Þjóðviljinn - 23.01.1987, Side 15
ÍÞRÓTTIR
Eystrasaltsmótið
i
Leikurinn
í tölum
0-1 Schwalb
0-2 Neitzel
SigurðurG./v 1-2
1-3 Bauert
Sigurður G. 2-3
2-4 Schwalb
2-5 Neitzel
Sigurður G. 3-5
3-6 Bauert
SigurðurS./v 4-6
4-7 Schubert
Alfreð 5-7
Sigurður S. 6-7
6-8 Roth
6-9 Neitzel
6-10 Schwalb/v
6-11 Löhr
6-12 Löhr
(hlé)
6- 13 Schwalb/v
Alfreð 7-13
7- 14 Schöne
Sigurður G. 8-14
8- 15 Roth
Alfreð 9-15
9- 16 Roth
9-17 Schubert
Kristján 10-17
10- 18 Springel
Kristján/v 11-18
11- 19 Bauert
11- 20 Bauert
Sigurður S. 12-20
12- 21 Löhr
12-22 Hertelt
12-23 Löhr
Karl 13-23
Kristján/v 14-23
14-24 Schubert
Kristján/v 15-24
Alf reð 16-24
16-25 Löhr
Alfreð Gíslason skoraði fjögur
mörk úr ellefu skotum (eitt mis-
heppnað víti), átti fjórar sending-
ar sem gáfu víti, fiskaði sjálfur
þrjú víti.
Bjarni Guðmundsson átti eitt mis-
heppnað skot.
Geir Sveinsson átti eitt misheppn-
að skot, fiskaði tvö víti, tapaði
bolta einusinni.
Guðmundur Guðmundsson fisk-
aði ívö víti, tapaði bolta einu-
sinni.
Karl Þráinsson skoraði eitt mark
úr þremur skotum.
Kristján Arason skoraði fjögur
mörk úr níu skotum (þrjú víti).
Páli Ólafsson átti eitt misheppnað
skot, tapaði bolta tvisvar.
Sigurður Gunnarsson skoraði
fjögur mörk úr fimrn skotum
(skoraði úr einu víti, mistókst eitt
víti), tapaði bolta einusinni.
Sigurður Sveinsson skoraði þrjú
mörk úr fimm skotum (skoraði úr
tveimur vítum, mistókst eitt víti),
tapaði bolta tvisvar.
Þorgils Óttar Mathiesen átti tvö
misheppnuð skot, fiskaði tvö víti,
tapaði bolta þrisvar.
Einar Þorvarðarson varði níu
skot, var inná 51 mínútu.
Guðmundur Hrafnkelsson varði
ekkert skot, var inná 9 mínútur.
Mörk Vesturþjóðverja skoruðu:
Löhr 5, Bauert 4, Schwalb 4 (2v),
Neitzel 3, Roth 3, Schubert 3,
Springel 1, Schöne 1, Hertfelt 1.
„Einn af þessum dögum“
Hrikalegur afleikur gegn Vesturþjóðverjum. Fálmkenndursóknar-
leikur, opin vörn. Einar Þorvarðarson: Oflítilsamœfing. Bogdan
þjálfari: Vantaði allan hraða. Páll Ólafsson: Einn afþessum dögum
þegar ekkert gengur upp
ísland er A-þjóð. Vestur-
Þýskaland er B-þjóð og á fyrir
höndum mjög erfitt verkefni, að
tryggja sér sæti á Ólympíuleikun-
um í Seoul. En í íþróttahöllinni í
Rostock í gær voru hlutverka-
skiptin algjör. Það var B-þjóðin
sem sýndi A-þjóðinni hvernig á
að leika handbolta, og að þeirri
kennslustund lokinni stóð á ljós-
atöflunni: ísland 16 Vestur-
Þýskaland 25.
Við hefðum átt að vera búin að
læra af reynslunni. íslenska
landsliðið á alltaf einn svona leik í
hverri keppni, Rússaleikinn á
Baltic í fyrra, Kóreuslysið á
heimsmeistaramótinu í Sviss, og
úr fjarlægari fortíð er til fjöldi
slíkra dæma. Vonandi stenst
þetta, vonandi var þetta slæmi
leikurinn í keppninni. Því trúum
við allavega þangaðtil annað
kemur í ljós.
