Þjóðviljinn - 05.12.1986, Side 13

Þjóðviljinn - 05.12.1986, Side 13
Caspar Weinberger, varnamálaráðherra Bandaríkjanna, gaf ráðgjöfum Bandaríkjaforseta lélega ein- kunn í gær þegar hann sagði að forsetinn hefði fengið „slæm ráð“ hjá aðstoðarmönnum sínum. Gagnrýndi hann Robert McFar- lane, fyrrrum Þjóðaröryggisráð- gjafa sérstaklega. Weinberger var staddur í Brussel þegar hann sagði þetta í viðtali við banda- ríska sjónvarpsstöð. Hann ýjaði að því að Reagan hefði látið hefja sérstaka rannsókn á þessum „slæmu ráðum" og þeirri upp- Ijóstrun að hagnaður af vopna- sölu til írans hefði verið sendur til hryðjuverkamanna Contra sam- takanna í Nicaragua. Meira frá Bandaríkjunum. Larry Speak- es, sérstakur talsmaður Banda- ríkjaforseta, tilkynnti í gær að hann hygðist hætta störfum í Hvíta húsinu í Washington í fe- brúar á næsta ári og gerast vara- forseti Merryll Lynch fyrirtækisins sem er stærsta fjárfestingafyrir- tæki í heiminum. Enginn hefur enn verið valinn í stöðu Speakes. Hann sagði að staðan hjá forset- anum vegna íranmálsins hefði ekkert með ákvörðun sína að gera. Það voru ekki aðeins franskir stúdent- ar sem mótmæltu stjórnvöldum í gær. Spænskir stúdentar fóru þúsundum saman í mótmæla- göngur um götur Madridborgar til að mótmæla áformum ríkis- stjórnar sósíalista um breytingar á æðri menntun í landinu. Lög- reglan tók á móti námsmönnum með kylfum til að reyna að dreifa þeim. Líkt og gerst hefur nýlega í París voru hægrisinnar einnig á götunum og réðust þeir gegn námsmönnum með kylfur og fleiri barefli. Námsmennirnir gengu hins vegar að húsnæði menntamálaráðuneytisins og köstuðu fúleggjum. Hersveitir Bandaríkjanna verða fluttar burtu frá Evrópu ef Verkamannaflokk- urinn í Bretlandi kemst til valda eftir næstu kosningar þar í landi með stefnu sína um afnám kjarn- orkuvopna í landinu, er það sem yfirmaður herafla Nató, Bernard Rogers, hafði að segja í gær um kjarnorkustefnu Verkamanna- flokksins breska. „Ef áætlanir lík- ar þeim sem Verkamannaflokk- urinn hefur á prjónunum, verða að veruleika, munu Bandaríkin álykta sem svo: Gott, nóg komið. Við munum ekki leggja 350.000 hermanna okkar í hættu vegna hugarfars sem vísar frá sér ábyrgð fyrir vörnum yfir á aðra.“ Mjög var þrýst á sænsku ríkisstjórnina í gær að setja Hans Holmer, lög- reglustjóra Stokkhólms, af og fá annan til að stjórna leitinni að morðingja Olofs Palme. Mikill klofningur mun nú vera kominn upp meðal sænskra lögreglu- manna sem sumir vilja kenna Holmer um að ekkert hefur gengið í að upplýsa málið. Hátt- settir embættismenn í Svíþjóð hafa að undanförnu gagnrýnt lögregluna harkalega fyrir að hafa gert alvarleg mistök og unn- ið með litlum atvinnumannsbrag að lausn málsins. Lítið hefur gengið við rannsóknina frá því morðið var framið, þann 28. fe- brúar síðastliðinn. Mikillar svartsýni gætir nú hjá almenningi í Svíþjóð um að morðmálið verði leyst. Tólf leynilögreglumenn hafa tilkynnt að þeir hafi ákveðið að hætta þátttöku í rannsókninni. í kjölfar þess hafa tveir stjórnar- andstöðuflokkar hvatt ríkisstjórn- ina til að rjúfa þögn sína um rann- sókn morðsins. HEIMURINN Egyptaland Uppreisnartilraun afhjúpuð Egypskyfirvöld dlkynntu ígœrað þau hefðu komið upp um tilraun félaga í hinum múhameðsku Jihad samtökum til að gera uppreisn gegn ríkisstjórn Egyptalands Kaíró - Yfirvöld í Egyptalandi tilkynntu í gær að þau hefðu komið upp um tilraun óbreyttra borgara og yfir- manna í hernum til að steypa ríkisstjórn landsins. 