Þjóðviljinn - 06.02.1987, Page 13

Þjóðviljinn - 06.02.1987, Page 13
Beirútgíslar Waite gekk í gildru Beirút/Washington - Haft er eftir háttsettum en ónafngreindum foringja skæruliða í Beirút að ræningjar Terry Waite hafi skipulagt mannránið frá upp- hafi og sé ástæða þess að Wa- ite er hafður í haldi óánægja með að ekki var staðið við „tryggingar" sem Waite á að hafa borið áður frá Kuwait um afdrif sautján manna sem þar eru í fangelsi fyrir sprengjutil- ræði árið 1983. Terry Waite var sendur til Lí- banon af ensku biskupakirkjunni til að semja við mannræningja um að sleppa gíslum. Hann hvarf fyrir rúmum hálfum mánuði og er talið að hann sé hafður í haldi hjá samtökunum íslamskt Jihad (heilagt stríð), en engar kröfur hafa verið gerðar í skiptum fyrir að honum verði sleppt. Skærulið- aforinginn segir að ræningjar Waite hafi skipulagt ránið vel, sagt Waite að gíslar vildu hitta hann og sett þau skilyrði að hann kæmi til móts við sig að næturþeli án lífvarða sinna úr sveitum Drúsa, og rænt honum síðan. Kuwait-stjóm hefur áður neitað að nokkurt samhengi sé á milli gísla í Beirút og ýmissa hermdar- verka í Kuwait. Ekkert virðist hafa gerst í mál- um fjögurra bandarískra háskól- akennara sem rænt var um dag- inn af samtökum sem kalla sig ísiamskt Jihad til frelsunar Pal- estínu, og kröfðust samtökin þess að um 400 föngum í ísrael yrði sleppt. Því hafa ísraelsmenn hafnað, og talsmaður Hvíta húss- ins sagði í gær að ekki yrði gengið til samninga við skæruliða, sem hóta að taka gíslana af lífi ef ekki verður gengið að kröfum þeirra fyrir mánudag. Bandarískur floti sem af þessu tilefni var sendur að ströndum Lí- banon hefur nú verið aukinn, og eru þar nú tvö flugvélamóðurskip og um 20 herskip minni. Ólíklegt er talið að þessum herafla verði beitt í Líbanon, enda hafa mannræningjar hótað að drepa gísla sína við íhlutun. HEIMURINN Bandarísk kjarnorkustefna Viðurkenna ekki Kyrrahafssamninginn Ástralir og Nýsjálendingar reiðir Bandaríkjastjórn fyrir að neita að undirrita Rarotonga-samninginn um kjarnorkuvopnalaust svœði í Suður-Kyrrahafi Canberra/Wellington/Washing- ton - Bandaríkjastjórn hefurtil- kynnt ríkjum í Suður-Kyrrahafi að hún hyggist ekki undirrita samning þeirra um kjarnorku- vopnalaust svæði í Suður- Kyrrahafi. Utanríkisráðherra Ástralíu og forsætisráðherra Nýja-Sjálands hafa harmað ákvörðun Washington-stjórn- arinnar og vonast til að hún endurskoði afstöðu sína. Þessi ákvörðun hefur enn ekki verið tilkynnt formlega í Was- hington, en Bandaríkjastjóm hefur látið ríkisstjórnirnar í Suður-Kyrrahafi vita. Bill Hay- den utanríkisráðherra Ástrala sagði fyrst frá afstöðu Banda- ríkjamanna í gær og sagðist mjög vonsvikinn. David Lange forsætisráðherra Nýsjálendinga sagði síðar að honum þætti mjög miður að ekki skyldi tekið meira tillit til hagsmuna og óska ríkjanna í Suður-Kyrrahafi. Samningurinn væri mikilvægt framlag til öryggis á svæðinu og í heiminum, og við gerð hans hefði sérstakt tillit ver- ið tekið til óska Bandaríkja- manna eftir viðræður við þá. Rarotonga-samningurinn var staðfestur af þrettán ríkjum á Suður-Kyrrahafi fyrir nokkrum mánuðum. Ríkin þrettán em flest smá eyríki, og munar mest um Ástrali og Nýsjálendinga í þessu samstarfi. í samningnum