Þjóðviljinn - 19.12.1986, Qupperneq 7
Charles Le Brun:
Iftrun Magdalenu.
Mynd þessi, sem er máluð í anda barokklistarinnar er eftir einn af
hirðmálurum Lúðvíks XIV, og er hún máluð ca. 1656. Myndin er
252x171 cm, máluð með olíu á léreft og geymd í Louvre-safninu í
París.
Þótt þjóðsagan um að málarinn hafi haft þekkta franska aðalskonu,
madame de la Vallióre að nafni, að fyrirsætu við gerð þessarar
myndar eigi kannski ekki við rök að styðjast, þá fer ekki á milli mála
að hér hefur heldri kona setið fyrir. Enda var það tíska í Frakklandi á
þessum tíma meðal heldri kvenna að láta mála sig í hlutverki M.M.
íburðarmikil klæðaföllin hafatáknræna liti: rauðan, sem ertákn
ástarinnar og yfirleitt einkennislitur M.M., bláan, sem er tákn iðrunar
og hvítan sem er tákn hreinleika. Við sjáum hvar M.M. slítur af sér
skartgripina (tákn hégómans) á meðan augun horfa til himins í
trúarlegri vímu. Skartgripaskrínið ligguropiðog perlurnardreifast
um gólfið. Þokan sem leggur inn um gluggann er samkvæmt trúar-
legri mystík nýplatónista tákn fyrir guðdómlega visku: hún hylur hið
sjáanlega til þess að gera hið ósýnilega sýnilegt. Helgisagan um
M.M. kitlaði fordild heldri kvenna á barokktímanum vegna þess að í
henni gátu þær sameinað hégómann og heilagleikann.
Donatello:
Magdalena í útlegftinni.
T réskurðarmynd, gerð ca. 1453-55, hæð
188 cm.
Donatello varfremsti myndhöggvari Flór-
ensborgar fyrir daga Michelangelo. Hann
var forvígismaður endurreisnarinnar í ít-
alskri höggmyndalist. Myndin af M.M. er
eitt af hans síðustu verkum, og er einstök
fyrir raunsæið sem í henni felst. Við
sjáum M.M. nakta í útlegðinni. Holdið er
visnað, tönnum hefur fækkað og einung-
is hárið skýlir nekt hennar. Þannig birtist
M.M. einnig í fyrstu helgimyndunum sem
varðveist hafa af henni í síðgotneskum
og bísönskum stíl. Þannig sáu hinirfá-
tæku kristsmunkar af reglu heilags Frans
M.M. sem hliðstæðu við kennimeistara
sinn Á15. öldinni hölluðust áhangendur
munksins Savanarola einnig að þessari
ímynd M.M. Þeirfordæmdu veraldar-
hyggju aðals og klerkavalds og boðuðu
meinlæti holdsins. Hvort Donatellofylgdi
Savanarola að málum veit ég ekki, en hér
gætir ekki þeirra nýplatónsku áhrifa sem
síðar komust í tísku í Flórens.
Forsíðumyndin
Glovannl Pedrinl, kalladur Glanpletrino:
Heilög María Magdalena.
Olíumálverk frá fyrri hluta 16. aldar (63x49,5 cm).
Pedrini var frá Mílanó og starfaði á fyrri hluta 16. aldar. Þær
fáu myndir sem varðveittar eru eftir hann sýna áhrif frá skóla
Leonardo da Vinci. Málarinn leitast hér við að láta líkamlega
fegurð dýrlingsins endurspegla innri fegurð og guðdómleik
sálarinnar. Holdið og andinn sameinuð í kvenlegri ímynd
Maríu Magdalenu.
ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 7