Það var ljóst strax í byrjun að
íslenska liðið mundi eiga í erfið-
leikum. Eftir að hafa komist í 2-0
létu Vesturþj óðverj ar forystuna
aldrei af hendi, og íslenska liðið
var sjaldan líklegt til að breyta
því. Fyrri hálfleikur var ein keðja
mistaka, ekki síst síðustu tíu mín-
úturnar þegar Vesturþjóðverjar
gerðu í raun útum leikinn með
fimm mörkum í röð. Sóknar-
leikur íslands var mjög
fálmkenndur, skytturnar vantaði
frumkvæði og kraft, og hug-
myndaflugið var lítið. Hver mis-
tökin ráku önnur, og átta sinnum
í hálfleiknum tapaði íslenska lið-
ið boltanum án þess að ná skoti
og aðeins tvö mörk utanaf velli
litu dagsins ljós í hálfleiknum.
Þégar skotin komu voru þau út-
reiknanleg og varin af vörn eða
hinum snjalla Thiel, sem fór sér-
staklega illa með línufæri Þorgils
Óttars. Úr vonlitlum skotum í
varnarvegg Vesturþjóðverja
fengu þeir síðan hraðaupphlaup
og skoruðu þannig fimm af tólf
mörkum sínum í hálfleiknum.
Vörn íslands opnaðist oft illa,
sérstaklega vinstramegin, og ekki
skipti máli þótt reynt væri að taka
stórskytturnar Neitzel eða
Schwalb úr umferð. Vesturþjóð-
verjar áttu alltaf mótleik við því
og virtust njóta sín enn frekar í
slíkum stöðum.
Og eftir nokkrar mínútur í
síðari hálfleik var ljóst að ísland
átti ekki minnstu von um stig.
Vesturþjóðverjar voru ákveðnir í
að gefa ekkert eftir og léku af
krafti leikinn á enda. Forskotið
jókst og þegar munurinn var orð-
inn ellefu mörk og enn talsvert
eftir var orðið lágt risið á þeim
fáu íslendingum sem fylgdust
með leiknum.
,3Ég vissi að við gætum ekki
sigrað Island nenia með því að
leika mjög hratt. í Svíaleiknum í
gær reyndum við líka ýmis brögð
sem komu sér vel í dag. Ég vil
hrósa öllu mínu liði fyrir mjög
góðan leik,“ sagði Simon Schöbel
landsliðsþjálfari Vesturþjóð-
verja.
„Leikmenn mínir hlýddu ekki
skipunum og því fór sem fór. Það
vantaði allan hraða í leik okkar
VÍÐIR
SIGURÐSSON
Rostock
en Vesturþjóðverjar léku virki-
lega vel, þeir voru með betri ein-
staklinga og liðsheild“ sagði Bog-
dan Kowalcsyk landsliðsþjálfari
íslendinga.
„Markvarsla Thiel í fyrri hálf-
leik gerði útslagið, sérstaklega
skotin sem hann varði frá Þorgils
Ottari. Vesturþjóðverjar gerðu
útum leikinn fyrir hlé. Strákarnir
voru ekki nógu grimmir, en í
svona móti á hvert lið að minnsta
kosti einn slakan leik, og ég vona
að hann sé búinn hjá okkur,“
sagði Guðjón Guðmundsson
liðsstjóri íslenska liðsins.
„Islendingar voru enn með
hugann við jafnteflið við Austur-
þjóðverja. Við náðum strax góðri
forystu og það réð úrslitum. Ég
átti aldrei von á svona stórum
' sigri gegn íslandi. Félagi minn úr
Essen, Alfreð Gíslason, var best-
ur í íslenska liðinu, sá eini sem
eitthvað reyndi,“ sagði Stefan
Hecker, annar markvörður Vest-
urþjóðverja sem stóð sig mjög vel
í seinni hálfleik.
,JÉg var óhress með varnar-
leikinn, ég hefði viljað fá 6-0 vörn
á móti þessu liði. Vesturþjóðverj-
ar skoruðu óeðlilega mikið úr
hornum og af iínu. Sóknin var
slök og þar var boltanum tapað
alltof oft. En aðalástæðan held ég
að sé sú að við höfum lítið æft
saman f vetur, þetta eru fyrstu
alvöruleikir okkar í langan tíma.
Þessvegna vorum vorum við ekki
nógu vel undirbúnir og stígand-
ann vantaði í liðið,“ sagði Einar
Þorvarðarson markvörður.
„Þetta var bara einn af þessum
dögum þegar ekkert gengur upp.
