Þjóðviljinn - 22.11.1986, Qupperneq 13
Argentína
Stríð
gegn
skrif-
finnsku
Buenos Aires - Ríkisstjórn Arg-
entínu undirbýr nú stríð gegn
skrifræði ríkisins sem þátt í að
endurnýja sparnaðaráætlun
stjórnvaida.
Embættismenn tilkynntu í vik-
unni að fjöldi ríkisstarfsmanna
myndi minnka um 250.000
manns, um 20 prósent. Auk þess
yrði stjórnun í ríkisfyrirtækjum
gerð áhrifaríkari.
Carlos Becera, aðalritari for-
setaskrifstofunnar, sagði í fyrra-
dag að áætlunin yrði framkvæmd
án þess að nokkur ríkisstarfsmað-
ur yrði rekinn. „Það sem hér er
um að ræða er stríð ríkisstjórnar-
innar gegn skrifræði. Aðrir em-
bættismenn sögðu hins vegar að
fólki í þjónustu ríkisins yrði gef-
inn kostur á að segja starfi sínu
lausu.
Sparnaðaráætlun ríkisstjórnar-
innar, „Australáætlunin“ svo-
nefnda, var sett af stað í júní á
þessu ári, til þess að draga úr ára-
tuga gamalli verðbólgu, hefur nú
misst flugið nokkuð vegna
aukningar verðbólgu, hárra
vaxta og óróleika á vinnumark-
aðnum. Tekjur ríkisins hafa
minnkað mjög miðað við tekjur
einkafyrirtækja á síðustu þremur
árum.
IndlandlAlþjóðabankinn
Afneitar
láni
Nýju Delhí - Indverska ríkis-
stjórnin hefur neitað að taka
við 150 milljóna dollara láni frá
Alþjóðabankanum upp í
greiðsiur á ínnflutningi gróð-
uráburðar á meðan bankinn
lætur ísrael í té lán í miklu
magni.
Indland styður kröfur Palestín-
uaraba um rétt til heimkynna
fyrir botni Miðjarðarhafs og hef-
ur engin stjórnmálaleg eða efna-
hagsleg tengsl við ísrael. Um það
bil 80 milljónir Múhameðstrúar-
manna búa á Indlandi.
HEIMURINN
Vopnasendingar til íran
Fleiri en Bandaríkin
William Casey yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, sagði
við bandaríska þingnefnd ígœraðfleiriþjóðir en Bandaríkin hefðu
verið viðriðnar vopnasendingar til íran
Washington - í gær var haft eftir
William Casey, forstjóra CIA,
að fjölmargar aðrar þjóðir en
Bandaríkin væru flækt í vopna-
flutninga tii íran.
Demókratinn Jim Wright sem
búist er við að verði næsti forseti
Fulltrúadeildar bandaríska
þingsins, sagði við fréttamenn í
gær að Casey hefði komið með
viðbótarupplýsingar um íranmái-
ið „og gefið upp fleiri aðila til
viðbótar“, eins og hann orðaði
það.
Casey sat fyrir svörum á þing-
Eiturhreinsun í Rín. Slysið í Basel hefur vakið mikla reiði víða um Evrópu.
Rínareitrunin
Málsrannsókn í V-Þýskalandi
Hafin er í V-Pýskalandi rannsókn á Rínaslysinu sem varð í Basel í Sviss um
mánaðamótin síðustu á því hvort um saknæmt athœfi sé að rœða. Sandoz
fyrirtœkið lofar björgunaráœtlun fyrir lífríki Rínar
Bonn - Ríkissaksóknarar í V-
Þýskalandi hafa nú hafið máls-
rannsókn á þeirri mengun sem
varð í ánni Rín eftir að kviknaði
í vörugeymslu Sandoz efna-
fyrirtækisins í Basel í Sviss.
Það er ríkissaksóknarinn í Lo-
errach í V-Þýskalandi, stutt frá
Basel í Sviss, sem stendur fyrir
rannsókninni. Talsmaður sak-
sóknarans sagði í gær að rann-
sóknin beindist að því hvort lög
sem gilda um varnir gegn mengun
og heilsufari manna, hefðu verið
brotin. Ef sannanir kæmu fram
um glæpsamlegt athæfi, mætti
kæra þá sem væru ábyrgir fyrir
slysinu. Rannsóknin er fram-
kvæmd vegna kvartana frá v-
þýskum þegnum.
Yfirmaður Sandoz fyrirtækis-
ins hefur lofað að skipulögð verði
áætlun um að lagfæra þann vist-
fræðílega skaða sem hlotist hefur
af slysinu. Skaðinn er gífurlegur
og er umfangsmikið uppbygging-
arstarf heils áratugar nú í rústum.
Græningjar í V-Þýskalandi
hafa hvatt neytendur til að kaupa
ekki vörur frá tveimur
svissneskum fyrirtækjum sem að
undanförnu hafa fyrir slysni
mengað Rín, annað þeirra er að
sjálfsögðu Sandoz fyrirtækið.
Talsmaður Græningja sagði í
fyrradag að með þessu mætti
þrýsta á svissnesk fyrirtæki um að
huga betur að öryggi í rekstri
fyrirtækjanna. Daginn áður en
bruninn í Sandoz vöruhúsinu
varð, runnu eiturefni út í Rín úr
Ciba Geigy efnaverksmiðjunni í
Basel.
inu um íransmálið. Hann mun
hafa staðfest þátt ísraels í vopna-
flutningunum ásamt fleiri aðilum
en neitaði, eftir því sem Wtight
segir, að gefa upp hverjir þessir
aðilar væru. „Við höfum heyrt
um fleira fólk af öðru þjóðerni
sem var flækt í vopnaflutninga
með samþykki Bandaríkjanna",
sagði Wright að loknum yfir-
heyrslum yfir Casey. Þegar
Wright var spurður að því hvort
sendingarnar hefðu verið að
fyrirmælum Bandaríkjanna,
sagði Wright: „Ég fékk það á til-
finninguna."
