Þjóðviljinn - 22.11.1986, Side 12

Þjóðviljinn - 22.11.1986, Side 12
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Austurland Forval 22. -23. nóvember. Síðari umferð forvals AB á Austurlandi vegna alþingiskosninga fer fram dagana 22. og 23. nóvember. Formenn félaganna veita allar upplýsingar. Þeir eru: Vbpnafjörður: Guðmundur Wium s: 3326, Egilsstaðir, Hérað og Borgar- fjörður: Kristinn Árnason s: 1286. Seyðisfjörður: Jóhann Jóhannsson s: 2425. Neskaupsstaður: Már Lárusson s:7331. Eskifjörður: Hjalti Sigurðs- son. s:6367. Reyðarfjörður: Sveinn Jónsson s:4377. Fáskrúðsfjörður: Magnús Stefánsson s: 5211 Stöðvarfjörður Ármann Jóhannsson s:5283. Breiðdalsvík: Þorgrímur Sigfússon s:8817. Djúpivogur: Eysteinn Guðjóns- son s: 8873. Höfn: Sigurður Geirsson s:8172. Utnakjörstaðaatkvæðagreiðsla stendurfrá 17. nóvember. Kosið verður hjá formönnum og á aðalskrifstofu AB Hverfisgötu 105 í Reykjavík á skrif- stofutíma. Alþýðubandalagið Reykjavík Utankjörfundaratkvæðagreiðsla Atkvæðagreiðsla utankjörfundar vegna forvals ABR hefst næstu helgi og stendur þann 23. og 24. nóvember frá kl. 13 - 15 að Hverfisgötu 105. Vikuna 24. nóvember fram að kjördegi 29.-30. nóv. verður hægt að kjósa að Hverfisgötu 105 frá kl. 10-12 og 17.15-19.15 daglega. Vesturlandskjördæmi Kjördæmisráðsfundur Kjördæmisráð boðar til fundar sunnudaginn 23. nk. í Röðli.Brákarbraut 3, Borgarnesi. Fundarefni: 1) Niðurstaða forvals. 2) Önnur mál. - Stjórnin. Alþýðubandalagið Neskaupstað Seinni hluti forvals Seinni hluti forvals fer fram að Egilsbraut 11, laugardaginn 22. og 23. nóvember nk. Opið verður frá kl. 13 - 18 báða dagana. Þeir sem ekki verða heima fyrrgreinda daga hafi samband við Má Lárusson s. 7331, Lilju Huldu Auðunsdóttur s. 7327 og Bjarna Aðalsteinsson s. 7583. Félagar og stuðningsmenn fjölmennið. - Stjórn ABN. Alþýðubandalagið í Reykjavík Viðtalstími borgarfulltrúa f dag laugardag tekur Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi á móti viðmælendum á Hverfisgötu 105, 4. hæð, milli kl. 13 og 14. Norðurland eystra Norður-Þingeyingar athugið! Alþýðubandalagið boðar til almennra stjórnmálafunda um helgina á eftir- farandi stöðum: Raufarhöfn laugardaginn 22. nóv. kl. 17.00 i félagsheimilinu. Þórshöfn sunnudaginn 23. nóv. kl. 20.30 í félagsheimilinu. Stelngrímur J. Sigfússon alþm. kemur á fundina og ræðir stjórnmálaviðhorfið, atvinnu- og byggðamál. Allir velkomnir. - Alþýðu- bandalagið. Alþýðubandalagið Akranesi Fullveldisfagnaður Fullveldisfagnaður verður í Rein laugardaginn 29 nóv. við kertaljós og léttar veitingar. Njótum kvöldsins við upplestur, hljóðfæraslátt og söng. Húsið opnað kl. 20.30. Nánar auglýst síðar. Alþýðubandalagið Kópavogi Nefndarfólk athugið! Að starfa í nefndum, nefnist námskeið sem haldið verður í Þinghóli 24. 25. og 26. nóvember kl. 20.30 - 22.30, fyrir aðal- og varafulltrúa ABK í nefndum á vegum bæjarins. Leiðbeinendur: Tryggvi Þór Aðalsteinsson og Heimir Pálsson. Stjórnin. Alþýðubandalagið Kópavogi Morgunkaffi ABK Framvegis verður heitt á könnunni alla laugardaga milli kl. 10 -12 í Þinghóli Hamraborg 11 og þar munu bæjarfulltrúar flokksins vera til viðræðu um bæjar- og flokksmál. Heimir Pálsson hellir í bollana laugardaginn 22. nóvember. Félagar og aðrir bæjarbúar eru hvattir til að líta inn. Stjórnln. Alþýðubandalagið Akranesi Bæjarmálaráð Fundur verður haldinn í Rein mánudaginn 24. nóv. kl 20 30 Dagskrá: 1) Fréttir af starfi nefnda. 2) Bæjarstjórnarfundur 25. nóv. 3) Önnur mál. - Stjórnln. Það bætir hejlsu og hag að bera út Þjóðvujann DÆGURMÁL Ég finn ekki betra orð en ofan- skráð til að lýsa í fyrirsögn hljómleikum Marie Bergman og Lasse Englund í Félagss- tofnun stúdenta sl. laugardag. Reyndar var þetta ekki bara venjulegt æði, heldur líka bæði hátíðlegt æði og virðu- legt, allt eftir tilefni laganna. Rúmlega hundrað manns varð vitni að stjörnuleik sænsku hjónanna, sem var metaðsókn á afmælisviku Vísnavina að þessu sinni. Þrátt fyrir það er synd að fleiri skuli ekki hafa hlýtt á þau, bæði lærðir og leikir í músík, og orðið vitni að frábærum gít- arleik og söng - og fag- mennsku út í gegn sem helst í hendur við andagift í laga- smíðum, túlkun og framsetn- ingu. Þetta