Þjóðviljinn - 18.03.1987, Page 2

Þjóðviljinn - 18.03.1987, Page 2
Kjartan Jóhannsson, Alþýðu- flokki: Mér sýnist að Alþýðuflokk- urinn standi vel og hafi meiri stuðning en næstum nokkru sinni í sögu hans, svo framarlega sem eitthvað verður af þessum tölum ráðið. Jón Kristjánsson, Framsóknar- flokki: Niðurstöðurnar eru ákveð- in aðvörun til okkar Framsóknar- manna. Mér finnst líka athyglis- vert að fylgi Alþýðuflokksins rétt nær að halda utan um samanlagt fylgi hans og BJ. Það er nú öll uppsveiflan. [— SPURNINGIN- Hvað finnst þér um niðurstöður skoðan- akannana sem birst hafa að undanförnu? - Spurt á alþingi. Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir: Kvennalista: Ég er hress með út- komu Kvennalistans. Mér finnst mjög merkilegt að Sjálfstæðis- flokkurinn komi sterkur út, en Framsókn ekki, því hann ber ekk- ert síður ábyrgð á stjórnarstefn- unni. Kristfn Kvaran, Sjálfstæðis- flokki: Sjálfstæðisflokkurinn er að vinna á, enda kunna kjósendur að meta það við flokkinn að hann hefur séð um allt sem máli skiptir í stjórnarsamstarfinu. Helgi Seljan, Alþýðubandalagi: Ég hef aldrei verið oftrúaður á skoðanakannanir, nema þá kannski sem skoðanamyndandi fyrir óákveðinn hóp. Ég uni hag míns flokks allvel, enda hefur hann ávallt komið betur út úr kosningum en svona könnunum. FRFTTIR Skoðanakannanir Obreytt ástand Valdahlutföll á Alþingi virðast breytastmjög lítið í komandi kosningum séu þœr skoðanakannanir sem nú birtast marktœkar Þessa dagana streyma skoð- anakannanir fram í dagsljósið hver á fætur annarri. í byrjun síð- ustu viku birti DV könnun sem tekin var sömu helgi og lands- fundur Sjálfstæðisflokksins stóð yfir í Laugardalshöll. í gær var Morgunblaðið með könnun sem Félagsvísindastofnun stóð fyrir. Var byrjað á henni sama dag og landsfundurinn hófst, 5. mars og henni lokið 12 mars. Um svipað leyti, dagana 5.-13. mars stóð Hagvangur fyrir skoðanakönnun á fylgi flokkanna og birti niður- stöðurnar á blaðamannafundi í gær. Á morgun birtist svo skoð- anakönnun sem Skáís gerði fyrir Helgarpóstinn. Litlar breytingar Þegar skoðað er meðaltal af fylgi flokkanna samkvæmt þeim könnunum sem þegar hafa birst kemur í ljós að breytingarnar frá kosningunum 1983 eru mjög litl- ar. Fljótt á litið mætti álíta að höfuðbreytingin sé sú að Alþýð- uflokkurinn hafi bætt verulega við sig, farið úr 11,7% í meðaltal- ið 19,5%, en þá ber á það að líta að þingflokkur Bandalags Jafn- aðarmanna sem hafði 7,3% í kosningunum hefur verið innlim- aður á mestum hluta í Alþýðufl- okkinn. Sameiginlega fengu Al- þýðuflokkurinn og BJ slétt 19% í kosningunum 1983. Þetta er mikil einföldun því nokkuð víst má telja að fylgi BJ hafi dreifst víðar, en það breytir ekki því að heildarniðurstaðan, það fylgi sem Vilmundur heitinn dró að sér, virðist hafa skilað sér til Jóns Baidvins. Framsóknarflokkurinn virðist hinsvegar gjalda afhroð sam- kvæmt skoðanakönnununum. Meðaltalið hjá honum er 13,9% en var í kosningunum 19,0%. Virðist sem óánægjan með ríkis- Miklar annir eru á Alþingi þessa dagana en sennilega gefa þingmenn sér þó þingsályktunum til að skoða niðurstöður skoðanakannana sem streyma að um Guðrún Agnarsdóttir önnum kafnar við þingstörf í gær. Mynd Sig. stjórnina bitni fyrst og fremst á honum og kemur það í sjálfu sér ekki