30 manns voru handteknir, fjórir þeirra voru foringjar í her Egypta- lands. Yfirsaksóknari Egyptalands, Mohammed El-Gindi, tilkynnti fréttamönnum í gær að allir þeir sem viðriðnir væru valdaránstil- raunina væru félagar í Jihad sam- tökunum sem bönnuð eru í Eg- yptalandi og talin eru hliðholl lran. Foringjarnir í hernum sem handteknir voru, eru allt frá lautinant upp í ofursta. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1981 þegar Sadat var myrtur, að upp kemst um Ji- had menn innan egypska hersins. Félagar í Jihad myrtu einmitt Sa- dat á hersýningu fyrir 5 árum. Gindi sagði að hinir 30 menn sem handteknir voru yrðu fljótlega færðir fyrir rétt, hann nefndi hins vegar ekki nákvæma dagsetn- ingu. Þeir eiga aliir á hættu að verða dæmdir í lífstíðar erfiði- svinnu í fangabúðum. Gindi sagði að hópurinn hefði náð vopnum af ýmsum gerðum frá eg- ypska hernum og sett upp þjálf- unarbúðir fyrir félaga hópsins. Meðal hinn 29 óbreyttu borgara sem handteknir voru var að finna lækna, kennara, verkfræðinga, verkamenn, háskólastúdenta og bændur. Árið 1982 voru fimm félagar í Jihad samtökunum teknir af lífi fyrir morðið á Sadat forseta. Frakkland Námsmenn mótmæla Geysilegur fjöldi námsmanna gekk í gær um götur Parísar og mótmœlti breytingaráformum franskra stjórnvalda á œðri menntun í landinu (síðustu viku lenti hægrisinnum saman við námsmenn sem mótmæltu á götum Parlsar. ( gær var hins vegar öflugur lögregluvörður sem hólt hægisinnum í fjarlægð. París - Franskir námsmenn stukku í gær út í Signu, klifu Eiffel turninn og gengu fylktu liði tugþúsundum saman um götur Parísar til að mótmæla áformum hægristjórnar Chir- acs forsætisráðherra um að herða aðgangstakmarkanir að æðri menntastofnunum í Frakklandi og öðrum breyting- um á franska skólakerfinu. Israel Arabískir námsmenn skotnir ísraelskir hermenn skutu á arabíska námsenn á Vesturbakkanum í gœr. Fréttum ber ekki saman um hvortþeir sem létust voru tveir eða þrír og hversu margir sœrðust Ramallah - Að minnsta kosti tveir palestínskir námsmenn voru skotnir tii bana í gær og fjölmargir særðust þegar ísra- elskir hermenn skutu að mótmælendum náiægt Bir Zeit háskólanum á hertekna svæð- inu á Vesturbakkanum. Fimmtán manns særðust, þar af tveir alvarlega við Bir Zeit há- skólann en þar hefur löngum gerjast mikil palestínsk þjóðern- ishyggja meðal palestínskra námsmanna. „Sjálfstæða palest- ínska fréttastofan" tilkynnti að þrír palestínskir námsmenn hefðu látist í skothríðinni og 23 hefðu særst. Talsmaður ísraelska hersins sagði að hermenn hefðu fyrst skotið í loft upp og síðan á jörð- ina til að dreifa mótmælendum utan við