Þjóðviljinn - 24.01.1987, Blaðsíða 14
MINNING
ALÞYÐUBANDALAGHP
AB Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn 26. janúar klukkan 20.30 í Lárusar-
húsi. Dagskrá: Skólamál.
Stjórnin.
Ingibergur Gíslason
Fœddur 16. janúar 1897 - Dáinn 17. janúar 1987
ABR
Þorrablót
Þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldið þann 31. janúar
nk. að Hverfisgötu 105. Nánar auglýst síðar. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni
Almennur félagsfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.30
að Kirkjuvegi 7.
Efstu menn framboðslistans koma og ræða kosningastarfið framundan.
Nýir félagar velkomnir.
Fjölmennið.
Stjórnin.
ABR
Árni Björnsson. Sif Ragnhildardóttir.
Þorrablót ABR 1987
Þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldið laugardaginn 31.
janúar að Hverfisgötu 105 í Risinu. Húsið verður opnað kl. 19. Borðhald
hefst kl. 20.
Siðamaður blótsins verður Árni Björnsson þjóðháttarfræðingur. Sif Ragn-
hildardóttir og félagar flytja gömul og vinsæl lög Marlene Dietrich. Fram-
boðskór G-listans syngur nýjar og fornar blótvísur.
(slenskur þorramatur, lifandi tónlist og dans. Verð miða kr. 1.400.
Aðgöngumiðar verða seldir nú um helgina á skrifstofu ABR s:17500 frá 10 -
14, laugardag og 14 -16 á sunnudag. Einnig frá mánudegi til föstudags frá
kl. 17 - 19.
ABR
Spilakvöld
Fyrsta spilakvöldið á þessu ári verður haldið að Hverfisgötu 105, þriðjudag-
inn 27. janúar kl. 20.00. Mætum öll vel og stundvíslega. Nefndin.
ABR
Fundur í 4. deild
Deildarfundur í 4. deild ABR, verður haldinnn laugardaginn 31. janúar kl.
14.00 að Hverfisgötu 105.
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins verður gestur fundarins.
Hjartans þakkir til allra vina og vandamanna
nær og fjær, sem glöddu mig á áttræðis af-
mæli mínu þann 29. desember síðastliðinn.
Guð blessi ykkur öll
Kristín Andrea Sæby Friðriksdóttir
Rauðalæk 45, Reykjavík
A
Auglýsing um starfslaun
bæjarlistamanns
Kópavogs
Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir
umsóknum um starfslauntil listamannaskv. regl-
um sem samþykktar voru 16.12. 1986 í bæjar-
stjórn Kópavogs. Heimilt er að veita starfslaun
fyrir 6-12 mánaða tímabil. Launin miðast við 8.
þrep í 39. launaflokki skv. kjarasamningi Banda-
lags háskólamanna.
Að jafnaði koma þeir einir listamenn til greina við
úthlutun starfslauna sem búsettir eru í Kópavogi.
Listamenn skulu skuldbinda sig til þes að gegna
ekki fastlaunuðu starfi meðan þeir njóta starfs-
launa.
Listamaður sem starfslauna nýtur skal að loknu
starfstímabili gera grein fyrir starfi sínu.
Starfslaun verða veitt frá 1. júní n.k.
Umsóknarfrestur er til 1. mars n.k. Umsóknir um
starfslaun listamanns skv. framanskráðu sendist
Lista- og menningarráði Kópavogs, Hamraborg
12, 200 Kópavogi
Elsku pabbi, við systurnar ætl-
um að senda þér örfá þakkarorð
fyrir samverustundirnar okkar.
Margar sögur varst þú búinn að
segja okkur, sem ætfð voru vel
þegnar. Þó nokkrar frumsamdar
og hafsjór af þeim, er þú kunnir,
því mikið varst þú búinn að lesa.
Já og fyrir utan það sem þú varst
búinn að upplifa. Það var svo
margt ótrúlegt sem 7-8 og 9 ára
drengurinn þurfti að gera í þá
daga, að ótrúlegt þætti nú í dag.
Þó er okkur minnisstæðust
gosnóttin 23. janúar 1973. Ekki
ætlaðir þú að yfirgefa Eyjuna
okkar, fyrr en í nauðirnar rak,
það held ég hafi verið þér erfið
stund. En alltaf varst þú vongóð-
ur um að komast fljótt heim aft-
ur, eins og þú gerðir.
Og nú ert þú búinn að kveðja
okkur öll. Sama dag fyrir ári,
andaðist bróðurdóttir okkar,
Árný Matthíasdóttir frá Grinda-
vík langt fyrir aldur fram, aðeins
27 ára gömul.
En eftir lifa minningarnar um
þau bæði. Börnin okkar senda
þér pabbi, innilegustu kveðjur
fyrir allt það er þú varst þeim. Og
biðjum við algóðan Guð að
geyma þig og hana Árnýju okkar.
Og kveðjum með kvæðinu er var
þér svo kært:
Trúðu á tvennt í heimi
tign sem æðsta ber.
Guð í alheims geimi
Guð í sjálfum þér.
Guðrún og
Guðmunda Ingibergsdætur.
Húsnœðismál
Athugasemd
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi athugasemd frá ritara milli-
þinganefndar um húsnæðismál.
„í Sunnudagsblaði Þjóðviljans
19. janúar sl. birtist grein um
húsnæðismál eftir Sigurð Á. Frið-
þjófsson undir fyrirsögninni:
Skýrslan undir stólnum. Með
fyrirsögninni er vísað til ummæla
Stefáns Ingólfssonar um að fé-
lagsmálaráðherra, Alexander
Stefánsson, hafi stungið undir
stól skýrslu nefndar sem falin var
könnun á fasteignamarkaðinum.
Til skýringar skal þes getið að
skýrslan var sú 6. og síðasta sem
þessi nefnd lét frá sér fara.
Undirritaður telur rétt að upp-
lýsa að umrædd skýrsla var sér-
stakleg send „milliþinganefnd"
um húsnæðismál í febrúar 1986. í
henni eiga sæti fulltrúar allra
þingflokkanna. Skýrslan hefur
því verið til umfjöllunar í nefnd-
inni frá þeim tíma. Því má bæta
við að öllum skýrslum sem nefnd
Stefáns Ingólfssonar lét frá sér
fara hefur verið dreift til „milli-
þinganefndarinnar“.
Augljóst er að félagsmálaráð-
herra er hér hafður fyrir rangri
sök í grein Sigurðar Á. Friðþjófs-
sonar.“
Virðingarfyllst,
Gylfi Kristinsson, ritari
„milliþinganefndar“
um húsnæðismál.
Fiskeldi
Tryggingar
samræmdar
Erlendis hefur fiskeldi þótt
áhættusamur rekstur og endur-
tryggingamarkaðir þar því afar
takmarkaðir sem leitt hefur til
þess að iðgjöld fiskeldistrygginga
hafa verið afar há hér á landi og
skilmálar þröngir, þar sem ís-
lensk tryggingafélög, sem slíkar
tryggingar hafa annast, hafa
endurtryggt erlendis.
Til að bæta hér úr, hafa 6 ís-
lensk tryggingafélög stofnað með
sér Samsteypu íslenskra fiskeldis-
trygginga og hyggst Samsteypan
dreifa áhættunni af slíkum trygg-
ingum hér innanlands og draga úr
þörfinni fyrir erlendar endur-
tryggingar og lækka þannig ið-
gjöld, samræma skilmála og
vinna að því að aðildarfélögin
hafi ávallt fyllstu tölulegar upp-
lýsingar á takteinum.
Stjórn Samsteypunnar skipa:
Einar Sveinsson frá Sjóvá,
Ólafur B. Thors frá Almennum
Tryggingum og Gísli Ö. Lárusson
frá Reykvískri Endurtryggingu
og varastjóm skipa þeir Ingi R.
Helgason frá Brunabótafélaginu
og Gísli Ólafsson frá Trygginga-
miðstöðinni.
LAUSAR STÖÐUR
HJÁ REYKJAVÍKURBORG
Félagsstarf aldraðra hjá
Reykjavíkurborg
Félags- og tómstundastarf aldraðra hjá Fé-
lagsmálastofnun Reykjavíkurborgar auglýsir eftir
forstöðumanni í Furugerði 1.
Nauðsynlegt að viðkomandi hafi reynslu og
þekkingu í félagsmálum.
Laun skv. kjarasamningum starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar.
Staðan er 50% og vinnutími frá 13.00-17.00.
Umsóknarfrestur er til 2. febrúar.
Upplýsingar gefur Anna Þrúður Þorkelsdóttir í
síma 36040 eða 39225.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Útboð - gatnagerð
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í lagnir og jarð-
vinnu við Suðurvang í Hafnarfirði.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjarverk-
fræðings, Strandgötu 6 gegn 5 þús. kr. skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað
þriðjudaginn 3. febrúar n.k. kl. 11 f.h.
Bæjarverkfræðingur
A
iS&'J
Fóstrur -
starfsfólk
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsireftirtaldar
stöður á dagvistarstofnunum bæjarins lausar til
umsóknar:
Fóstru eða starfsfólk við uppeldisstörf að dag-
vistarheimilinu Marbakka. Upplýsingar gefur for-
stöðumaður í síma 641112.
Fóstru eða starfsfólk við uppeldisstörf á dag-
vistarheimilinu Grænatúni. Upplýsingar gefur
forstöðumaður í síma 46580.
Fóstru eða starfsfólk við uppeldisstörf á skóla-
dagheimilinu Dalbrekku. Upplýsingar gefur for-
stöðumaður í síma 41750.
Fóstru eða starfsfólk við uppeldisstörf á leik-
skólann Fögrubrekku. Upplýsingar gefur for-
stöðumaður í síma 425660.
Einnig eru lausar stöður fóstra eða starfsfólks við
uppeldisstörf á dagvistarheimilum bæjarins.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á Félagsmálastofnun
Kópavogs, Digranesvegi 12.
Einnig veitir dagvistarfulltrúi upplýsingar um
störfin í síma 45700.
Félagsmálastjóri Kópavogs
, 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN