Þjóðviljinn - 18.03.1987, Blaðsíða 14
Sjúkrahús Skagfirðinga
Sauðárkróki
óskar að ráða eftirtalið starfsfólk:
1. Hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga, einn-
ig í föst störf áfram.
2. Ljósmóður til sumarafleysinga og í fast starf.
3. Meinatækni til sumarafleysinga.
4. Sjúkraliða til sumarafleysinga og í föst störf.
5. Sjúkraþjálfa til sumarafleysinga.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga til sumarafl-
eysinga á Heilsugæslustöðina á Sauðárkróki og
Hofsósi.
Upplýsingar um laun og fleira veita:
Fyrir sjúkrahús, Birgitta s. 5270.
Fyrir heilsugæslu, Elísabet s. 5270.
Hjúkrunarforstjórar.
Lausar stöður
Við námsbraut í hjúkrunarfræði við læknadeild Háskóla ís-
lands eru lausar til umsóknar eftirtaldar stöður:
1. Staðadósents íhjúkrunarfræöi. Aðalkennslugrein: Hjúkr-
un aldraðra.
2. Staða lektors I hjúkrunarfræði. Aðalkennslugrein: Hjúkr-
un sjúklinga á handlækninga- og lyflækningadeildum.
3. Staða lektors í hjúkrunarfræði. Aðalkennslugrein:
Fæðingar- og kvenhjúkrun.
4. Staða dósents í hjúkrunarfræði, 50% staða. Aðal-
kennslugrein: Hjúkrunarstjórnun.
5. Staða dósents í sýkla- og ónæmisfræði, 37% staða til
eins árs.
6. Staða lektors í hjúkrunarfræði, 37% staða. Aðalkennslu-
grein: Geðhjúkrun.
7. Staða lektors í hjúkrunarfræði, 37% staða. Aðalkennslu-
grein: Barnahjúkrun.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækj-
enda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf,
skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 15. apríl nk.
Menntamálaráðuneytið,
16. mars 1987.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Sigurlaug Guðmundsdóttir
Vatnsnesvegi 34, Keflavík
lést 2. mars sl. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Kærar þakkir til allra sem hafa vottað okkur samúö sína.
Haukur Þórðarson Magnea Aðalgeirsdóttir
Alda Þórðardóttir Jóhann P. Halldórsson
Sólveig Þórðardóttir Jónatan Einarsson
Einar Þórðarson Steinunn Pálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
FRETTIR
Skemmtistaðir
Hollí skiptir um ham
Diskóið kvatt í Hollywood, hafin leit að „týndu kynslóðinni, “ með
lifandi rokki á virðulegum aldri
Háborg diskóáranna, glans- og
glimmer-skeinmtistaðurinn
Hollywood i Ármúlanum, er
kominn á breytingaskeiðið.
Undir forystu Björgvins Hall-
dórssonar og félaga hans á að
kasta af sér diskóhamnum og fara
í gömlu, góðu fötin. Lifandi tón-
list er slagorðið, og helst ekki yng-
ri en frá 1975.
Nú er verið að rusla út
innréttingunum og setja inn nýj-
ar, - eða gamlar, eftir því hvernig
á er litið. Svo á að hefja leit að
„týndu kynslóðinni" þeirri sem
skemmti sér hvað villtast áratug-
inn 1965 til '15, og leiða fram tón-
listarmenn þessara ára.
Ballið byrjaði með þjófstarti á
fimmtudagskvöldið þarsem upp
trommuðu ólíklegustu menn,
Rúnar Júl, Bjöggi, Guðmundur
Ingólfsson, Steini úr Dúmbó og
Steina, og undir lokin var rokk-
gleðin orðin slík að bæði Einar
Nýjung
Nýtt viðbit
frá Mb.
Flóamanna
Mjólkuriðnaðurinn á íslandi
hefur verið fundvís á nýjar fram-
leiðsluvörur. Og enn ein er nú að
koma á markaðinn. Var hún
kynnt I húsakynnum Osta- og
smjörsölunnar á Bitruhálsi í gær.
Þetta er nýtt viðbit, „Létt og
laggott", eins og það nefnist. Það
er að meginhluta til framleitt úr
þremur efnum: smjöri, mjólkur-
próteinum og jurtafeiti, með háu
hlutfalli af fjölómettuðum fitu-
sýrum. Það inniheldur aðeins
helming þeirrar fitu, sem er í
venjulegu viðbiti.
Svíar voru upphafsmenn þess-
arar framleiðslu en hér fer hún
fram í Mjólkurbúi Flóamanna,
sem hefur einkaleyfi frá Svíum.
Þessi vara hefur hvarvetna
unnið sér miklar vinsældir og er
full ástæða til að ætla að svo verði
einnig hér. - mhg
Vilberg og Jónas „slappað’af"
Jónsson voru komnir að hljóð-
nemunum.
Bjöggi, Birgir Hrafnsson og
aðrir Laufdælingar lofa ekki
minna fjöri næstu mánuðina,
með þremur til fjórum hljóm-
sveitum eða söngvurum hvert
föstu- og laugardagskvöld, og
tala líka um erlenda krafta.
