Þjóðviljinn - 06.03.1987, Blaðsíða 15
Leik Besiktas Istanbul frá
Tyrklandi og Dynamo Kiev frá
Sovétríkjunum, í Evrópukeppni
meistaraliða sem vera átti í dag
var frestað aftur.
Leikurinn átti upphaflega að
vera á miðvikudaginn, eins og all-
ir leikirnir í 8-liða úrslitum en var
honum var frestað um einn dag
vegna veðurs. Leiknum var svo
frestað aftur í gær. í dag á svo að
gera þriðju tilraun.
Leik Malmö og Ajax var einnig
fresta á miðvikudaginn og hefur
hann verið settur á 14. mars, fjór-
um dögum fyrir seinni leikinn.
-Ibe/Reuter
Frá Jóni H. Garðarssyni,
fréttaritara Þjóðviljans í V-
Þýskalandi:
Ekki eru allir á eitt sáttir um
það hvort rétt hafi verið að láta
Toni Schumacher fara frá Köln.
Menn virðast skiptast í tvo
hópa. Annarsvegar leikmenn
Köinar, sem segja flestir að fara
hefði mátt aðrar leiðir og hins-
vegar leikmenn með öðrum lið-
um sem segja að þetta hafi verið
einu lausnina.
Morten Olsen segir það fárán-
legt að setja besta markvörð
heims í bann. Klaus Allofs vill
hinsvegar aðeins segja að þetta
hefi verið erfið ákvörðun.
Lothar Matthaus hjá Bayern
Munchen og Frans Beckenbauer
landsliðseinvaldur segja þetta
hinsvegar hafa verið einu
Góður endasprettur og góð
markvarsla Guðmundar Hrafn-
kelssonar færðu Breiðabliki
nauman sigur gegn Fram í gær,
29-27. Vafasöm dómgæsla setti
leiðinlegan svip á leikinn.
Framarar voru yfir framanaf
en Blikum tókst að jafna, um
miðjan síðari hálfleik. Þeir náðu
síðan forystunni 26-25 og 28-27,
þegar tæpar tvær mínútur voru til
leiksloka. Þá fengu Framarar vít-
akast. Agnar Sigurðsson ætlaði
að taka vítið en þá var dæmdur á
hann tími. Blikarnir brunuðu upp
og Þórður Davíðsson skoraði 29.
mark Breiðabliks þegar rúm mín-
lausnina og Beckenbauer segir að
Schumacher leiki ekki með
landsliðinu sem varamarkvörður
hjá Köln. Endanleg ákvörðun
það um hvort Schumacher leikur
áfram með landsliðinu verður
tekin í dag.
Schumacher lætur engan bil-
bug á sér finna og mætti á æfingu
hjá Köln í gær. Hann hræðist ekki
atvinnuleysi enda hefur hann í
gegnum árin fengið mörg góð til-
boð frá liðum utan Þýskalands,
m.a. frá Paris Saint Germain fyrir
tveimur árum.
Þetta mál hefur vakið gífurlega
athygli og sést það best á sölu
bókarinnar en hún hefur runnið
út eins og heitar lummur. Nú þeg-
ar hafa Frakkar og Svíar óskað
eftir að fá að gefa hana út, en hún
kom út í Þýskalandi 1. mars.
úta var til leiksloka. Sá tími dugði
Frömurum ekki til að jafna og
Blikar fögnuðu sigri í lokin.
„Ég heyrði ekki í dómaranum
og hann gaf ekki merki um að ég
ætti að skjóta, sagði Agnar Sig-
urðsson eftir ieikinn. „Það var
mikill hávaði og hann stóð langt
frá mér“.
Þetta atvik var mjög umdeilt
ega var mikill hávaði í höllinni.
Það var einnig undarlegt að
Breiðablik fékk 10 vítaköst, flest
eftir að Framarar höfðu „veitt“
boltann, þ.e. slegið hann úr
hendi andstæðings. Hingað til
hefur ekki verið dæmt á þetta en
nú var annað uppi á teningnum.
Greinilegt að meiri samræmingu
vantar í dómgæslu í handboltan-
Keflvíkingar tryggðu sér sigur, 83-
81, eftir að leiktíminn var liðinn í leik
þcirra gegn nágrönum sínum Njarð-
víkingum í Úrvalsdeildinni í gær. Ing-
ólfur Haraldsson skoraði sigurstigin
úr vítaskotum þegar leiktíminn var
úti.
Þegar 26 sekúndur voru til lciks-
loka var staðan 79-81 Njarðvíkingum
í hag. Þá steig Jóhannes Kristbjörns-
son aftur fyrir miðlínu og
Keflvíkingar fengu boltann. Njarð-
víkingar fengu svo ásetning fyrir að
brjóta á Hreini Þorkelssyni undir
körfunni. Hann skoraði úr báðunm
skotunum og Keflvíkingar héldu bolt-
anum. Um leið og tíminn rann út
braut Hreiðar Hreiðarsson á Ingólfi
Haraldssyni og Ingólfur skoraði úr
Blikarnir voru seinir í gang og
voru undir nær allan leikinn, en
með góðum kafla um miðjan
síðari hálfleik náðu þeir að jafna.
