Þjóðviljinn - 20.05.1987, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 20. maí 1987 112. tölublað 52. örgangur
I
Burðarþol bygginga
Hrikaleg niðurstaða úr athugun á burðarþoli nýlegra
stórbygginga íReykjavík. Teikningar vantar hjá
byggingafulltrúa. Kunnáttu hönnuða í burðarþolsfrœðum
stórlega ábótavant
Útflutningur
Lýsið út
um allt
Sala á lýsisflöskum eykst
og eykst. Islenskt lýsi til
yfir 30 landa víðs vegar
um heim
„Sala á lýsisflöskum hér innan-
lands hefur aukist um 30% á síð-
ustu misserum og við seljum það
til 30-40 landa víðs vegar um
heiminn,” segir Ágúst Einarsson,
forstjóri Lýsis hf.
Fyrirtækið framleiðir þrjár teg-
undir af lýsi: Þorska- og ufsalýsi
og mintu- og ávaxtalýsi. Var haf-
in framleiðsla á síðast nefnda lýs-
inu til þess að fólk, sem væri illa
við hefðbundna bragðið, hefði
eitthvað annað upp á að hlaupa
og hafa viðtökurnar verið mjög
góðar.
Sagði Ágúst að það væri greini-
leg hreyfing á mörkuðunum er-
lendis og þá sérstaklega vegna
þess hve vel væri skrifað um það í
blöð og tímarit sem nauðsynlega
hollustuvöru.
Lifrina fær Lýsi hf. frá
saltfiskverkunarstöðvum suður
með sjó en einnig frá lifrarbræð-
slum víðs vegar um landið.
grh
Ekkert húsanna stenst að öllu
leyti settar kröfur um burðar-
þol þött nokkur húsanna hafi ver-
ið valin í þeirri von að þau gerðu
það. Auk þess er undrunarefni sá
skortur á gögnum hjá bygginga-
fulltrúanum í Reykjavík sem
fram kom við þessa athugun.”
Þessi hörðu orð standa í
skýrslu verkfræðinganefndar sem
athugaði burðarþol nokkurra
bygginga með tilliti til teikninga
að tilhlutan félagsmálaráðherra,
en skýrslan var kynnt á frétta-
mannafundi í gær. Könnunin
náði til bygginga á Reykjavíkur-
svæðinu og sagði ábyrgðarmaður
skýrslunnar, Hafsteinn Pálsson
verkfræðingur hjá Rannsókna-
stofnun byggingaiðnaðarins að
engar af þeim byggingum sem
skoðaðar voru hefðu staðist að
fullu kröfur íslenskra staðla um
burðarþol.
Athuguð voru 10 hús á Reykja-
víkursvæðinu sem öll eru nýleg
og annað hvort verslunar og
skrifstofu-, eða skólahús. í einu
tilfelli voru teikningar ekki til hjá
byggingafulltrúa og í flestum til-
fellum vantaði burðarþolsteikn-
ingar og útreikninga. í sumum til-
fellum var ljóst af teikningum að
húsin væru það léleg að þau
stæðu vart undir sjálfum sér,
hvað þá að þau þyldu jarð-
skjálfta.
Alexander Stefánsson fé-
lagsmálaráðherra sagði í gær að
herða þyrfti verulega eftirlit með
þolhönnun húsa og reglur sem
gilda um löggildingu hönnuða
þar sem í þessu tilliti hefði orðið
neikvæð þróun hérlendis undan-
farin ár. Hann sagði að brýnt væri
að endurskoða einnig núgildandi
staðla og gera þolhönnunarstaðla
sem nú eru ekki til.
Á fundinum kom fram að
ástæða væri til að ætla að mörg
íbúðarhús, bæði ein- og fjölbýlis-
hús uppfylltu ekki lágmarkskröf-
ur hvað varðar burðarþol, en þó
væru þau líkast til sterkari al-
mennt en skóla- og iðnaðarhús-
næði, þar sem meir er af veggjum
í íbúðarhúsnæði. sá.
Sum húsin eru svo léleg að þau
standa varla undir sér hvað þá að þau
standist jarðskjálfta, segir í skýrslu
burðarþolsnefndarinnar. Niðurstöður
hennar benda til þess að hús séu
teiknuð án tillits til burðarþolsstaðla,
og eftirlit með byggingum sé slælegt.
Utan við Rúgbrauðsgerðina rétt fyrir átta í gærkvöld. Þrír þingmenn Kvennalist-
ans ganga af fundi Þorsteins eftir rúmlega sex tíma setu samtals: Kristín
Einarsdóttir, Guðrún Agnarsdóttirog DanfríðurSkarphéðinsdóttir. (mynd: Sig.)
Stjórnarmyndun
Sjálfstæðisflokkurínn
talar viö Albert
Langar könnunarviðrœður Sjálfstæðisflokks og Kvennalista
ígœr. Albert knýrfram viðurkenningufrá Porsteini með
hugmynd um DBS-stjórn
Búist er við að Þorsteinn Páls-
son hafi í dag samband við Al-
bert Guðmundsson og bjóði hon-
um til könnunarviðræðna eftir að
þingflokkur Borgaraflokksins
kúventi í fyrrakvöld og lýsti vilja
til að koma til liðs við núverandi
stjórnarflokka með því skilyrði
að Steingrímur verði forsætisráð-
herra og ekki Þorsteinn.
Þorsteinn lýsti því yfir í gær að
hann ætlaði sér að ræða við Borg-
araflokkinn, en hafði áður ekki
minnst á slíkan fund. í gærkvöldi
hafði þó enn ekki verið haft sam-
band við Albert.
Yfirlýsing Borgaraflokksins
um stjórnarvilja kemur fram á
þeim tíma að Þorsteinn á erfitt
með að sniðganga Albert og fé-
laga, þarsem slíkt yrði hægtúlkað
sem svo að Þorsteinn hafnaði
hugsanlegum stjórnarkosti að ó-
reyndu.
Yfirlýsingin eykur enn á glund-
roða innan þingflokks Sjálfstæð-
isflokksins þarsem uppi eru ýmis-
legar skoðanir um samstarfs-
menn og málefnagrunn. Þing-
flokkurinn kemur væntanlega
saman í dag eða á morgun, og
eftir það gerir Þorsteinn sam-
kvæmt hefð annað tveggja, boðar
til formlegra viðræðna þriggja
flokka eða skilar umboði sínu.
í allan gærdag sátu þeir Þor-
steinn og Friðrik Sophusson á
fundi með kvennalistaþingmönn-
unum Danfríði Skarphéðinsdótt-
ur, Guðrúnu Agnarsdóttur og
Kristínu Einarsdóttur. Viðræðu--
menn eru að venju fámálir um
gang mála, en Kristín Einarsdótt-
ir sagði eftir fundinn að efnahags-
mál hefðu tekið mestan tíma.
Drepið hefði verið á flesta mála-
flokka, en fátt rætt um hugsan-
legt stjórnarmynstur. Ljóst er þó
að af hálfu Sjálfstæðisflokksins er
með viðræðum við Kvennalista
verið að hugsa fyrst og fremst um
stjórn með honum og Alþýðu-
flokki.
Málefnasamstaða Kvennalista
og Sjálfstæðisflokks þykir öðrum
pólitíkusum ekki sennileg, en
Danfríður sagði þó í fundarhléi í
Rúgbrauðsgerðinni í gær að
„fleiri og fleiri gera sér ljóst að
reynsluheimur kvenna er raun-
veruleiki“.
Á meðan Þorsteinn Pálsson
klárar sína umboðshringferð
mun Vigdís forseti hafa notað
tímann til óformlegra samtala við
ýmsa stjórnmálamenn sem ekki
standa í fremstu stjórnarmynd-
unarvíglínu í flokkum sínum.
-m
Lánskjaravísitalan
Verðbólgukippur
Lánskjaravísitalan hækkaði Umreiknuð til síðustu þriggja
um 1,50% frá síðasta mánuði mánaða er hún 19,4% og til síð-
samkvæmt útreikningi Seðla- ustu 12 mánaða 16,5%. Það er
bankans og var þá verðbólgan í því ljóst að hún er að taka hressi-
síðasta mánuði umreiknuð til árs- legan kipp.
hækkunar 19,6%. _s£.