Þjóðviljinn - 05.12.1986, Blaðsíða 6
ÞJOÐMAL
BSRB
Nýju lögin afgreidd fyrir jól
Þorsteinn Pálsson: Opinberir starfsmenn hafa ekki rétttil að
fara í samúðarverkfall samkvœmtfrumvarpinu
Stefnt er að því að frumvarp
um kjarasamninga opinberra
starfsmanna verði að lögum fyrir
jólaieyfi þingmanna sem hefst að
öllum líkindum I9.desember n.k
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra mælti á miðvikudag fyrir
frumvarpinu í neðri deild og tóku
aðeins tveir þingmenn aðrir, þeir
Svavar Gestsson og Páll Péturs-
son til máls. Svavar sagði
gagnrýnivert að ríkisstjórnin
skyldi ekki veita stjórnarand-
stöðunni formlega aðild að undir-
búningi mála sem þessara, en
þingmenn hefðu enga aðstöðu til
að hafa áhrif á orðalag frum-
varpsins eða niðurstöðu eins og
nú væri í pottinn búið. Svavar
spurði sérstaklega hvort gert væri
ráð fyrir því að opinberir starfs-
menn gætu tekið þátt í samúðar-
vinnustöðvun í samræmi við al-
mennu vinnulöggjöfina, því á
það er hvergi minnst í frumvarp-
inu. Þorsteinn Pálsson sagði
þetta atriði ekki hafa verið rætt
milli ríkisins og BSRB en sín túlk-
Eiðaskóli
2 miljónir í viðhald
Ráðherra áœtlar að 10-20 miljónir þyrfti til að gera
skólann ístand
Lauslega áætlað þarf að verja
10-20 miljónum til viðhalds Eiða-
skóla á allra næstu misserum en í
fjárlagafrumvarpinu er aðeins
ætlað til þeirra hluta 2 mifjónum
króna.
Þetta kom fram í fyrirspurnar-
tíma á alþingi si. þriðjudag þegar
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra svaraði fyrirspurn
frá Hjörleifl Guttormssyni þar
um. Hjörleifur vakti athygli á því
að aðeins væri í heild varið 17
miljónum til viðhalds á héraðs-
skólunum samkvæmt fjárlaga-
frumvarpinu. Hann sagði það
skoðun margra að héraðsskól-
arnir væru á fallanda fæti, en slíkt
ætti ekki við eum Eiðaskóla, þar
væri hver bekkur setinn og
skólinn ætíð fullskipaður. Sverrir
Hermannsson viðurkenndi að
þetta væri rétt og naumt væri
skammtað í fjárlagafrumvarpi til
þessara skóla. Hann sagði ráðu-
neytið hafa óskað eftir 21,5 milj-
ón í viðhald skólanna og nú væri
verið að vinna áætlun um endur-
bætur á Eiðaskóla, sem fjárveit-
inganefnd myndi fá upplýsingar
um.
-ÁI
Á Eiðum er bekkurinn fullsetinn og ekkert uppgjafarhljóð í mönnum þó margir
telji héraðsskólana muni víkja fyrir fjölbrautum.
un væri að opinberir starfsmenn
gætu ekki farið í samúðarverk-
fall. Svavar sagði þetta veiga-
mikinn galla á frumvarpinu þar
sem reynt væri að byggja hindr-
anir milli opinberra starfsmanna
og almenna vinnumarkaðarins
varðandi samúðarverkföll. Sagð-
ist hann óttast að ákvæði
M.greinar frumvarpsins og þröng
túlkun ráðherrans á þeim yrði til
að fjölga en ekki fækka árekstr-
um vegna kjaradeiina.
Frumvarpið er sem kunnugt er
samþykkt af BSRB, Launa-
málaaráði ríkisstarfsmanna
innan BHM og Bandalagi kenn-
arafélaga í framhaldi af gerð síð-
ustu kjarasamninga. Megin-
breytingin frá núgildandi lögum
er að samningsréttur og verkfalls-
réttur flytjast frá heildarsamt-
ökunum til einstakra aðildarfé-
laga. Kjaradeilunefnd er lögð
niður en f hennar stað verður
birtur tæmandi listi yfir þau störf
sem undanþegin eru verkfalli og
hins vegar að undanþágur yrðu
veittar með samþykki beggja að-
ila til að firra neyðarástandi.
Kjaradómur hefur einnig lokið
hlutverki sínu ef frumvarpið
verður að lögum.
Á miðvikudag var lagt fram
stjórnarfrumvarp um afnám
verkfallsréttar lögreglumanna í
framhaldi af samningum þeirra
þar um við ríkið nýlega. _Á1
DJÖÐVIIJINN
C 68 13 33
Tíminn
<C 68 18 66
<C 68 63 00
Blaðburður er
BESTA TRIMMIÐ C
LAUS HVERFI
NÚÞEGAR:
Blaðbera vantar í
Miðbæ Kópavogs,
Eskihlíð,
Skerjafjörð
og Drápuhlíð
DJÖÐVIIIIIiN
Sfðumúla 6
0 68 13 33
Samband íslenskra banka-
manna
óskar aö ráða sem fyrst
Framkvæmdastjóra
Hér er um að ræða mjög fjölbreytt starf, sem m.a.
felst í eftirfarandi:
★ Að sjá um rekstur skrifstofu SÍB að Tjarnar-
götu 14.
★ Að sjá um skipulag og framkvæmd á almennu
félagsstarfi eins og það er ákveðið hverju
sinni.
★ Að vera fulltrúi SÍB við gerð kjarasamninga.
★ Að taka þátt í norrænu samstarfi.
★ Að stýra útgáfustarfsemi SÍB og ritstýra
Bankablaðinu.
★ Að sjá um framkvæmd fræðslustarfs SÍB í
samvinnu við fræðslufulltrúa.
Góð almenn menntun er áskilin ásamt reynslu í
stjórnunarstörfum. Laun og kjörtaka mið af kjara-
samningum SÍB og bankanna.
Umsóknum um starf þetta skal skilað til Hinriks
Greipssonar, formanns SÍB, að Tjarnargötu 14,
fyrir 20. desember nk., en hann gefur jafnframt
nánari upplýsingar í síma 28055.
Auglýsið í
Þjóðviljanum