Þjóðviljinn - 13.03.1987, Page 1
Föstudagur 13. mars 1987 60. tölublað 52. árgangur
HÍK
Lítil hrifning
Kennarar í HÍK svöruðu til-
boði launamálancfndar ríkisins
með gagntilboði í gær. í gærkvöld
hittust svo tveir frá hvorum dei-
luaðila til að reyna að ná
samkomulagi.
„Kristján Thorlacius, formað-
ur HÍK, sagði við Þjóðviljann í
gær, að talsvert bæri á milli enn
og að fulltrúar ríkisins hefðu ekki
sýnt neina hrifningu þegar þeir
sáu tilboðið. „Ekki frekar en við
þegar okkur barst tilboð þeirra á
miðvikudag.“
Þeir sem sátu fundinn í gær-
kvöld voru þeir Kristján Thorlac-
ius og Heimir Pálsson fyrir hönd
HÍK og Indriði Þorláksson og
Sigurður Helgason fyrir hönd
ríkisins.
Kristján sagði að það tilboð
sem kennurum við Verzlunar-
skólann hefði borist hefði engin
áhrif á þær viðræður sem HIK
ætti í, enda væri verið að ræða allt
aðra hluti þar, einsog að afnema
ákvæði um vinnutíma. -Sáf
Eldhúsdagur
Engin
þjóöarsátt
um misrétti
Eldhúsdagsumræðum í þing-
lok var útvarpað í gær. í umræð-
unum töluðu þingmenn til kjós-
enda. Fulltrúar Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks mikluðu að
vanda afrekaskrá ríkisstjórnar-
innar. Góðærið var mönnum
tamt í munni. Jón Baldvin höfð-
aði til kjósenda „hægra megin við
miðju“.
Ragnar Arnalds, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins,
talaði m.a. um þjóðarsáttina
svokölluðu. Hann sagði m.a.:
„...það verður aldrei þjóðarsátt
um ójöfnuð og misrétti. Það
verður heldur engin þjóðarsátt
um afstöðu Sjálfstæðisflokks og
krata til kjarnorkuvopnalauss
svæðis á Norðurlöndum...
Auðvitað er þetta meiri háttar
hneyksli. Og það dapurlegasta er
að Alþýðuflokkurinn er öfugur
og snúinn í þessu máli, eini flokk-
ur jafnaðarmanna á Norður-
löndum sem það er.“ -Sáf
Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
Andóf krata og íhalds
gæti útilokað ísland
Sjálfstœðismenn og alþýðuflokksmenn þœfastgegn íslenskri þátttöku í
undirbúningi að svœðisstofnun Anker Jörgensen: Þátttaka íslands ekki skilyrði
Ihörðum umræðum á Alþingi í
fyrrakvöld og fyrrinótt kom
fram að Alþýðuflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur eru andvígir því að
ísland taki þátt ■ stofnun kjarn-
orkuvopnalauss svæðis á Norður-
löndum, öndvert við stefnu Al-
þýðubandalags, Kvennalista og
Framsóknarflokks og velflestra
stjórnmálaflokka á hinum
Norðurlöndunum.
Á fréttamannafundi í Kaup-
mannahöfn í gær, þar sem Anker
Jörgensen formaður norrænu
þingmannanefndarinnar lagði
fram drög að samkomulagi um
kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd, var ákaft spurt um hvort
Jörgensen teldi að til greina kæmi
að halda áfram vinnu að stofnun
kjarnorkuvopnalauss svæðis á
Norðurlöndunum án þátttöku ís-
lands.
Svör Ankers voru mjög óljós
en hann sagði að í drögum þing-
mannanefndarinnar væri gert ráð
fyrir því að öll Norðurlönd væru
með, en það væri hins vegar ekki
skilyrði. Hann útilokaði ekki
samkomulag án fslands og sagði
að íslendingar yrðu að ráða því
sjálfir hvort þeir vildu vera með
eða ekki.
f umræðunum á Alþingi í fyrra-
kvöld gagnrýndi Svavar Gests-
son, formaður Alþýðubandalags-
ins, mjög afstöðu sjálfstæðis- og
alþýðuflokksmanna í þessu máli
og sagði að menn væru að gera
málið tortryggilegt með því að
segja að hér væri um að ræða ein-
hliða yfirlýsingu án nokkurs
framhalds þar á.
