Þjóðviljinn - 06.03.1987, Qupperneq 2
Ásdís Benediktsdóttir, hús-
móöir:
Það er alveg ómögulegt. íslend-
ingar eiga að standa á eigin tó-
tum.
—SPURNINGIN—
Hvað finnst þér um
eignaraðild útlend-
inga að fiskvinnslu og
sjávarútvegi hérlend-
is?
Árni Árnason, afgreiðslu-
maður:
Mér finnst það svo sem í lagi í
hófi. Það á þó að vera skilyrði að
íslendingar eigi meirihluta.
Sylvía Kristjánsdóttir,
atvinnulaus:
Ég er alfarið á móti því. Við eigum
að halda útlendingum fyrir utan
atvinnuvegi okkar.
Andrés Kristjánsson pípul-
agningamaður:
Mér finnst að það sé nú í lagi á
meðan íslendingar eiga meiri-
hluta í þessum fyrirtækjum.
Herdís Heigadóttir, bóka-
vörður:
Mér finnst að það eigi að útiloka
þá og finnst þetta mjög varhuga-
verð þróun. Við erum svo lítil þjóð
að þeir gleypa okkur undir eins.
FRÉTTIR
Akranes
Sundlaugin í forgang
Frumvarp að fjárhagsáœtlun fyrir Akranes kynntá borgarafundi.
9 miljónir ísundlaug. 37miljónir í grunnskólana samkvcemt samningi við ríkið.
Óbreytt skuldastaða
Við höfum ákveðið að setja
sundlaugina á Jaðarsbökkum
í forgang á þessu ári og vonumst
til þess að hægt verði að taka
hana í notkun í árslok, sagði Guð-
bjartur Hannesson, bæjarfulltrúi
og formaður bæjarráðs á Akra-
nesi, m.a. á borgarafundi í fyrra-
kvöld þar sem frumvarp að fjár-
hagsáætlun bæjarins var kynnt
fyrir bæjarbúum. Áætlunin verð-
ur afgreidd í næstu viku. Bæjar-
yfirvöld hafa ekki áður kynnt
frumvarp að fjárhagsáætlun með
þessum hætti, en stefnt er að því
að halda svona fundi í framtíð-
inni.
9 miljónir króna- fara á þessu
ári í sundlaugina, sem er langþ-
ráð framkvæmd og kemur til með
að leysa B j arnalaugu af hólmi, en
hún er aðeins 12,5 metrar á
lengd. Allt kapp verður að sögn
bæjarfulltrúa lagt á að ríkið sam-
þykki hana sem skólamannvirki,
en þannig verða tryggðar endur-
greiðslur frá ríki. Bærinn hefur
fram að þessu verið nánast einn
um fjármögnun laugarinnar.
Mikið fé er bundið í skólafram-
kvæmdum á Akranesi í ár sam-
kvæmt langtímasamningi við rík-
ið um uppbyggingu grunnskól-
anna, alls 37 miljónir. Það verður
því ekki mikið um stórfram-
kvæmdir fyrir utan skóla og sund-
laug.
Lántökur bæjarins nema um 45
miljónum króna, en skuldastað-
an helst þó óbreytt samkvæmt
áætluninni.
Tekjur bæjarins nema alls um
252 miljónum króna. Þar af vegur
útsvarið vitaskuld þyngst, 160
miljónir. Útsvarsprósentan verð-
ur 10,4% sem fyrr.
-gg
Brjótum múrana
Konur
stofna
fyrirtæki
Námskeiðfyrir
norðlenskar konursem
vilja verða
atvinnurekendur
Á vegum Brjótum múrana,
verkefnis norrænu ráðherra-
nefndarinnar um fjölbreyttari at-
vinnuþátttöku kvenna, er verið
að fara af stað með námskeið
fyrir konur um stofnun og rekstur
fyrirtækja undir yfirskriftinni:
Konur stofna fyrirtæki.
