Þjóðviljinn - 19.12.1986, Side 2
}
i
I
I
Jólamaturinn
Svínið minn
ríkjandi
jólaréttur
Stefán Stefánsson yfirmatsveinn í
Múlakaffi opinberar leyndarmálið
um svínið
Stefán handleikur jólamatinn. (Ljósm. E.ÓI.)
í gegnum árin hefur svínasteik
verið ríkjandi réttur á jólaborðinu
hjá mér. Fyrst á heimili móður
minnar og síðan á mínu heimili,
sagði Stefán Stefánsson yfir
matsveinn í Múlakaffi þegar hann
var spurður um uppáhaldsjóla-
matinn.
Stefán sagði að þó væri ein-
staka sinnum fuglakjöt á mats-
eðlinum og þá yfirleitt gæs, en
hér á eftir fara uppskriftir af þess-
um „dýrindis mat“ eins og Stefán
orðar það. Því er við að bæta að
matreiðslan á jólamatnum fellur
ævinlega í hlut Stefáns þó flesta
aðra daga sjái eiginkonan um
kokkeríið á heimilinu.
Svínasteik
með krassandi skorpu (fyrir 6)
2 kg. svínakjöt úr bóg eða læri
salt og pipar
negulnaglar
lárviðarlauf
rifsberjahlaup
olía
Ristið pöruna á svínakjöt-
inu í hæfilegar ræmur með
beittum hníf, en þó ekki of
djúpt. Penslið með olíu og
kryddið með salti og pipar.
Stingið negulnöglunum og
lárviðarlaufunum í pöruna.
Setjið síðan steikina í 200
gráðu heitan ofn í u.þ.b. 30
mínútur. Minnkið þá hitann í
180 gráður og Ijúkið steiking-
unni á þeim hita. U.þ.b. 1
klukkustund.
Færið steikina upp á fat og
haldið henni heitri. Fleytið fit-
una ofan af soðinu í ofnskúff-
unni og hrærið vel upp
steikarskán sem kánn að vera
íhenni. Kryddiðeftirsmekk og
bætið með rifsberjahlaupi.
Rauðkál, grænar baunir eða
hvaða grænmeti sem er, hrátt
eða soðið, má bera fram með
steikinni. Sykurbrúnaðar
kartóflur eru nauðsynlegar
með, en á mínu heimili höfum
við líka alltaf kartöflusalat
með.
Kartöflusalat
Vz græn paprika
1 sellery stöngull
Væn grein steinselja
1 bikar sýrður rjómi
2 matsk. mayonaise
1 matsk. vínedik
V2 tesk. karrý
1 matsk. sweet relish
2 soðin egg
Afhýðið kartöflurnar og
skerið í litla bita. Takið fræin
úr paprikunni og skerið í smáa
bita. Skerið sellerístönglana
og blaðlaukinn þvert í smásn-
eiðar, klippið steinseljuna og
skerið harðsoðin eggin í smá-
bita. Blandið saman sýrðum
rjóma, mayonaisi, ediki, karr-
ýi, pipar og sweet relish. Setj-
ið því næst grænmetið, kart-
öflurnar og eggin út í. Mjög
gott er að láta salatið standa í
kæliskáp áður en neytt er.
Annar siður er einnig á
mínu heimili, sem og fleirum,
en það er að borða jólagraut
með möndlu í. Sá sem hreppir
möndluna fær svo auðvitað
veglega möndlugjöf.
Jólagrautur
Hrísgrjón eru soðin í u.þ.b.
18 mín. og látin kólna.
Þeyttum rjóma, blönduðum
kokteilávöxtum og rúsínum er
bætt saman við grjónin.
Blandan er síðan bragðbætt
með sykri og vanillu og borin
fram með saft. Og auðvitað
má ekki gleyma möndlunni.
Þessi réttur er nauðsynlegur
fyrir jólastemmninguna.
..JOLATILBOÐ
FJOLSKYLDUNNAR
FRA PANASONIC
Nú, þegar fjölskyldan slær saman í
eina veglegajólagjöf, er mikiö atriöi aö
vanda valið. Á tímum gylliboða er
nauðsynlegt að staldra við og hugsa
sig vel um, því nóg er framboðið og
ekki vantar hástemmdu lýsingarorðin.
Við viljum þess vegna benda ykkur á
Panasonic sem vænlegan kost,
sérstaklega þegar það er haft í huga,
að Panasonic myndbandstækin fara
sigurför um heiminn og eru í dag
lang-mest keyptu tækin. Einnig má
minna á, að sem stærsti myndbands-
tækjaframleiðandi heims, eyða þeir
rnargfalt meiri peningum í rannsóknir
og tilraunir en nokkur annar framleið-
andi. Það þarf því engum að koma á
óvart að samkvæmt umfangsmestu
gæðakönnun sem framkvæmd hefur
verið hjá neytendasamtökum í sjö
V-Evrópulöndum varð niðurstaðan sú,
að myndbandstækin frá Panasonic
biluðu minnst og entust best allra
tækja. Þessar staðreyndir segja meira
en hástemmt auglýsingaskrum.
Jólatilboð á NV-G7 frá
37.850,-
m
WJAPIS
BRAUTARHOLT 2 SiMI 27133
'-sss&w-éF ******