Þjóðviljinn - 19.12.1986, Síða 3
Ari Garðar Georgsson
„ Við höfum alltaf fengið sent
hangikjöt að heiman til þess
að hafa á aðfangadag úti í
Bandaríkjunum en síðastliðin
tíu ár hef ég unnið ájóladag,"
sagði Ari Garðar Georgsson
matreiðslumeistari þegar
Þjóðviljinn sótti hann heim í
Bláskógana og innti hann eftir
því hvað hann léti ofan í sig
um hátíðarnar.
„Ég býst ekki við að ég verði
neitt í eldhúsinu þessi jól, maður
verður á þeytingi milli ættingja og
vina,“ sagði Ari Garðar.
Hann hefur starfað sem yfir-
matreiðslumeistari á fimm-
stjörnu hótelinu Qail Lodge í
Bandaríkjunum undanfarin sex
ár og þar byrjaði hann einmitt að
kenna Bandaríkjamönnum að
borða jólafuglinn akurhænu.
„Kalkúnninn hefur alltaf verið
hefðbundinn jólamatur í Amer-
íku en ég byrjaði á að matreiða
akurhænu á jóladag og það vakti
mikla athygli,“ sagði Ari Garðar.
„Línan „Partridge in a pear tree“
úr alkunnu jólalagi var þemað á
matseðlinum og fólk ók langar
leiðir til þess að fá þennan rétt hjá
mér.
Ég hef alltaf unnið fyrripart að-
fangadags til þess að undirbúa
jóladaginn, en hann er langann-
asamasti dagur ársins á veitinga-
stöðum í Amenku. Ég hef verið
kominn heim um hálfsex í hang-
ikjötið og það fannst mörgum
það skrítið að vera að halda upp á
jólin á aðfangadag. En svona
erum við íslendingar. Eftir að
mesta annríkið er búið á hótelinu
á jóladag sest starfsfólkið svo nið-
ur ásamt fjölskyldum sínum til
þess að borða jólamatinn."
En það er ekki heiglum hent að
nálgast akurhænur á fslandi og
þess vegna fengum við þessa
girnilegu uppskrift að rjúpum hjá
Ara Garðari. -vd.
Kalkúnn
vinnur sífellt á sem jólamatur á íslandi. Eftirfarandi uppskrift
fengum við hjá Ara Garðari Georgssyni matreiðslumeistara,
njótið vel:
Kalkúnn fyrir tíu
4 kg. kalkúnn er steiktur í 3 1/2 til 4 tíma og feiti er ausið yfir á
20 mínútna fresti. Kryddið kalkúninn með salti, pipar og papr-
iku.
Fylling
400 gr. svínahakk
laukur
3 stk. sellerí stilkar
200 gr. afhýddar og þurrkaðar kastaníuhnetur
Látnar liggja í bleyti yfir nótt.
3 egg
50 gr. smjörlíki
Salt, pipar og paprika
1V2 -2 matsk. sagekrydd (salvía)
2-3 bollar af brauðteningum
Brúnið laukinn, selleríið og hakkið. Kryddið, setjið hneturnar,
eggin og brauðteningana út í. Bakað í eldföstu formi í 45
mínútur.
ÞORLÁKSMESSU
HÁDEGI
Á HÓTEL BORG
Vegna gífurlegra vinsælda hvetjum við alla þá, sem
áhuga hafa til aö eyöa hádeginu í
SKÖTUVEISLU
á Borginni, til aö panta borð tímanlega.
Úrvals skata og sattfiskur
Sfml 11440
Ari Garðar Georgsson matreiðslumeistari heldur hér á sívinsælum jólamat, rjúpum. Mynd Sig.
Rjúpur fyrir fjóra
6 rjúpur
1 laukur
2 gulrætur
2 sellery stilkar
10 einiber
2 lárviðarlauf
2 matsk. rifsberjahlaup
1 -2 matsk. gráðostur
V2 dl. rjómi
5 bollar vatn
Blái borðinn (smjörlíki)
salt & pipar
Brúnið bringurnar í smjör-
líkinu á pönnu, 2-3 mínútur á
hvorri hlið og leggið þær svo
til hliðar. Látið hjörtun, fóarn,
læri og hryggina á pönnuna
og brúnið ásamt grænmetinu
sem er skorið gróft áður.
Hellið vatni yfir og sjóðið við
hægan hita í 30 mínútur með
bringunum og kryddjurtunum.
Síðan eru bringurnar færðar
upp úr, soðið sigtað og þær
látnar malla í 15 mínútur,
færðar upp úr soðinu og það
jafnað. Bætið síðan rifsberj-
ahlaupi, gráðosti og rjóma út í,
raðið rjúpunum á pönnuna,
sigtið sósuna yfir og látið þær
sjóða í 5 mínútur. Fært á fat.
Með þessu má til dæmis
berafram bökuð epli, brokkoli
(spergilkál) og kartöflur að
eigin vali.
Bökuð epli
4 epli
4 matsk. brúnn sykur
2 matsk. rúsínur
1/2tesk. kanill
Sýróp (helst Mable)
Eplin eru sneidd að ofan og
stilkurinn er tekinn innan úr.
Þau eru fyllt með sykri, rúsínu
og kanil blöndunni, raðað í
eldfast mót, sýrópinu hellt yfir
og bökuð í meðalheitum ofni í
30 mínútur.
Það er gaman í skóginum og þar býr
bangsafjölskyldan, pabbinn, mamman og
litlu bangsabörnin sem leika sér úti allan
daginn. Bangsabörnin eiga rólur, rennibraut,
sandkassa og fleiri leikföng. I fallega
bangsahúsinu eru borð stólar, rúm og skápar
fullir af fötum svo bangsafjölskyldan geti
skipt um föt áður en hún fer í gönguferð.
Skógarbangsarnir — skemmtileg og
falleg leikföng.
Fást í:
LEIKFANGAVERSLUNUM,
BÓKABÚÐUM og HEILDVERSLUN
KAUPFELOGUM simi 12877
nÆihf.