Þjóðviljinn - 28.01.1987, Síða 6
Söfnun
vegna jarðskjálftanna í El Salvador lýkur 6. febrú-
ar.
Framlög greiðist með gíró inn á reikn. 0303-26-
10401.
El Salvador-nefndin
Á mölinni mætumst með
bros á vör — ef bensíngjöfin
Aukavinna
Okkur vantar fólk í áskriftarsöfnun fyrir Þjóðvilj-
ann.
Ágæt laun í boði fyrir röskar manneskjur. Upplýs-
ingar í síma 681333 og 681663.
MðÐVIUINN
Sími
681333
AKUREYRINGAR -
EYFIRÐINGAR
Almennur fundur í Sjallanum fimmtudaginn 29.
janúar n.k. kl. 21.00.
Fundarefni: Opinber rekstur - fræðslu- og
skólamál.
Fundarstjóri: Gunnar Ragnars.
Menntamálaráðuneytið
SVERRIR HERMANNSSON
Sonur okkar og bróðir
Guðmundur Jökull Jensson
lést af slysförum 15. janúar síðastliðinn. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Flug-
björgunarsveitina í Reykjavík.
Valgerður Hallgrímsdóttir
Jens A. Guðmundsson
Margrét Jensdóttir
Hallgrímur Jónas Jensson
Laufey Jensdóttir
Móðir okkar
Anna Klemensdóttir
Laufási við Laufásveg, Reykjavík
andaöist 27. janúar í Hafnarbúðum.
Fyrir hönd okkar systkinanna.
Klemens Tryggvason
Þökkum innilega öllum sem sýndu okkur samúð við andlát
og útför
Ágústu Guðmundsdóttur
Hafnarbrut 34, Neskaupstað
Bjartmar Magnússon
Gunnar Bjartmarsson
Hulda Kolbeinsdótir
og barnabörn
BORGARMÁL
Lýðræðishlutinn í borgarstjórn, Alþýðubandalag, Kvennalisti, Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur, lagði til að styrkur til
hvítasunnumanna yrði lækkaður mjög, en styrkur Sjálfsbjargar hækkaður verulega á móti. Tillagan náði ekki fram að
ganga fremur en aðrar tillögur minnihlutans við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Mynd E.ÓI.
Borgarstjórn
Um 100 fjárstyrkir
Styrkveitingar borgarinnar til hinna ýmsu aðila skoðaðar. Ein
breytingartillaga minnihlutans hlautnáð fyrir augum meirihlutans.
Frávísunartillaga á styrk dl Afreksmannasjóðsfelld
Borgarstjórn veitir árlega ýms-
um aðilum styrki, bæði háa og
lága. Þessar styrkveitingar skipta
tugum, nema yfirleitt heldur
lægri upphæð en sótt var um,
stundum mun lægri upphæð og
svo eru auðvitað þeir sem ekkert
fá.
