Þjóðviljinn - 06.03.1987, Blaðsíða 3
FRETTIR
Grundarfjörður
Olían gufuð upp
Hœtta úrsögunni á Grundarfirði.
notaður afturfyrr en búið verður að endurnýja hann
samkvœmt reglugerð
Hannes
á heims-
meistaramót
Hannes Hlíðar Stefáns-
son teflir á
heimsmeistaramóti ung-
linga íAusturríki í vor
Einn okkar efnilegustu skák-
manna, Hannes Hlífar Stefáns-
son, mun tefla fyrir hönd Islend-
inga á heimsmeistarmóti ung-
linga, sextán ára og yngri, sem
fram fer í Austurríki í maímán-
uði.
Hannes er aðeins fjórtán ára
gamall en engu að síður orðinn
mjög öflugur skákmaður einsog
sést best á þeim fjölda ELÓ-stiga
sem hann hefur unnið sér inn:
2335.
Enn er mönnum í fersku minni
er Jón L. Árnason vann þessa
keppni hér um árið. Það er mál
dómbærra manna að Hannes eigi
góða möguleika á að leika það
eftir.
í stuttu spjalli við Hannes af
þessu tilefni kvaðst hann ætla að
undirbúa sig af kostgæfni fyrir
þátttöku í mótinu og sagðist
mundu njóta dyggrar aðstoðar
Guðmundar Sigurjónssonar stór-
meistara. Guðmundur er enginn
nýgræðingur á þessu sviði því
hann hefur unnið með sjálfum
Robert Huebner, einum öflug-
asta stórmeistara heims. -ks.
íbúasamtök
Vesturbœjar
Vemdun
sögulegia
verðmæta
„Mikill áhugi er fyrir því að
fjölga litlum útivistarsvæðum og
íþróttasvæðum barna og ung-
linga og efla möguleika á félags-
og tómstundastarfi innan hverfis-
ins og vernda hús og götumyndir
er gefa heillega mynd af fyrstu
árum byggðarinnar,“ segir í
fréttatilkynningu frá íbúasam-
tökunum.
Á fundi í íbúasamtökunum ný-
lega voru kynntar tillögur Guð-
rúnar Jónsdóttur arkitekts og
lýstu fundarmenn ánægju sinni
með tillögurnar sem þeim þóttu
koma til móts við ofannefndar
hugmyndir. -sá.
I
Tankurinn ekki
Aðgerðum okkar á Grundar-
firði er nú lokið, langmest af
olíunni er gufað upp og það sem
ekki hefur gufað upp hefur ekki
festst í íjörum heldur rekið á haf
út í suðaustanrokinu sem var í
gær, sagði Gunnar H Ágústsson
hjá Siglingamálastofnun er hann
var inntur eftir hvernig gengi að
hreinsa olíuna sem lak úr Olís-
tankur á Grundafírði fyrripart
vikunnar.
Gunnar sagði þennan um-
rædda tank vera yfir tíu ára gaml-
an og hefði hann verið byggður
fyrir gildistöku reglugerðar um
Við erum þegar búnir að selja
þeim 50 tonn af skreið, svipaða
vöru og við höfum verið að senda
til Nígeríu upp á von og óvon. En
þetta eru trygg viðskipti, sagði
Pétur Jóhannsson verkstjóri í
fiskverkun Hróa hf. í Ólafsvík í
samtali við Þjóðviljann, en fyrir-
tækið hefur átt nokkur viðskipti
við fyrirtæki úti í Júgóslavíu og
hafa Júgóslavarnir áhuga á á-
framhaldandi og auknum við-
skiptum að sögn Péturs.
varnir gegn olíumengun sjávar og
því væri þessi geymir ekki innan
olíuheldrar varnargirðingar.
Reglugerð þessi var sett 1982 og
gildir ekki aftur fyrir sig.
Tankurinn hafði staðið lengi
tómur þar til á mánudaginn að í
hann voru settir 150.000 lítrar af
dieselolíu, en þegar vart varð við
lekann á miðvikudag höfðu þegar
um 80.000 lítrar lekið í sjóinn.
Var því sem eftir var í tanknum,
um 70.000 lítrum, þegar dælt yfir
í annan tank til að varna frekari
leka.
Talið er að aftöppunarventill
Þessi viðskipti hófust fyrir
rúmlega ári síðan og hefur Hrói
síðan sent um 50 tonn af skreið
út. Júgóslavarnir borga allt í
bandaríkjadölum og veita banka-
ábyrgðir fyrir greiðslum.
„Þeir hafa sýnt áhuga á frekari
viðskiptum og vilja jafnframt
selja okkur eitthvað í staðinn.
Þeir hafa verið að bjóða okkur
m.a. vín, en ÁTVR hefur ekki
verið tilkippilegt í þau viðskipti
enn sem komið er. Ég er
sem er undir tanknum hafi rifnað
frá eða skemmst á meðan tankur-
inn stóð tómur en ekki er enn
ljóst hvort tæring hafi verið í
ventlinum eða hann skemmst
vegna hreyfingar á tanknum á
meðan hann stóð ónotaður.
Gunnar sagði að menn Sigling-
amálastofnunar hefðu farið með
allan tiltækan búnað stofnunar-
innar vestur, bæði fljótandi olíu-
varnargirðingu og fleytitæki sem
fleytir olíuna ofan af sjónum.
„Það var samt lítið hægt að gera
því það var komið suðaustan rok,
sjór og vitlaust veður, en það er
sannfærður um að það er hægt að
auka þessi viðskipti verulega ef
rétt er að farið,“ sagði Pétur.
Júgóslavarnir gera nokkurs
konar kæfu úr skreiðinni og nota
gjarna oná brauð. Pétur segir þá
hjá Hróa hafa reynt þessa aðferð
og kynnt í Ólafsvfk við góðar
undirtektir. „Þeir nota þetta á
svipaðan hátt og við notum ídýfur
og salöt ýmiss konar,“ sagði Pét-
ur.
-88
lán í óláni að þetta var dieselolía,
en mest af henni gufar upp á ein-
um til tveim sólarhringum. Þetta
ætti ekki að hafa neinn skaða í för
með sér fyrir fiskeldið hjá Snæ-
laxi því að fiskeldiskerin eru flot-
ker sem sjórinn kemur inn í að
neðan en olían flýtur ofan á.“
Gunnar sagði ennfremur að
tankurinn yrði ekki notaður aftur
fyrr en búið yrði að endurbyggja
hann eins og reglugerðin segir til
um.
„Það er nauðsynlegt,“ sagði
Gunnar að lokum, „að alls staðar
sé til olíumengunarvarnarbúnað-
ur eins og gert er ráð fyrir í hafn-
arlögum. Þetta á að vera jafn
sjálfsagt og að hafa slökkvilið á
staðnum.“
-Ing.
Sjónvarp
Stöð 2
amerískt
sjónvarp
Allt erlent efni Stöðv-
ar 2 frá enska mál-
svæðinu
„Hyggst menntamálaráðherra
beita sér fyrir því að sjónvarps-
stöðvum í einkaeign verði gert að
flytja íslenskt efni sem verði á-
kveðinn hluti af dagskránni?“
spurði Ásta R. Jóhannesdóttir
menntamálaráðherra á alþingi í
gær.
Ásta sagði að samkvæmt könn-
un væri íslenskt efni í ríkissjón-
varpinu að meðaltali 47% en hjá
Stöð 2 aðeins 13.5% en lægst
hefði hlutfall íslenska efnisins á
Stöð 2 komist niður í 3,3% og
væri ástandið hvergi verra hvað
þetta varðaði en á Stöð 2, jafnvel
ekki hjá sjónvarpsstöðvum í
Singapore og Guatemala.
í svari sínu sagði Sverrir Her-
mannsson að engin lög heimiluðu
að skylda sjónvarpsstöðvar í
einkaeign til að gera íslensku efni
hærra undir höfði, en hann hefði
skipað nefnd til að endurskoða
útvarpslögin og tæki hún senn til
starfa.
-sá.
Pótur Jóhannsson: Júgóslavarnir vilja kaupa meira, en einhver vöruskipti myndu liöka fyrir því. Mynd gg.
Skreið
Júgóslavar áhugasamir
Hrói hf í Ólafsvík hefur selt 50 tonn afskreið tilfyrirtœkis íJúgósla-
víu. Pétur Jóhannsson verkstjóri: Möguleiki á frekari viðskiptum
Veríö
velkomin
Laugardaginn 7. mars nk.
flytja Verslunin Málarameist-
arinn og Heildverslun Þor-
steins Gíslasonar Nordsjö-
umboðið á íslandi, sem verið
hafa að Grensásvegi 50, í nýtt
og betra húsnæði að Síðu-
múla 8 Reykjavík.
Nordsjö málning og lökk eru
sænskar gæðavörur, Tinto-
rama litakerfið býður upp á
þúsundir lita jafnt úti sem inni.
Verið velkomin á nýja staðinn
og sannfærist um að góð
þjónusta geturorðið enn betri.
Verslunin
Málarameistarínn
Heildverslun
Þorsteins Gíslasonar
Síðumúla 8, 108 Reykjavík
Símar 689045 og 84950