Þjóðviljinn - 13.03.1987, Qupperneq 15
IÞROTTIR
England
Brady með
West Ham
Liam Brady mun leika sinn
fyrsta leik með West Ham gegn
Norwich á laugardaginn.
Allt er nú frágengið með söl-
una frá Ascoli. West Ham keypti
Liam Brady fyrir 100.000 sterl-
ingspund og að sögn forráða-
manna West Ham mun hann
byrja inná gegn Norwich.
-ibe/Reuter
Akureyri
Glíma
Landsflokkaglíman 1987 verð-
ur haldin í íþróttaskemmunni á
Akureyri um helgina.
Keppendur eru 54 talsins og
hafa aldrei verið fleiri. Glímt er í
þremur þyngdarflokkum fullorð-
inna og fimm aldursflokkum
undir tvítugsaldri.
Keppni hefst kl. 14. á laugar-
daginn.
Knattspyrna
KS fær
Skota
Siglfirðingar hafa nú fengið til
sín Skota í stað Colin Tacker sem
lék með þeim síðasta sumar.
Joe Woods heitir sá og er frá
Glasgow. Hann hefur leikið með
St. Johnstone í 2. deildinni
skosku og leikur nú með KS
næsta sumar.
-ibe
Spánn
Sanchez
vill seðla
Mexíkanski landsliðsmaðurinn
Hugo Sanchez hefur lýst því yfir
að hann vijji fara frá Real Mad-
rid. Hann á þó enn eftir 3 ár af
samningi sínum.
Forráðamenn Real Madrid
telja að með þessu vilji hann fá
betri samning, en hann er ekki
ánægður með kjör sín. Sanchez
hefur verið aðal markaskorari
Real, skorað 25 mörk á þessu
keppnistímabili og ætti því að
geta sett pressu á Real Madrid.
-ibe/Reuter
Tómas Holton skorar hér eina af fjölmörgum körfum sínum. Mynd: E.ÓI.
Einar Bollason, þjálfari ÍR, fórnar höndum, ekki ánægöur meö sína menn.
Mynd: E.ÓI.
KörfuboltilBikar
Munurinn of mikill
Það var aldrei spurning um
hvorum megin sigurinn lenti í leik
ÍR og Vals i undanúrslitum Bik-
arkeppni KKÍ. Valsmenn sigruðu
örugglega 93-67 og má það teljast
öruggt að þeir leiki til úrslita.
Það er ekki við góðu að búast
þegar Valsmenn eiga einn sinn
besta leik og ÍR-ingar einn sinn
slakasta. Þannig var það í gær og
ÍR-ingar áttu aldrei möguleik.
Strax í byrjun náðu Valsmenn
forustunni. Snemma var munur-
inn kominn í tveggja stafa tölu.
Mestur munur í fyrri hálfleik var
16 stig, en í hálfleik var staðan
32-46.
Fyrri hálfleikur var fjörugur og
ÍR-ingar nokkuð inní leiknum,
en slæm hittni og fá fráköst komu
í veg fyrir að þeir næðu Vals-
mönnum. Þá var vörnin langt frá
því að vera góð.
Hjá Valsmönnum gekk allt
upp. Sóknarleikurinn hraður og
vörnin sterk.
Síðari hálfleikur var nánast
endurtekning á þeim fyrri. Vals-
Stórsigur Valsmanna gegn IR í undanúrslitum
menn mun sterkari, keyrðu upp
“ ÍR-i
hraðaupphlaupin og lK-ingar,
seinir í vörnina, áttu ekkert svar
við því. Þó náðu þeir annað slagið
ágætis leik, en fráköstin og hittn-
in of slök til að þeir næðu að ógna
forskoti Valsmanna. Mesturvarð
munurinn 30 stig rétt fyrir leiks-
lok. ÍR-ingar náðu aðeins að laga
stöðuna, en líklega eru þeir úr
leik í Bikarkeppninni.
Valsmenn áttu mjög góðan
leik. Hraðaupphlaupin heppnuð-
ust vel, sóknarleikurinn hraður
og vörnin sterk. Tómas Holton
og Einar Ólafsson áttu mjög góð-
an leik í sókninni og Sturla Ör-
lygsson var gífurlega sterkur
undir körfunni, hirti mikið af frá-
köstum. Torfi Magnússon átti
góðan leik, batt vörnina saman.
ÍR-ingar voru langt frá sínu
besta. Hittnin slök og vörnin
langt frá því að vera sannfærandi.
Karl Guðlaugson og Jón Örn
Guðmundsson voru bestu menn í
liði ÍR. Þá áttu þeir Bragi Reynis-
son og Ragnar Torfason ágæta
spretti inná milli. Jóhannes
Sveinsson meiddist snemma í
fyrri hálfleik og gat ekki leikið
með og bitnaði það nokkuð á leik
liðsins.
Það má teljast öruggt að það
verða Valur og Njarðvík sem
leika til úrslita. Njarðvíkingar
unnu Þórsara stórt á útivelli og
eru nánast öruggir í úrslit og þessi
munur ætti að vera nægur fyrir
Valsmenn.
