Þjóðviljinn - 05.12.1986, Síða 12
BÆKUR
Sextugur
Þorsteinn
Sigurðsson
skólastjóri
Þorsteinn Sigurðsson skólastjóri sextugur
22. nóvember1986.
MINNINGARMYNDIR
Ævi þín og ævi mín fléttast
í atvikum liðinna daga.
Minningar glitra sem gimsteinar
eftir öllum þeim vegi.
Sumurin gefa okkur göngur um heiðar
og kynni við músareyra og beitilyng.
Við krjúþum við dögg á maríustakki
og flugurnar suða um kring.
Veturnir bjóða okkur einnig til samfélags;
þegar fjöll eru þakin snævi
og slóðin marrar undir skíðunum
þá stönsum við og störum á
Ijósbrotið í kristöllum hjarnsins.
Stjörnurnar strá mörgþúsund ára
gömlum Ijósgeislum
um tóm alheimsins
og suðræna nótt.
Við sátum í mjúku myrkri
og nutum þagnarinnar.
Geislavendir stjarnanna höfðu verið
öll þessi ár að leita
að nethimnum augna okkar
til þess að drekkja einsemd sinni
í djúpi þeirra.
Vinátta okkar leitaði
sjáaldurs eilífðarinnar
til þess að búa í djúpi þess.
Ef til vill eru það þó störf hins rúmhelga dags
sem fastast binda.
Magnús Magnússon.
(Vegna mistaka birtist þessi afmæliskveöja ekki á afmælisdegi
Þorsteins).
Frá
menntamálaráðuneytinu.
Réttindanám vélavarða
Vakin skal athygli þeirra er hyggja á vélavarðanám á
vorönn 1987 að hafa samband við einhvern eftirtal-
inna skóla hið fyrsta því reynt verður að gefa kost á
náminu þar sem þátttaka verður næg.
Vélskóla Islands, Reykjavík.
Fjölbrautaskólann á Akranesi.
Iðnskólann á ísafirði.
Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki.
Gagnfræðaskóla Húsavíkur.
Verkmenntaskóla Austurlands, Neskaupstað.
Fjölbrautaskóla Suðurlands, Selfossi.
Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum, og
Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Keflavík.
Menntamálaráðuneytið.
Nýr smásagna-
höfundur
Níu lyklar heitir smásagna-
safn, sem Vaka-Helgafell hefur
gefið út eftir ungan höfund, Ólaf
Jóhann Ólafsson. í kynningu
segir m.a.: Smásögur Ólafs Jó-
hanns eru Ijósar og lifandi, bera
skarpskyggni höfundarins glöggt
vitni og munu teljast umtalsvert
framlag til íslenskrar bók-
menntaiöju. Þetta er fyrsta bók
höfundarins en hér er enginn
byrjendabragur á sagnagerð,
þvert á móti bera sögurnar vott
um öguö vinnubrögö, látlausa en
listræna framsetningu.
Ólafur Jóhann Ólafsson er 24
ára Reykvíkingur. Hann hefur til
þessa lagt megináherslu á raun-
vísindi og gegnir nú ábyrgðar-
stöðu hjá alþjóðlega stórfyrir-
tækinu Sony í Bandaríkjunum.
En jafnframt hefur hugur Ólafs
ætíð hneigst að húmanískum efn-
um og bókmenntum enda af
skáldum kominn og alinn upp á
miklu bókmenntaheimili.
í forlagskynningu segir enn-
fremur að sögurnar séu hreinar
og tærar í klassísku formi og ger-
ist ýmist á íslandi eða í Vestur-
heimi.
Spakmælabók
Hörpuútgáfan hefur sent frá
sér nýja bók, Spakmæli, sem
hefur aö geyma yfir 4000 spak-
mæli og málshætti frá ólíkum
þjóðlöndum.
í forlagskynningu segir m.a.
Lesandinn finnur í bókinni
kjarnyrt spakmæli og jafnvel
hneykslanlega málshætti. Þá eru í
bókinni fjölmargar skopmyndir
tengdar efninu. Ræðumenn og
þeir sem fást við ritstörf munu
fagna útkomu þessarar bókar,
sem einnig hentar vel til notkunar
í skólum. En fyrst og síðast er hér
um að ræða skemmtilegt og fróð-
legt efni, sem allir mun hafa gam-
an af að lesa. Gissur Ó. Erlings-
son þýddi bókina.
Hrafn í
Hallormsstað
Örn og Örlygur hafa gefið út
bókina HRAFN Á HALLORMS-
STAÐ og lífið kringum hann. Ár-
mann Halldórsson skráöi.
Hrafn Sveinbjarnarson á Hall-
ormsstað er nú á áttræðisaldri.
Hann byrjaði lífsferilinn sinn á
Hólmum í Reyðarfirði en ólst
upp á Sómastöðum eftir hann
missti móður sína átta ára að aldri
og þangað til hann réðst kyndari
að Húsmæðraskólanum á Hall-
ormsstað haustið 1932.
Eins og áður segir hefur Ár-
mann Halldórsson fært sögu
Hrafns í letur eftir frásögn hans
og fleiri heimildum. Fjallað er
um þá þróun sem átt hefur sér
stað niðri á Fjörðum og á Héraði
um ævidaga Hrafns og raunar
áður en hann kemur til sögunnar.
Fjöldi manna á Austurlandi kem-
ur við sögu Hrafns.
Enga stæla!
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu unglingabókin Enga stæla!
eftir Andrés Indriðason. Þetta er
sjálfstætt framhald af bók And-
résar Bara stælar! sem kom út í
fyrrahaust.
Enga stæla! gerist í unglinga-
vinnunni sumarið eftir 8. bekk.
Þar púla þau í sólskininu Jón
Agnar, Lilli himnastigi og Ragn-
hildur (þessi sem slagar hátt upp í
Ungfrú heim). Jón Agnar og
Ragnhildur fá það verkefni að
mála yfir ósóma sem Lilli hefur
skrifað á skólavegginn meðan
verkstjórinn var að horfa á ann-
að, og þá verða þau af tilviljun
vitni að því að brotist er inn í
skólann þeirra. í kjölfarið fylgir
æsispennandi eltingaleikur sem
þó verður stundum gráthlægi-
legur, því krakkarnir eiga ekki
eingöngu í höggi við þjófa heldur
leynifélagið Svörtu hauskúpuna
líka.
Leiðarvísir um kynlífið
Frjálst framtak hefur sent frá
sér bókina Leiðbeiningar um
gott kynlíf eftir bandaríska fé-
lagsfræðinginn dr. Ruth West-
heimer. Dr. Ruth Westheimer
hefur undanfarin ár annast þætti
um kynlíf fyrir bandarískar
útvarps- og sjónvarpsstöðvar.
Bækur sínar byggir dr. Ruth
Westheimer á útvarps- og sjón-
varpsþáttum sínum. Hún tekur
upp spurningar sem fyrir hana
eru lagðar um kynlíf og leggur
síðan út frá þeim. Hún segir það
staðreynd að fjöldi fólks eigi í erf-
iðleikum í kynlífi sínu en hiki oft
við að leita ráða og leiðbeininga.
í flestum tilvikum sé hægt að gefa
fólki þau ráð sem duga og stuðia
þannig að hamingjusamara lífi •
þess.
Endurminningar
Halldórs E.
Sigurðssonar
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur gefið út síðara bindi endur-
minninga Halldórs E. Sigurðs-
sonar fyrrum ráðherra sem And-
rés Kristjánsson bjó til prentunar.
Halldór E. Sigurðsson var ráð-
herra í sjö ár og alþingismaður í
aldarfjórðung á áratugnum eftir
miðja þessa öld sem báru íslend-
inga eins og straumþung elfur inn
í nýjan tíma með nýjum lífshátt-
um. Af þessu öllu er mikil saga
sem ekki hefur verið sögð nema
að litlu leyti enn.
Þegar Halldór heldur áfram að
rekja æviminningar s nar í þessari
bók, víkur hann sögu sinni að
þessu tímabili. Að sjálfsögðu
greinir hann öðru fremur frá
þeim málefnum, sem hann átti
hlut að sjálfur á Alþingi og í ríkis-
stjórn, en segir líka sitt álit á fjöl-
mörgum öðrum stórmálum, á-
takaviðburðum og framvindunni
í þjóðmálum.
Halldór segir einnig frá litrík-
um stjórnmálaferli í Vesturlands-
kjördæmi og sveitarstjórn í Borg-
arnesi.
Frásögnina kryddar hann oft
með hnyttnum gamansögum,
Um gátur
sögunnar
Út er komin hjá Erni og Örlygi
bókin HORFNIR HEIMAR og er
eftir Ólaf Halldórsson kennara. í
bók þessari leitast Ólafur við að
varpa nýju Ijósi á ýmsa leyndar-
dóma sögunnar. Framan á bók-
inni er mynd af líkneski sem indí-
ánar í Mið-Ameríku gerðu af guði
sínum Quetzalcoatl, sem var
hvítskeggjaður. Undir myndinni
er varpað fram þeirri spumingu
hvort hér hafi verið um að ræða
Björn Breiðvikingakappa.
í kynningu segir að í þessari
nýstárlegu bók kannir höfundur-
inn ýmsa þætti heimssögunnar
sem og sögu íslands, - þætti sem
höfundar hefðbundinna vísinda-
rita og þá sérstaklega sagnfræði-
rita hafi veigrað sér við að fjalla
um eða taka afstöðu til.
Við lestur þessarar bókar fer
lesandinn um ýmsa baksali sög-
unnar, allt frá spurningu um það
hverjir námu Island fyrstir, til
bollalegginga um það hvaðan
frumstæðum ættflokki í Vestur-
Afríku barst víðtæk þekking í
stjörnufræði, svo sem fylgi-
stjörnu Síríusar og umferðartíma
hennar.
12 SfÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 2. desember 1986