Þjóðviljinn - 10.01.1987, Blaðsíða 1
Laugardagur 10. janúar 1987 6. tölublað 52. árgangur
Góðœrið
Aldrei fleiri gjaldþrot
Gjaldþrotaskiptum hjá borgarfógeta íReykjavík hefurfjölgað gífurlega á síðustu árum. Voru 347ífyrra.
Fjöldi gjaldþrotabeiðna hefur margfaldast síðan árið 1981
Gjaldþrotabeiðnum og úr-
skurðum um gjaldþrot hefur
fjölgað geysilega hjá embættinu.
Sömu sögu er að segja um beiðnir
um greiðslustöðvun, en langmest
hefur aukningin þó orðið í ágrein-
ingsefnum milli aðila að bú-
skiptum, sagði Ragnar Hall skipt-
aráðandi hjá borgarfógetaemb-
ættinu í Reykjavík í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Börn
Fæðingum
fækkar
enn
Ekki einsfá börnfœðst
hérlendis
undanfarin 40 ár
Barnsfæðingar hérlendis hafa
ekki verið eins fáar í fjóra ára-
tugi og á nýliðnu ári. Þá fæddust
3.800 börn lifandi sem er um 50
börnum færra en árið 1985.
Mikil fækkun hefur orðið á
barnsfæðingum sl. þrjú ár, en
árið 1983 fæddust 4.371 börn.
Hafa ekki fæðst eins fá börn hér-
lendis og á árunum 1985 og 1986
síðan 1947 þrátt fyrir að á þessum
fjórum áratugum hafi tala
kvenna á barnsburðaraldri ríf-
tega tvöfaldast.
Ef fæðingartíðni á hverjum
aldri kvenna yrði til frambúðar
hin sama og hún vará sl. ári, þá
yrðu ófæddar kynslóðir um 8%
fámennari en kynslóð foreldr-
anna.
-•g
Að sögn Ragnars kom til 347
gjaldþrotaúrskurða hjá embætt-
inu á síðasta ári, en þeir voru 227
árið áður. Af þessum 347 úr-
skurðum er í 225 tilvikum um ein-
staklinga að ræða, en 92 fyrir-
tæki.
Alls bárust embættinu 945
beiðnir um gjaldþrotaskipti á síð-
asta ári, en árið 1985 voru þær
mun færri eða 762. Slíkum
beiðnum hefur fjölgað hreint
ótrúlega á síðustu árum, sem og
eiginlegum gjaldþrotaskiptum.
Þannig bárust 195 beiðnir um
gjaldþrotaskipti árið 1981, litlu
fleiri árin 1982 og 1983, en 1984
stökk þessi tala upp í 527 og hefur
orðið stórfelld aukning síðan eins
og áður segir.
Ragnar sagði 40 beiðnir um
greiðslustöðvun hafa borist í
fyrra, en þær voru 28 árið áður. í
flestum tilvikum áttu einstak-
lingar í hlut.
Þorsteinn Pétursson skiptaráð-
andi í Keflavík sagði tölur um
þetta ekki liggja endanlega fyrir
þar, en þó sagði hann að greini-
lega hefði orðið gífurleg aukning
gjaldþrotaskipta á síðasta ári.
Þingfestum gjaldþrotamálum
fjölgaði um 100% hjá embættinu
á síðasta ári.
Tölur um þetta lágu heldur
ekki fyrir í Kópavogi, en
Sveinbjörn Sveinbjörnsson skipt-
aráðandi þar sagði augljóst að
mikil aukning hefði átt sér stað.
„Við höfum ekki endanlegar
tölur en það er engum blöðum
um það að fletta að það hefur
orðið gífurleg aukning í þessum
efnum,“ sagði Sveinbjörn. -gg
Síminn
Dýrara til
útlanda
Talsímagjöld til útlanda hækka
um 11 % að meðaltali frá og með
deginum í dag. Mest er hækkunin
á símtölum til Bandaríkjanna
21% en minnst 9% til V-
Þýskalands.
