Þjóðviljinn - 20.05.1987, Side 3
Fíkniefni
FRÉTTIR
Fyrstufjóra mánuði ársins var lagt
hald á 1344 grömm afhassi á móti rúm-
lega tíu þúsund allt árið ífyrra. 168 hafa
verið yfirheyrðir hjáfíkniefnadeildinni,
þar af45 atvinnuleysingjar, fimm hús-
mæður og níu sjálfstœðir atvinnurek-
endur
Amfetamín
á undanhaldi
Kristín Steinsdóttir tekur við fyrstu verðlaunum og fyrsta eintaki bókar sinnar Fransbrauð með sultu úr hendi Ólafs
Ragnarssonar bókaútgefanda. Á bak við þau stendur Ármann Kr. Einarsson barnabókahöfundur. (mynd E.ÓI.)
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka
Fransbrauð með sultu
Kristín Steinsdóttir hlautfyrstu verðlaun fyrir bók sína Fransbrauð
með sultu. Saga um börn á síldarárunum á Austfjörðum
Igær voru íslensku barnabóka-
verðlaunin veitt í annað sinn og
hlaut Kristín Steinsdóttir fyrstu
verðlaun fyrir barnabókina
Fransbrauð með sultu en á þriðja
tug handrita bárust í árlega sam-
keppni sjóðsins. Nema verð-
launin 50 þúsund krónum. í fyrra
hlaut Guðmundur Ólafsson
fyrstu verðlaun fyrir bók sína
Emil og Skundi.
Bókin Fransbrauð með sultu
fjallar um líf, starf og ævintýri
barna í kaupstað á Austfjörðum
árið 1955. Lilla fer þangað frá
höfuðborginni í heimsókn til
ömmu sinnar og afa og lendir í
margvíslegum ævintýrum, kynn-
ist skrítnum og skemmtilegum
krökkum og síldarplanið opnar
henni nýja veröld. I bókinni eru
margar myndir eftir Brian Pilk-
ington.
Verðlaunasjóður íslenskra
barnabóka var stofnaður 1985 í
tilefni 70 ára afmælis Ármanns
Kr. Einarssonar og lögðu fjöl-
skylda Ármanns og bókaútgáfan
Vaka fram stofnfé sjóðsins. Til-
gangur sjóðsins er að örva fólk til
að skrifa bækur fyrir börn og
stuðla að auknu framboði ís-
lensks lesefnis fyrir börn og ung-
linga á öðrum árstíma en fyrir jól.
Fransbrauð með sultu er fyrsta
sjálfstæða barnabók Kristínar en
hún hefur áður skrifað smásögur
og í samvinnu við Iðunni systur
sína skrifaði hún leikritið Síldin
kemur og síldin fer. Bókin er gef-
in út í kiljuformi og kostar 685
krónur. í dómnefnd sátu Hildur
Hermóðsdóttir bókmenntafræð-
ingur, Ragnar Gíslason útgáfu-
stjóri og Halldóra R. Tryggva-
dóttir nemandi í Grunnskólanum
í Þorlákshöfn.
-ing
Fyrstu ijóra mánuði ársins hafa
168 manns verið teknir til yfír-
heyrslu hjá fikniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík. Lagt hef-
ur verið hald á 1344 grömm af
hassi (10.383 allt árið í fyrra), 82
grömm af marihuana (272 í
fyrra), 158 grömm af amfetamíni
(1.698 í fyrra), 13,7 grömm af
kókaíni (7,9) og 192 grömm af
hassolíu.
Af þeim 168 sem yfirheyrðir
hafa verið eru 136 karlar en að-
eins 32 konur. Einungis 7 eru
eldri en 38 ára, en 35 manns 21 árs
og yngri hafa verið yfirheyrðir af
fíkniefnadeildinni.
Atvinnuskipting skjólstæðinga
fíkniefnadeildarinnar er sem hér
segir: 45 voru án atvinnu; 40
verkamenn; 23 sjómenn; 18
námsmenn; 10 iðnaðarmenn; 10
verslunarmenn; 3 opinberir
starfsmenn; 5 húsmæður; 9 sjálf-
stæðir atvinnurekendur og fimm
flokkuðust annað.
Óvenju lítið mun nú vera um
amfetamín í umferð en það var
mjög mikið á fíkniefnamarkaðin-
um í fyrra. Kunna glöggir menn
enga skýringu á þessum sam-
drætti en óttast að neysla efnisins
geti aukist með sumrinu.
Heróín hefur ekkert fundist
frekar en endranær og virðist svo
sem það sé alls ekki í umferð hér
nema í litlum mæli. Efnisins hef-
ur aldrei orðið vart hér utan 0,3
grömm árið 1983.
Ameríska tískuefnið „crack”
sem veldur ógn og skelfingu vest-
an hafs virðist ekki hafa borist
hingað.
-bj.
Hvassaleitisskóli
Hert lögreglueftirlit
Girðingin við Hvassaleitisskóla ekki rifin. Herteftirlit
lögreglu ersvar við beiðni íbúa um aðgerðir
Svar borgarráðs við erindi íbúa
við Hvassaleitisskóla um að-
gerðir vegna
mannsins sem
nefndur hefur verið „Hvassaleit-
isdóninn“ er fólgið í hertu eftirliti
Sovétþingmenn
Utrýmingu, ekki tiHærslu
Sovésk sendinefnd œðstaráðsmanna á íslandi: Kafbátatillögur
Weinbergers á skjön við tilgang viðræðna um kjarnavopn íEvrópu.
Gagnlegar samrœður við íslenska þingmenn
Þrír sovéskir æðstaráðsmenn
þökkuðu fyrir sig í gær eftir
nokkurra daga heimsókn á ís-
landi þarsem þeir ræddu við kol-
lega sína á alþingi og skoðuðu sig
um.
í heimsókn sinni lögðu sovésku
þingmennirnir megináherslu á að
kynna og skýra afstöðu Sovét-
manna í kjarnorkuviðræðum
Flugumferðarstjórar
Löglegt
eða ólöglegt
verkfall?
Málið þingfest í dag
„Málflutningur fer fram á
fimmtudag eða föstudag og úr-
skurðar að vænta um helgina,"
sagði Garðar Gíslason forseti
Félagsdóms í gær, en eins og
kunnugt er leitaði fjármálaráðu-
neytið úrskurðar dómsins um
lögmæti boðaðs verkfalls flugum-
ferðarstjóra.
risaveldanna, en í tali þeirra og
íslensku þingmannanna bar við-
skiptamál ríkjanna einnig á
góma.
Á blaðamannafundi í sovéska
sendiráðinu í gær ræddu þing-
mennirnir einkum kjarnorku-
vopnamál, sögðu meðal annars
að Sovétmenn væru fúsir til við-
ræðna um hefðbundinn herafla,
en nýleg krafa af vestrænni hálfu
um að meðaldrægar flaugar í As-
íuhluta Sovétríkjanna yrðu fjar-
lægðar væri hinsvegar annað mál
og snerti kjarnorkujafnvægi í
þeim heimshluta.
Þingmennirnir voru spurðir
álits á þeirri afstöðu Weinberg-
ers, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjastjómar, að fækkun eða út-
rýming meðaldrægra kjarnaf-
lauga í Evrópu hefði í för með sér
meiri umsvif kjarnorkukafbáta á
Norðurhöfum. Var því svarað til
að Sovétmenn vildu ræða fyrst
um fækkun eða útrýmingu ák-
veðinna tegunda kjarnavopna,
en slíkt ætti ekki að leiða til
aukningar á öðrum sviðum kjarn-
orkuvígbúnaðar. Það þyrfti að
„frysta“ aðrar tegundir kjarna-
vopna meðan reynt væri að ná
samkomulagi á einu sviði. „Við
lögreglu á þessu svæði. Tillaga
Sigurjóns Péturssonar um þetta
efni var samþykkt á fundi borg-
arráðs í gær.
íbúar við Hvassaleitisskóla
hafa verulegar áhyggjur af því að
skjólgirðing við skólann bjóði
heim hættunni á kynferðislegri
áreitni við börn, eins og dæmin
sanna. Uppi hafa verið raddir um
að rífa þyrfti girðinguna, en ekki
verður brugðið á það ráð að svo
stöddu að minnsta kosti, enda er
það sameiginlegur skilningur
allra aðila að vandamálið sé mað-
urinn og hegðan hans, en ekki
girðingin.
Hins vegar verður eins og áður
sagði farið fram á hert eftirlit lög-
reglu á svæðinu. Dugi það ekki
verður væntanlega gripið til ann-
arra ráðstafana til þess að draga
úr hættu á því að börnum sé sýnd
kynferðisleg áreitni við skólann.
-gg
Sovésku æðstaráðsmennirnir á blaðamannafundi í sendiráði sínu í gær:
Skáldið Égor Isajef, ritari sovéska rithöfundasambandsins, Jan Vagris, forseti
lettneska æðstaráðsins og varaforseti æðstaráðsins í Moskvu, og Roald Sag-
dejef framkvæmdastjóri geimrannsóknarstofnunarinnar í Moskvu. Mynd: Sig.
erum að ræða um útrýmingu,,
ekki tilfærslu".
Þeir sögðu aðspurðir að efa-
laust væri samhengi milli ný-
sköpunarstefnu Gorbatsjofs í
innanlandsmálum og sovéskra af-
vopnunartiilagna síðustu misseri,
og þá fyrst og fremst í almennum
breytingum á pólitískum hugsun-
arhætti og auknum hreyfanleika í
sovéskri afstöðu. Einnig væri
ljóst að Sovétmenn hefðu síður
en svo hag af vopnakapphlaup-
inu, sérstaklega í ljósi þeirra fé-
lagslegu og efnahagslegu umbóta
sem nú stæðu yfir.
Sovéska sendinefndin þakkaði
viðtökur allar á íslandi og hrósaði
íslenskum þingmönnum fyrir að
vera vel með á nótum í afvopnun-
armálum.
Dagvistun
15%
hækkun
1m r r
. jum
Borgarráð ákvað í gær að
hækka dagvistargjöld í borginni
um 15% frá og með 1. júní næst
komandi.
Hækkunin var afgreidd frá
stjórn Dagvistar í fyrradag og var
þar samþykkt með fjórum at-
kvæðum, en Kristín Á. Ólafs-
dóttir, fulltrúi Alþýðubandalags-
ins. sat hjá.
I borgarráði í gær greiddu full-
trúar Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks atkvæði með hækk-
uninni, en Sigurjón Pétursson
Alþýðubandalagi sat hjá.
-gg
Mlðvikudagur 20. mai 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3