í fjárhagsáætlun þessa árs er
ekki brugðið út af venjunni. Þar
er gert ráð fyrir styrkveitingum til
tæplega 100 aðila, að upphæð allt
frá nokkrum þúsundum króna og
upp í milljónir. Hér er hvorki
rúm né ástæða til þess að tíunda
allar þessar styrkveitingar, en
lítum á nokkrar:
krónur
Myndlistaskólinn í Rvk. 1.500.000
Hestamannafélagið Fákur 55.000
Úlfljótsvatnsráð 1.500.000
Bókasafn Dagsbrúnar 12.500
Ættfræðifólagið 200.000
MFA 250.000
Lúðrasveitir 420.000
Pólýfónkórinn 100.000
Leikbrúðuland 50.000
islenska hljómsveitin 260.000
Myndhöggvarafélagið 150.000
Alþýðuleikhúsið 200.000
Nýlistasafnið 120.000
Olympíunefnd islands 350.000
Taflfélag Reykjavíkur 550.000
ÍJþróttafélag fatlaðra 260.000
Osp, íþr.fél. þroskaheftra 65.000
Afreksmannasj. Rvk. 500.000
Hamrahlíðarkórinn 100.000
Nemendaleikhúsið 30.000
Vernd 500.000
Þingstúka Reykjav. 50.000
isl. ungtemplarar 100.000
Bandalag kvenna Rvík. 100.000
NRON 300.000
KFUMogKFUK 1.450.000
Samhjálp hvítas.manna 700.000
Samt. um kvennaathv. 1.000.000
Skátaheimili í Reykjavík 1.050.000
íbúasamtök Þingholtanna 12.000
Framfarafélag Seláss
og Árbæjarhverfis 12.000
íbúasamtök Vesturbæjar 12.000
íbúasamtök Skuggahverfis 0
Félag einstæðra foreldra 1.520.000
Sjálfsbjörg 160.000
SÁÁ 600.000
Skjöldur 2.060.000
Risið 1.375.000
Þrepið 968.000
Sporið 916.000
Slysavarnadeildin
Ingólfur 175.000
Flugbjörgunarsveitin 175.000
Hjálparsveit skáta 175.000
Kvennaráðgjöfin 25.000
Guðrún Nielsen,
v/íþróttaiðkana aldraðra 30.000
Félag eldri borgara 350.000
Ingibjörg S. Gísladóttir Kvennalista lagði til að styrkur til Afreksmannasjóðs yrði
felldur niður á sömu forsendu og tillögu um milljón í kvennarannsóknir var vísað
frá þ.e.a.s. vegna þess að afreksmenn hafa fyrir löngu fengið formlegt jafnrétti
til íþróttaiðkana á við aðra. Mynd Sig.
Minnihlutinn í borgarstjórn
gerði nokkrar breytingartillögur
við þessar styrkveitingar við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar. Borg-
arfulltrúar minnihlutans vildu
hækka styrkveitingu til
Leikbrúðulands upp í 100.000
krónur hækka styrk Alþýðuleik-
hússins um 50.000, lækka styrk til
Olympíunefndar um 230.000,
lækka styrk til hvítasunnumanna
um 500.000, hækka styrk til íbú-
asamtaka upp í 18.000 og veita
íbúasamtökum Skuggahverfis
einnig styrk, hækka styrk Sjálfs-
bjargar upp í 450.000 og veita
Hlaðvarpanum 100.000 króna
styrk. Þessar tillögur voru allar
felldar.
Auk þess lagði minnihlutinn til
að einni milljón króna yrði veitt
til rannsókna er gætu varpað ljósi
á líf og starf reykvískra kvenna í
tilefni af því að nú eru 80 ár liðin
frá því konur fengu kosningarétt
til bæjarstjórna. Tillögunni var
vísað frá sem óþarfri og ósæm-
andi, enda er það skoðun Sjálf-
stæðisflokksins að konur hafi
fyrir all löngu fengið raunveru-
legt jafnrétti.
í framhaldi af þeirri undarlegu
uppákomu flutti Ingibjörg S.
Gísladóttir Kvennalista frávísun-
artillögu á styrkveitingu til Af-
reksmannasjóðs, en hún var
felld. Ingibjörg gat þess í tillögu-
nni að afreksmenn hefðu fyrir all
löngu fengið jafnrétti til íþrótta-
iðkana í landinu og ættu því að
geta stundað íþrótt sína án þess
að til kæmi sérstakt framlag af
almannafé. Tillagan væri því
ástæðulaus, óþörf og jafnvel
óviðeigandi.
Þess verður þó að geta að ein
tillaga minnihlutans var sam-
þykkt, tillaga um að veita Guð-
rúnu Nielsen styrk vegna íþrótta-
iðkana aldraðra, alls 30 þúsund
krónur.
-gg
Er ekki tilvalið að gerast
áskrifandi
tUÓÐVIUINN Sfmi 681333
6 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN