Þjóðviljinn - 13.03.1987, Síða 7

Þjóðviljinn - 13.03.1987, Síða 7
Bandaríkin/Nicaragua Fjáraðstoð við Contraliða frestað Pingmenn knýjafram frestun á afhendingu fjörutíu milljóna dala til Contraliða sem í örvœntingu reyna að náfótfestu í Nicaragua í fyrradag fór fram atkvæða- greiðsla í fulltrúadeild banda- ríkjaþings um það hvort af- henda ætti Contraliðum, sem herja á Nicaragua, síðustu fjörutíu milljónirnar af þeim hundrað milljónum dala sem þing og forseti ákváðu í sam- einingu að veita þeim í fyrra. Til að hnekkja þeirri ákvörðun hefði þurft tvo þriðjunga at- kvæða hið minnsta. Þótt and- stæðingar fjárstuðningsins hafi verið í meirihluta, tvöhundruð og þrjátíu gegn hundrað níutíu og sex, þá nægir sá meirihluti ein- vörðungu til þess að afhendingu fjárins verður slegið á frest í sex mánuði. Arturo Cruz þótti sá Contrafor- ingja sem skást mannorð hefði. Hann hefur nú sagt skilið við vopnabræðurna. Hinsvegar bentu andstæðingar Contrastuðnings á að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar væri þýð- ingarmikil aðvörun til forsetans um að frekari fjárstuðningur fengist ekki til handa Contralið- um á næsta ári. Voru bæði repú- blikanar og demókratar á einu máli um að tveir þriðju þing- manna muni greiða atkvæði gegn beiðni um hundrað og fimm milljón dala viðbótarfjárframlag sem Reagan vill fá til handa þess- um málaliðum sínum, einkum og sér í lagi í ljósi þess að Arturo Cruz, sá Contraforingja sem tal- inn er hafa skást mannorð, hefur sagt skilið við vopnabræður sína. Fréttir berast af því að Contra- Contraliðar eru bæði fjölmennari og betur búnir en fyrr. Þeir leggja nú ofurkapp á að ná fótfestu í Nicaragua. liðar reyni nú í örvæntingu að vinna landsvæði og ná fótfestu í Nicaragua. Átök hafa færst í aukana og eru fyrir því tvær megin ástæður. Annarsvegar gætir nú áhrifa ■milljónanna sem Reagan ákvað með fulltingi bandaríska þingsins að afhenda þeim í fyrra. Þegar eru sextíu milljónir dala komnar á bankareikninga málaliðanna. Fyrir vikið eru þeir bæði fjöl- mennari og betur búnir en fyrr. Hinsvegar er síaukinn þrýst- ingur frá stjórninni í Washington á Contraliðana að þeir hristi af sér slyðruorðið og sýni svart á hvítu að þeir séu einhvers megn- ugir. Það er bráðnauðsynlegt fyrir Reagan og félaga að geta bent á einhvern ávinning þessara eftirlætisbarna sinna ef nokkur einasta von á að vera til þess að þingmenn ljái máls á áframhald- andi fjáraustri. Enn virðist ekkert benda til þess að Contraliðar hafi erindi sem erfiði, þeir hafa ekki náð ein- um einasta smábæ á sitt vald. -ks. Víetnamar vilja viöræöur Hanoi-menn segjast hafa áœtlun um að rœðavið Kína og ASEAN-ríki um pólitíska lausn í Kampútseu Kamputsea Eru yfirlýsingar Shevardnadze og Nguyen Co Thach í bjóðinu í Hanoi undanfari tíðinda í hinni stríðshrjáðu Kampútseu? Æðstu menn i Víetnam segja að stjórnirnar í Hanoi, Vienti- ane og Phnom Penh ráðgeri viðræður við Kínverja og ASEAN-ríkin í Suðaustur-Asíu um pólitíska lausn á stríðinu í Kampútseu. Samkvæmt fréttum Hanoi- útvarpsins í gær tilkynnti víet- namski utanríkisráðherrann um viðræðuvilja stjórnanna í hófi sem haldið var sovéska utanríkis- ráðherranum Shevardnadze í Hanoi í fyrrakvöld. Nguyen Co Thach sagði stjórnirnar þrjár í Víetnam, Laos og Kampútseu reiðubúnar til viðræðna „á jafnréttisgrundvelli, virðingar fyrir sjálfræði ríkjanna og landa- mærum þeirra“. Utanríkisráðherra Indónesíu, Mochtar Kusumaatmadja, sagði í gær að hann hefði ekkert heyrt um þetta viðræðuboð fyrr, og neitaði öllum yfirlýsingum þang- aðtil hann hefði talað við sendi- herra sinn í Hanoi. Auk Indónes- íu eru Malasía, Singapore, Fil- ippseyjar, Brunei og Thailand í ÁSEÁN-samtökunum. Shevardnadze fagnaði yfirlýs- ingum Nguyen Co Thach í hóf- inu, ogh sagði að endurnýjuð vin- átta Víetnama og Kínverja gæti haft úrslitaáhrif á friðsamlega sambúð í þessum heimshluta. Víetnamar réðust með her inní Kampútseu 1979 og steyptu af stóli ógnarstjórn Pol Pot og rauðra khmera, sem fyrir sitt leyti tóku við af bandarískri leppstjórn árið 1975. Síðan hefur víetnamski herinn ásamt fámennum stjórn- arher staðið í styrjöld við samtök þriggja meginfylkinga skæruliða þarsem saman fara rauðir khmer- ar, fylgismenn Síhanúks prins og sveitir hægrimanna. Kína, Bandaríkin