Þjóðviljinn - 19.12.1986, Síða 18
Snorri Sturluson
gegn Belladonna
Fyrsti maðurinn sem ég rak
augun í á göngum Hótel Loft-
leiða var Snorri. Hann sat við
dymar og svipurinn var eins og á
varðhundi sem hafði engan til að
bíta.
Skráningu var lokið í Portoroz-
mótið og ég vissi að Snorri yrði
ekki meðal þátttakenda. Lán-
leysi var aðall Snorra, en makk-
ersleysi bætti ekki úr skák.
- Þú hér, heilsaði ég, leitt að þú
komst ekki að.
Snorri setti upp spurnarsvip.
- Þú hefur ekki keypt einhvern
út úr mótinu Snorri minn. HA?
- Ertu frá þér drengur.
- Af hverju rotarðu ekki einn
spilarann og felur niðrí kjallara?
Snorri varð hugsi.
- Nei. Ég hefði enga burði í
það.
Snorri var 88 ára gamall.
- Hinkraðu aðeins strákur.
Snorri dró upp bréfsnifsi. Líttu á
þetta klúður: (A)
Norður
S:AK104
H: 1052
T: KG4
L: K94
Vestur
S: DG85
H: G863
T: D65
L: 82
Suður
S: 976
H: A
T: A8732
L: A753
Suður, ræfilinn, spilar 6 tígla.
Della auðvitað. Sagnir? Sama
dellan. Nú, vestur spilar út
hjarta-3, fjórða besta.
Ég rýndi í spilið. - Þetta lítur
bara vel út, ha?
Snorri mændi á mig.
- Og illa líka?
Snorri missti þolinmæðina. -
Suður svínaði trompi og tók
trompin sem úti voru, endaði á
hendi. Spaða-9, gosi og kóngur.
Lauf á ás. Spaða-7, átta og tía.
Hjarta á tromp. Spaða-6, drottn-
ing, ás. Sagnhafi reyndi síðan
laufin og tapaði spilinu.
^-Snorri var hneykslaður.
- Greyið. Er það nokkur ræna
að tína öll eggin í annan rassva-
sann? Jæja?
Ég fann enga andskotans
lausn. Enda fær enginn meir en
fáeinar sekúndur til að glíma við
dæmi Snorra.
- Það er rétt að byrja á að svína
í trompinu. Þá tromp á ás og í ljós
kemur að vestur á 7 spil í rauðu
litunum, og ALLIR vita mun á
3-3 og 4-2 skiftingu. Nú, þú ferð
eins í spaðann og sagnhafi og
trompar hjörtu í bakaleiðinni.
Þegar þú spilar síðasta spaðann
með síðasta trompinu heima,
spilar lauf á kóng, í 11. slag er
tímabært að hirða trompið sem
úti fraus, og þú gefur einn slag á
lauf.
- Lauflétt spil. Aumingja Bell-
adonna...
- Tapaði HANN...?
— ... að þurfa að horfa upp á
þetta. D’Alelio var sagnhafi.
Heyrðu, strákur, þessi Jeretec,
... ég var nú að hugsa að nóg væri
lagt..., gæti sjálfsagt hlaupið í....,
- SNORRI. Sestu bara nálægt
Belladonna og horfðu á. Þú
græðir á því.
Ég hefði EKKI átt að segja
þetta.
Portoroz-mótið
Föstudagskvöld
Fyrstu umferðirnar komu svit-
anum rækilega út á spilurunum.
Þeir talnaglöggustu gáfust fljótt
upp á að henda reiður á ógrynni
af mögulegum og ómögulegum
slemmum sem buðust. Þetta var
eins og að feta einstigi. Áhorf-
endur skemmtu sér, Snorri þeirra
á meðal. Hann hafði klesst sér
upp að hlið Jeretec, hins júgó-
slavneska. Eitthvað var í bígerð:
- Bravóissimó, hljómaði um
salinn þegar Belladonna tókst
vel.
Bassarödd Snorra.
- Issimó, eða eitthvað f þeim
dúr mátti greina, ef Júgóslavinn
kom við sögu.
Þetta spil gaf Snorra tilefni til
að tóna: (B)
Norður
S: KD109754
H: K3
T: 65
L: G7
Vestur
S: 2
H: 754
T: D874
L: AKD109
Suður
S: A63
H: G982
T: A32
L: 652
Gjafari A. A-V á hættu:
Austur vakti á Precision tígli.
Vestur 2-lauf og Belladonna
hindraði með 3-spöðum. Horfur
á úttekt voru hverfandi, af sjón-
arhól austurs, svo hann doblaði
til sektar. Útspil lauf-8. Vestur
spilaði litnum þrisvar og Bella-
donna trompaði með kóng. Tók
síðan tromp drottningu og spilaði
trompi á ás. Bað síðan um tígul úr
blindum. Vestur reyndi að hjálpa
með tígul-8. Bjarnargreiði.
Austur varð að eiga slaginn á ní-
una. Þessi litli millileikur hafði
sett hann í rækilega klípu. Hvort
átti Belladonna 2-2 í rauðu litun-
um eða eitt hjarta og Dxx í tígli?
