Þjóðviljinn - 26.03.1987, Síða 13
HEIMURINN
Spánn
Sótt að Gonzales
Verkföll íalgleymingi þrátt fyrir ákall forsœtisráðherrans. Hægri
menn leggjafram vantrauststillögu á þingi
Verkföll voru vítt og breitt
um Spán í gær þrátt fyrir ákall
Fellpe Gonzales í fyrrakvöld til
spænsku þjóöarinnar um að
hún tæki upp betri háttu og
sýndi baráttu stjórnvalda gegn
verðbólgu og annarri efna-
hagsóáran meiri skilning.
Verkalýðsarmur Sósíalista-
flokksins, flokks forsætisráðherr-
ans, er honum þungur í skauti og
segja fyrirmenn hans að hvergi
verði hvikað frá kröfum um sjö
prósent launahækkun þótt ríkis-
stjórnin hafi ítrekað hamrað á því
að fimm prósent hækkun sé al-
gert hámark.
Heimildir úr verkalýðshreyf-
ingunni hermdu að ekkert væri
unnið í kolanámum í Asturias-
héraði því námumenn krefðust
þess að uppsagnir fjölmargra
kollega þeirra yrðu dregnar til
baka. Sólarhrings vinnustöðvun
er yfirvofandi á fimmtudaginn
hjá hinu ríkisrekna jámb-
rautarfélagi og á sama tíma munu
starfsmenn tveggja flugfélaga
leggja niður störf. Ennfremur
i ætla byggingarverkamenn að fara
í fimm daga verkfall í næstu viku.
Ekkert miðar í samkomulagsátt
í deilum ráðamanna við há-
skólastúdenta sem skrópa hópum
saman. Vilja þeir fá að hafa hönd
í bagga með framkvæmd umbóta
við æðri skóla og ennfremur
krefjast þeir aukinna útgjalda til
háskóla landsins.
í ávarpi sínu til spænsku þjóð-
arinnar í fyrrakvöld rökstuddi
Gonzales stefnu sína í launamál-
um með því að nauðsynlegt væri
að ná verðbólgunni niður í fimm
prósent úr þeim rúmu átta pró-
sentum sem voru meðaltal
síðastliðins árs.
Hann sagði það af og frá að
stjórnin gæti komið til móts við
allar kröfur verkalýðsfélaganna
og bætti við að „múgæsingar"
myndu ekki slá sig út af laginu.
Hinsvegar hefði hann af því tals-
verðar áhyggjur að vinnudeilum-
ar sköðuðu efnahag landsins sem
og ímynd þess í augum um-
heimsins.
Antonio Hemandez Mancha,
leiðtogi helsta stjómarandstöðu-
flokksins, hinnar hægri sinnuðu
Alþýðufylkingar, sagði að
Gonzales væri orðinn uppi-
skroppa með hugmyndir til
lausnar vandanum. „Hann hefur
gert ailt sem í hans valdi stóð og
nú getur hann ekki meira.“
Mancha hefur lagt fram tillögu
á þingi um vantraust á stjórnina
sem tekin verður til fyrstu um-
ræðu í dag. Sósíalistaflokkurinn
hefur tryggan meiríhluta á
spænska þinginu svo trauðla þarf
Gonzales að óttast þetta upp-
hlaup stjómarandstöðunnar.
-ks.
Felipe Gonzales er fastur fyrir og lætur ekki „múgæsingar" slá sig út af laginu.
Evrópa
Efnahagsbandalagið þrrtugt
Umfang og völdframkvœmdanefndar og þings EBE hafa aukist og
munu aukast stórum
í gær var mlkið um dýrðlr í
aðalstöðvum Efnahagsbanda-
lags Evrópu því þar héldu
menn hátíðlegt þrjátíu ára af-
mæli bandalagsins.
Menn vom á einu máli um að
bandalagið hefði náð flestum
þeim efnahagslegu og pólitísku
markmiðum sem stefnt var að við
stofnun þess í Róm þann tuttug-
asta og fimmta mars árið 1957.
Að vísu teldu ýmsir að ekki mætti
láta staðar numið fyrr en aðildar-
þjóðirnar gerðu bandalagið að
einu ríki með fylkjasambandi í
líkingu við Bandaríkin en fulltrú-
ar stærstu þjóðanna, svo sem
Bretlands, Frakklands og
Vestur-Þýsklands, vísa öllum
slíkum hugmyndum á bug sem
helberu draumórahjali.
Stjómvöld í Sovétríkjunum
vilja nú óð og uppvæg taka upp
náin samskipti við EBE en um
langt árabil létu þau sem banda-
lagið væri ekki til. Kremlverjar
telja að öflugt Efnahagsbandalag
Evrópu geti skotið Bandaríkja-
mönnum ref fyrir rass og rifið úr
höndum þeirra forystu fyrir vest-
rænum þjóðum.
EBE var upphaflega stofnsett í
því augnamiði að liðka til í mark-
aðsmálum aðildarlandanna sem
flest áttu undir högg að sækja í
efnahagsmálum eftir lok síðari
heimsstyrjaldar. Stofnríkin voru
sex; Frakkland, ■ Vestur-
Þýskaland, Ítalía, Belgía, Hol-
land og Lúxemborg. Síðan hafa
sex aðrar þjóðir slegist í hópinn;
Bretland, Danmörk, írland,
Grikkland, Spánn og Portúgal.
Samanlagður íbúafjöldi þessara
landa er nú þrjúhundruð og tutt-
ugu milljónir.
í efnahagsmálum fylgja því
ýmsir kostir fyrir þjóðimar að
vera í bandalaginu. Til dæmis
hafa bæði Bandaríkjamenn og
Japanir gefist upp á því að reyna
að gera stóra viðskiptasamninga
við hvert aðildarríki fyrir sig og
semja nú við þau öll í einu í gegn-
um bandalagið. Þannig ná þjóð-
imar yfirleitt hagstæðari skilmál-
um en ella.
Á stjómmálasviðinu hafa
þjóðirnar hvert sína utanríkis-
stefnu að nafninu til en þess gætir
nú í æ ríkari mæli að þetta sé að
breytast. Háttsettir embættis-
menn úr utanríkisráðuneytum
aðildarlandanna mæla sér oft og
reglulega mót til að bera saman
bækur sínar.
Stjómvöld í pastursmeiri að-
ildarríkjunum; Frakklandi, Bret-
landi og Vestur-Þýskalandi, hafa
fram til þessa áskilið sér rétt til að
sniðganga ákvarðanir EBE sem
þau telja ganga í berhögg við
hagsmuni sína. En það gerist sí-
fellt sjaldnar að ríkisstjómimar
hunsi samþykktir bandalagsins
og þær fela því jafnt og þétt aukin
völd.
Árið 1974 var sá siður tekinn
upp að leiðtogar aðildarþjóð-
anna hittust tvívegis ár hvert og
ráðguðust um málefni bandalags-
ins. Árið 1979 var þing EBE sett
á laggirnar og fór almennt þing-
kjör fram í öllum aðildarríkjun-
um sama ár. Ennfremur var tekið
upp sérstakt peninga- og
myntkerfi þetta athafnaár.
í hittifyrra var tekið í notkun
sérstakt EBE-vegabréf og í ár, af-
mælisárið, er ætlunin að láta
hendur heldur betur standa fram
úr ermum.
Auka á völd þings og fram-
kvæmdanefndar bandalagsins til
muna og færa ýms mikilvæg mál
beint undir stjórn þess, mál sem
einstök ríki glímdu fymim við
hvert í sínu lagi. Þau helstu þeirra
em umhverfismál og vísinda-
rannsóknir. Jafnframt á að eyða
síðustu hindmnunum úr vegi
fyrir frjálsum ferðalögum ein-
staklinga milli landanna og enn-
fremur verður flutningur fjár-
magns og allskyns vömtegunda
þeirra á milli mönnum heimilað-
ur.
-ks.
Ítalía
Giulio Andreotti varð stjómarmynd-
unin of tormelt.
Andreotti hefur gefist upp
Nýjar kosningar eina lausnin á stjórnarkreppunni íRóm. Andreotti
gefst upp, - og ekkifyrir aðra að reyna
Sennilegt er að í dag verðl
boðað til þingkosninga á Ítalíu.
Heimlldamenn Reuters-
fréttastofunnar sögðu að í gær
hefðl Giullo Andreotti tilkynnt
Cossiga Ítalíuforseta að hálfs-
mánaðartilraunfr til stjórnarm-
yndunar í Róm hefðu mistek-
Ist, og vitmenn um ítalska pó-
litfk telja að fyrst Andreotti gat
ekki þýði lítið fyrir aðra að
reyna. Að réttu lagl hefði fimm-
flokkastjórnin í Róm átt að
sitja ár í viðbót.
Andreotti ætlaði í gær að reyna
í síðasta sinn að ná samkomulagi
milli stjómarflokkanna fjögurra
um nýja stjóm, en líkur vora ekki
taldar vænlegar. Þó var búist við
að Andreotti biði einn dag eða
fleiri með að tilkynna opinber-
lega um uppgjöf þarsem menn
vom að fagna 30 ára afmæli Efna-
hagsbandalagsins í Róm, og að
auki vom sagðar mjög slæmar
fréttir af heilsufari Sandro Pert-
ini, hins vinsæla fyrrverandi for-
seta.
Stjómarkreppan, sem hófst
fyrir um þremur vikum með af-
sögn sósíalistans Bettino Craxi,
var upphaflega afleiðing af fyrra
samkomulagi flokkanna, -uppúr
síðustu stjómarkreppu í
fyrrasumar-, um að kristilegur
demókrati tæki við af Craxi í
mars. Craxi var ekki á þeim bux-
unum að muna eftir þeim samn-
ingi og dró embættaskiptin sem
hann mátti þangaðtil kristilegir
demókratar fóm að hafa í hótun-
um, og síðan hafa sósíalistar
fundið nýrri samstjórn flokkanna
flest í vegi án þess þó að neita
þátttöku og heimta kosningar.
Þverstæðasti biti í hálsi nýrrar
stjómar kristilegra demókrata,
sósíalista, frjálslyndra og lýð-
veldissinna hefur verið fyrirhug-
uð þjóðaratkvæðagreiðsla í
sumar um kjamorkuver og fleira.
Sósíalistar vilja að hún fari fram
og segjast munu halda uppi
flokksafstöðu til þeirra málefna
sem kosið er um, en kristilegir
segja að ef af verði þurfi stjóm-
arflokkamir að standa sameinað-
ir í atkvæðagreiðslunum. Þeir, og
litlu flokkarnir þrír, vilja helst að
ekki fari fram neitt þjóðarat-
kvæði heldur verði sett lög um
málefnin í staðinn, en þessu hafa
Craxi og hans menn þvemeitað.
Málamiðlunartillagan, sem
Andreotti ætlaði að reyna að fá
sósíalista inná í gær, var þannig
að stjómarflokkamir kæmu sér
saman um orkustefnu, þar á með-
al hlé á byggingu kjamorkuvera,
og yrði þjóðaratkvæðið síðan um
þá stefnu, og einungis til ráðgjaf-
ar. Til þess ama þarf að breyta
stjórnarskránni, sem segir þjóð-
aratkvæði aðeins um að afnema
gildandi ákvæði, og er ráðabmgg
Júlíusar Andreotti talið ólíklegt
til árangurs.
Augljóst að stóm flokkarnir
hafa fara kringum stjómarmynd-
unarmálin einsog kettir um
heitan graut til að geta kennt
hvor öðmm um ófarir, þarsem sá
flokkur sem veldur kosningum á
Ítalíu er ekki líklegur til að vinna
á í þeim.
Telja má hinsvegar að Craxi
hafi alltaf gefið nýjum kosning-
um hýrt auga frá því að Ijóst varð
að hann mundi ekki geta orðið
forsætisráðherra áfram. Craxi
hefur getið sér gott orð meðal ít-
ala, enda hefur stjóm hans haldið
lengur út en aðrar eftirstríðs-
stjómir og ítölum á stjómartím-
anum vaxið efnahagslega ás-
megin sem aldrei fyrr. Sósíalista-
flokkurinn vonast því til að geta
spilað þannig úr spilunum að
hann komist að fylgi til í nám-
unda við kristilega og kommún-
ista, sem nú hafa um og yfir 30%.
Flokkur Craxis er þriðji stærstur,
fékk síðast rúmlega ellefu pró-
sent atkvæða. -m
1
Miðvikudagur 25. mars 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 13