Þjóðviljinn - 26.03.1987, Síða 15
ÍÞRÓTTIR
HandboltilBikar
Þrjú rauðspjöld
r
Handboltil Bikar
Létt hjá
Stjörnunni
Stjarnan átti ekki í miklu erfíð-
leikum með Fylki í 8-liða úrslitum
bikarkeppninnar. Stjarnan sigr-
aði 22-31 í slökum leik.
Stjarnan haföi yfirhöndina all-
an leikinn og staðan í hálfleik var
10-15. Hannes Leifsson skoraði
flest mörk Stjömunnar, 10, Gylfi
Birgisson 7 og þeir Sigurjón Guð-
mundsson og Skúli Gunnsteins-
son 4 hvor.
Einar Einarsson skoraði flest
mörk Fylkis, 7 og Magnús Gunn-
arsson 6.
HS/lbe
Knattspyrna
Prír Víkingar fengu rautt spjald
þegar Víkingar unnu nauman sigur
gegn ÍBV, 18-21 í Vestmannaeyjum, í
bikarkeppninni í handbolta.
Leikurinn var jafn en Víkingar
höfðu þó lengst af undirtökin. í hálf-
leik var staðan 13-13. Vest-
mannnaeyingar náðu að jafna aftur,
17-17, þegar um 10 mínútur voru til
leiksloka, en Víkingar tryggðu sér
sigur á lokamínútunum, 18-21.
„Ég hef aldrei kynnst öðru eins,“
sagði Guðmundur Guðmundsson í
samtali við Þjóðviljann eftir leikinn.
Það var greinilegt að Eyjamenn
komu ekki til að spila handbolta og
þetta er í fyrsta sinn sem ég hef verið
sleginn í andlitið að yfirlögðu ráði.“
Árni Indriðason þjálfari Víkinga tók í
sama streng: „Það eru villidýr í
Eyjum, gróf villidýr sem hafa ekki
áhuga á að spila handbolta.“
Eyjamenn vildu meina að leikurinn
hefði ekki verið harðari en gengur og
gerist. „Víkingar eiga ekki að vera að
væla þó þeir mæti smá mótspyrnu og
ég held að þetta sýni á hvaða stigi 1.
deildarkeppnin er. Víkingar eru ekki
vanir því að fá mótspyrnu," sagði Páll
Scheving. Eyjólfur Bragason sagði:
„Ég er mjög undrandi á framkomu
Víkinga. Við spiluðum fasta vörn,
það var allt og sumt.“
Hilmar Sigurgíslason fékk rautt
spjald fyrir að sparka í markvörð
Éyjamanna eftir samstuð og Guð-
mundur Guðmundsson og Árni Frið-
leifsson fyrir að slá frá sér undir lok
leiksins.
Mörk IBV: Þorsteinn Viktorsson 6, Eyj-
ólfur Bragason 3, Sigurbjörn Óskarsson 3,
Jóhann Pótursson 3, Óskar Brynjarsson 1,
Páll Scheving 1 og Sigurður Friðriksson 1.
Mörk Vfklngs: Karl Þráinsson 5, Árni
Friðleifsson 4, Bjarki Sigurðsson 4, Siggeir
Magnússon 2, GuðmundurGuðmundsson
2, Árni Indriðason 2 og Hilmar Sigurgísla-
son 1.
JR/Vestmannaeyjum
Jafnt í
Handbolti/ Bikar
FH-ingar úr leik
Grikkir eru enn efstir í 5. riðli
Evrópukeppninnar í knattspyrnu
eftir jafntefli 1-1 gegn Hollandi.
Saravakos náði forystunni fyrir
Grikki á 6. mínútu en Arnold
Muhren jafnaði fyrir Holland á
55. mínútu.
Þá sigraði Rúmenía Albaníu 5-
1 í 1. riðli.
Einnig voru nokkrir vináttu-
landsleikir. Sviss sigraði Tékkó-
slóvakíu 2-1, Vestur-Þýskaland
sigraði ísrael 2-0, Júgóslavía
vann Austurríki 4-0 og Tyrkland
sigraði Austur-Þjóðverja 3-1.
-Ibe/Reuter
Framarar tryggðu sér sæti í
undanúrslitum Bikarkeppninnar
með sigri gegn FH, 25-24 í æsi-
spennandi leik sem undarleg
dómgæsla setti svip sinn á.
FH-ingar voru lengst af yfir, en í
hálfleik var staðan 10-11 FH í vil.
Framarar voru öllu ákveðnari í síðari
hálfleik og með góðri baráttu tókst
þeim að vinna upp forskot FH-inga.