á óvart. Reynslan hefur sýnt að samstarf við íhaldið er nokkuð örugg ávísun upp á fylgistap. Þá má telja öruggt að fylgi Stef- áns Valgeirssonar fyrir norðan og Þjóðarflokksins er að miklu leyti frá Framsókn runnið en sam- eiginlegt fylgi þessara tveggja framboða er um 2%. Leggi mað- ur það við Framsókn fáum við út 18%. Reykjavík Reykjanes Alþýðubandalagið hefur sam- kvæmt þessu tapað rúmum tveim prósentum frá kosningunum en Kvennalistinn bætt við sig álíka miklu. Á það ber svo að líta að Alþýðubandalagið hefur yfirleitt komið verr út í skoðanakönnun- um en í kosningum. Skáís og Félagsvísindastofnun hafa tekið einstök kjördæmi út úr sínum könnunum og birt niður- stöðu í þeim. Félagsvísindastofn- un reyndar eingöngu Reykjavík og Reykjanes en Skáís öll kjör- dæmin. Þá hefur DV birt niður- stöðu könnunarinnar í Reykja- vík. Ef við beinum augunum að Reykjanesi kemur í ljós töluverð fylgisaukning hjá Alþýðubanda- lagsins. í desemberkönnun Skáís Kosningar 1983 DV-könnun 6.-8. mars □ Félagsvísindast. könnun 5.-12. mars Alþýðuflokkur Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur Alþýðubandalag Kvennalistinn Einsog sjá má á súluritinu er innbyrðis mismunun á könnunum sem gerðar hafa verið í mars töluverðar. Meginbreytingin er hinsvegar sú að Alþýðuflokkur hefur bætt töluverðu við sig frá kosningum vorið 1983, en fylgi hans er þó nánast óbreytt só fylgi BJ í kosningunum lagt við krata. Framsókn virðist hafa tapað, Sjálfstæðisflokkur bætt örlitlu við sig en það er þó vart marktækt þar sem hann kemur yfirleitt betur út úr könnunum en í kosningum. Alþýðubandalag taþaði örlitlu en þó vart marktæku. Kvennalisti hinsvegar bætt sig töluvert. tíma til að líta uþþ úr frumvörpum og þessar mundir. Guðrún Helgadóttir og hafði G-listinn í Reykjanesi 9% en var í febrúarkönnuninni kom- inn í 15,7%. í desemberkönnun Félagsvísindastofnunar var G- listinn Reykjanesi með 10% en var kominn í 14,2% í könnuninni sem birtist í gær. Þessar niður- stöður virðast því benda til þess að Alþýðubandalagið sé í mikilli sókn á Reykjanesinu. Sé útkoma Alþýðubandalags- ins í Reykjavík skoðuð verður dæmið töluvert flóknara, svo mikill mismunur er á könnunum sem gerðar eru á nákvæmlega sama tíma. Hjá DV fær Alþýðu- bandalagið í Reykjavík 19% en hjá Félagsvísindastofnun bara 14,5%. í Skáískönnuninni í fe- brúar var G-listinn í Reykjavík með 17,6%. Nýju kjósendurnir Félagsvísindastofnun kannaði sérstaklega fylgi flokkanna hjá yngstu kjósendunum 18-24 ára að aldri. Þar kemur í ljós að Alþýðu- bandalagið á meiru fylgi að fagna meðal nýju kjósendanna en með- al þeirra eldri, eða 17,8%. Sömu sögu er að segja um Alþýðuflokk og Sjálfstæðisflokk. Framsóknar- flokkur og Kvennalisti eiga hins- vegar minna fylgi að fagna meðal ungra kjósenda. Hagvangur kannaði fylgið meðal mismunandi aldurshópa, 18-29 ára, 30-49 ára og 50 ára og eldri. Þar kom í ljós að fylgi Al- þýðubandalagsins var mest í yngsta hópnum en fylgi Fram- sóknar mest í elsta hópnum. Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu- flokkur sóttu mest fylgi til mið- aldra fólks, en fylgi Kvennalist- ans dreifðist nokkuð jafnt á alla aldurshópa. -Sáf 2 S(ÐA — ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 18. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.