Stig ÍR:Jón Örn Guðmunds-
son 18, Karl Guðlaugsson 16,
Ragnar Torfason 11, Bragi
Reynisson 10, Árni Gunnarsson
4, Pétur Hólmsteinsson 4, Björn
Leósson 2 og Kristinn Jörunds-
son 2.
Stig Vals:Sturla Örlygsson 19,
Tómas Holton 18, Torfi Magnús-
son 16, Leifur Gústafsson 13,
Einar Ólafsson 9, Björn Zofiga 8,
Páll Arnar 7, Bárður Eysteinsson
2 og Svali Björgvinsson 1.
-Ibe
Grindavík
Pílukast
íslenska Pílukastfélagið efnir
til tvímenningsmeistaramóts í
pflukasti í Festi í Grindavík um
helgina.
Keppt verður laugardag og
sunnudag og hefst keppni kl. 13.
báða dagana.
Körfubolti
1X2... 1X2... 1X2... 1X2... 1X2...
30. leikvika
líQhQOl
Everton-Southampton..........................1 111111
Leicester-Charlton...........................1 111111
Luton-Manch.United...........................1 2 1 1 1 1 x
Manch.City-Chelsea...........................1 1x2111
Oxford-Liverpool.............................1 2 2 1 2 2 2
Q.P.R.-Nott.Forest...........................x x x x 1 1 1
Blackburn-Stoke..............................2 x x 1 x 1 2
Cr.Palace-Birmingham.........................2 111111
Grimsby-W.B.A................................1 12 2 111
Huddersfield-Sheff.Utd.......................1 x 1 x 1 2 x
Millwall-Oldham..............................x x 1 2 x 2 1
Sunderland-Plymouth..........................2 x 1 1 1 1 1
(síðustu viku voru 18 raðir með 12 réttum. Þar af átti einn maður þrjár
raðir! Hver röð gaf kr. 37.780. Með 11 rétta voru 278 raðir sem gáfu
1.044 kr., hver röð.
Ingólfur bjargaði
Framarar voru aðeins hárs-
breidd frá sínum fyrsta sigri í úr-
valsdeildinni þegar þeir mættu
Keflvíkingum í gær. Leiknum
lauk með sigri Keflvíkinga 83-81
og sigurkarfan kom á síðustu sek-
úndum leiksins.
Ingólfur Haraldsson skoraði
sigurkörfuna þegar aðeins fimm
sekúndur voru til leiksloka. Þetta
er ekki í fyrsta sinn sem hann
tryggir Keflvíkingum sigur á
lokasekúndunum. Hann skoraði
einnig sigurstigin gegn Njarðvík
nú fyrir skömmu.
Framarar voru yfir lengst af í
fyrri hálfleik, en Keflvíkingar
náðu að jafna undir leikhlé.
Leikurinn var mjög jafn í síðari
hálfleik, en Framarar þó oftast
2-3 stigum yfir. Lokamínúturnar
voru æsispennandi. Framarar
voru yfir 79-78, Keflvíkingar
komust yfir 79-80. Framarar
komust aftur tveimur stigum yfir
en Keflvíkingar jöfnuðu, 81-81.
Framarar misstu boltann og Ing-
ólfur Haraldsson gerði engin mis-
tök.
Símon Ólafsson var yfirburða-
maður í liði Fram, hitti vel í sókn-
inni og náði mörgum fráköstum.
Endurkoma hans hefur haft góð
áhrif á Framliðið og hann hefur
skorað yfir 25 stig í leik að með-
altali. Auðunn Elísson átti góðan
leik í fyrri hálfleik, allt þartil
hann fór útaf með fimm villur. Þá
átti Þorvaldur GeirsSon einnig
góðan leik.
Jón Kr. Gíslason var bestur í
liði ÍBK og Gylfi Þorkelsson stóð
sig vel í fyrri hálfleik. Þá áttu þeir
Guðjón Sk)C—.on og Ingólfur
Haraldsson B_ðan leik. Hreinn
Þorkelsson lék ekki með vegna
veikinda og bitnaði það nokkuð á
varnarleik Keflvíkinga.
-Ó.St/lbe
Hagaskóli 12. mars
Fram-ÍBK 81-83 (47-44)
8-4, 10-12, 28-23, 32-30, 44-47, 53-
49,65-60, 69-69, 72-73, 80-79,80-81,
81-81, 81-83
Stig Fram: Símon Ólafsson 32, Þor-
valdur Geirsson 17, Ómar Þráinsson
10, Auðunn Elísson 9, Jóhann Bjarna-
son 7, Guðbrandur Lárusson 4 og Jón
Júlíusson 2.
Stig (BK: Jón Kr. Gíslason 16, Sig-
urður Ingimundarson 14, Gylfi Þor-
kelsson 13, Matti Stefánsson 13, Guð-
jón Skúlason 13, Ingólfur Haraldsson
10 og Falur Harðarson 4.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og
Ómar Scheving - sæmilegir
Maður leiksins: Simon Ólafsson,
Fram.
Föstudagur 13. mars 1987 ÞdÓÐVILJINN - SÍÐA 15