Það virtist aðeins eitt ráð til að
komast að því. Spila einhverju.
Austur lagði niður hjarta-ás.
Belladonna sýndi spil sín:
- I just make, eh... e?
(þýð: Ég fæ víst 9 slagi).
Skömmu síðar var sveiað svo
hressilega að ómaði um víðan sal.
Orsökin: spil C.
Norður
S: AG5
H: AK104
T: K94
L: A62
Vestur Austur
S: KD1093 S: 64
H: 862 H: D95
T: A76 T: G1032
L: K7 L: G1095
Suður
S: 872
H: G73
T: D85
L: D843
Gjafari V. Allir á.
Vestur hóf sagnir á 1-spaða,
Belladonna doblaði, pass og Jer-
etec sá þann kost vænstan að
segja 1-grand. Belladonna hækk-
aði í þrjú.
Útspilið spaða-kóngur. Það
vafðist ekkert fyrir Jeretec að
tapa spilinu. Fékk reyndar aðeins
7 slagi. Hann drap strax á ás og
spilaði laufi, taldi vænlegast að
reikna vestur með hjarta drottn-
ingu aðra eða þriðju og austur
með lauf kóng. Austur lét lauf-5
nægja og Jeretec stóð við áætlun
sína. Spilið var nú í molum.
Snorri sat sem fyrr svo þétt við
hlið Júgóslavanes að þeir urðu
vart aðgreindir. Hann hafði fund-
ið vænlega leið sem við nánari
athugun hefði gefið 9 slagi: Spað-
inn gefinn, vestur sækir áfram
litinn og gosi á slaginn. Þá tveir
efstu í hjarta og enn hjarta.
Austur á slaginn. Spilar laufgosa,
þvingað. Á slaginn. Hann heldur
áfram með lauf. Sagnhafi lætur
lítið að heiman og kóngurinn fer
á höggstokkinn. Tígli er nú spilað
á drottningu og ás. Nú er nokkuð
sama hverju vestur spilar. Þegar
sagnhafi hefur tekið spaðaás og
spilar 13. hjartanu er austur í
vonlausri stöðu með lálitavöldin.
Níundi slagurinn fæst á lauf-8 eða
tígul-9.
Eftir opnun vesturs er þessi
vinningsleið rökrétt.
, -MaybeINeverbid....?Bella-
donna var mæddur.
Hann var eins og skakki turn-
inn í Pisa, studdur af Jeretec, út-
listaði Snorri síðar.
En það dró til tíðinda. Við lok
síðustu umferðar um kvöldið
greip Belladonna til örþrifaráða.
Tók Jereteco kverkataki miklu
og skók duglega. Ljósmyndari
DV var nærstaddur og festi atvik-
ið óðara á filmu. Gamansemi,
töldu menn. Þeim skjátlaðist.
Laugardagur
Ég mætti snemma til leiks dag-
inn eftir. í spilasalnum sá ég
Snorra í sæti Jeretec í „gryfj-
unni“. Hörðustu aðdáendurnir
sátu í kring. Höfðu setið þarna
yfir nóttina?
- Ertu að verma bólið, kallinn?
- Ég á nú orðið erfitt með að
standa upp þegar ég er á annað
borð sestur, ansaði Snorri.
Belladonna kom skömmu síð-
ar, án Jeretec og settist andspæn-
is Snorra. Fiskisagan flaug. Júgó-
slavinn var lasinn.
Fiensan, töldu sumir. Aðrir
tæptu á hálsbólgu.
Spilamennskan hófst. Fyrsta
spilið var sennilega örlagaríkasta
spilið í mótinu. Gjafari V, A-V á
hættu. (D)
Norður
S: A62
H: AD42
T: G10
L: AK32
Vestur
S: K103
H: K10965
T: A752
L: 8
Suður
S: D954
H: G
T: KD9864
L: D9
Eftir tvö pöss vakti fífldjarft
ungmenni í vestur á 2-hjörtum,
þrátt fyrir öfugar hættur og pass-
aðan makker. Opnunin var veik,
7-11 punktar, minnst 5-4 í hjarta
og lálit. Belladonna í norður
passaði. Sama gerði austur (og
fór sennilega með bænir í hljóði).
Röðin var komin að Snorra. Það
kom EKKI til álita að refsa, eða
dobla, eins og flestir orða það.
Belladonna og Snorri höfðu, með
aðstoð áhorfenda, ákveðið að
segja EÐLILEGA, ÁN undan-
tekninga. Grandopnun var 17-
20. Allt annað leikið af fingrum
fram.
Belladonna beið eftir dobli.
Snorri bauð 3-tígla. Belladonna
breytti í 3 grönd. Snorri lýsti því
sem hann sá: 4-tíglar.
Belladonna lyfti í 6-tígla.
Útspilið vesturs var tromp.
Snorri var innan við 2 mínútur að
raka saman 12 slögum. Vestur og
Suður skiptust á að spila tromp-
um uns ekkert var úti. Lagt á
hjarta gosa og tekið í borði.
Hjarta drottning og hjarta trom-
pað. Þrisvar lauf og lauf trom-
pað.
í þriggja spila endastöðu mátti
Vestur ekkert spil missa. Sama
var hvort hann beraði spaðakóng
eða fleygði síðasta hjartanu.
Austur
S- 37
H: KD874
T: 109
L: DG106
Austur
S: G8
H: AD106
T: KG109
L: 843
Austur
S: G87
H: 873
T: 3
L: G107654
Ekkert annað par sá ástæðu til
að reyna við slemmu. 920.
- BRAVO, sagði Belladonna.
- Double only 800, EH...?
- HA?, ansaði Snorri.
Á næsta borði áttust við efstu
pörin. Sagnir byrjuðu eins, en
suður doblaði, til úttektar vitan-
lega. Það var spilað. Vörnin byrj-
aði ekki vel: Laufás og skipt í
spaða í von um að koma félaga
inn til að fá tromp í gegn. Áttan
úr borði, nía og tían vann. Tígu-
lás og tígull trompaður. Lauf
trompað. Tígull sem norður
trompaði með drottningu. Hann
spilaði trompás og meira trompi.
Þegar gosinn birtist í suðri lét
sagnhafi tíuna undir, og átti
næsta slag í borði. Spaða gosi,
drottning, kóngur og ás. Lauf
framhaldið var trompað. Tromp-
kóngur sá fyrir síðasta trompi
norðurs og spaða-7 var 8. slagur-
inn. 670.
Snorri og Belladonna skoruðu
þolanlega. Ekkert meir. Stefndu
sjaldan að sama marki í sögnum.
Én vörnin var í
Lítum á dæmi: (E)
Norður
S: 974
H: AG86
T: AD42
L: 72
Vestur
S: 6532
H: D3
T: KG76
L: A54
Suður
S: KD8
H: 9742
T: 85
L: 10963
Nokkur pör hömuðust alla leið
í 3 grönd, spiluð í austur, sem er
meir en lítil keyrsla á spilin. Ótrú-
legt nokk fengu flestir 9 slagi,
nema á móti Belladonna og
Snorra. 7 slagir urðu þar afrak-
sturinn. Snorri valdi að spila út
hjarta-7. Sagnhafi vann gosa
Belladonna og hleypti tígul-10.
Hún kostaði Belladonna ásinn!
Hann skipti í spaða-4. Snorri átti
slaginn á drottningu og skipti aft-
ur í hjarta. Belladonna vann á ás
og spilaði enn spaða. Aftur svín-
aði sagnhafi, og fékk hjarta til
baka. Sagnhafi þóttist viss um að
hjörtun skiptust 4-4. Hann sá
einnig að varhugavert gat orðið
að taka fjórum sinnum lauf ef
Snorri ætti D8x í tígli og legði á
níuna, eða þannig skýrði hann
það eftirá. Kannski hafði hann
tínt spaðaásnum á höndinni.
Ásar eru oft innkomur í
gröndum.
Ef hann hirðir laufslaginn og
leggur niður spaðaás, áður en
hann heldur áfram með tígulinn,
fær hann talningu og Belladonna
er refsað fyrir græðgina að reyna
að setja spilið tvo niður.
Tígul drottning hremmdi því
níuna og 6. slagur varnarinnar
fékkst á hjarta.
Eða eins og Snorri orðaði það:
- Maður getur ekki bæði skotið
rjúpuna og étið hana ef notuð er
fallbyssa.
Það leið að mótslokum. Ljóst
var að Snorri og Belladonna yrðu
ekki í toppbaráttunni. Eftir að
úrslit voru kunn og verðlaun
höfðu verið afhent hitti ég
Snorra.
- Jæja, þetta tókst nú bærilega
hjá þér.
- Þakka þér fyrir.
- Ég átti nú við ráðabruggið.
- Ég líka.
Þögn.
- Heyrðu drengur. Þú átt eftir
að þvæla um þetta í blöðunum.
Ég var að hugsa um næsta stór-
mót Flugleiða. Mig sárvantar...
- Talaðu við einhvern ráðher-
rann.
- Biddu fyrir þér. Ha?
Ég kvaddi í flýti. Það var orð-
inn ávani hjá mér; að taka til fót-
anna þegar Snorri fær hugdettu.
- Kannski ég hringi í Davíð,
kallaði hann á eftir mér. Hann er
vís til að eigna mér hugmyndina.
Ef illa fer.
(E.M. Birt af fullkomnu ábyrgð-
arleysi.
spil A) Úr viðureign Ítalíu og
USA á HM1963. Tapaðist eins
og að framan greinir.
spil B) Portoroz-mótið. Vannst
þannig við eitt borð.
spil C) Úr hraðsv.keppni hjá
B.K. 3 grönd spiluð og unnin
þannig af Sævin Bjarnasyni
spil E) Portoroz-mótið. Vörn
sem hvergi fannst (?): Að
skipta í spaða.
spil D) 2 hjörtu dobluð og unnin í
viðureign höfunda og Þ. og Þ.).
H.L. - Ó.L.
gæðaflokki.
Austur
S: AGIO
H: K105
T: 1093
L: KDG8
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN