Þjóðviljinn - 26.03.1987, Side 16
þiömnuiNN
Fimmtudagur 26. mars 1987 71. tölublað 52. órgangur
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Eg tel að faðír minn eigi einskis
annars úrkosts en að fara í
sérframboð,“ sagði Helena Al-
bertsdóttir í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær, en Albert Guðmunds-
son mun gefa endanlega yfirlýs-
ingu um það í dag hvort hann gef-
ur kost á sér í framboð fyrir Borg-
araflokkinn. Undirbúningur
framboðs er langt kominn í öllum
kjördæmum og flest bendir til
þess að Albert ákveði að fara í
sérframboð, ekki síst eftir þær yf-
irlýsingar Þorsteins Pálssonar að
hann eigi ekki lengur möguleika á
ráðherradómi innan Sjálfstæðis-
flokksins.
„í ljósi síðustu yfírlýsinga Þor-
steins að nafn Alberts verði ekki
á ráðherralista flokksins að lokn-
um kosningum, þrátt fyrir að
hann sé nógu góður til að leiða
kosningabaráttuna í Reykjavík,
kemur tæpast annað til greina en
að bjóða fram. Ella væri Albert
Stuðningsmenn Alberts œfir útíÞorstein. Helena Albertsdóttir: Sérframboð
einaleiðin. Þorsteinn Pálssonhugsanlegaflutturhreppaflutningum
og settur ífyrsta sœtið í Reykjavík
gerður pólitískt óvirkur,“ sagði
Helena Albertsdóttir.
„Úr þessu fær Albert ekki upp-
reisn æru nema að leggja málið
undir dóm fólksins - hinn eina
sanna hæstarétt,“ sagði Ásgeir
Hannes Eiríksson, verslunar-
maður og einn dyggasti stuðn-
ingsmaður Alberts Guðmunds-
sonar, fyrrum iðnaðarráðherra.
„Okkur er ekkert að vanbúnaði,
við bíðum eftir grænu ljósi frá Al-
bert,“ sagði Ásgeir Hannes í gær-
kvöld.
Mikiil titringur er nú innan for-
ystu Sjálfstæðisflokksins vegna
4>ess hve formaður flokksins Þor-
steinn Pálsson hefur „farið
klaufalega með mál Alberts“,
eins og einn forystumanna
flokksins orðaði það í gær. Þor-
steinn og helstu ráðgjafar hans í
málinu, þeir Friðrik Sophusson
varaformaður, 2. maður á listan-
um í Reykjavík, og Geir Haarde
aðstoðarmaður Þorsteins og
fyrrum aðstoðarmaður Alberts
liggja undir hörðu ámæli vegna
framgöngu sinnar því um allt land
óttast frambjóðendur flokksins
væntanlegt sérframboð Alberts-
manna.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er rætt um að Þorsteinn
Pálsson fari í 1. sætið í Reykjavík,
gangi Albert út af listanum.
Hann fundaði með stuðnings-
mönnum sínum fyrir austan fjall í
gær en þar er orðið mjög heitt í
kolunum því margir stuðnings-
manna Eggerts Haukdal vilja að
hann fari fram á lista Alberts
gegn Þorsteini.
Helena Albertsdóttir á heimili foreldra sinna (gær. Skeyti frá stuðningsmönnum á við vænan skeytabunka úr tveimur
stórafmælum. Mynd E.ÓI.
Kennaradeilan
m
stendur fast
Gunnlaugur
Ástgeirsson: Það
hefur ekkert gerst og
ekkifyrirsjáanlegt að
neittgerist
„Ég skil ekkert í hvað rflds-
valdið ætlast fyrir með skólahald
í landinu. Það má vera ljóst að við
getum ekki samið nema samn-
ingamenn rfldsins breyti eitthvað
sínu tilboði og bjóði einhverjar
raunverulegar hækkanir,“ sagði
Gunnlaugur Ástgeirsson í samtali
við Þjóðvfljann f gærkvöld.
Gunnlaugnr sagði að samn-
ingamenn ríkisins hefðu hingað
til staðið fast á sínu og meðan svo
væri, yrði ekki annað séð en að
skólarnir yrðu lokaðir fram á vor.
Sagði hann að kennarar væru að
undirbúa úthlutanir úr verkfalls-
sjóði. Þeir hefðu einnig haft sam-
band við félaga sína á hinum
Norðurlöndunum.
„Aðalábyrgðarmaður þessa og
aðal viðsemjandi okkar heitir
Þorsteinn Pálsson og hann hefur
nú verið upptekinn í öðru upp á
síðkastið, en við vonum að hann
gefi sér smá tíma til að hugsa sitt
ráð.“
Framhaldsskólanemendur þeir
sem hófu mótmælasetu í fjár-
málaráðuneytinu í fyrradag
héldu út hungurvökuna í fyrri-
nótt og enn í gærkvöld þegar
blaðið fór í prentun. Sögðust
nemendurnir ætla að halda út þar
til samið yrði og skólahald hæfist
að nýju.
-sá'
Kjaradeilur
Enn versnar ástandið
Ósamið við 1 ófélög í BHM og 12félög í BSRB. Fjögurfélög eru í
verkfalli, sex bœtastvið efekkisemst. Neyðarástand verðurá
sjúkrahúsum. Læknaráð Landspítalans: Þjóðarváfyrir dyrum
Stoðunum hefur verið kippt
undan mikllvægustu heil-
brigðisstofnun landsins og
heilbrigðisþjónustunni stefnt í
ógöngur. Meðal annars mun
starfsemi Blóðbankans lamast.
Þar með verða skurðlækningar
að mestu aflagðar á öllum sjúkra-
húsum landsins. Einnig blóðgjaf-
ir fyrir slasaða og sjúklinga með
krabbamein. Þessari vá verður
að bægja frá, segir m.a. í harð-
orðri yfírlýsingu sem læknaráð
Landsspítalans sendi frá sér f
gær.
537 sjúkraliðar á höfðuborgar-
svæðinu ganga út af sjúkrastofn-
unum í byrjun næstu viku en þeir
hafa sagt upp störfum. Fyrir eru í
verkfalli háskólamenntaðir
hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálf-
arar og sálfræðingar og í næstu
viku skellur á verkfall iðjuþjálfa,
matvæla- og næringarfræðinga,
náttúrufræðinga og bókasafns-
fræðinga.Nær allir félagsmenn í
ofangreindum félögum sem
starfa við ríkisspítalana hafa sagt
upp störfum sínum frá l.apríl,
samtals um 140 manns.
Fyrir viku slitnaði upp úr við-
ræðum við sjúkraþjálfara, en í
gær var svo haldinn fundur með
þeim hjá sáttasemjara ríkisins.
Þá var einnig fundað með fé-
lagsráðgjöfum, símamönnum,
heilsugæslulæknum, málurum,
múrurum, veggfóðrurum og
pípulagningamönnum.
Enginn fundur hefur verið
boðaður með hjúkrunarfræðing-
um síðan á mánudag, en fundað
var með náttúrufræðingum í
fyrradag og annar fundur er boð-
aður í dag.
Ljóst er að ef til verkfalla og
uppsagna heilbrigðishópanna
kemur verður nánast neyðar-
ástand á sjúkrahúsum. BHM-
hópamir sjö hafa sett á stofn að-
gerðanefnd vegna fjöldaupp-
sagnanna og einn nefndarmanna,
Ingileif Jónsdóttir náttúrufræð-
ingur, sagði í samtali við Þjóðvilj-
ann að þau litu á þessa deilu sem
vinnustaðadeilu við stjórn ríkis-
spítalanna.
„Við sögðum upp fyrir 6 mán-
uðum, síðan var fresturinn fram-
lengdur um 3 mánuði, en í allan
þennan tíma hefur stjómin ekki
látið svo lítið að boða fund með
okkur til að kanna samkomu-
lagsgmndvöll," sagði Ingileif.
„Við viljum fá kjarabætur í ein-
hverju formi til jafns við aðra
háskólamenntaða starfsmenn án
breytinga á kjarasamningum.“
Utganga sjúkraliða mun lama
starfsemi sjúkrahúsanna að
miklu leyti og að sögn Sigríðar
Kristinsdóttur sjúkraliða er á-
standið nú í dag mjög erfítt, með-
al annars í heimahjúkrun eftir að
90 sjúklingar vom sendir heim
vegna verkfalls hjúkmnarfræð-
inga og mun það versna enn eftir
útgöngu sjúkraliðanna. Deila
þeirra er nú komin til sáttasemj-
ara en enginn fundur hefur verið
boðaður enn.
-vd.
Sjá nánar á síðu 3.
Albertsmálið
Sérframboð eina lausnin