og fylgiríki þeirra hafa neitað að viðurkenna stjórn Heng Samrin í Phnom Penh, - þannig á stjórn rauðra khmera enn formlega aðild að Samein- uðu þjóðunum og krefjast þess að Víetnamar verði á brott með 140 þúsund manna herlið sitt. Hernaður Víetnama í Kam- pútseu hefur orðið til að einangra ríkið á alþjóðavettvangi og hefur verið notaður sem afsökun hjá vestrænum ríkjum fyrir að neita allri þróunaraðstoð við landið, sem frá stríðslokum hefur átt við gríðarlega erfiðleika að etja við uppbygginguna. Sovéskur þrýstingur Kampútseu-mál hafa með öðru eitrað andrúmsloft á milli Víetnama og granna þeira í norð- ri. Kínverjar halda fjölmennu liði á landamærunum og er stutt frá síðustu skærum. Talið er að Peking-stjórnin sé með þrýstingnum á landamærunum að neyða Víetnama til að hafa þar fjölmennan her (nokkuð jafn fjölmennan og í Kampútseu) og þyngja þarmeð efnahagsbaggann í því skyni að knýja Hanoi- stjórnina til breyttrar stefnu. Undanfarið hafa sést ýmis merki þess að Víetnamar séu að slaka á klónni í Kampútseu- málinu, og hafa þeir meðal ann- ars gert sér dælla við Síhanúk prins en áður var. Þar kemur tvennt til. Annarsvegar tóku nýir menn við völdum í Hanoi rétt fyrir áramót, beita sér fyrir um- bótum í efnahagslífi og gegn spill- ingu. Þeir hafa til dæmis haft nokkur orð um að sovésk aðstoð, - nú jafnvirði 80 milljarða ís- lenskra króna árlega - hafi verið misnotuð í tíð fyrri valdsmanna. Hinsvegar eru Hanoi-menn undir augljósum þrýstingi frá Gorbat- sjof og félögum í Moskvu, sem vilja fá lausn í Kampútseu, meðal annars til að auðvelda sættir við Kínverja og til að ryðja burt einni hindruninni í vegi aukinna sov- éskra áhrifa í Asíu. Hingaðtil hefur það beinlínis staðið í vegi viðræðna að Víet- namar hafa krafist þess að skæru- liðar í Kampútseu losi sig við „Pol-Pot-klíku“ rauðra khmera, - skæruliðar og stuðningsmenn þeirra hafa aftur neitað að ræða við fulltrúa Phnom Penh-stjórnar og krafist brottflutnings Víet- namhers. Víetnamar hafa reyndar lagt fram áætlun um þann brottflutning, en enn hefur lítið bólað á framkvæmd. Yfirlýsing utanríkisráðherrans í Hanoi bendir til að Víetnamar ætlist til þess sem forsendu við- ræðna að mótaðilar viðurkenni að einhverju leyti Hang Semrin og hans menn í Phnom Penh. Benda má á að Shevardnadze kom til Hanoi frá Kampútseu og hafði þar lýst fullum stuðningi við gestgjafa sína. Vestrænir sendi- menn í Bangkok eru sagðir álíta að Kínverjar og ASEAN- stjórnirnar muni aldrei fella sig við viðræður á þeim forsendum, og er því vant að sjá afleiðingar af yfirlýsingunni í Hanoi. Það hamlar einnig friði í Kam- pútseu að ekki er víst að Banda- ríkjastjórn sjái sér neinn hag í að deilan þar verði leyst. Þrátt fyrir að bandamenn þeirra í Thailandi hafi stóran ama af skærunum fyrir austan má leiða að því rök að þær komi Bandaríkjastjórn vel. Kampútsea er eitt helsta sameiningarmál þeirra og Peking-stjórnarinnar, og með því meðal annars tryggja þeir sér stuðning frá ASEAN-ríkjunum. Að auki kemur Kampútsea í veg fyrir þau aukin Sovétáhrif á þessu svæði sem Gorbatsjof boð- aði í frægri Vladivostok-ræðu í júlí í fyrra. Gæti því reynst valt að treysta á friðarvilja frá Washing- ton, og er Kampútsea að þessu leyti hliðstæða Afganistan, þar- sem Bandaríkjunum er taktískur hagur að því að Sovétmenn festist sem lengst. -m Ermarsundsgöng Gröftur hefet í árslok Hlutafjársöfnun hefst innan skamms beggja megin sundsins Félagið Evrógöng, sem hyggst láta grafa járnbrautar- göng undir Ermarsund er að- skilur England og Frakkland, gerir sér vonir um að hægt verði að hefja gröft undir lok þessa árs. Á mánudag hefst hlutafjár- söfnun í Frakklandi og forráða- menn fyrirtækisins vonast til að næla í eitthundrað milljónir franka. Samskonar söfnun verður hleypt af stokkunum í Bretlandi í júlí. Ef áætlanir standast mun einn og hálfur miljarður franka hafa verið brúkaður í undirbúningsað- gerðir í septembermánuði. Heildarkostnaður af fyrirtækinu er áætlaður átta miljarðar banda- rískra dala. Nokkurrar andstöðu við fram- kvæmdina hefur gætt á Bretlandi en skoðanakannanir sýna að sjö- tíu og fjögur prósent frönsku þjóðarinnar eru áfram um að göngin verði grafin. -ks. Föstudagur 13. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.