Valgerður Bjarnadóttir, verk-
efnisfreyja Brjótum múrana,
sagði í samtali við Þjóðviljann að
tilgangurinn með þessu nám-
skeiði væri að fjölga konum í stétt
atvinnurekenda og auðvelda
þeim konum sem áhuga hafa á að
fara út í atvinnurekstur að hrinda
hugmyndum sínum í fram-
kvæmd.
Fjöldi þátttakenda á náms-
keiðinu verður takmarkaður við
u.þ.b. 20 konur. Þær konur sitja
fyrir sem ætla að stofna fyrirtæki
á Norðurlandi og hafa hugmyndir
um óhefðbundnar leiðir í at-
vinnurekstri. Þá er átt við nýstár-
lega framleiðslu eða þjónustu,
óhefðbundin rekstrarform og fyr-
irtæki í hefðbundnum karlagrein-
um.
Námskeiðið skiptist í þrjár
vinnuhelgarí apríl, maí og júní en
auk þess er gert ráð fyrir að kon-
urnar vinni að hugmyndum sín-
um og fái ráðgjöf og aðstoð milli
vinnuhelganna ogí a.m.k. 3 mán-
uði eftir að námskeiðinu lýkur.
Að þeim tíma loknum er gert ráð
fyrir að konurnar hafi fullmótað
hugmyndir sínar og séu tilbúnar
að ráðast í stofnun eigin fyrir-
tækis.
-yk.
Hörður Kristjánsson, umsjónarmaður með framkvæmdum, systir Renee, sem á sæti í byggingarnefnd ásamt Einari
Karlssyni og sveitarstjóranum í Stykkishólmi, og príorinna systrareglunnar, systir Lena, kampakát í nýbyggingunni. Þess
má geta að síðan þessi mynd gg var tekin hafa verið sett ný sjúkrarúm á deildina.
St. Fransiskusspítalinn
Ný deild í notkun
Legudeild í nýbyggingunni við spítalann í Stykkishólmi vígð og tekin í
notkun ígær. Einar Karlsson: Langþráður áfangi
Með vígslu þessarar deildar
höfum við náð langþráðum
áfanga. Og þegar nýja byggingin
verður öll komin í notkun má
segja að gerð hafi verið gjörbylt-
ing á sviði heilbrigðismála hér í
Stykkishólmi, sagði Einar Karls-
son, byggingarnefndarmaður
sjúkrahússins í Stykkishólmi, í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Önnur hæð nýbyggingarinnar
við St. Fransiskusspítalann í
Stykkishólmi var vígð og tekin í
notkun í gær. Nýbyggingin er alls
á fjórum hæðum og eru legu-
deildir á 2. og 3. hæð. Á jarðhæð-
inni verður heilsugæslustöð,
ásamt aðstöðu fyrir tannlækni. f
kjallara verður kapella og fleira,
en auk þess eru í nýbyggingunni
endurhæfingardeild og aðstaða
fyrir starfsfólk. Jes Einar Þor-
steinsson teiknaði bygginguna.
Að sögn systur Lenu, príor-
innu systrareglunnar sem rekur
spítalann, verður með tilkomu
nýbyggingarinnar hægt að bjóða
bæði starfsfólki og sjúklingum
upp á stórbætta aðstöðu.
Systrareglan fjármagnar bygg-
ingu sjúkrahússins að fjórum tí-
undu, en ríkið það sem upp á
vantar, samkvæmt samningi sem
gerður var í ráðherratíð Svavars
Gestssonar í heilbrigðisráðuneyt-
inu. Bygging heilsugæslustöðvar-
innar er fjármögnuð af ríki og
sveitarfélaginu.
Einar sagði að enn væri óljóst
hvenær hægt yrði að klára bygg-
inguna. „Það ræðst algjörlega af
fjárframlögum frá ríkinu og þau
hafa ekki verið með besta móti að
undanförnu,“ sagði Einar.
í dag verður almenningi boðið
að skoða hæðina sem tekin var í
notkun í gær.
~£g
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. mars 1987