Þjóðviljinn - 06.03.1987, Síða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjÓÐVILIIN
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Föstudagur 6. mars 1987 54. tólublað 52. örgangur
„Varnirnar“
Hersetan fastnegld
Skýrsla utanríkisráðherra:„ Nú er ekkertþvítilfyrirstöðu, að varnar-
samstarfið við Bandaríkin verði áfram treystu
Iöllun aðalatriðum hafa sam-
skiptin við Bandaríkjamenn
verið til fyrirmyndar og ræður
þar miklu raunsæi og lipurð
Jþeirra manna, sem haldið hafa á
málum af beggja hálfu. Þegar á-
greiningur rís verða báðir aðilar,
ekki síður Islendingar en Banda-
ríkjamenn, að forðast óbilgirni,“
segir í skýrslu Matthíasar A.
Mathiesen utanríkisráðherra til
alþingis 1987.
í inngangi skýrslunnar er tónn-
inn gefinn um áframhaldandi
samtvinnun hersins við efnahags-
kerfi íslendinga og þótti mörgum
ærin fyrir. - Sýnishorn: ,,-Loks
hefur öll aðstaða varnarliðsins,
húsakostur og tækjabúnaður,
verið bætt til mikilla muna. Má
þar benda á ný og traust flugskýli,
nýjan flugvélakost, fyrirhugaða
stjórnstöð og olíubirgðastöð í
Helguvík, en framkvæmdir þar
eru nú í fullum gangi og stefnt að
því að þeim ljúki í árslok 1988.“
í skýrslunni segir að íslenskir
starfsmenn hersins voru þann 1.
janúar sl. 1097 en voru á sama
tíma í fyrra 1112 en von er á að
það skáni, því fram kemur á öðr-
um stað að samningagerð um
nýju ratsjárstöðvarnar ljúki í
mars-apríl og þá verði hafin
ráðning íslenskra starfsmanna.
Þá hverfi Bandaríkjamenn á
braut að mestu leyti úr stöðinni á
Stokksnesi fyrri hluta árs 1988 og
íslendingar taki að mestu við af
þeim.
Þá er fýrirhugað að hefja fram-
kvæmdir við enn nýjar ratsjár-
stöðvar á Stigahlíðarfjalli við
Bolungarvík og á Gunnólfsvíkur-
fjalli svo það er ekkert lát á góð-
ærinu í hermanginu eftir skýrslu
utanríkisráðherra að dæma.
-sá.
Lóttsveit ríkisútvarpsins skemmtir landsfundarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll í gær. (Mynd: Sig)
Léttsveit RÚV
Sjálfstæðismenn fengu
- kratar ekki
Léttsveitin lék á landsfundinum í Höllinni, ekki hjá krötum á Sögu
Forstöðumaður Léttsveitarinn-
ar tjáði okkur að útvarps-
stjóri legði blátt bann við því að
hljómsveitin spilaði fyrir pólitísk
Prestskosningar
Tveir
þriðju
auðir
Rúmir tveir þriðju greiddra at-
kvæða voru auðir I prestskosn-
ingum sem fram fóru á sunnudag-
inn um embættið á Prestsbakka í
Hrútafirði
Á kjörskrá voru 249, atkvæði
greiddu 136, Jón ísleifsson cand.
theol. fékk 42 atkvæði, sr. Hörð-
ur Þ. Ásbjörnsson 1 atkvæði,
auðir seðlar voru 92, 1 ógildur.
Atkvæði voru talin á Biskups-
stofu í gær, og er kosningin ekki
lögmæt.
-m
samtök. Síðan gerist það nokkru
síðar að Léttsveitin á að spila á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins,“
sagði Heimir Karlsson, einn
kosningastjóra Alþýðuflokksins.
Fyrir skömmu fór Alþýðu-
flokkurinn þess á leit að Léttsveit
Ríkisútvarpsins spilaði á kosn-
ingahátíð flokksins á Hótel Sögu.
Ólafur Þórðarson forsvarsmaður
sveitarinnar gaf fyrst vilyrði fyrir
því að sveitin spilaði fyrir Alþýð-
uflokkinn, en degi síðar tilkynnti
hann að útvarpsstjóri legðist
gegn því að Léttsveitin træði upp
á vegum stjórnmálasamtaka.
„Það var hreint og klárt af hálfu
útvarpsstjóra tjáði Ólafur mér.
Mér finnst það því skjóta skökku
við að nokkru síðar fáist sveitin til
að spila á vegum Sjálfstæðis-
flokksins,“ sagði Heimir Karls-
son.
„Ég bara þekki ekki til þessa
máls. Það hefur verið mörkuð sú
stefna að Léttsveitin kæmi fram
við ýmis tækifæri. Það varð úr að
hún leikur á landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins og ég nefndi það við
Ólaf hvort aðrir stjórnmálaflokk-
ar yrðu ekki tilbúnir að gera slíkt
hið sama og hann sá engin tor-
merki á því,“ sagði Markús Örn
Antonsson, útvarpsstjóri, er
blaðið bar þetta mál undir hann.
„Þetta er tómur misskilningur.
Sveitin má spila fyrir hverja sem
er, enda til þess ætlast að hún afli
sér sjálf tekna. Málið er það að
við útvarpsstjóri ræddum það
eftir að Alþýðuflokkurinn hafði
óskað eftir því að Léttsveitin spil-
aði hjá þeim, að ekki væri ráðlegt
að leika hjá stjórnmálasam-
tökum. Síðan gerist það nokkru
síðar að útvarpsstjóri féllst á það
að sveitin spilaði fyrir hverja sem
væri. Þannig að þegar beiðni
barst um að fá Léttsveitina á
landsfund Sjálfstæðisflokksins
var því samstundis tekið. Við vilj-
um gjarnan spila fyrir alla flokka.
Ég vil taka það fram að Léttsveit-
in er ekki eign Sjálfstæðisflokks-
ins,“ tjáði Ólafur Þórðarson
blaðinu í gær.
-RK
í
Reykjavík
Við opnum
kosningamiðstöðina
í dag, föstudag, kL 17.00
• Frambjóðendur mæta
• Kaffi og rjómapönnukökur
Léttur djass: Tómas R. Einarsson
og Eyþór Gunnarsson
• Leynigestur fyrir börnin
• Sýning á verkum Gunnars Arnar
• Forsala á miðum í glæsilegu kosn-
ingahappdrætti
• Skráning sjálfboðaliða
Mætum öU
og ræðum við
frambjóðendurna
að Hverfisgötu 105