er kveðið á um að samningsaðilar komi sér ekki upp kjamorku- vopnum og leyfi þau ekki í lög- sögu sinni. Þau stórveldi sem beðin hafa verið að undirrita samninginn skuldbinda sig þar- með til að gera ekki kjarnorkuár- mun furðulegri sem hún hefði undirritað samning um kjarnork- uvopnalaust svæði í Suður- Ameríku og stutt hugmyndir um slíkt í Suður-Asíu og í Miðaustur- löndum. Bretar hafa ekki gefið upp af- stöðu sína til samningsins, en Frakkar hafa neitað að skrifa undir. Franskar tilraunaspren- gingar á Mururoa-rifi hafa lengi verið ríkjunum á Suður- Kyrrahafi þymir í augum. Sovét- menn og Kínverjar hafa lýst yfir að þeir muni undirrita samning- inn. Bill Hayden utanríkisráðherra Ástrala, lendinga, - reiðir Bandaríkjastjórn. ás á ríki í Suður-Kyrrahafi, stundi þær ekki tilraunir með kjarnork- uvopn og losi ekki kjarnorkuúr- gang í hafið. Ferðir skipa með kjarnorkuvopn em hinsvegar leyfðar, og í samningnum er sér- David Lange forsætisráðherra Nýsjá- stakt ákvæði um að ríki geti með ákveðnum fyrirvara rift aðild að samningnum telji þau aðstæður krefjast slíks. Bill Hayden sagði að afstaða Bandaríkjastjórnar væri þeim ERLENDAR FRÉTTIR MÖRÐUR ÁRNASON ,/REUlER Sovét Metmenn í geimstöðina Sovétmenn að ná undirtökum í geimferðakapphlaupinu? Moskvu - Tveir sovéskir geim- farar voru sendir útí geiminn í gærkvöldi með geimfarinu So- jusi TM-2 og eiga þeir að fara um borð i Geimstöð Sovét- manna, Mír. Búister við að þeir muni setja met í samfelldri geimdvöl, en fyrra met eiga so- véskir geimfarar sem dvöldu um borð í geimstöðinni Saljút sjöunda i 237 daga, sem eru tæpir átta mánuðir. Geimstöðinni Mír var skotið á loft í febrúar í fyrra, og er hald manna að Sovétmenn muni í framtíðinni manna hana árið um kring. Persaflóastríðið Læknar selja sár Gífurlegar mannfórnir írana Mennforðast herþjónustu með öllum ráðum Iranar og Irakar, Persar og Arabar, sjíta- og súnní múslim- ir, berast á banaspjótum sem aldrei fyrr nú um stundir. Stríðið hófst, sem alkunna er, á því að Saddam Hussein, leiðtogi Iraka, gaf her sínum fyrirmæli um að ráðast inn fyrir írönsku landa- mærin í septembermánuði árið 1980. Þá skáru írönsku klerkamir upp herör og eggjuðu þjóðina lögeggjan að taka hraustlega á móti og láta arabísku „trúvilling- ana“ og innrásarseggina snýta rauðu. Þjóðin hlýddi kalli og þrungnir ættjarðarást og öðrum göfugum kenndum þrömmuðu persneskir æskumenn í átt til víg- stöðvanna „hvergi hræddir hjörs í þrá“. Árin liðu eitt af öðru en nú er komið annað hljóð í strokkinn og beita menn öllum brögðum til að komast undan því að taka beinan þátt í átökunum, skaða jafnvel eigin líkama! Hildarleikurinn við Persaflóa stenst vart nokkum samanburð við styrjaldarátök á seinni tímum og verður að hverfa aftur á ofan- verða síðustu öld og öndverða okkar til að fá samanburð. Tryll- ingsleg hrannvíg í bandaríska borgarastríðinu og linnulaus dauðadans fyrri heimsstyrjaldar, þegar líf hins óbreytta hermanns var vegið og mjög léttvægt fund- ið, em helstu hliðstæðurnar í nú- tímasögu. Áður en íranar hófu þá sókn sem nú stendur yfír var það mál sérfróðra manna að a.m.k. 315 þúsund menn hefðu fórnað lífi sínu í þessum viðurstyggilega stríðsleik valdamanna í Teheran og Bagdað. Og á umliðnum vik- um hafa fallið tugir þúsunda. í herbúðum írana, sem allir em á einu máli um að misst hafi mun fleiri menn en írakar, hafa „framverðir byltingarinnar" og „sjálfboðaliðar" borið hita og þunga baráttunnar. Þetta eru gjama menn af lágum stigum, smábændur sem ekki hafa frá miklu að hverfa en fá vilyrði fyrir mikilli umbun standi þeir sig í stykkinu. Falli þeir þá verður næsta vel tekið á móti píslarvott- unum í Paradís en komist þeir lífs af þá er þeim lofað gulli og græn- um skógum í stórveldi ajatoll- anna. Stöðugt þarf að fylla raðir þeirra sem farnir em til Paradís- ar. írönsk stjómvöld hafa allar klær úti til að verða sér úti um fallbyssufóður. Sýknt og heilagt er verið að „bæta“ löggjöfina um herskyldu í því augnamiði að stoppa í götin sem ýmsir smeygja sér út um og mönnum er oft beinlínis ógnað af útsendurum ráðamanna víli þeir fyrir sér að taka þátt í krossförinni gegn „Sat- ani“ Hussein, íraksforseta, svo notað sé tungutak Khomeinis erkiklerks. Fjöldi ungra íranskra karl- manna hefur flúið land og þá einkum til Tyrklands, hvaðan þeir komast síðan til ýmissa landa. Er svo undir hælinn lagt hve mikillar samúðar þessir flóttamenn njóta í hverju landi fyrir sig. Getum við íslendingar litið í eigin barm um þessar Geimskotinu í gærkvöldi var sjónvarpað beint einsog nokkr- um öðrum undanfarið, - áður létu Sovétmenn sér nægja að til- kynna um geimskot sín eftirá. Sovétmenn eru hressir með geimafrek sín undanfarið, enda hafa keppinautar þeirra í Vestur- heimi ekki aðhafst síðan í Challenger-slysinu í janúar í fyrra. Ymsir geimfræðingar í Bandaríkjunum hafa af því áhyggjur að Sovétmenn séu að ná ótvíræðri forystu í þessu kapp- hlaupi. Hermenn ajatollans, - sífelit tregari, sífellt yngri. mundir hvað þessu viðvíkur. Nú er svo komið að íranskir foreldrar láta einskis ófreistað til að bjarga sonum sínum frá bráðum bana á vígvellinum og ber nýjasta frásögnin um útsjón- arsemi þeirra þess ljósan vott á hvaða stig örvilnunar fólk er í þessu stríðsþjáða landi. Hún er á þá leið að foreldrar greiði lækn- um, hver eftir efnum og ástæð- um, fé fyrir að skera sár á líkama drengja sinna og útbúa trúverðug ör sem fulltrúar yfirvalda taki sem góðan og gildan vitnisburð um vanhæfni viðkomandi til her- þjónustu! -ks. Kjarnorkutilraunir Sovéthléið úr gildi Moskvu - Sovétstjórnin hefur lýst því formlega yfir að ein- hliða hlé á tilraunum með kjarnorkuvopn sé úr gildi fallið eftir að Bandaríkjamenn sprengdu tilraunasprengju í Nevada-eyðimörkinni á þriðju- dag. Á blaðamannafundi í sovéska utanríkisráðuneytinu endurtóku Moskvumenn vilja sinn til samn- inga um algert tilraunabann, en sögðu hemaðamauðsyn á nýjum sovéskum tilraunum eftir að Bandaríkin hefðu virt að vettugi viðleitni Sovétmanna. Ekkert var sagt um hvenær búast mætti við sovéskri sprengingu. Talsmenn Sovétstjómarinnar segja Bandaríkjastjóm stefna að hemaðaryfirburðum með því að framleiða „þriðju kynslóð“ kjamorkuvopna og undirbúa hergögn sem byggja á leisigeisla- tækni. Þeir segjast hinsvegar ekki munu svara „stjömustríðs“-kerfi Bandaríkjamanna í sömu mynt og láta að því liggja að þeir hafi ýmislegt ódýrara í pokahominu. Föstudagur 6. febrúar 1987|ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.