Þjóðviljinn - 18.03.1987, Page 16

Þjóðviljinn - 18.03.1987, Page 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 Miðvikudagur 18. mars 1987 64. tölublað 52. órgangur SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Kjaradeilur Alltað stöðvast lOfélög hafa boðað verkfall Þegar liggur fyrir verkfallsboð- un frá tíu stéttarfélögum. í öllum tilfeilum utan eitt, er ríkisvaldið sá aðili sem stéttarfélögin eiga við að etja um sín samningsmál. Þau stéttarfélög sem þegar hafa boðað verkfall, eru: Félag háskólamenntaðra hjúkrunar- fræðinga,19. mars, Félag ís- lenskra sjúkraþjálfara,19. mars, Skipstjórafélag Islands, 20. mars, Félag íslenkra fræða, 23. mars, Sálfræðingafélag íslands, 24.mars, Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa, 26. mars, Iðju- þjálfafélag íslands, 26. mars, Fé- lag íslenskra náttúrufræðinga, 31. mars, Matvæla- og næringa- fræðingafélag íslands, 1. aprfl, Félag bókasafnsfræðinga, 2. apr- fl. Komi til verkfalls ofangreindra félaga, má hæglega búast við að margvísleg opinber þjónusta stöðvist, eða lamist að töluverðu leyti. Þar á meðal má nefna umönnun sjúkra og slasaðra. Jafnframt má gera ráð fyrir að skipaflotinn verði fljótlega bund- inn við bryggju, ef af verkfalli skipstjóra verður. -rk Kennaraverkfall Talað við grjótið Lítilla tíðinda að vœnta af samningamálum kennara. Ríkið hótar að draga deiluna á lang- inn „Samninganefnd ríkisins virð- ist hafa einsett sér að ræða málin eingöngu á fyrirfram ákveðnum nótum, sem ekki í einu einasta atriði er hægt að hvika frá. Þetta er því nánast eins og að tala við grjótið,“ sagði Gísli Pétursson, kennari og fulltrúi í samninga- nefnd HÍK. í gær var enginn sáttafundur boðaður í deilu ríkisins og kenn- ara, eftir að slitnaði upp úr við- ræðum deiluaðila hjá sáttasemj- ara í fyrrakvöld. Alls óvíst er hve- nær næsti fundur verður boðað- ur. „Þegar ljóst var að það væri ekki til neins að ræða málin á þeim nótum sem ríkisvaldið ein- setti sér, var okkur tilkynnt pent og kurteislega af samninga- mönnum ríkisins að fyrst slitnaði upp úr viðræðunum, þyrftum við ekki að búast við viðræðum næstu daga. Við metum launatilboð ríkisins upp á 11% hækkun, sem er alltof lítið þegar þess er gætt að það er miðað við samning til tveggja ára,“ sagði Gísli Pétursson. KÍ hefur sent frá sér ályktun þar sem fullum stuðningi er lýst yfir við verkfallsaðgerðir HÍK og minnt er á að loforð ráðherra fjármála og menntamála hafa fram að þessu reynst hjómið eitt. -rk Það er ósköp dapurlegt hvernig kuldinn hefur leikið blómin okkar, sagði Elísabet Gísladóttir frá Hvarfi í Víðidal, en hún býr nú á Elliheimilinu Grund. Myndirnar tvær eru teknar með viku millibili og sýna glöggt hvernig frostið undanfarið hefur leikið snemmsprottinn gróðurinn. Myndir Sig. og E.ÓI. Arkarmálið 40 miljónir í skoðun Reikningar uppá röskar 40 miljónir meðal annars vegna HótelArkar ófullkomnir. Óljóst hvortsöluskattur vargreiddur. Ríkisskattstjóri vill skýringar frá Helga Pór Reikningar að upphæð rösk- lega 40 miljónir króna vegna viðskipta Helga Þórs Jónssonar við ýmsa aðila, sem tengjast með- al annars byggingu Hótel Arkar, eru í könnun hjá rannsóknadeild ríkisskattstjóra, samkvæmt heimildum Þjóðviljans. Emb- ættið mun hafa óskað eftir skýr- ingum á ýmsu í tengslum við þessa reikninga, og annað sem varðar bókhald fyrirtækja Helga Þórs Jónssonar. Reikningar þessir munu óskipulagðir og ruglingslegir, þannig að erfitt er að sjá hvaða hluti þessara rösklega 40 miljóna viðskipta er söluskattskyldur. Sömuleiðis er torvelt að greina af þeim, hvort skatturinn hafi verið inntur af hendi af þeim hluta, sem er söluskattskyldur. Þeir reikningar sem smásjá rannsóknardeildarinnar beinist að eru frá fjölmörgum fyrirtækj- um, sem tóku þátt í byggingu Hótel Arkar, meðal annars Byggingarfélaginu Borg s/f, Tré- smiðju Hveragerðis, Hlaðbæ s/f og Mótás s/f. Ekki leikur hins vegar neinn grunur á um að þessi fyrirtæki hafi gerst brotleg við reglur. Könnun Þjóðviljans á þeim fyrirtækjum sem eiga reikninga sem eru í athugun sýndi, að við- skipti þeirra voru á bilinu frá 1,5 miljóniroguppítæpar20miljón- 1 ir króna. Vélaleiga Helga Þórs, sem ekki hefur starfað síðan 1985 er einnig í athugun. En ósamræmi virðist vera á milli bókhalds og söluskattskýrsla. Traustar heimildir Þjóðviljans herma, að Helgi Þór hafi enn ekki gefið neinar skýringar, sem rannsóknardeildin óskaði eftir, en hann hefur þráfaldlega neitað í viðtölum við fjölmiðla að Hótel Örk sé til athugunar hjá embætt- inu. -ÖS/lg Kuldakastið: Gróðurinn í stórhættu - Kalt verður áfram. Æðakerfi trjánna í hættu Kuldinn hefur ekki enn unnið gróðrinum verulegt tjón en við verðum að vona að fljótlega dragi úr frosti, sagði Theódór Halldórsson yfirverkstjóri hjá garðyrkjustjóra borgarinnar í samtali við Þjóðviljann. Lággróðurinn er vel settur því snjórinn er fyrirtaks ábreiða, en trén eiga mörg erfiða daga, eink- um þó öspin sem víða var farin að laufgast sem um mitt vor væri. Að sögn Theódórs þola trén illa langvinnt kuldakast og hætta er á að æðakerfi þeirra springi. Magnús Jónsson, veðurfræð- ingur, tjáði Þjóðviljanum að áfram yrði kalt næstu daga en frost herti þó líkast til ekki. Norð- austanátt verður ríkjandi í dag, en á morgun má búast við að gangi á með éljum á suðvestur- landi. Um helgina tekur norð- austanáttin sig væntanlega upp aftur með frosti, trjám og mönnum til ama og leiðinda. -hj. h - J 1 K 'wEm vW ! IHá f 1 I Huif f Jjjg H Hl wm Hri H Létt & laggott 1 2 co i cn >

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.