Þjóðviljinn - 23.12.1986, Síða 1
Þriðjudagur 23. desember 1986 293. tölublað 51. árgangur
Seðlabankinn
Brást hlutverki sínu
Hœstiréttur: Bankinn sinnti ekki lagalegri skyldu sinni.
Guðrún Helgadóttir: Þýðir afsögn bankastjórnar í öllum öðrum löndum.
ÓlafurB. Thors formaður bankaráðs: Berum ekki ábyrgðina. Botninnúr okurmálinu
Hœkkanir
Dregið í land
Ríkisstjórnin samþykkti í gær
að binda hækkanir á þjónustu op-
inberra stofnana við 10% og óska
eftir því við Landsvirkjun og
sveitarstjórnir að stilla hækkun-
um í hóf á komandi ári.
Þessi stefnubreyting stjórn-
valda kemur í kjölfar fundar
þeirra meö forystumönnum ASÍ
og VSÍ sl. föstudag þar sem harð-
lega var varað við stórhækkun á
opinberri þjónustu sem áður
hafði verið samþykkt.
Gjöld Pósts og síma og ríkisút-
varps munu hækka um áramótin
um 10%, Landsvirkjun er beðin
um að lækka áður boðaða hækk-
un úr 7,5% í 4% og borgaryfir-
völd að hækka hitaveitugjöld um
10% í stað 17%.
Guðrún Helgadóttlr alþm. fyrlr framan nýju Seðlabankahölllna i gær: Undlr verndarvæng Seðlabankans þrífst
neðanjarðarhagkerfi með allt að 80% vöxtum. Mynd E.ÓI.
Ég held að í öllum öðrum Evr-
ópulöndum hefði stjórn seðla-
banka sagt af sér samstundis
undir þessum kringumstæðum,
sagði Guðrún Helgadóttir þing-
maður í gær um nýjustu viðburði
í okurmálunum. - En hérlendis
virðist allt geta gerst án þess að
nokkur þori að höggva á sam-
tryggingu valdsins í landinu.
Dómur Hæstaréttar þar sem
einum stærsta anga okurmálsins
var vísað frá á þeirri forsendu að
Seðlabankinn hefði frá því í ágúst
1984 ekki gefið út nein gild fyrir-
mæli um hámarksvexti eins og
honum er skylt samkvæmt
lögum, hefur tekið botninn að
langstærstum hluta úr því okur-
máli sem kennt hefur verið við
Hermann Björgvinsson. Ríkis-
saksóknari er þegar byrjaður að
endurskoða þau 123 ákærumál
sem eru enn í gangi í dómskerfinu
vegna umræddra okurviðskipta
og ljóst er að sektargreiðslur til
ríkissjóðs sem hefðu líklega skipt
tugum miljóna eru að engu orðn-
ar eftir þennan dóm Hæstaréttar.
Bankaráð Seðlabankans fund-
aði í gær og mun gefa frá sér yfir-
lýsingu í dag þar sem allri ábyrgð
bankans í málinu er vísað á bug.
„Við teljum ekki að bankinn hafi
brugðist lagalegri skyldu sinni á
þessum árum,” sagði Ólafur B.
Thors formaður Bankaráðs í gær.
Hann sagði dóm Hæstaréttar
hafa komið Seðlabankamönnum
mjög á óvart.
- Það er hráslagalegt að undir
verndarvæng Seðlabanka ís-
lands, sem starfar á ábyrgð ríkis-
sjóðs og á meðal annars að stuðla
að heilbrigðu viðskiptalífi, - skuli
þrífast neðanjarðarhagkerfi uppá
milljarða króna, þar sem teknir
eru allt að 80 prósent vextir. Ég
fæ ekki betur séð en að lög um
bann við okri séu nú orðin einskis
virði, og að því hljóta alþingis-
menn að huga. Hitt er jafnvel enn
alvarlegra að hvorki alþingi né
ríkisstjórn hafa vald á stjórn pen-
ingamála í landinu, enda ekki
von þegar Seðlabankinn bregst
hlutverki sínu, og eftir þetta eiga
ríkisstjórn og alþingi erfitt með
að treysta ákvörðunum Seðla-
bankans, sagði Guðrún Helga-
dóttir.
-m/lg
Fjárlagahallinn
Þáttur samninga ýktur
Ásmundur Stefánsson: Stöðugleiki í kjölfar samninganna
hefði átt að auðvelda stjórninni að ná endum saman
Svíþjóð
Ráðheirar
náða
páfagauka
Stokkhólmi - Fyrir síðustu helgi
ákváðu nokkrir ráðherrar ríkis-
stjórnarinnar sænsku að
nokkrum sjúkum páfagaukum
skyldi gefið líf fram yf ir jólahát-
íðlna.
Ástæðan fyrir því að æðstu
valdamenn Svíþjóðar voru settir í
málið var sú að eigandi páfa-
gaukanna sætti sig ekki við
dauðadóm heilbrigðisyfirvalda
yfir þeim og áfrýjaði því málinu
hvað eftir annað. Páfagaukarnir
eru sýktir af sjúkdómi sem getur
tekið sér bólfestu í mönnum.
Ríkisstjórnin er æðsta áfrýjunar-
vald í heilbrigðismálum í Sví-
Þjóð. -IH/Reuter
að er alveg ljóst að menn gera
allt of mikið úr þætti kjara-
samninganna í fjárlagahallanum,
sagði Asmundur Stefánsson for-
seti ASÍ í samtali við Þjóðviljann i
gær.
Því hefur verið haldið fram að
sá mikli halli sem er á fjárlögum
ríkisstjórnarinnar stafi að miklu
leyti) af þátttöku stjórnvalda í
gerð kjarasamninga á þessu ári.
„Þegar kaupmáttur fer vaxandi
vega laun þyngra en áður bæði
sem tekjulind og sem kostnaðar-
liður. Það er í sjálfu sér tómt rugl
að stilla málum þannig upp að
ríkissjóður eigi í erfiðleikum
vegna kjarasamninganna, vegna
þess að kjarasamningarnir hafa
skapað stöðugleika í verðlagi,
sem hefði átt að auðvelda stjórn-
inni að ná endum saman í ríkis-
fjármálunum.
Það er sjaldan hægt að benda á
eitthvað eitt sem veldur því að
endar nást ekki saman. Þeir sem
stýra fjármálum ríkissjóðs verða
auðvitað að gera ráðstafanir á
báðar hliðar og hefðu stjórnvöld
gripið til ákveðinna aðgerða á
réttum tíma, hefði strax verið
hægt að draga úr hallanum,“
sagði Ásmundur um þetta í gær.
-gg
Sjá viðtöl við forystu-
menn stjórnarand-
stöðunnar á síðu 3
1 dagur
tiljola
Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.
Hann krœkti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.