Sem dæmi um mínútugjald þá
kostar nú 38 kr. hver mínúta til
Norðurlandanna, 43 kr. til Bret-
lands, 49 kr. til V-Þýskalands og
85 kr. til Bandaríkjanna.
Þá hækka gjöld fyrir almenna
gagnanetið um 10% til allra
landa. Einnig hækka símskeyta-
gjöld frá landinu og er fastagjald-
ið nú 325 kr. og orðagjald 13.50
til Evrópu og Miðjarðarhafs-
landa.
-lg-
Reykjanesbraut
Banaslys
47 ára gömul kona lést í um-
ferðarslysi á Reykjanesbraut við
Kúagerði í gærmorgun.
Alls lentu 5 bílar í hörðum á-
rekstri en mikil hálka myndaðist
skyndilega á brautinni. 6 öku-
menn og farþegar hlutu minni-
háttar meiðsli.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari mætti vel klyfjaður í Karphúsið í gær þegar sjómenn og útvegsmenn settust að
nýju að samningaborði. Mynd-E.ÓI.
Sjómannasamningar
Skriður á samningum
Hafþórshnúturinn leystur. Guðlaugur Þorvaldsson: Gengiðfráýmsum atriðum,
en kostnaðarhlutdeild órædd. Alltannað hljóð komið í strokkinn
Aðilar hafa enn ekki samið um
kostnaðarhlutdeildina og ég efa
að hún verði rædd fyrr en í fyrra-
málið. En við höfum þegar gengið
frá ýmsu öðru. Það er komið allt
annað hljóð í strokkinn hjá
mönnum, sagði Guðlaugur Þor-
valdsson ríkissáttasemjari í sam-
tali við Þjóðviljann skömmu áður
cn blaðið fór í prentun í gær-
kvöldi.
Samninganefndir sjómanna og
útvegsmanna settust aftur að
samningaborði kl. 17 í gær eftir
að ljóst var að rækjutogarinn
Hafþór var hættur veiðum og á
leið inn til ísafjarðar, þangað sem
togarinn kom um miðnætti í gær.
Togaranum var snúið frá veiðum
eftir að sjávarútvegsráðherra
hafði lagt að útgerð skipsins sem
skipaði skipstjóranum í skeyti að
sigla í land.
Meðal þess sem aðilar náðu
samkomulagi um í gær var sú
krafa sjómanna að snúa skuli
skipum til lands um leið og verk-
fall skellur á, en á móti kemur inn
ákvæði um að verkfall skuli boð-
að með þriggja vikna fyrirvara í
stað tveggja. Guðlaugur átti von
á að fundum yrði haldið áfram
fram eftir nóttu og aftur í dag.
Hann sagðist engu vilja spá um
framgang viðræðna um helgina.
Talsvert hefur borið á milli aðila
um kostnaðarhlutdeildina og því
má búast við að samkomulag um
það atriði dragist, en menn voru
engu að síður nokkuð bjartsýnir í
Karphúsinu í gærkvöldi.
Undirmenn á farskipunum
hafa setið á samningafundi frá því
kl. 13. í gærdag og miðar lítið í
þeim viðræðum ennþá. Aðal-
kröfur undirmanna er hækkun á
grunnlaunum í 26 þúsund krónur
og álag á eftirvinnu. -gg/lg
Símamenn
Óska eftir
verkfalls-
heimild
Fundur í félagsráði íslenskra
símamanna samþykkti einróma í
fyrrakvöld að óska eftir því við
félaga sína að þeir gefi félaginu
heimild til verkfallsboðunar.
Allsherjaratkvæðagreiðsla fer
fljótlega fram um málin.
Símamenn eru fyrst félaga
innan BSRB til að óska eftir
verkfallsheimild.
-Ig