafnarfjarðar hef- ur sent bæði sjávarútvegsráð- herra og verðlagsráði bréf þar sem óskað er eftir því að ráðherra beiti sér’ fyrir nauðsynlegum breytingum á lögum svo hægt sé að hefja starfrækslu fiskmarkað- ar strax upp úr næstu áramótum og að verðlagsráð heimili frjálsa verðlagningu á markaðinum. -lg. „Það var haldinn starfsmanna- fundur á miðvikudag að loknum stjórnarfundi og við gáfum fólki skýringar á því hvers vegna þessi hráefnisskortur var, þetta voru bara 11 dagar í október og nóv- ember sem ekki var unnið“ sagði Guðmundur Guðmundsson stjórnarformaður íshúsfélags ís- firðinga í samtali við Þjóðviljann þegar hann var spurður um við- brögð stjórnar fyrirtækisins við bréfi sem starfsmenn þess sendu henni. í bréfinu, sem yfir sextíu manns skrifuðu undir, er krafist svara við því hver verði framtíð- arstefna fyrirtækisins í fram- leiðslumálum, og spurt hvort tryggt verði nægilegt hráefni þannig að fólk hafi lífsviðurværi af vinnu sinni. Mikið magn af fiski hefur verið flutt út í gámum og að sögn Guðbjargar Ás- geirsdóttur verkstjóra í íshúsfé- laginu er óánægja yfir því að að- eins er unnið frá 7-5 og litla yfirtíð að hafa. Eigendur togaranna Guð- bjargar og Júlíusar Geirmunds- sonar, sem eru jafnframt aðal- eigendur íshúsfélagsins, sendu togarana báða í slipp til Þýska- lands í október og nóvember. Að sögn Guðmundar seinkaði öðr- um þeirra til veiða vegna óvæntra atvika sem olli því að atvinnu- laust var í frystihúsinu í tvær vik- ur. „Við höfum miðlað fiskinum þannig í húsið að full atvinna haldist og það hefur engum verið sagt upp vegna hráefnisskorts" sagði Guðmundur. „Þannig verð- ur það áfram.“ - vd. Afmælishappdrætti Þjóðviljans BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR Dregið var í Afmælishappdrætti Þjóðviljans 31. október s.l. Vinningsnúmerin eru innsigluð hjá borgarfógeta og verða birt einhvern næstu daga. Gerið skil strax eftir helgi Hægt er að sækja skil til þeirra, sem þess óska. Síminn er 681333. þJÓÐVIUINN Suðurlandsbraut 14, s: 38600

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.