Grunnástæða breytinganna í
Hollí er sennilega að yngsta
skemmtikynslóðin var farin að
Ieita annað, meðal annars á
Borgina, sem er í sömu ballhús-
akeðju, enda var glansumhverfið
í Hollywood soldið gamaldags.
Svo er að sjá hvernig allt fer.
Finna þeir Hollywood-menn
kynslóðina sína úr Glaumbæ og
Tjarnarbúð? Verður hægt að rífa
hana frá stresstöskunum og
bleyjuþvottinum? Þeir Björgvin
og félagar eru að minnsta kosti
glaðbeittir í startholunum, - einn
ræðumanna fyrsta kvöldið sagði
að það væri löngu kominn tími á
„athvarf fyrir venjulegt fólk“.
- m
Borgarstarfsmenn
Almennurfélagsfundur um nýgerðan kjarasamn-
ing milli Starfsmannafélagsins og Reykjavíkur-
borgar verður haldinn að Grettisgötu 89,4. hæð,
miðvikudaginn 18. mars nk. kl. 17.00.
ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA
um kjarasamninginn fer fram að Grettisgötu 89,
3. hæð (skrifstofu félagsins), fimmtudaginn 19.
mars kl. 10-21 og föstudaginn 20. mars kl. 10-
21.
FÉLAGSMENN, TAKIÐ ÞÁTT í ATKVÆÐAG-
REIÐSLUNNI.
Stjórn
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
KOSNINGASKRIFSTOFUR
Kosningamiðstöðin Reykjavík
Opið allan daginn að Hverfisgötu 105, sími 17500. Skráning
sjálfboðaliða í kosningavinnu hafin. Takið þátt í kosningabarátt-
unni.
Vestfirðir
Kosningaskrifstofan í Hæstakaupstað, Aðalstræti 42, ísafirði, er
opin allan daginn. Sími: 94-4242 og -4298. Kosningastjóri er
Gísli Þór Guðmundsson. Alltaf heitt á könnunni.
Alþýðubandalagið
Utankjörfundarkosning
Utankjörstaðaskrifstofa Alþýðubandalagsins er að Hverfisgötu
105. Opið til að byrja með frá kl. 9-17. Síminn er 91-22335 og
91-22361.
Norðurlandskjördæmi vestra
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins í V-Húnavatnssýslu að
Spítalastíg 16, Hvammstanga, var opnuð sunnudaginn 15.
mars. Fyrst um sinn verður opið iaugardaga og sunnudaga frá
kl. 14-18. Síminn er 95-1460.
Áhugafólk er hvatt til að koma eða hafa samband.
Norðurlandskjördæmi eystra
Aðalkosningaskrifstofan er á Akureyri í Lárusarhúsi, Eiðsvalla-
götu 18. Opið alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-18. Síminn er
96-25875 og -27413. Kosningastjóri erGunnar Helgason. Fra-
mlögum veitt móttaka á skrifstofunni og á tékkareikning nr.
8790 í Alþýðubankanum Akureyri.
G-listinn Reykjanesi
Aðalkosningaskrifstofa G-listans í Reykjaneskjördæmi er í
Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi. Þar er opið alla virka daga
frá kl. 10.00-19.00. Alltaf heitt á könnunni og starfsmennirnir
Valþór, Ásdís, Helgi og Unnur til þjónustu reiðubúin. Símarnir
eru 41746 og 46275.
Þá hefur einnig verið opnuð kosningaskrifstofa í Keflavík, að
Hafnargötu 34. Síminn þar er 92-4286. - G-listinn Reykjanesi.
Austfirðir
Aðalskrifstofa Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi er
á Reyðarfirði, Heiðarvegi 22, neðri hæð. Opið alla virka dagafrá
kl. 10-18 og á kvöldin frá kl. 20-22. Um helgar fyrst um sinn frá
kl. 14-17. Síminn er 97-4361. Kosningastjóri er Jóhanna III-
ugadóttir, heimasími: 97-4377. Alltaf heitt á könnunni.
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Kosningaskrifstofan er á Búðavegi 6.
Sími 97-5444. Opið á fimmtudagskvöldum frá kl. 20.00 fyrst um
sinn.
NESKAUPSTAÐUR: Kosningaskrifstofan er að Egilsbraut 11.
Síminn er 97-7571.
HÖFN í HORNAFIRÐI: Kosningaskrifstofan er á Hafnarbraut
26 (neðri hæð). Opið frá kl. 17-19.30 og 20-22 virka daga og
13-19 um helgar. Síminn er 97-81426.
Suðurland
Aðalkosningaskrifstofan er að Sigtúni 1, Selfossi. Fyrst í stað
verður skrifstofan opin frá 17-22 alla daga vikunnar. Síminn er
99-1006. Kosningastjóri er Guðvarður Kjartansson.
VESTMANNAEYJAR: Kosningaskrifstofan er á Bárugötu 9
(Kreml). Fyrst um sinn verður skrifstofan opin sunnudaga-
mánudaga og föstudaga frá kl. 16-18. Síminn er 98-1570.
Alþýðubandalagið Suðurlandi
Opið hús
Opið hús verður á kosningaskrifstofunni Sigtúni 1, Selfossi, á
hverjum laugardegi fram að kosningum frá kl. 14—3 7.
Frambjóðendur verða á staðnum. Kaffi og kökur. Allir velkomn-
'r- Stjórnin
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 18. mars 1987