Þjóðviljinn - 18.03.1987, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 18.03.1987, Qupperneq 3
Tíminn Alþingi FRÉTTIR 70 ára í gær Þingmálum stolið Páll Pétursson: Gunnar hrífstsvo affallegum málum að hannprentar þau upp og flytur sem sín eigin Dagblaðið Tíminn hélt upp á stórafmæli í gær. Átti afmælis- barnið 70 ára afmæli og heim- sóttu velunnarar blaðsins rit- stjórnina. Þarna voru mættir fyrr- verandi og núverandi starfsmenn blaðsins, þingmenn og fyrrver- andi þingmenn, fulltrúar annarra fjölmiðla og lesendur blaðsins. Um kvöldið efndi blaðið svo til samsætis í Rúgbrauðsgerðinni fyrir starfsfólk í tilefni dagsins. -Sáf Gunnar G. Schram hefur verið staðinn að verki við stuld á þingmálum. Komst upp um kauða þegar Eiður Guðnason kvaddi sér hljóðs á Alþingi í gær og undraðist að í gær var dreift tillögu frá Gunnari, samhljóða tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur, sem lögð var fram 15. október sl. og þá vísað til Félagsmálanefnd- ar, en Gunnar er formaður þeirrar nefndar. Guðrún Helgadóttir dró annað Vertíðin Sá guli tregur Tíðin umhleypingasöm - Gœftir stopular- Minni afliþað sem afer en í fyrra að var samdóma álit þeirra sem Þjóðviljinn ræddi við í gær að vertíðin væri lakari nú en á sama tíma í fyrra. Tíðin um- hleypingasöm og minni afli en menn höfðu búist við. Til Ólafsvíkur höfðu borist á land frá áramótum 3.469 tonn. Þar urðu menn varir við smá neista í síðustu viku og komu bátarnir þá með 998 tonn að landi. Að sögn Hjörleifs Sigurðs- sonar á Hafnarvigtinni hefur þetta verið sæmilegur fiskur það sem af er, en bara ekki nógu mikið af honum. Þar vestra búast menn við göngu hvað úr hverju og eru tilbúnir með uppbrettar ermar ti að taka á móti þeim gula. í Sandgerði höfðu menn gert það gott á línu frá miðjum janúar en í febrúar og það sem af væri mars hefði það verið ansi dapurt. Frá áramótum og til loka febrúar væru bátamir búnir að koma með um 4.397 tonn, samkvæmt Hrefnu Björg Óskarsdóttur á Hafnarvigtinni. Sagði hún að síð- ustu daga hefði hann gert brælu og hefðu bátarnir þá verið að koma með tveggja til þriggja nátta fisk sem færi beint í fimm- una, en það er úrgangsfiskur sem færi í salt og síðan til Portúgals. Á Höfn í Hornafirði kom smá fiskiganga í kjölfar loðnunnar og hafði verið ágætt í febrúar en síð- an hefði hann dottið niður. Að sögn Egils Jónassonar hjá Kaupfélaginu hefur fiskurinn verið ágætur en frekar smár. Þangað höfðu borist á land frá áramótum 3.600 tonn af bátafiski sem væri nokkuð minna en á sama tíma í fyrra. Þar bíða menn óþreyjufullir eftir að sá guli láti sjá sig almennilega og sagði Egill að þar væri skortur á vinnuafli en vonaði þó að úr því myndi rætast áður en langt um liði. grh svipað mál farm í dagsljósið: „Við Jóhanna Sigurðardóttir lögðum fram frumvarp til laga um breytingu á barnalögum um að Tryggingastofnun greiði fram- lög vegna menntunar eða starfs- þjálfunar barns ef meðlags- skyldur aðili er ekki lengur á lífi. Við höfum ítrekað