Þjóðviljinn - 06.02.1987, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 06.02.1987, Blaðsíða 9
GL4ETAN Mér finnst ég verð’ að eyða nokkrum orðum um ósköp þau er valda þessu hér að friðsœlt líf mitt áður fór úr skorðum, ég fann í hirslum gamalt Ijóðakver. Það hvíldi á mér nótt sem nýtan dag, nálgaðist mig sífellt meira og meira. Mér fannst ég heyra einhvern undrabrag, í ótta og lotning lagði ég við eyra. Hér með gat ég ekki aftur snúið undin fast í Ijóðsins dverga þrœði. Örlögin, þau fœstir geta flúið en fleiri hafa sagt af því í kvæði. Mér fannst ef Ijóðaferil minn ég hœfi þá fjöldinn myndi sjá mitt lífsins graf. En mér fannst ég eiga feikileg auðœfi sem fleiri yrðu góðs að njóta af. Við listaskáldsins styttu stundum sat og stuðlaði þar saman Viðris kveikinn. Eg vissi að skáldið kœttistþá kvœðin’ ég af mér gat, og kannski það hafi hjálpað mér við leikinn. Á kaffihúsum ég aldrei hafðist við í hópi fólks og sífelldu ónœði. í einverunni öðlast fékk þann frið er fleirum síðan veitti ég í kvœði. Ég efast um að einhvern mann ég svekki þó opinberi’ ég sáran sannleikinn. BESTI VINUR LJÓÐSINS var ég ekki en vissi að Ijóðið yrði alltaf minn. Og ég mun aldrei gömlu skáldin skilja er skrifuðu um ástir blóm og vor. Þau tróðu sínum þönkum milli þilja og þess á milli deyjandi úr hor. Þau lifðu sum á þjóðarrembings raupi rímuðu um betra líf. Ég sver’ ða! En fleiri hafa logið líkt á kaupi og lofað uppí ermi þartilgerða. - Gerður Kristný LEIKHÚSIÐ í KIRKJUNNI sýnir leikritið um KAJ MUNK í HALLGRÍMSKIRKJU 10. sýning sunnudaginn 8. feb. kl. 16. Uppselt. 11. sýning mánudaginn 9. feb. kl. 20.30. Miðapantanirí Hallgrímskirkju allan sólarhringinn í síma 14455. STUNDUM DUGAR Febrúar 1987 XL í þessari auglýsingu birtast óhugnanlegar stað- reyndir um slys í umferðinni, sem meðal annars hafa kostað mannslíf. Fleiri slíkar munu birtast á komandi mánuðum og bera þá vonandi vitni um árangur í baráttunni gegn umferðarslysum. Miðasala opin sunnudaga frá kl. 13 og mánu- daga frá kl. 16 og á laugardögum frá kl. 14-17. Vegna mikillar aðsóknar óskast pantanir sóttar daginn fyrir sýningu, annars seldar öðrum. FARARHEILL87 m ATAK BIFREIDATRYGGINGAFÉLAGANNA í UMFERÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.