Þjóðviljinn - 28.01.1987, Page 3
FRETTIR
Farmenn
Egilsstaðir
Ný flug-
braut
Ríkisstjórnin skiptir um
skoðun
ftríkisstjórnarfundi í gær var
samþykkt a 8 Matthías Bjarna-
son samgöngumálaráðherra legði
fram á alþingi stjórnarfrumvarp
um að taka 60 milljóna króna er-
lent lán til að leggja nýja flug-
hraut á Egilsstaðaflugvelli.
Egilsstaðaflugvöllur hefur ver-
ið í hörmulegu standi alllanga
hríð, og meira og minna lokaður í
þíðunum í vetur.
Mjög var reynt að fá fé til flug-
vallarins við fjárlagaumræðu
fyrir jól, en þá felldu stjórnarlið-
ar meðal annars tillögu frá
Austfj arðaþingmönnunum
Helga Seljan og Hjörleifi Gutt-
ormssyni fé til flugbrautar og
einnig varatillögu um 5 milljón
króna fjárveitingu til nauðsynleg-
ustu lagfæringa. -m
Gengið
Krónan
hækkuð
Ríkisstjórnin ákvað í gær að
fengnum tillögum Seðla-
bankastjóra að hækka krónuna
lítillega í dag með því að breyta
gengisviðmiðunum.
Ástæða breytinganna er fall
dollarans semennhelduráfram,
þótt hægar fari en áður. Dollara-
fallið hefur lækkað krónuna mið-
að við aðra gjaldmiðla og gert
fastgengisstefnu erfitt fyrir. í gær
var ákveðið að hætta að miða við
svokallaða viðskiptavog, þar sem
vægi hvers gjaldmiðils miðast við
viðskipta íslendinga við viðkom-
andi þjóð, og er í staðinn miðað
við myntvog. Þetta dregur úr
áhrifum dollarafallsins á krónuna
þannig að hún lækkar ekki eins
mikið með dollaranum miðað við
aðra gjaldmiðla.
Búast má við að vegna
breytinganna hækki krónan lítil-
lega í dag gagnvart öllum öðrum
gjaldmiðlum.
-m
Skák
Stónnót í
febrúar
Tal, Kortsnoj ogfleiri
stórmeistarar mæta til
leiks
Fjölmargir geysilega sterkir
skákmeistarar munu taka þátt í
IBM-mótinu sem hatdið verður í
Reykjavík dagana 19. febrúar til
3. mars n.k. Meðal þeirra sem
koma til leiks eru ekki ófrægari
menn en Mikhail Tal fyrrum
heimsmeistari og Viktor Korts-
noj.
Mótið, sem haldið er í tilefni af
20 ára afmæli IBM á íslandi,
verður líklega sterkasta skákmót
sem haldið hefur verið á íslandi
og meðal sterkustu skákmóta í
heiminum í ár. íslendingarnir
Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartar-
son, Jón L. Árnason og Margeir
Pétursson munu þar etja kappi
við Ludimir Ljubovic, Nigel
Short, Lajos Portisch, Jan Tim-
man, Lev Polugaevsky og Simen
Agdestein auk þeirra Tal og
Kortsnojs.
Meðalstig þessara skákmanna
eru 2583 stig og mótið því í 14.
styrkleikaflokki. SS
Tilboð útgerðar of lágt
Lítið miðaði ísamningaviðrœðumfarmanna og útgerðarmanna ígær. Guðmundur
Hallvarðsson: Pó þeim áfanga náð að útgerðarmenn rœða nú kröfur sjómanna
Lítil hreyfing var í samninga-
viðræðum farmanna og útgerð-
armanna í gærdag. Þó brá fyrir
bjartsýnistóni í máli Guðmundar
Hallvarðssonar formanni Sjó-
mannafélags Reykjavíkur í sam-
tali við Þjóðviljann eftir að fundi
var slitið í gær, en hann sagði að
útgerðarmenn væru nú komnir í
að ræða kröfur sjómanna og sá
áfangi væri góðs viti.
Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins virtist nokkuð
svartsýnni, en að sögn hans hafa
útgerðarmenn stillt farmönnum
upp fyrir tveimur valkostum.
Annars vegar er um að ræða
hækkun sem grundvallast á ASÍ/
VSÍ samkomulaginu þar sem lág-
markslaun eru 26.500 krónur. Þá
er jafnframt gert ráð fyrir 6%
hækkun á önnur laun. Útgerðar-
menn eru ekki tilbúnir til þess að
koma til móts við kröfu farmanna
um hækkað yfirvinnuálag nema
fyrir þá yfirvinnu sem er unnin
eftir að 8 stunda vinnuskilum á
dag er lokið, en á þá vinnu bjóða
þeir 73% yfirvinnuálag. Hinn
valkostur sjómanna, sagði Þórar-
inn, er að fara þá leið að breyta
vinnufyrirkomulaginu, en út-
gerðarmenn kjósa að fara þá
leiðina og segja þá leið geta stór-
bætt kjör sjómanna vegna
aukinnar hagræðingar sem slíkar
breytingar myndu hafa í för með
sér. „Þeirra er valið,“sagði Þór-
arinn um þessa tvo valkosti.
„Okkur þykir tilboð vinnu-
veitenda enn of lágt,“ sagði Guð-
mundur Hallvarðsson, en í gær
höfðu farmenn lækkað lágmarks-
launakröfu sína niður í 34 þúsund
krónur. Þá sagði Guðmundur að
farmenn vildu gjarnan vinna að
breytingu á vinnurammanum, en
Afmœli
Versló
tví-
tugur
Stórveisla
ígær
í gær hélt Nem-
endafélag
Verzlunarskóla
íslands upp á 20
áraafmælisitt. í
tilefni dagsins
var boðið til veg-
legrar afmælis-
veislu í skólan-
um,með þátt-
töku nemenda
úr öðrum fram-
haldsskólum,
grunnskólum,
gömlum nem-
endum V.í. og
mörgumfleiri.
Það er ekki ann-
að aðsjáen að
nemendur hafi
vel kunnað að
meta afmælis -
tertumar.
Mynd - E.Ól.
Þaðvarþröngtá
þingiviðtertuátiðí
Verzlunarskólan-
umígær
Ríkisútvarpið
Stöður auglýstar á kaffistofum
að samningum um grunnkaup og
yfirvinnuálag frágengnu.
Vegna yfirlýsinga Vinnuveit-
endasambandsins um 80 þúsund
króna mánaðarlaun samkvæmt
þeirra tilboði hafa farmenn sent
frá sér tilkynningu þar sem segir
að samkvæmt þessum útreikning-
um sé gert ráð fyrir yfir 300
klukkustunda vinnu á mánuði.
Þá hefur Kjararannsóknanefnd
sent frá sér tikynningu þar sem
segir að forsendur þær sem þessir
útreikningar séu grundvallaðir á
séu miðaðir við vinnutíma sjó-
manna frá síðasta ári og því beri
ekki að skoða útreikningana sem
úrskurð um væntanlegar tekju-
breytingar farmanna verði tilboð
útgerðarmanna að samningi.
Annar sáttafundur hefur verið
boðaður klukkan 14 í dag.
-K.ÓI.
Skoðanakönnun DV
D vinnur á
A tapar
Samkvœmt könnuninni
virðist Alþýðuflokkurinn
tapafylginu til
Sjálfstæðisflokksins sem
vinnurá. Rúm30%
svarenda óráðnir
Samkvæmt helstu niðurstöð-
um skoðanakönnunar sem DV
birti í gær hefur fylgi Alþ.flokks-
ins minnkað frá fyrri könnun
DV frá því í desember sl. og að því
er virðist færst að mestu leyti yfir
til Sjálfstæðisflokksins. Breyting-
ar hjá öðrum flokkum eru óveru-
legar.
Af þeim sem tóku afstöðu
sögðust 19% (í des. 1986 26.4%)
kjósa Alþýðuflokkinn, 17.8%
(17%) Framsókn, 0.3% (0%)
BJ, 39.9% (34.7%) Sjálfstæðis-
flokkinn, Alþýðubandalagið
12%(13.4%), Kvennalistann
8.2% (7.1%) Flokk mannsins
1.2% (0.6%) og Stefán Valgeirs-
son 1.7% (0.6%).
Þess skal getið að 31.2% af
heildarúrtakinu sem var 600
manns, voru óákveðnir, en sam-
kvæmt könnunum Félagsvísinda-
deildar Háskólans á þessum
hópi, er tilhneigingin sú að hlut-
fall þeirra sem kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn í hópi hinna óráðnu er
minna en meðal þeirra sem gefa
svar um ákveðinn flokk og hlut-
fall þeirra sem kjósa aðra flokka
hærra. 11.7% neituðu að svara í
könnuninni. -K.Ól.
Nýjar stöður Ríkisútvarpsins auglýstar á kaffistofum stofnunarinnar.
Markús Örn Antonson: Ekki verið aðfjölga stöðum heldur verið að
endurskipuleggja reksturinn
Pað er ekki verið að fjölga stöð-
um heldur einungis verið að
ákveða hlutverkaskipti hjá fólki
innan stofnunarinnar sem búið
var að ráða til starfa, sagði Mark-
ús Örn Antonsson útvarpsstjóri
þegar hann var beðinn um að
skýra hvers vegna þær fjórar
stöður sem Ríkisútvarpið hefur
nýlega auglýst til umsóknar hafi
einungis verið auglýstar á kaffi-
stofum stofnunarinnar en ekki
opinberlega eins og lög kveða á
um lausar stöður hjá hinu opin-
bera.
Markús sagði að deildarstjórar
viðkomandi deilda, starfsmanna-
stjóri eða framkvæmdastjóri
hefðu allt eins getað skipað fólk í
stöðurnar uppá eigin spýtur en
það hefði þótt sjálfsögð tillitsemi
að gefa starfsmönnum kost á að
vita hvaða breytingar stæðu til og
þá um leið að gefa þeim kost á því
að gefa sig fram.
Þær stöður sem um er að ræða
eru staða fulltrúa framkvæmda-
stjóra hljóðvarpsins, fulltrúa á
tónlistardeild, staða dagskrárg-
erðarmanns í léttri tónlist og starf
dagskrárgerðarmanns á frétta-
stofu hljóðvarps, en honum er
ætlað að hafa umsjón með
tveggja tíma „magasínþætti" síð-
degis á virkum dögum.
Um starf fulltrúa fram-
kvæmdastjóra sóttu þrír, þau
Bogi Ágústson fréttamaður Sjón-
varpsins, Stefán Jóhann Hafstcin
fréttaritari útvarpsins í Banda-
ríkjunum og þriðji umsækjandi
sem óskað hefur nafnleyndar.
Umsóknirnar verða lagðar fyrir
útvarpsráð nk. föstudag.
-K.Ól.
Bylgjan
Svavar
á beinni
línu
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins verður á
beinni línu á Bylgjunni í kvöld frá
kl. 23-24.
Hlustendum gefst þá kostur á
að leggja spurningar fyrir Svavar
um þau mál sem nú eru efst á
baugi og kosningabaráttuna.
Miðvikudagur 28. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3