Þjóðviljinn - 26.03.1987, Qupperneq 5
Umsjón:
Magnús H.
Gíslason
Búnaðarþing
Andvígt
viröisauka-
skatti
Frumvarp um virðisaukaskatt
var iagt fram á Alþingi 1984, en
náði þó ekki fram að ganga. Það
hefur nú verið endurflutt með lít-
ilsháttar breytingum. Fullvíst
þykir þó að það verði heldur ekki
afgreitt nú. Allt um það taldi
Búnaðarþing rétt að álykta um
málið svo sem það hafði raunar
einnig gert 1985.
Búnaðarþing lýsti sig andvígt
lögfestingu frumvarpsins þar sem
ljóst sé að þrátt fyrir þær „hliðar-
ráðstafanir“, sem rætt sé um að
gera, muni áhrif þess á verð-
myndun og markaðsstöðu búvara
verða þessi:
1. Aukin rekstrarfjárþörf.
2. Flóknara og viðameira bók-
hald hjá bændum.
3. Sveiflur á söluverði búvara á
markaði, vegna neikvæðra áhrifa
niðurgreiðslna. Reynslan hefur
sýnt, að ríkisvaldið hefur notað
niðurgreiðslur á búvörum sem
stjórnun á kaupgjaldsvísitölu.
4. Lakari samkeppnisaðstöðu
við innfluttar matvörur, sem nú
eru háðar söluskattsákvæðum.
5. Þær hliðarráðstafanir, sem
boðaðar eru vegna upptöku virð-
isaukaskatts, virðast erfiðar í
framkvæmd, og einnig virðist
neikvæð reynsla af þeim erlendis.
-mhg.
Tímarit
Ásgeir Bjamason, fráfarandi formaður B.l.
Hjörtur E. Þórarinsson, núverandi formaður B.l.
Búnaðarþing
Höfum haft góðan húsbónda
Eiðfaxi
Pingslit. Nýr formaður B./. 50 mál afgreidd
- Við munum berjast til
þrautar fyrir landbúnaðinn og
dreifbýlið, sagði Ásgeir Bjarna-
son er hann sleit Búnaðarþingi.
Hafði þingið þá staðið í 10 daga
og afgreitt öll þau mál, sem fyrir
það voru lögð, um 50 að tölu.
í þinglokin fór fram kosning á
mönnum í stjóm Búnaðarfélags-
ins. Ásgeir Bjarnason, bóndi í
Ásgarði, sem verið hefur formað-
ur félagsins sl. 16 ár, gaf nú ekki
lengur kost á sér til stjómarsetu. í
hans stað var kjörinn Magnús
Sigurðsson, bóndi á Gilsbakka.
Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi á
Tjöm, og Steinþór Gestsson,
bóndi á Hæli, voru endurkjörnir í
stjórnina og er Hjörtur nú for-
maður hennar. Varamenn í
stjórninni eru þeir Jón Helgason,
landbúnaðarráðherra, Sigurður
Þórólfsson, bóndi í Innri-
Fagradal í Dölum, og Siggeir
Björnsson, bóndi í Holti á Síðu.
Sigurður Líndal, bóndi á Lækja-
móti, var endurkjörinn endur-
skoðandi en varamaður hans er
Bjami Guðráðsson, bóndi í Nesi.
Kosin var sérstök hátíðarnefnd
til þess að annast undirbúning
150 ára afmælishátíðar Búnað-
arfélags íslands á komandi sumri.
í nefndina voru kjörnir: Bjarni
Guðráðsson, Egill Bjarnason,
Jón Ólafsson, Jón Hólm Stefáns-
son og Stefán Halldórsson.
Loksins fór fram kosning á
mönnum í stjórn Bændahallar-
innar. Kosnir voru sem aðalmenn
Hjalti Gestsson og Ólafur Stef-
ánsson en varamenn þeirra eru
Jónas Jónsson og Guttormur
Þormar.
Ásgeir Bjamason þakkaði
öllum þeim, sem hann hefði átt
samstarf við á vegum búnaðar-
samtakanna sl. 36 ár og óskaði
þeim og Búnaðarfélagi íslands
allra heilla í bráð og lengd. Jón
Ólafsson bóndi í Eystra-
Geldingaholti, þakkaði Ásgeiri
mikil störf og góð. - Búnaðarþing
er eins og stórt heimili, sagði Jón.
- Við höfum haft þar góðan hús-
bónda og munum sakna hans. Ég
þakka þér, Ingibjörg (kona Ás-
geirs), fyrir að hafa lánað okkur
hann Ásgeir í öll þessi ár.
Guttormur Þormar afhenti
þeim hjónum gjöf frá Búnaðar-
þingi. Er hún hringlaga borð á
renndum fæti en platan þakin
austfirskum steinum, jaspis og
kvarsi. Þorsteinn Sigurðsson,
fyrrverandi héraðslæknir á Egils-
stöðum, gerði plötuna en þeir
feðgar, Halldór og Hlynur í Mið-
húsum fótinn. Er þetta borð hinn
mesti kjörgripur.
- mhg.
Búnaðarmálasjóður
Misjöfn skil á gjöldum
Framleiðsluráð segir eitt-Hagstofan annað
Vöfflukaffi hjá Bjössa á
Hofsstöðum
- Ég skal gefa þér staup af 12
ára gömlu viskíi ef þú tekur viðtal
við mig, þótt ekki væri nema
vegna þess að ég er eini bóndinn
hér um slóðir sem býr aðeins með
hross.
Þetta álitlega tilboð gerði
Ævar Þorsteinsson, bóndi í Enni í
A-Hún., Hjalta Jóni Sveinssyni,
er hann bar að garði með Guð-
mundi Þóri Sigurðssyni hesta-
flutningabílstjóra. Hjalti Jón brá
sér í flutningaleiðangur með
Guðmundi Þóri frá Akureyri,
vestur um Skagafjörð og Húna-
vatnssýslur og segir frá því ferða-
lagi í skemmtilegri frásögn í síð-
asta tölublaði Eiðfaxa (2. tbl.
1987).
Annars hefst þetta Eiðfaxa-
blað á forystugrein eftir Erling A.
Jónsson, þar sem hann hvetur
hestamenn til þess að hirða betur
um reiðtygi sín, - hnakka og
beisli - en manni skilst að ýmsir
geri. Hjalti Jón ræðir einnig við
Pétur Jökul Hákonarson um
undirbúning væntanlegs Evrópu-
móts í Austurríki og starf íþrótta-
ráðs. Sigurborg Davíðsdóttir
skrifar um loftræstingu í hesthús-
um. „Sannleikurinn er sagna
bestur“ nefnist grein eftir Einar
E. Gíslason á Syðra-Skörðugili í
Skagafirði, þar sem hann
leiðréttir missögn, sem hann tel-
ur vera í blaðinu Bóndanum.
Þorgeir Guðlaugsson ritar um
nýjar kynbótaeinkunnir og
kynbótaspár. Skúli Steinsson
bendir á þau einkenni, sem hann
telur að „draumahesturinn" þurfi
að hafa. Hjalti Jón segir frá heim-
sókn sinni að Ragnheiðarstöðum
í Flóa, en þá jörð eiga Fáksfé-
lagar og nota til hrossabeitar.
Ýmislegt er enn ótalið af efni
blaðsins, sem er hið prýðilegasta
eins og ætíð áður.
Töluvert mun misjafnt hversu
vel gjöld af gjaldskyldum bú-
vörum skila sér i innheimtu. Góð
skil eru frá afurðastöðvunum og
hliðstæðum stofnunum. Öðru
máli þykir gegna með búnaðar-
málasjóðsgjöld af þeim vörum,
sem seldar eru eftir öðrum leiðum
og erfitt að finna það innheimtu-
form, sem tryggir örugg skil.
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins leggur árlega áætlun um
heildarverðmæti búvörufram-
leiðslunnar fyrir Hagstofuna til
úrskurðar og endanlegrar af-
greiðslu. Á undanförnum árum
hefur nokkuð borið á milli til-
lagna Framleiðsluráðs og
Hagstofunnar. Hefur mismunur
þessi farið vaxandi hin síðari ár.
Fyrir verðlagsárið 1985/1986
nemur hann hvorki meira né
minna en 524 milj. kr., auk þeirra
liða, sem ekki eru viðurkenndir.
Munar um minna. Helstu liðir,
sem Framleiðsluráð telur að
meta beri sem búvöruframleiðslu
en Hagstofan viðurkennir ekki
eru:
1. Heimaslátrun nautgripa
lækkuð um 100 tonn, mismunur
kr. 14,1 milj.
2. Selt hrossablóð, mismunur
2,0 milj. kr.
3. Verðmæti hrossa, sem seld
eru innanlands, mism. 64,9 milj.
kr.
4. Útflutt hross, mism. 0,5
milj. kr.
5. Garðávextir og gróðurhúsa-
afurðir, mism. 21,5 milj. kr.
6. Blóm og runnar, mism.
124,8 milj. kr.
7. Heimaslátrun svína, mism.
8,9 milj. kr.
8. Hlunnindi, mism. 287,3
milj. kr.
Alls nemur því munurinn á
verðmætaáætlun Framleiðslu-
ráðs og þeirri upphæð, sem Hag-
stofan viðurkennir, 524,0 milj.
kr. Við þetta bætist svo að liðir
svo sem ferðamannaþjónusta,
loðdýrarækt og kanínurækt eru
utan við verðmætaáætlunina en
Framleiðsluráð telur að áætla
megi verðmæti þessara greina
155 milj. kr.
Með hliðsjón af framansögðu
samþykkti Búnaðarsamband
Kjalarnesþings tillögu - sem síð-
an var vísað til búnaðarþings -
um að innheimtur og skil á Bún-
aðarmálasjóðsgjaldi verði gerðar
markvissari og að Búnaðarmála-
sjóður geti á hverjum tíma gefið
glöggt yfirlit um greiðslur eftir
búvörutegundum og greiðend-
um.
Búnaðarþing afgreiddi málið
með áskorun til landbúnaðarráð-
herra um skipun þriggja manna
nefndar er geri: a) tillögur um
hvemig tryggja megi betri skil á
gjöldum til Búnaðarmálasjóðs og
b) geri tillögur að reglugerð, sem
kveði á um hvernig meta beri
heildarverðmæti búvöru og þar
með þann gjaldstofn, sem byggt
er á varðandi ákvörðun þeirrar
fjárhæðar, sem greiða ber samkv.
lögum nr. 46/1985.
Hagstofan mun byggja úrskurð
sinn um heildarverðmæti búvöru-
framleiðslunnar á tölu frá ríkis-
valdinu. Tilhneiging þess til að
vanmeta verðmæti fram-
leiðslunnar stafar hins vegar trú-
lega af því, að því minna sem það
er talið vera, því lægri upphæð
greiðir ríkið til lífeyrissjóðs
bænda og búnaðarsambandanna.
- mhg.
- mhg.
Flmmtudagur 26. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5