„Málin eru ekki óg hafa aldrei
verið hugsuð út frá þeirri for-
sendu, heldur hafa menn litið á
kjarnorkuvopnalaus svæði sem
þátt í allsherjar viðleitni til þess
að draga úr kjarnorkuvopnum,
spennu og ófriðarhættu í heimin-
um,“ sagði Svavar.
Norræna þingmannanefndin
hefur lagt áherslu á að stofnuð
verði sérstök embættismanna-
nefnd um málið, og þegar utan-
ríkisráðherrar Norðurlanda hitt-
ast í Reykjavík síðar í mánuðin-
um munu Danir og Norðmenn
Ieggja til að það verði gert. Matt-
hías Á. Mathiesen kom í veg fyrir
stofnun slfkrar nefndar á síðasta
fundi utanríkisráðherranna og
hefur enn ekki upplýst hvort
hann hefur breytt þeirri afstöðu
sinni.
-vd/-m
Arkarmálið
Heildarumsvif Helga athuguð
Könnun á söluskattsskilum vegna innflutnings í tengslum við
byggingu HótelArkar. Voru útgjöld vegna hótelsinsfærð á ranga
reikninga? Bókhaldi Helga ábótavant
Samkvæmt traustum heimild-
um Þjóðviljans nær athugun
rannsóknadeildar ríkisskatt-
stjóra á umsvifum Helga Þórs
Jónssonar meðal annars til út-
gjalda vegna Hótel Arkar, sem
kunna að hafa verið færð á
reikninga vegna framkvæmda
Vélalcigu Helga. Einnig beinist
athugunin að innkaupum og inn-
flutningi, sem ekki hefur verið
greiddur söluskattur af. Þar á
meðal er innflutningur vegna
byggingar Hótel Arkar, og jafn-
framt á tækjum vegna Véla-
leigunnar.
Heimildir Þjóðviljans herma,
að heildarumsvif Helga Þórs
nokkur ár aftur í tímann séu í
rannsókn. Hluti þessara umsvifa
eru kaup hans á tíunda hluta jarð-
arinnar Loftsstaða vestri í
Gaulverjabæjarhreppi, sem hann
keypti fyrir 800 þúsund krónur.
Einnig kaup hans á einbýlishúsi
við Heiðmörk í Hveragerði, sem
Helgi greiddi fyrir nær 3 miljónir
króna.
Könnuninni tengjast einnig
byggingar Vélaleigunnar á
Höfðabakka 1 og Eirhöfða 17, og
auk þess fyrirtækið Ryðverk sem
hann er aðaleigandi að, og
skráður framkvæmdastjóri. Ryð-
verk hefur ekki verið í rekstri síð-
astliðin tvö ár, en könnunin nær
lengra aftur í tímann.
í viðtali við Þjóðviljann hefur
Helgi staðfest,.að Vélaleigan sé í
rannsókn en neitaði alfarið að
Hótel Örk væri einnig í könnun.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er bókhaldi fyrirtækja
Helga Þórs stórlega ábótavant,
auk þess sem útgjöld kunna að
hafa verið færð á ranga
reikninga.
-Ig/ÖS
Verðbólgan
eykst
23,2% verðbólga síð-
ustu þrjá mánuði
Samkvæmt útreikningum Hag-
stofunnar hækkaði visitala fram-
færslukostnaðar um 1,48% í
febrúar, og samsvarar sú hækkun
19,3% ársverðbólgu. Verðbólga
síðustu þrjá mánuði svarar til
23,3% á ári.
Af hækkuninni í febrúar eru
0,5% vegna matvöru, 0,3%
vegna fatnaðar, 0,1% vegna
húsnæðis og 0,6% skrifast á
„ýmsa vöru- og þjónustuliði“.
Frá febrúar í fyrra telst verð-
bólga hafa verið 45,4%. Vísitala
framfærslukostnaðar er nú
190,55 stig miðað við 100 í febrú-
ar ’84. -m