Þeir náðu fimm til sex hrað-
aupphlaupum í fyrri hálfleik og
það réðum við einfaldiega ekki
við. Sex marka munur í hálfleik
var of mikið fyrir okkur, og þegar
Leikurinn
Samherjar á vellinum
Leikmenn íslands og Vestur-
Þýskalands voru hvorir öðrum
síður en svo ókunnir í leiknum í
gær. Með íslenska liðinu léku
fimm leikmenn sem nú spila í
vestur-þýsku deildakeppninni, og
átta Þjóðverjar úr landsliðinu
leika mez ,,íslendingaliðum“,
þrfr með Alfreð Guðmundssyni f
Essen, þrír með Kristjáni Ara-
syni í Gummersbach og tveir með
Páli Ólafssyni í Dusseldorf.
Bogdan landsliðsþjálfari sagði
eftir leikinn að þessi kynni hefðu
verið Þjóðverjum í hag í leiknum,
þeir hefðu nauðaþekkt fslenska
liðið, en íslendingunum hefði
ekki tekist að nýta sér kynnin af
Þjóðverjunum.
-m/VS
Alfreð Gíslason, - eini útispilarinn sem slapp sæmilega vel frá tapinu fyrir
Vesturþjóðverjum í gær.
við náðum okkur ekki á strik í
byrjun seinni hálfleiks var leikur-
inn tapaður,“ sagði Páll Ólafs-
son.
„Við vorum bara of góðir með
okkur eftir jafnteflið við Austur-
þjóðverja, það er staðreynd. En
Vesturþjóðverjar eru á ný að
verða með bestu liðum í heimi, ég
er sannfærður um að þeir vinna
sig uppúr B-keppninni. Þeir eiga
tvo bestu markverði heims, varn-
arleikurinn er einn sá besti sem
sést og þetta eru ungir og
skemmtilegir strákar með mikla
samæfingu,“ sagði Alfreð Gísla-
son.
Alfreð Gíslason og Einar Þor-
varðarson voru einu íslensku
leikmennirnir sem komust bæri-
lega frá leiknum þótt báðir hafi
leikið betur. Sigurður Gunnars-
son stóð sig líka þokkalega í fyrri
hálfleik. Alfreð var sá eini sem
virkilegur kraftur var í í sóknar-
leiknum og þótt skotnýting hans
væri ekki góð skoraði hann fjögur
ágæt mörk og átti beinan eða
óbeinan þátt í sjö af þeim níu vít-
aköstum sem ísland fékk í
leiknum. Einar varði einsog efni
stóðu til og var hjálparvana þegar
vörnin hafði brugðist. fsland
skoraði ekki eitt einasta mark af
línu allan leikinn en línumennirn-
ir, Þorgils Óttar og Geir, fiskuðu
þó fjögur vítaköst. Hornamenn-
irnir voru líka utanveltu, hreyf-
anleg og sterk vörn Vesturþjóð-
verja gaf þeim lítil færi á sér.
I dag er leikið við Pólverja í
Wismar og þar þarf íslenska liðið
virkilega að taka sér tak ef það
ætlar að vera með í baráttunni um
efstu sætin hér á Eystrasaltsmót-
inu í Rostock.
VS
Pólverjar í dag
íslenska liðið mætir Pólverjum í
dag í Wismar, smábæ utan við Rost-
ock. Pólverjarnir komu á óvart í
leiknum gegn Sovétmönnum, en
fengu skell í gær, og er engin leið að
spá um úrslit. Með liðinu leikur nú
gamla kempan Kempel, 34 ára og ó-
stöðvandi. Pólverjar hafa breytt liði
sínu talsvert, tekið út eldri menn, en
sett inn aðra sjóaða.
Daniel Wackiewicz leikur ekki
með Pólverjununt, hann meiddist í
leik Gdansk gegn Víkingum í Höll-
inni fyrir nokkru.
Eystrasaltsmótið
Þjóðverjar efstir
Sovétmenn unnu Svía á Evstrasalts-
mótinu i gær í spennandi leik, 24-23,
og Pólverjarnir fengu einsog íslend-
ingar skell gegn Þjóðverjum, Austur-
Þýskaland-Pólland 27-18.
Staðan í mótinu er þessi eftir tvær
umferðir: V-Þýskaland 2 1 1 0 46-37 3
A-Þýskaland 2 1 1 0 44-35 3
Sovétríkin 2 1 0 1 48-50 2
Pólland 2 10 1 45-51 2
Svíþjóð 2 0 1 1 44-45 1
Island 2 0 1 1 33-42 1
Föstudagur 23. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - S(ÐA 15