Þjóðviljinn - 24.01.1987, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Cadillac Fleetwood 60 Special
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar var afgreidd á
borgarstjórnarfundi í fyrrinótt, og þarmeð hefur hinn
nýendurkjörni meirihluti Sjálfstæðismanna mótað
sér á borði þá stefnu sem íbúar höfuðstaðarins
mega una við til loka kjörtímabils Davíðs Oddssonar
árið 1990.
Tvennt vakti sértaka athygli við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunarinnar, sem að breyttu breytanda eru
samasem fjárlög í borgarkerfinu. Annarsvegar höfðu
stjórnarandstöðuöflin komið sérsaman um breyting-
artillögur við áætlun meirihlutans. Borgarstjórnarf-
lokkarnir fjórir lögðu ágreiningsmál sín í milli til hliðar
og báru fram tillögur sem í heild mynda skýran val-,
kost við stefnu Davíðs. í tillögum Alþýðubandalags-
ins, Framsóknarflokksins, Alþýðuflokksins og
Kvennalistans er áhersla einkum lögð á þrjá þætti í
borgarstarfi og borgarlífi, á þrjá málaflokka sem Da-
víð hefur vanrækt. I fyrsta lagi vildu fulltrúar stjórnar-
andstöðunnar að borgin stæði fyrir átaki í málefnum
aldraðra. Nú ertalið að uppundir 1200 manns séu á
biðlista eftir hentugu húsnæði fyrir aldraða hjá borg-
inni. í öðru lagi lagði stjórnarandstaðan til að stór-
auknu fé yrði varið til að byggja dagvistir í borginni.
Um tvö þúsund börn bíða eftir plássi hjá fóstrunum,
og biðtíminn hefur lengst á fjórum árum úr þremur
mánuðum 1981 í átta mánuði 1985, þegar miðað er
við einstæða foreldra. í þriðja lagi var lagt til að
borgin sinnti í einhverju sívaxandi þörf fyrirfélagslegt
húsnæði, bæði með því að byggja og reka fleiri
leiguíbúðir, og með því að koma upp búseturéttar -I
íbúðumí tilraunaskyni. Og auðvitað voru tillögurj
stjórnarandstöðuflokkanna mun fleiri.
Auðvitað var gert ráð fyrir að þessar framkvæmdir
kostuðu sitt, og í tillögunum var bent á hvernig það fé
fengist án þess að útgjöld borgarsjóðs ykjust. Þetta
fé má einfaldlega fá með því að hægja á eða stöðva
fjáraustur til ýmissa gæluverkefna sem Davíð Odds-
son ber fyrir brjósti: ráðhús við Tjörnina, bílag-
eymslur við Tryggvagötu, fasteignakaup.
Hitt málið sem vakti almenna athygli við afgreiðslu
fjárhagsáætlunarinnar voru áætluð bílakaup borgar-
stjóra. Davíð er nú orðinn þreyttur á þriggja ára
gömlum Bjúikk sem hann hefur neyðst til að láta sjá
sig í undanfarið og vill kaupa annan bíl, Cadillac
Fleetwood 60 Special, sem er svo glænýr að hann er
ennþá á teikniborðinu hjá framleiðandanum. Þessi
bifreið á að kosta tæpar þrjár milljónir, heilli milljón
meira en ný bifreið Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra, sem er þó ekki þekktur að sérstakri
aðhaldssemi við bílakaup.
Það er auðvitað rétt sem borgarstjórinn sagði í
útvarpinu í fyrradag, að þetta bílaverð er ekki nema
tittlingaskítur miðað við allt það fé sem rennur inn og
út um borgarkerfið á hverju ári. Kádiljálkur Davíðs
hefur hinsvegar þann kost frammyfir verðgildi og
notagildi venjulegra bifreiða að hann hefur einnig
táknrænt gildi. Kádiljálkur borgarstjórans á götum
Reykjavíkur minnir íbúa höfuðstaðarins á hverjum
degi á megináherslurnar í borgarmálastefnu Sjálf-
stæðisflokksins undir stjórn Davíðs Oddssonar, þar
sem flugeldasýningar og flottræfilsháttur draga til sín
skattféð en börn og aldraðir mega éta það sem úti
frýs.
Vegna þess tákngildis er full ástæða til að fagna
þeirri ákvörðun Davíðs Oddssonar og undirmanna
hans í meirihlutanum að vísa frá tillögu stjórnarand-
stöðunnar um að láta eina milljón kádiljálksfjárins
renna til ferðaþjónustu fatlaðra.
Ánægjulegar fréttir
Nú í ár eru átta áratugir síðan reykvískar konur
fengu kosningarétt til bæjarstjórnar og kjörgengi, og
af því tilefni var lagt til í borgarstjórn að nokkru fé yrði
varið til rannsókna á lífi og störfum kvenna í höfu-
ðstaðnum.
Þetta þótti Sjálfstæðisfulltrúum í borgarstjórn af-
skaplega vond tillaga og vísuðu henni frá. Svona
nokkuð væri bæði „rangt og ósæmandi", „ástæðu-
laust, óþarft og jafnvel óviðeigandi".
Og meirihluti Sjálfstæðisflokksins vísaði málinu
frá sér með samþykkt þar sem stendur að „konur
hafa nú löngu fengið formlegt og síðar fyrir alllöngu
raunverulegt jafnrétti í landi okkar".
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur sumsé kveðið upp
lokadóm sinn um kvenfrelsis- og jafnréttisbaráttu
undanfarinna áratuga og samþykkt með meirihluta í
atkvæðagreiðslu að hér sé komið á fullt og fast
jafnrétti kynjanna. Það eru svo sannarlega góðar
fréttir frá góðvini meinatækna, fóstra og sjúkraliða í
borgarstjórastól, og frá forseta borgarstjórnar, sem
einnig er formaður Verslunarmannafélags Reykja-
víkur. - m
Mynd:E. Ol.
LJOSOPIÐ
þJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóöviljans.
Ritstjórar: Ámi Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fréttastjóri: Lúövík Geirsson.
Biaöamenn: Garöar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín
Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, MörðurÁmason, ÓlafurGíslason,
Sigurður Á. Friðþjófsson, Valþór Hlöðversson, Vilborg Davíðsdóttir,
VíoirSigurðsson (íþróttir), Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrita- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndarar: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Dtiitsteiknarar: Sævar Guðbjömsson, GarðarSigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Augiýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjömsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, SigríðurKristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf HúnQörð.
Ðflstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hörður Oddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Siöumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglý8ingar: Síöumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðvlljanshf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 50 kr.
Helgarblöð:55 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 500 kr.
4 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. janúar 1987