Þeir náðu forystunni 24-22 og þegar
tæp mínúta var til leiksloka var staðan
25-24 Fram í vil og þeir með boltann.
Birgir Sigurðsson skaut yfir þegar 38
sekúndur voru til leiksloka, en FH-
ingum tókst ekki að nýta lokasekúnd-
urnar og Guðmundar A Jónsson
varði skot Héðins Gilssonar á loka-
sekúndunum.
Agnar Sigurðsson og Guðmundur
A. Jónsson voru bestu menn Fram og
Birgir Sigurðsson var sterkur í vörn-
inni.
Héðinn Gilsson átti góðan leik fyrir
FH og þeir Óskar Ármannsson og
Pétur Petersen áttu góða spretti.
Guðjón Sigurðsson og Hákon Sig-
urjónsson dæmdu leikinn og gekk á
ýmsu hjá þeim félögum. Þeir gerðu
nokkuð mikið af því að stöðva leikinn
of snemma og voru FH-ingar ekki
hressir með það, enda má segja að
hallað hafi á þá í dómgæslunni.
Mörk Fram: Júlíus Gunnarsson 5, Agn-
ar Sigurðsson 5, Per Skaarup 4, Birgir Sig-
urðsson 4, Ragnar Hilmarsson 3, Ólafur
Vilhjálmsson 2, Hermann Bjömsson 1 og
Tryggvi Tryggvason 1.
Mörk FH: Hóðinn Gilsson 8, Pétur Pet-
ersen 5, Óskar Ármannsson 5, Þorgils Ótt-
ar Mathiesen 3, Gunnar Beinteinsson 2 og
Guðjón Árnason 1. HS/lbe
Jakob Slgurbsson og Jón Þórir Jónsson háðu marga hildi í leiknum. Mynd: E.ÓI
Handbolti/Bikar
Naumt hjá Valsmönnum
Síðustu mínútur seinni hálfleiks í
leik Breiðabliks og Vals voru æsi-
spennandi. Þcgar um 3 mfnútur voru
til leiksloka var staðan 22-25, Vals-
mönnum í vil. Þá kom Þórir Siggeirs-
son inná í mark Blikanna og varði tvö
viti á lokamínútum. Blikar náðu að
jafna 25-25 og komast þannig í fram-
lengingu en það dugði ekki til því
Valsmenn unnu leikinn 30-28.
Leikurinn var jafn framan af en
Valsmenn leiddu þó alltaf með 1-2
mörkum. Um miðjan fyrri hálfleik
sigu þó Valsmenn “hægt og hljótt“
frammúr Blikum og hreinlega yfir-
spiluðu þá. Valsvörnin small saman á
þessum kafla og sóknir þeirra mjög
markvissar. Staðan í hálfleik var 15-
11 Val í vil.
Blikar komu ákveðnir til leiks í
seinni hálfleik. Þegar um tíu mínútur
voru liðnar af leiknum voru þeir búnir
að minnka muninn í eitt mark 18-19.
Valsmenn tók nú aftur á og komust 4
mörk yfir. Nú fór leikurinn að æsast.
Blikar tóku nú tvo menn úr umferð þá
Júlíus Jónasson og Stefán Halldórs-
son. Við það riðlaðist sókn Vals og
Blikar sigu á. Nú voru Blikar kontnir í
ham og eftir venjulegan leiktíma var
staðan 25-25.
Nú var leikurinn framlengdur um
2x5 mínútur. Blikar byrjuð framleng-
inguna og yfir í fyrsta skiptið í
leiknum. Valsmenn svöruðu strax
fyrir sig með tveimur mörkum, en
Blikar náðu að jafna og staðan í hálf-
leik framlengingarinnar var jöfn 27-
27. Valur skoraði tvö mörk í röð og
gerðu þar með út um leikinn. Leikur-
inn endaði svo 30-28 fyrir Val.
Markmenn Breiðabliks þeir Guð-
mundur Hrafnkelsson og Þórir Sigg-
eirsson voru bestir ásamt horna-
mönnunum Jóni Þóri Jónssyni og
Þórði Davíðssyni.
Það er ekki hægt að taka neinn út
úr Valsliðinu því þeir stóðu sig allir
mjög vel.
Ó.St.
Mörk Breiöabliks: Jón Þórir Jónsson
11, Þórður Davíðsson 6, Kristján Halldórs-
son 3, Björn Jónsson 3, Svafar Magnús-
son 3, Aðalsteinn Jónsson 1 og Poul Dem-
psey 1.
Mörk Vals: Stefán Halldórsson 10, Jak-
ob Sigurðsson 8, Valdimar Grímsson 7,
Geir Sveinsson 2, Júlfus Jónasson 2 og
Gunnar Sigurðsson 1.
Oylfl Þorfcelsson skorar eina af fjölmörgum körfum sínum, en Leifur Gúst-
afsson virðist vera á leið út úr myndinni. Mynd:E.ÓI.
Körfubolti
Stórleikur Gylfa
í síðari hálfleik
tryggði Keflvíkingum sigur gegn Val
Keflvíkingar geta þakkað
Gylfa Þorkelssyni sigur þeirra
gegn Val í úrslitakeppninni í
körfubolta. Keflvíkingar sig-
ruðu, 73-84 og sautján stig frá
Gylfa vógu þungt í síðari hálfleik.
Leikurinn var jafn og skemmti-
legur og góð stemning í Seljaskól-
anum. Keflvíkingar náðu foryst-
unni strax í byrjun og héldu henni
nær allan leikinn. í fyrri hálfleik
var munurinn lengst af 5-10 stig,
en þó náðu Valsmenn tvívegis að
minnka muninn í tvö stig.
Valsmenn byrjuðu síðari hálf-
leikinn vel og náðu að jafna. En
smátt og smátt náðu Keflvíkingar
yfirhöndinni að nýju. En Vals-
menn voru ekki af baki dottnir og
lokamínúturnar voru æsispenn-
andi. Valsmenn náðu að minnka
muninn og þegar tæpar tvær mín-
útur voru til leiksloka var staðan
68-76, Keflvíkingum í hag. Tóm-
as Holton og Einar Olafsson
minnkuðu muninn í þrjú stig þeg-
ar ein og hálf mínúta var til leiks-
loka. Þá misstu Keflvíkingar
boltann og Valsmenn áttu færi á
að jafna. En ónákvæmar send-
ingar færðu Keflvíkingum tvö
hraðaupphlaup sem Gylfi Þor-
kelsson skoraði úr og Guðjón
Skúlason bætti við tveimur körf-
um og innsiglaði sigur
Keflvíkinga, 73-84.
Síðari hálfleikurinn var mjög
fjörugur og jafn. Keflvíkingar
höfðu þó yfirleitt undirtökin, en
góðir kaflar Valsmanna héldu
leiknum opnum.
Seljaskóli 25. mars
Valur-ÍBK 73-84 (36-38)
2-2, 6-16, 15-25, 27-29, 36-38, 40-40,
49-55, 62-63, 68-76, 73-76, 73-84.
Stig Vals: Tómas Holton 28, Sturia
örlygsson 16, Einar Ólafsson 12,
Leifur Gústafsson 10, Torli Magnús-
son 3, Páll Arnar 2 og Björn Zoega 2.
Stlg IBK: Guðjón Skúlason 20, Gylfi
Þorkelsson 19, Ólafur Gottskálksson
17, Sigurður Ingimundarson 12,
Hreinn Þorkelsson 10 og Jón Kr.
Glslason 6.
Dómarar: Jön Otti Ólafsson og Jó-
hann Dagur-slakir.
Maöur lelkaina: Gylfl Þorkelsson,
IBK.
Gylfi Þorkelsson átti stórleik
fyrir Keflvíkinga í síðari hálfleik.
Hitti vel og var sterkur í vörninni.
Hann skoraði 19 stig í leiknum
þar af 17 í síðari hálfleik. Guðjón
Skúlason stóð sig mjög vel í fyrri
hálfleik og sama má segja um Sig-
urð Ingimundarson. Þá átti
Ólafur Gottskálksson góðan leik.
Valsmenn gerðu nokkuð af
mistökum í sókninni og vömin
hefur oft verið sterkari. En þrátt
fyrir það áttu þeir nokkuð góðan
leik. Tómas Holton var bestur í
liði Valsmanna, hitti mjög vel. Þá
áttu þeir Sturla Örlygsson og
Leifur Gústafsson góðan leik.
Með þessum sigri tryggðu
Keflvíkingar sér þriðja leikinn,
um hvort liðið mætir Njarðvík-
ingum 1 úrslitaleik íslandsmóts-
ins. Liðin leika því aftur á laugar-
daginn í Keflavík.
-Ibe
BYGGINGA
viSrur
Þú býrö kannski ekki til
naglasúpu úr nöglunum sem
fást í byggingavörudeildinni,
jafnvel þó úrvalið sé mikiö.
En þaö er þægilegt aö grípa
með sér nagla eða skrúfur
um leið og keypt er í matinn.
HAGKAUP
Fimmtudagur 26. mars 1987 i ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 15
Skeifunni