Þjóðviljinn - 21.12.1986, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 21.12.1986, Qupperneq 20
Robin Williams í hlutverki Tommy Wilhelm. Niður- drepandi fyrir orðstír Þeir segja að þetta hefði hvergi getað gerst nema í skáldsögu eftir Saul Bellow. Kvikmynd stoppuð af umboösmönnum að- alleikarans, vegna þess að hann er þekktur sem grínleikari og frammistaða hans í þessu alvar- lega hlutverki álitin geta skaðað orðstír hans sem sprellara. Þetta er reyndar ekki atriði úr skáldsögu eftir Bellow en tengist einni slíkri. Nefnist hún Seize the Day og er eina skáldsaga höfund- arins sem hefur verið kvikmynd- uð og nú virðist kvikmyndin, sem þegar er fullgerð, ekki mega koma fyrir sjónir áhorfenda. Það eru lögfræðingar Robin Wil- liams, sem reyna allt sem þeir geta til að koma í veg fyrir sýn- ingu á myndinni. Williams er einna þekktastur fyrir túlkun sína á Stjána bláa, en hefur auk þess leikið í fjölmörg- um kvikmyndum af léttara tag- inu. í kvikmyndinni Seize the Day, leikur hann persónu af allt öðru sauðarhúsi en hingað til. Hann leikur aðal söguhetju bók- arinnar, Tommy Wilhelm, al- vörugefna persónu og gerir það að sögn þeirra örfáu sem hafa séð myndina, mjög vel og án allra skrípaláta. Það eru umboðsmenn Wil- Iiams sem hafa sett lögbann á kvikmyndina. Þeir segjast ekki hafa neina trú á því að kvikmynd- in verði sótt og þar sem þeim þótti hlutverk Williams alltof niðurdrepandi, þá muni þeir gera allt til að stöðva sýningu í kvik- myndahúsum. Það hefur líka sitt að segja að þær kvikmyndir sem Williams hefur leikið í að undan- förnu, hafa ekki gengið of vel. Samkvæmt upphaflega samn- ingnum við Robin Williams var ráðgert að sýna kvikmyndina ein- göngu í sjónvarpi og á kvikmynd- ahátíðum. Aðstandendur kvik- myndarinnar vonuðust hinsvegar til að hægt yrði að sýna myndina áður í kvikmyndahúsum, en nú virðist sú von vera orðin að engu. -Sáf Ringó kœiir vín Leikarar og rokkstjörnur eru óspart notaðar til að auglýsa vörur í útlandinu, alveg einsog hér. Tína Turner þenur til að mynda raddböndin fyrir Pepsí- kóladrukkinn, Beach Boys eru hrifnari af Sunkist og meira að segja Rollingarnir steinkuðu sig með ákveðinni tegund af Kölnar- vatni. Nýlega skrifaði Kenny Rogers upp á auglýsingasamning við an- anasfyrirtækið Cole og hljóðaði sá samningur upp á tæpar 800 miljónir króna. Og nú hefur einn af Bítlunum bæst í hóp þeirra skemmtikrafta sem taka þátt í auglýsingaskruminu. Það ersjálf- ur trymbillinn Ringo Starr. Ringo skrifaði undir samning við kanadíska vínframleiðendur. Auglýsir hann kælifötur fyrir vín- flöskur. Ekki hefur fengist upp- gefið hvað Ringó fái í sinn hlut en ólíklegt þykir að hann selji sig ódýrar en Kenny Rogers. Dagar útvarpsins Næsta kvikmynd Woody Al- lens verður með miklu tónlistarí- vafi þó ekki sé hægt að kalla hana músikal. Nefnist hún Dagar út- varpsins og einsog hér á Fróni leikur Léttsveitin stóra rullu. Að- alhlutverkið er í höndum Miu Farrow, einsog í síðustu kvik- myndum Woodys, en gömul vin- kona hans, sambýliskona og að- alleikkona í eldri myndum, Di- ana Keaton, leikur einnig í mynd- inni. Mia Farrow leikur stúlku sem gengur á milli sætaraða og selur sígarettur og annað smotterí. Hún er uppgötvuð og gerð að söngvara léttsveitarinnar. Við hjá SS mælum sérstaklega með rauðvínslegnu eða jurtakrydduðu lambalæri íhátíðarmatinn. Rauðvínslegnu og jurtakrydduðu lambalærin frá SS eru eingöngu unnin úr nýju, fyrsta flokks hráefni og eru tilbúin í ofninn. Sannarlega gómsætur hátíðarmatur. fÉNH

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.