háskólalóðina. talsmað- urinn sagði ekkert um hina látnu. Eftir að atburðurinn átti sér stað var svæðið lokað af og ljósmynd- urunum sagt að halda sig fjarri annars ættu þeir á hættu að verða handteknir. Palestínskir náms- menn sögðu hins vegar að átök hefðu hafist þegar hermenn settu upp vegartálma við veginn að háskólanum og námsmenn hófu þá setuverkfall á veginum. Enn aðrir sögðu að hermennirnir hefðu hafið skothríð án nokkurs tilefnis. ísraelsmenn hertóku vestur- bakka Jórdanár af Jórdaníu í stríðinu 1967. Nú búa um það bil 900.000 Arabar á vesturbakkan- um og um 50.000 Gyðingar. Nú ríkir þarna, eins og oft áður, mikil spenna milli Araba og Gyð- inga. Andrúmsloftið í þessum mót- mælum var fjörlegt en rúmlega 3000 manna lögreglulið gætti þess að atburðir síðustu viku endur- tækju sig ekki þegar hægrisinnum lenti saman við námsmenn sem voru þá að mótmæla stefnu stjórnavalda í menntamálum. Námsrnennimir gengu frá Bast- illutorgi til franska þinghússins. Hægrisinnar biðu þeirra á leiðinni með grímur og hjálma en lögreglan hélt þeim í hæfilegri fjarlægð frá mótmælagöngunni. Skipuleggjendur göngunnar sögðust vonast til að þátttakend- ur færu yfir hundrað þúsund manns en skipulagðar höfðu ver- ið lestarferðir til Parísar fyrir námsmenn utan af landi. Síðastliðinn sunnudag lofaði Chirac forsætisráðherra að ýmsar tillögur ríkisstjórnarinnar um breytingar á skólamálum lands- ins yrðu lagfærðar en neitaði að leggja þær til hliðar eins og náms- menn hafa krafist. Námsmenn segja að ríkisstjórnin hyggist herða aðgangstakmarkanir og hækka skólagjöld. ERLENDAR FRÉITIR INGÓLFUR /_ — _ HJÖRLEIFSSON R E U 1 E R Danmörk Landamæraverslun Óvinsœl meðal ráðamanna - vinsœl meðal almennings Frá Gesti Guðmundssyni, fréttaritara Pjóðviljans í Kaupmannahöfn: Danska ríkisstjórnin ieitar nú allra ráða til að koma í veg fyrir svonefnda landamæra- verslun sem kostar danska rík- ið milljarða króna á hverju ári. Hér um það að ræða að Danir skreppa til Þýskalands og kaupa vörur, einkum rafmagnsvörur og áfengi, sem þýska ríkið leggur mun minni skatta og gjöld á en það danska. Þeir sem búa næst landamærunum, t.d. S-Jótar, fara oftar en aðrir í slíka skreppi- túra, enda eiga kaupmenn á S- Jótlandi nú í vök að verjast og loka unnvörpum búðum sínum um þessar mundir. Frá norð- lægari hluta Danmerkur eru skipulagðar sérstakar rútuferðir með innkaup að markmiði og er mikið um slíkar ferðir nú fyrir jól- in. Ríkisstjómin reynir nú að finna leiðir til að stemma stigu við þessum viðskiptum sem kosta ríkið um það bil 5 % af söluskatts- og vörugjaldstekjum og veita 2 til 3 % af heildarversl- un Dana í kassa þýskra kaup- manna. Reglur um það hversu mikinn varning má flytja milli landa, hafa verið hertar en flestir kæra sig kollótta og taka sénsinn á að lenda ekki í stikkprufum tollvarða. Efnahagsbandalagið lítur núverandi takmarkanir á landamæraverslun hornauga og mun alls ekki leyfa frekari tak- markanir svo að litlar líkur em á að ríkisstjórninni takist að setja fyrir lekann. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.