Þjóðviljinn - 20.05.1987, Page 7
MENNING
Leiklist
Viðurkenning fyrir framsögn
Halldór Björnsson leikari hlýtur viðurkenningu í minningu Lárusar Pálssonar
fyrir framsögn frá Félagi íslenskra leikara
Við skólaslit Leiklistarskóla
íslands á dögunum vakti það
athygli að Félag íslenskra
leikara veitti einum þeirra
nemenda sem í vor útskrifuð-
ust úr Nemendaleikhúsinu
sérstaka viðurkenningu fyrir
framsögn. Varviðurkenning
þessi veitt í minningu Lárusar
Pálssonar og hlaut hana Hall-
dór Björnsson sem um þessar
mundir leikur Rúnar í finnska
leikritinu Rúnarog Kyllikki
eftir Jussi Kylatasku sem
Nemendaleikhúsið sýnir.
„Þetta er í fyrsta skipti sem,
þessi viðurkenning er veitt og
auðvitað er mjög gaman að hljóta
hana,“ sagði Halldór. „Mér skilst
að hugmyndin á bak við þessa
viðurkenningu sé að vekja um-
ræðu um framsögn og mögu-
leikinn að fá þessa viðurkenningu
hlýtur að verka hvetjandi á nem-
endur Leiklistarskólans. Einn út-
skriftarnemandi fær þessa viður-
kenningu héðan í frá og skólinn
fær skjöld þar sem nöfn þeirra
nemenda sem fá viðurkenning-
una verða grafin. Viðurkenning-
argripurinn er gullhringur sem á
er grafið „Lárusarviður-
kenning‘% ártalið og svo Leiklist-
argrímurnar og það er mjög vel
við hæfi vegna þess að í leiklistar-
skóla Lárusar Pálssonar gengu
nemendur gjarnan með hringa
sem í voru grafnar leiklistargrím-
urnar og stafirnir LLP.“
Aðspurður um hvort hann
hefði leikið eitthvað áður en
hann fór í Leiklistarskólann sagð-
ist Halldór fyrst hafa byrjað 10
ára á árshátíð í barnaskólanum
og haldið því áfram svo til sam-
fellt síðan. „í menntaskóla lék ég
líka í skólaleikritum og í Atóm-
stöðinni sem Bríet Héðinsdóttir
setti upp hjá Leikfélagi Akur-
eyrar. Henni þótti ég ekki hafa
nógu góða framsögn og þegar ég
átti að segja „æskulýðshöll“ þá
spurði hún gjarnan hvaða ull það
væri.“
Halldór sagðist hlakka til að
vera búinn með skólann og fara
að reyna vængina. „Maður er bú-
inn að vera svo lengi innan þess
ramma sem skólinn er að það er
kominn tími á okkur að komast
að því hvort og þá hvað við fáum
að gera. í skólanum höfum við
fengið tækifæri til að takast á við
bæði stór og smá verkefni og þess
er gætt að nemendur fái að
spreyta sig á að leika sem fjöl-
breyttastar manngerðir. Svo er
bara að sjá til hvað gerist."
-ing
Samþykkt Alþýðubandalagsins á Seyðisfirði
Halldór Björnsson leikari fékk Lárusarviðurkenningu fyrir framsögn frá Félagi íslenskra leikara við skólaslit Leiklistar-
skólans en Halldór leikur Rúnar í leikriti Nemendaleikhússins Rúnar og Kyllikki.
Vantar
sérstöðu
í kjölfar kosningaúrslitanna
virðist hafa gætt nokkurs
taugatitrings í röðum Alþýðu-
bandalagsmanna, og þá kannski
sérstaklega meðal einstakra for-
ystumanna flokksins. Hafa menn
leitast við að finna skýringar á
þeirri útreið sem Alþýðubanda-
lagið fékk í nýafstöðnum kosn-
ingum, og sýnist sitt hverjum.
Það er ljóst, Alþýðubandalags-
mönnum sem öðrum, að skýring-
anna er víða að leita og þær ekki
einhlítar.
Þau málefni og þær hugsjónir
sem Alþýðubandalagið stendur
fyrir, virðast í nýafstaðinni kosn-
ingabaráttu ekki hafa náð nægj-
anlega vel til kjósenda, það er og
ljóst að deilur hafa hrætt kjós-
endur frá flokknum, þe. þær
deilur sem átt hafa sér stað innan
flokksins á undanförnum árum
og þá einkum meðal flokks-
manna á Reykjavíkursvæðinu.
Deilur sem oftar en ekki hafa
staðið um menn en ekki málefni.
Nú virðist flokkurinn einnig
gjalda fyrir þátttöku sína í ríkis-
stjórn Gunnars Thoroddsen.
Þetta eru, ásamt mörgum öðrum
þáttum, þær ástæður sem skýra
að nokkru leyti það fylgistap sem
flokkurinn varð fyrir í kosningun-
um.
Hitt er ljóst að Alþýðubanda-
lagið þarf að taka sér tak og
skýrari
til vinstri
marka sér skýrari og ákveðnari
sérstöðu til vinstri í íslenskri póli-
tík en það hefur í dag. Það hefur
og komið fram hjá einstökum
þingmönnum flokksins að skýr-
ingar fylgistapsins sé að finna hjá
forystunni og meðal einstakra
frambjóðenda.
Auðvitað er alltaf af hinu góða
að leita skýringa á því sem að er,
en slfkt verður skilyrðislaust að
gerast án þess að efnt sé til innan-
flokksátaka og bræðravíga. Því
fordæmir flokkurinn árásir ein-
stakra flokksmanna á formann
flokksins og forseta ASÍ í fjöl-
miðlum. Við landsbyggðarfólkið
komum yfirleitt lítið við sögu í
sambandi við örlagaríkar ákvarð-
anir í flokksmálum. Við hljótum
því að treysta - og krefjast þess
að forystulið AB starfi sem raun-
sær og samstilltur hópur. Þegar
okkur berast fréttir af öðru, hljó-
tum við að segja: Hvort er það
getan eða viljinn sem vantar til
góðra verka fyrir flokkinn okkar
sem er og á að vera forystuafl og
brjóstvörn vinstri manna í
landinu.
Ágætu félagar! Verið þessa
minnug.
Samþykkt samhljóða á félags-
fundi í Alþýðubandalagsfélagi
Seyðisfjarðar 11. maí 1987.
djúðviuinn
Höfuðmálgagn
stjómarandstöðunnar
Áskriftarsimi (91)68 13 33.
DJÖÐVILIINN
0 68 13 33
45 68 18 66
Tímiiui
0 68 63 00
Blaöburdur er
og borgar sig
Vantar
blaðbera
til sumar-
afleysinga
víðs vegar
um bæinn
Hafðu samband við ok
Síðumúla 6
0 6813 33