Þjóðviljinn - 06.03.1987, Qupperneq 4
LEIÐARI
ísland með-eða úti í kjamorkukuldanum
Norræna þingmannanefndin, sem kennd er
viö Anker Jörgensen, hefur nú sent út drög aö
samkomulagi um kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd.
Það virðist vera Ijóst, að á þjóðþingum Norð-
urlanda er traustur meirihluti fylgjandi hug-
myndinni um kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum - nema á íslandi, þar sem and-
staða Alþýðuflokksins gæti orðið til þess að
ísland væri útilokað frá samningnum.
Þær norrænu þjóðir, sem gera samkomu-
lagið með sér, munu skuldbinda sig til að fram-
leiða ekki kjarnorkuvopn, taka ekki á móti kjarn-
orkuvopnum, gera ekki tilraunir með kjarnorku-
vopn, leyfa ekki kjarnorkuvopn í löndum sínum,
búa sig ekki undir að fá kjarnorkuvopn, kenna
ekki herjum sínum að beita kjarnorkuvopnum -
og leyfa ekki flutning þeirra um lönd sín né
heldur mannvirki ætluð fyrir uppsetningu kjarn-
orkuvopna.
í samkomulagsdrögunum er gert ráð fyrir að
flutningur kjarnorkuvopna sé bannaður í land-
helgi norrænna þjóða, en þó með þeim undan-
tekningum sem helgast af alþjóðlegum réttar-
reglum um siglingar. Flugvélar hlaðnar kjarn-
orkuvopnum verða ekki leyfðar yfir þeim
Norðurlandanna sem samninginn undirrita og
ekki verður þeim heimil lending.
í þessum samkomulagsdrögum er gert ráð
fyrir einum aðalsamningi milli norrænna ríkis-
stjórna, en auk þess hliðarsamningum til dæm-
is um Eystrasalt við Sovétmenn, Austur-
Þjóðverja og Pólverja og um norðvestursvæðið
við Bandaríkjamenn sem hafa herstöðvar sínar
bæði í Keflavík og Thule á Grænlandi.
Ennfremur er gert ráð fyrir að samningurinn
skapaði Norðurlöndum stöðu til að þrýsta á um
afvopnun á grannsvæðum til að mynda á Kóla-
skaga.
Samningur um kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd yrði að sjálfsögðu mikilvægur stuðningur
við tillögur Palme-nefndarinnar um kjarnorku-
vopnalaust belti gegnum Evrópu, sunnan frá
Ítalíu um þýsku ríkin til Norðurlanda, en sú hug-
mynd nýtur fylgis bæði í Austur-Berlín og svo í
höfuðstöðvum þýskra sósíaldemókrata.
Samkomulagsdrög þessi hafa verið send
norrænum þingflokkum og er beðið um sam-
þykki þeirra eða athugasemdir fyrir 21. apríl
næstkomandi, en þann dag heldur þingmanna-
nefndin fund í Helsinki.
Allar líkur benda nú til þess að norrænt sam-
komulag um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
verði að veruleika samkvæmt þeim samkomu-
lagsdrögum sem hér hefur verið skýrt frá, enda
mun slíkt samkomulag tvímælalaust vega
þungt á vogarskál heimsfriðarins.
En þá er komið að þætti íslands í málinu.
Matthías Mathiesen utanríkisráðherra hefur
hvað eftir annað ítrekað þá skoðun sína, að
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd séu alltof lítill
áfangi í afvopnunarmálum til að vera spennandi
í sínum augum. Hann talar eins og samkomu-
lagið um kjarnorkusvopnalaus Norðurlönd
snerti lítið hans eigið land og þjóð, og kýs að líta
á afvopnunarmál heimsins í stærra samhengi,
rétt eins og hann væri utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna en ekki eylands sem hefur um langan
aldur verið hluti af þeirri heild sem Norðurlönd
mynda.
Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýð-
uflokksins virðist vera álíka sjálfstæður í utan-
ríkismálum og utanríkisráðherrann sjálfur, sem
sennilega mun hvergi þora að hreyfa sig í mál-
inu gegn vilja Bandaríkjastjórnar.