gengið eftir því að fá það afgreitt frá Félags- málanefnd og jafnan fengið þau svör frá Gunnari G. Schram, for- manni nefndarinnar að svo verði eftir að Sjálfstæðismenn í nefn- dinni hafi skoðað það. Svo birtist hér fyrir nokkrum dögum frumvarp til laga um breytingu á barnalögum sem er samþykkt sem lög og er algerlega samhíj óða okkar frumvarpi en nú flutt af allsherjarnefnd Neðri deildar og aðalflutningsmaður Gunnar G. Schram," sagði Guð- rún Helgadóttir. Gunnar G. Schram tók til máls og átti heldur bágt og fór kring um málið en gat þess að enginn þingmaður ætti einkarétt á neinu máli. Þingmenn sem til máls tóku auk Gunnars voru Guðrún Helg- adóttir, Eiður Guðnason, Páll Pétursson, sem var mjög háðskur í garð Gunnars og sagði piltinn mjög hrifnæman, Kristín Hall- dórsdóttir og Jóhanna Sigurðar- dóttir og gagnrýndu öll þessa að- ferð Gunnars G. Schram við að afla sér góðra þingmála. -sá. Þær eru sposkar á svipinn, stúlkurnar tvær í Ólafsvík, þar sem þær standa við hausingavélina og mata hana á hverjum þorskinum á eftir öðrum. Alþingi Listmunauppboð Stjórnarfrumvarp um list- munauppboð verður líklegast að lögum fyrir þinglok, samþykkt samhljóða. Þar er gert ráð fyrir að ákveðinn hluti söluverðs hvers munar sem seldur er á listmuna- uppboðum renni til starfslauna- sjóðs myndlistamanna. Það er ljóst að ef frumvarpið verður að lögum, mun það breyta miklu fyrir starfsaðstöðu myndlista- manna. -sá. Alþingi Fæðingarorlof ,JÉ.g mótmæli því að um rang- læti sé að ræða gagnvart heima- vinnandi húsmæðrum,“ sagði heilbrigðisráðherra, Ragnhildur Helgadóttir er hún svaraði gagnrýni Sigríðar Dúnu Krist- mundsdóttur við 3. umræðu í Efri deild í gær um stjórnarfrum- varp um fæðingarorlof. Ráðherra sagði að yrði frum- varpið að lögum þýddi það stórt skref í átt til jöfnunar og í því fælist meðal annars 50% hækkun fæðingarstyrkja af hálfu hins op- inbera og yrðu þessi framlög jafn há til allra kvenna, hvort sem þær eru heimavinnandi eða ekki. -sá. Alþýðubandalagið í Kjósarsýslu ÁRSHÁTÍÐ! Árshátíð Alþýðubandalagsins í Kjósarsýslu verður haldin í Hlégarði laugardaginn 21. mars og hefst dagskrá kl. 20.30. Góður matur - Vönduð skemmtidagskrá - Dans Sérstakur gestur kvöldsins verður Ásdís Skúladóttir, sem skipar 3. sœti G-listans í Reykjaneskjördœmi. Veislustjóri verður Kristbjörn Árnason. Ásdís Skúladóttir Kristbjörn Árnason Sofffa Guðmundsdóttir Bjarki Bjarnason Sigríður Halldórsdóttir Meðal skemmtiatriða: Dúettá túbu og básúnu- Reynir Kristbjörnsson og Jón Halldór Finnsson. Leikþáttur- Félagar úr Leikfélagi Mosfellssveitar. Bögglauppboð o.fl. -Sofffa Guðmundsdóttir, Bjarki Bjarnason og Sigrfður Halldórsdóttir. Fjöldasöngur - hver einasti maður f salnum. Miðinn kostar aðeins 1000 kr. og fœst hjá Kristbirni, s. 666698, Sigrfði s. 666617 og á aðalskrifstofu G-listans f Hamraborg 11, Kópavogi, s. 41746. Fjölmennið og takið með ykkurgesti! Alþýðubandalagið í Kjósarsýslu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.