Þegar Wright var síðan spurð-
ur að því hvort fleiri vopn en
vamarvopn gegn skriðdrekum og
flugvélum hefðu verið send til
íran, svaraði hann:„Það er ljóst
að fleiri vopn og vörusendingar
hafa átt sér stað...Mér er hins
vegar ekki ljóst hversu mikið
magn var um að ræða.“
Þessar upplýsingar leiddu til
þess að mikil reiði greip um sig
meðal bandarískra þingmanna í
gær og hvöttu þeir Reagan til þess
að viðurkenna að hann hefði gert
mistök með vopnaflutningum
sínum til íran og til að setja af
stað rannsókn á þessari leynilegu
áætlun valdamanna í Hvíta Hús-
inu sem Bandaríkjaþing fékk
ekki að vita um í 18 mánuði.
Þá hafði Los Angeles Times
eftir ónafngreindum starfsmönn-
um Bandaríkjastjórnar að Ge-
orge Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna og William
Crowe, starfsmannastjóri Hvíta
hússins hefðu hvatt Reagan til að
reka Poindexter öryggisráðgjafa
sinn. Poindexter var einn helsti
hvatamaðurinn að vopnasend-
ingunum.
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR /nrn-TCD
HJÖRLEIFSSON K t U 1 t K
FilippseyjarlRamos
Vill óæskilega ráðheira burt
Sea Shepherd
Kanada-
Fidel Ramos, yfirmaður herafla Filips-
eyja, vill ákveðna ráðherra í ríkisstjórn
landsins burt. Talsmaður Aguino segir
þetta aðeins ráðleggingar, ekki kröfur
Manila - Æðsti yfirmaður her-
afla Filippseyja, Fidel Ramos,
viðurkenndi í gær að hann
hefði beint þeim tilmælum til
Corazon Aquino, að hún los-
aði sig við óæskilega ráðherra
í stjórn landsins.
í yfirlýsingu sem Ramos gaf
eftir 90 mínútna fund með Aqu-
ino í gær, neitar hann að hann
hafi viljað með þessari ábendingu
til forsetans viljað að vinstrisinn-
aðir ráðherrar yrðu látnir víkja.
Aðeins væri um að ræða að þeir
ráðherrar yrðu leystir frá störfum
sem hefðu „ekki staðið sig nægi-
lega vel.“
Talsmaður forsetans tilkynnti
eftir fund sinn með Ramos að
Aquino hefði í huga að endur-
nýja stjórnarlið sitt að nokkru.
Þar á meðal ætti að breyta starfs-
sviði eins aðstoðarmanna henn-
ar, Joker Arrayo, með því að
setja upp embætti yfirmanns
forsetaskrifstofunnar. Arrayo er
einn þeirra fjölmörgu aðstoðar-
manna Aquino sem valdaaðilar
innan hersins telja vera vinstris-
inna og þeirra hlutverki í stjórn
landsins verði að breyta.
Talsmaður forsetans, Teodoro
Benigno, neitaði að segja nokk-
Fidel Ramos. Segist vera ópólitiskur
yfirmaður ópólitísks hers en vill á-
kveðna ráðherra burt úr ríkisstjórn-
inni.
uð um það hvort aðgerð Ramosar
væri við hæfi. Ramos hefur sagt
sig yfirmann hers sem væri algjör-
lega ópólitískur. Benigno sagði
að aðgerð Ramosar væri athuga-
semd, ekki krafa.
Ýmsir aðilar innan hersins hafa
að undanförnu lýst óánægju sinni
með það hvernig Aquino hefur
tekið á málefnum kommúnista,
með því að standa í vopnahlé-
sviðræðum við þá. Benigno sagði
að líta mætti á Ramos sem málp-
ípu ólíkra radda innan hersins.
Þar mætti hins vegar finna aðila
sem tala ekki um, heldur hóta
uppreisn í landinu. Hann neitaði
að skýra þetta nánar. Hann sagði
aftur á móti að „athugasemd
Ramosar þýddi ekki að ríkis-
stjórn landsins yrði endurskipu-
lögð.“ Um Aquino sagði Ben-
igno. „Hún hefur mikinn stuðn-
ing erlendis en henni finnst
stundum að hún fái ekki þann
breiða stuðning heima fyrir sem
hún eigi skilið.“
stjóm
íhugar
málssókn
Ottawa - Utanríkisráðherra
Kanada tilkynnti í fyrrakvöld
að ríkisstjórn tandsins myndi
hugsanlega kæra Sea Shep-
herd samtökin fyrir að hafa
sökkt tveimur skipum Hvals h/
f í Reykjavíkurhöfn fyrr (þess-
um mánuði.
Utanríkisráðherrann, Joe
Clark, sagði í fyrrakvöld að ríkis-
stjórn landsins fordæmdi allar ól-
öglegar aðgerðir og væri nú verið
að athuga hvort samtökin hefðu
brotið einhver kanadísk lög með
aðgerðum sínum á íslandi 9. nóv-
ember síðastliðinn.
Laugardagur 22. nóvember 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13