munu mörgum finnast stór orð um sænskt vísnaþar, en ég held þvífram að Marie Bergman og Lasse Englund séu tónlistarmenn á heimsmælikvarða. Marie er góð söngkona, með dálítið hása rödd, en breitt radd- svið og er raddmikil. Ekki spillir leikræn túlkun hennar fyrir, sem kemur fram í rödd, andliti og höndum, jafnvel svo að maður heldur stundum að hún ætli að gleyma að spila á gítarinn. En það er nú öðru nær, enda María löngu komin fram úr „vinnukon- unni“ í þeim efnum. Samspil þeirra hjóna á rafmagnaða kassa- gítarana er flott og skemmtilegt, bæði á að hlýða og horfa - þau eru eins og hörkuþungarokkarar á sviði, snúa bökum saman í bókstaflegri merkingu með öllum réttum tilfæringum, en stilla strengina betur saman og blæ- brigðaríkar en margur í því sjó- bissnesi. Lasse er mjög fær gítar- leikari - þar er að auki fallegur sem sakar ekki. Mjög góður andi ríkti á hljóm- leikum þeirra Maríu og Lassa, sem er auðvitað þeim sjálfum að þakka - íslendingar eru nú ekki þekktir fyrir að vera það af sjálfs- dáðum á svona samkundum, hvað þá klukkan fjögur á laugar- degi. En nú var klappað ákaflega og blístrað í viðurkenningar- skyni, jafnvel virðingarskyni, á eftir hverju lagi, en þó var þess gætt vandlega að byrja ekki á fagnaðarlátunum fyrr en síðasti tónn hvers lags var dáinn út. Þetta orsakaði mikinn hátíðleika- blæ, einkum á eftir rólegu lögun- um... næstum eins og við jarðar- för, sagði vinkona mín. En svo var rokkað af sömu persónulegu Maríe Bergman og Lasse Engelund. ÆÐI! snilldinni. Ég vona bara að þau hjónakorn láti sjá sig sem fyrst aftur hér á skerinu og íslenskt músíkáhugafólk sýni þeim verð- uga athygli. A P.S.: Það er einkennilegt að fara á hljómleika þegar maður veit ekkert hvað boðið verður uppá og verða svo yfir sig hrifinn. Hér veit maður yfirleitt við hverju er að búast af heima- mönnum og þeim enskumælandi poppurum sem hingað koma - þeir gera aldrei annað en að vera verri eða betri en þeir hafa verið, yfirleit þó jafn vondir eða góðir. Svo þegar maður stendur frammi fyrir fólki, sem er ekkert frægt á heimsmælikvarðann fræga en er miklu betra en margur sem þar er mikils metinn, þá skammast maður sín fyrir að vera að horfa á það í gegnum Vísnavinastimpil, sem því miður með fáum undan- tekningum, er hvorki tákn fyrir gæði né skemmtilegheit hér- lendis. Ekki það að ég sé að mæla því bót að fólk sé nánast tekið í guðatölu eins og gerist í poppinu og víðar - en mér finnst sorglegt að íslendingar með allan sinn I norræna rembing á vörunum séu ekki betur að sér um það sem er að gerast á Norðurlöndunum - í músík í þessu tilviki. Hér er um markaðsmál að ræða fyrst og fremst. Ef fólk ekki getur nálgast plötur með norrænu músíkfólki í verslunum hér á landi duga hvorki útvarpsþættir né blaða- greinar til að seðja fróðleiksfýsn í þessa átt, hvað þá heldur vekja áhuga. A.(men). Þetta eru þeir Ágúst Karlsson gítar- leikari og Valdimar Flygenring leikari sem fyrir stuttu sendu frá sér hljóm- plötuna Reisn, undir nafninu Menn. Fjallað verður um hana síðar- líklega um næstu helgi - á þessari síðu. Myndina tók Sigurður - góð, ekki saitt? Svo er rétt að geta þess að um- sögn um plötur Gamma og Mezzo- forte kemur í miðvikudagsblaði. Broadway/Hollý Eriendir skemmtikraftar Hingað er kominn Liberty Mo- untain, sem mun skemmta á Bro- adway allar helgar til 13. desem- ber. Hann er talinn besta Presley- eftirherma sem völ er á, og tekur fyrir Las Vegas hljómleika goðs- ins. Hann gerir það harla vel og nákvæmlega, og er með hörku hljómsveit sér til aðstoðar - þar á meðal mjög góða bakraddasöng- konu. Hitt er svo smekksatriði hvað fólki finnst um svona lagað, að leika dáið fólk og reyna næst- um að endurvekja það. En þetta er vel gert, eins og undirrituð sá og heyrði á Broadway í fyrra- kvöld, þegar kosin var stjarna Hollywood. Hún heitir Guðlaug Jónsdóttir og er 18 ára nemandi á náttúrufræðibraut í M.R. Hollywood fær um næstu helgi í heimsókn hið ljúfa og fallega diskótríó Imagination. Þeir syngja föstudag og laugardag. Meðfylgjandi mynd er af þeim. A 12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. nóvember 1986

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.