Síðustu mínúturnar léku þeir af
skynsemi, en samt má segja að
heppnin hafi verið með þeim.
Guðmundur Hrafnkelsson átti
mjög góðan leik, varði 15 skot,
flest á þýðingarmiklum augna-
blikum. Þá voru þeir sterkir í
hornunum Jón Þórir Jónson og
Þórður Davíðsson.
Hjá Fram var Birgir Sigurðs-
son besti maður. Þá voru Her-
mann Björnsson og Egill Jó-
hannsson góðir.
Með þessum sigri glæðast vonir
Breiðabliks á sæti í Evrópu-
keppni. En Framarar misstu af
stigum sem hefðu getað komið
báðum vítaskotunum eftir að leiktím-
inn var liðinn og tryggði
Keflvíkingum sigur, 83-81.
Leikurinn var jafn allan tímann,
mjög hraður og skemmtilegur. Bæði
liðin léku vel og varnir liðana voru
sterkar.
Gylfi Þorkelsson átti mjög góðan
leik í liði ÍBK, góður í sókninni og
hitti úr ótrúlegustu færum. Þá voru
þeir Jón Kr. Gíslason og Hreinn
Þorkelsson góðir.
Hjá Njarðvík var Kristinn Einars-
son mjög góður, öruggur í sókninni
og fastur fyrir í vörninni. Jóhannes
Kristbjörnsson og Valur Ingmundar-
son áttu ágætis leik í sókninni.
SÓM/Suðurnesjum
þeim endanlega úr fallhættu.
-Ibe
Digranes 5. mars
UBK-Fram 29-27 (11-15)
1-0,1-3, 5-5,6-8,7-10,9-10, 11-15,
17-17,20-22,22-22,26-26,28-26,28-
27, 29-27
Mörk Breiðabliks: Jón Þórir Jóns-
son 11 (8v), Þórður Davíðsson 5, Aðal-
steinn Jónsson 3, Björn Jónsson 3,
Svavar Magnúsason 3, Kristján Hall-
dórsson 2 og Ólafur Björnsson 2.
Mörk Fram: Birgir Sigurðsson 6,
Hermann Björnsson 5, Agnar Sigurðs-
son 4 (2v), Egill Jóhannsson 4, Ragn-
ar Hilmarsson 3, Per Skaarup 3, Júlíus
Gunnarsson 1 og Tryggvi Tryggvason
Dómarar: Þórður Sigurðsson og
Þorsteinn Gunnarsson - mjög slakir
Maður leiksins: Guðmundur
Hrafnkelsson, Breiðabliki.
sigrinum
Keflavík 5.mars
ÍBK-UMFN 83-81 (47-44)
7-9, 23-17, 35-37, 47-40, ,47-45, 54-
52,64-68, 70-72, 73-72, 77-76, 79-79,
79-81, 83-81
Stig ÍBK: Gylfi Þorkelsson 23, Jón
Kr. Gíslason 19, Hreinn Þorkelsson
15, Guðjón Skúlason 12, Sigurður
Ingimundarson 8, Ingólfur Harðarson
4 og Falur Harðarson 2.
Stig UMFN: Kristinn Einarsson 21,
Valur Ingimundarson 18, Jóhannes
Kristbjörnsson 12, Árni Lárusson 11,
Teitur Örlygsson 6, Helgi Rafnsson 4
og Hreiðar Hreiðarson 4
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og
Bergur Steingrimsson - sæmilegir
Maður leiksins: Gylfi Þorkelsson,
(BK
V-Pýskaland
Skiptar skoðanir
um Schumacher-málið
Körfubolti
Keflvfldngar stálu
ÍÞRÓTTIR
England
Everton
kaupir
Everton mun að öllum líkind-
um kaupa Wayne Clarke frá
Birmingham.
Kaupverðið er um 300.000
sterlingspund. Wayne Clarke,
sem er 26 ára, er yngri bróðir
enska landsliðsins Allan Clarke
sem lék með Leeds þegar þeir
voru upp á sitt besta. Wayne
leikur að sjálfsögðu í sókninni.
-Ibe/Reuter
Evrópukeppni
Úrslit
í Aþenu
Úrslitaleikurinn í Evrópu-
keppni Meistaralið verður á Ól-
ympíuleikjvangnum í Aþenu
13.maí.
Upphaflega átti leikurinn að
vera í Rotterdam, en Hollending-
ar hættu við af öryggisástæðum.
-Ibe/Reuter
Körfubolti
í kvöld
Evrópukeppni
Frestað
aftur
Góður endasprettur Blika
-fœrðiþeim sigurgegn Fram. Undarleg dómgœsla
Fram og KR leika í kvöld í Úr-
valsdeildinni í körfubolta. Leik-
urinn er í Hagaskóla og hefst kl.
20.
Með sigri í þessum leik hafa
KR-ingar nánast tryggt sér sæti í
úrslitakeppninni.
Þá er einn leikur í 1. deild.
Tindastóll og ÍR leika á Sauðár-
króki.
Guðmundur Hrafnkelsson markvörður Breiðabliks varði oft á þýðingarmiklum augnablikum.
Handbolti
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15