Afstaða þessara manna og flokka þeirra get-
ur orðið til þess að útiloka íslendinga frá þátt-
töku í samkomulaginu um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd, ef ekki kemur til hugarfarsbreyting
fyrir 21. apríl næstkomandi vegna þrýstings frá
almenningi.
Á hinum Norðurlöndunum láta menn sér það í
léttu rúmi liggja, hvort íslendingar verða með
eða ekki, því að hver og einn hugsar fyrst og
fremst um hagsmuni síns heimalands, og þar
fyrir utan ríkir ákveðin tortryggni í garð íslend-
inga, vegna hinna bandarísku hernaðaráhrifa
hér á landi.
En hinn 21. apríl kemur í Ijós í síðasta lagi,
hvaða afstöðu hinir nýtrúlofuðu kratar og
íhaldsmenn ætla að hafa í þessu máli. Ætla þeir
að taka þátt í þessu afvopnunarátaki og leggja
þar með áherslu á að íslendingar vilji í alvöru
starfa að friðarmálum, eða ætla þeir að ein-
angra ísland frá norrænu friðarstarfi og efla um
leið hlutverk landsins í hernaðarkeðju Banda-
ríkjanna? Svarið fæst fyrir 21. apríl.
Og hinn 25. apríl gefst þjóðinni síðan kostur á
að lýsa áliti sínu á friðarstefnu Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks, því þann dag fara fram al-
þingiskosningar á Islandi.
- Þráinn
KUPPTOG SKORIÐ
Frjálshyggja
í fiskveiðum
Frjálshyggjan skýtur rótum á
furðuiegustu stöðum, og undar-
legasta fólk lætur nota sig í gervi
hins nytsama sakleysingja henni
til framdráttar.
Þessu til stuðnings má nú taka
hvernig mál eru að þróast í sjáv-
arútvegi landsmanna. Við búum
við kvótakerfi í fiskveiðum, sem
vissulega hefur sína kosti, en líka
ærið vonda galla. Kvótinn er
bundinn við skip, en ekki byggð-
arlög eða landshluta.
Séu skip seld í annan lands-
hluta, eru menn því ekki bara að
selja skipið sjálft. Þeir eru líka að
selja aflakvóta skipsins burt úr
bænum, og þarmeð að fjarlægja
vjssa atvinnumöguleika.
Á þessu er líka önnur hlið.
Verð á fiskiskipum með kvóta
grundvallast ekki lengur á sjálfu
verðmæti skipsins, heldur er
tekið strangt mið af kvótanum,
sem því fylgir. Þannig er verðið
sprengt upp úr öllu valdi.
Þarmeð eru menn Iíka í raun-
inni ekki lengur að borga bara
fyrir skipið. Verulegur hluti af
kaupverðinu er gjald sem þeir
eru að greiða fyrir leyfi til að
veiða tiltekið magn fiskjar úr
hafi.
Tillögur
villta hægrisins
Þessi mál reifar Morgunblaðið
lítillega í leiðara sínum í gær, en
hefur ekki skoðun á málinu, enda
veit það ekki í hvora löppina það
á að stíga. Annars vegar eru gam-
algrónir íhaldsmenn, sem eru al-
gerlega á móti þessu og vilja
drepa fæti við þessari vondu þró-
un.
En hins vegar eru gamlar til-
lögur frjálshyggjufélagsins, sem
það boðaði ákaft hér á árunum,
áður en Hannes Hólmsteinn
lagðist í dvala og villta hægrið
stundaði trúboð af meira kappi
en í dag. Frjálshyggjufélagið
hafði ósköp einfaldar tillögur til
lausnar fiskveiðivandanum. Það
vildi láta markaðinn ráða, láta
bara selja hæstbjóðendum leyfi
til fiskveiða.
Auðvitað fussuðu flestar
vitsmunaverur pólitísku flokk-
anna við þessu, ekki síst þeir
Framsóknarmenn. Þetta var tal-
inn vulgaribus af óhefluðustu
sort, og bestu menn töldu að heil
byggðarlög gætu lagst í eyði ætl-
uðu menn að framfylgja honum.
Halldor -
nytsamur
sakleysingi
Nú er staðreyndin samt sem
áður sú, að menn eru famir að
selja kvóta sinn hæstbjóðanda
undir því yfirskini að þeir séu að
selja skip. Tillögur frjálshyggju-
félagsins eru orðnar að veruleika
ígegnum kvótastjórnun Halldórs
Asgrímssonar. Hannes Hólm-
steinn er sumsé búinn að finna sér
nytsaman sakleysingja í gervi
hæstvirts sjávarútvegsráðherra.
Þetta eru vond tíðindi, Fram-
sóknarmenn!
Svona geta jafnvel bestu menn
látið leika á sig, en Halldóri til
hugarhægðar má minna á að
hann er ekki sá fyrsti sem Hannes
gabbar. Á sínum tíma plataði
hann heilan stjórnmálaflokk upp
úr skónum. Sjálfstæðisflokknum
Tillögurfrjáls-
hyggjutrúboðsins
orðnaraðveru-
leikaíkvóta-
mál-unum. Er
HalldórÁsgríms-
son nytsamursak-
leysingi í höndum
nesar?
til afbötunar er að vísu rétt að
geta þess, að þegar þeir loks upp-
götvuðu hvernig höfuðklerkur
frjálshyggjutrúboðsins hafði
leikið þá, bjuggu þeir í snarhasti
til embætti handa honum uppí
Háskóla og lokuðu hann þar hægt
og hljóðlega inni.
En árangur Hannesar í kvóta-
málinu gegnum sakleysingjann
Halldór Ásgrímsson sannar, að
enn vinna menn sigra á undan-
haldinu.
Athyglisstríð
Frjálshyggjutrúboðið hefur
raunar skorað mörk á fleiri víg-
stöðvum síðustu daga, þrátt fyrir
að höfuðklerkar safnaðarins séu
líkt og birnir að vetri, - lagstir í
dvala.
Þannig er komið upp skondið
þó athyglisvert.stnð á milli þeirra
Davíðs Oddssonar og Þorsteins
Pálssonar, sem vefur sig fram á
síðum fjölmiðla með einkar
skemmtilegum hætti.
Þorsteinn hefur sem kunnugt
er verið í nokkurri sókn á hægri
vængnum. Innan Sjálfstæðis-
flokksins hefur sú vitlega ákvörð-
un verið tekin, að reka kosninga-
baráttu flokksins á honum ein-
um. Þannig á að fela ýmis konar
ósætti £ flokknum, litlausan lista í
Reykjavík og síðast en ekki síst,
draga athygli kjósenda frá Albert
Guðmundssyni. En samkvæmt
skoðanakönnun HP, sem birt var
í vikunni, telja rösklega 60 af
hundraði kjósenda að Albert sé
flokknum til trafala.
Beygir
Porsteinn
Davíð?
Þetta hefur hins vegar valdið
því að aðrir falla í skuggann. Þar
á meðal Davíð Oddsson, sem að
auki hefur átt ýmsa afleiki síðustu
mánuði. í aðfara kosninganna
hefur Davíð því verið að undir-
búa dulitla sprengju, til að ná til
sín athyglinni frá svarabróður
sínum, Þorsteini.
Á viðskiptaþingi Verslunar-
ráðs íslands í vikunni varpaði
hann fram hugmynd um að
Reykjavíkurborg myndi selja 30 '
barnaheimili!
Bersýnilega var borgarstjóri að
undirbúa að kynna slíkar tíma-
mótahugmyndir á landsfundin-
um, og reyna þannig að láta hann
snúast meir um sig. í æðstu for-
ystu flokksins mun hins vegar
hafa gripið um sig mikil skelfing,
og nú er að sjá hvort Davíð hefur
þor til að koma með hugmyndirn-
ar inná landsfundinn, eða hvort
Þorsteinn beygir hann. q§
þJOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fréttaatjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín
Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, ÓlafurGíslason,
SigurðurÁ. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vilborg Davíðsdóttir,
Víðir Sigurðsson (íþróttir), Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar.
Ljósmyndarar: EinarÓlason, Sigurður MarHalldórsson.
Útlttsteiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson.
Auglýslngastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglý8ingar: Olga Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir.
Símvarsla: Katrin Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðlr: Ólöf Húnflörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðslu-og afgreiðsiustjóri: HörðurOddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafurBjörnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðvlljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 50 kr.
Helgarblöð:55 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 500 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. mars 1987