Þjóðviljinn - 20.05.1987, Qupperneq 14
_ ALÞÝÐUBANDALAGIÐ -------------------------------
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Vinningstölur í happdrættum
Vinningur í happdrætti ungra kjósenda kom á bækling númer 9009, ferð til
Rhodos fyrir tvo. Hafið samband við Flokksmiðstöðina, sími 17500.
Vinningur í skyndihappdrætti ABR í kosningamiðstöð á kjördag kom á miða
númer 313, Mallorka-ferð. Hafið samband í síma 17500.
Verði þessara ferðavinninga ekki vitjað fyrir 12. maí falla þeir úr gildi
þarsem gert var ráð fyrir að ferðirnar væru farnar síðari hluta maímánaðar.
Drætti í kosningahaþpdrættinu hefur verið frestað til 1. júní. Þeir sem enn
oiqa eftir að gera skil eru beðnir að gera það hið fyrsta.
Frá Skrifstofu Alþýðubandalagsins
Sumartími
I sumar er skrifstofa AB opin frá kl. 9-16 alla virka daga. Síminn er 17500.
Alþýðubandalagið í Reykjavík er með opna skrifstofu á Hverfisgötu 105
frá kl. 10-12 alla virka daga.
G-listinn Reykjanesi
Listaverkahappdrætti
Dregið hefur verið hjá embætti bæjarfógetans í Kópavogi I Listaverka-
happdrætti G-listans í Reykjaneskjördæmi. Þar sem enn hafa ekki borist
lokaskil úr kjördæminu eru vinningsnúmerin innsigluð og verða birt í Þjóð- ,
viljanum miðvikudaginn 20. maí.
Þeir sem enn eiga óuppgert eru beðnir að hafa samband við flokksskrifstof-
urnar sem allra fyrst.
G-iistinn Reykjanesi
Tímaritstölurnar
Vinningstölur í happdrætti tímaritsins G-87 á Reykjanesi eru þessar: 12488
- 15901 - 5454 - 16548 - 11459.
Nánari upplýsingar í síma 41746.
Alþýðubandalagið Reykjanesi
Alþýðubandalagið Akureyri
„Það er undarlegt að Landleiðum skuli veitt
Hafnarfjarðarsérleyfið á sama tíma og sveitarfé-
lögin á höfuðborgarsvæðinu eru að vinna að því
að koma á sameiginlegu strætisvagnakerfi",
sagði Guðmundur Arni Stefánsson bæjarstjóri í
Hafnarfirði við Þjóðviljann í gær. tt r r- s , . /
Mynd: E.ói. Hafnarfjarðcirstrœto
HITI í HAFN-
FIRÐINGUM
Aðalfundur
verður haldinn í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18, fimmtudaginn 4. júní kl.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
önnur mál.
Allir félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Akureyri
Almennur
félagsfundur verður í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, fimmtudaginn 21. maí,
kl. 20.30.
Dagskrá: Rætt um niðurstöðu kosninga og sagt frá miðstjórnarfundi.
önnur mál.
Áríðandi að félagar mæti.
Stjórnin
G-listinn Reykjanesi
Listaverkahappdrættið
Vinningstölur í Listaverkahappdrætti G-listans á Reykjanesi. Upp komu
eftirtaldar tölur í þessari röð: 1) 6074 2) 5134 3) 11849 4) 7215 5) 4804 6)
3452 7)4425 8)10745 9)3051 10)5111 11)1138612)1061 13)507614)
11360 15) 10011 16) 7169 17) 9021 18) 11575 19) 7727 20) 4691.
Vinningshafar hafi samband við skrifstofu Alþýðubandalagsins í Kópa-
vogi, sími 41746 sem fyrst.
Alþýðubandalaglð Reykjanesi
Frá
Fjölbrautaskólanum
viðÁrmúla
Einkunnir verða afhentar föstudaginn 22. maí kl.
11.00-13.00 og þá skulu nemendur jafnframt
velja sér áfanga fyrir næstu önn.
Brautskráning stúdenta og skólaslit verða í Lang-
holtskirkju laugardaginn 23, maí.
Athöfnin hefst kl. 13.00.
Innritun nýnema fyrir haustönn er hafin, en
skólinn býður upp á nám í eftirtöldum brautum:
Félagsfræðibraut, hagfræðibraut, heilsugæslu-
braut, þjálfunar- og íþróttabraut, náttúrufræði-
braut, nýmálabraut og viðskiptabraut.
Skrifstofa skólans er opin k. 8-15, sími 84022.
Skólameistari
Beinið viðskiptum ykkar
til þeirra sem auglýsa íj
Þjóðviljanum
GuðmundurÁrni Stefánsson bœjarstjóri: Höfum ítrekað óskað eftir
að sérleyfinu yrði úthlutað til árs í senn
„Mér kemur það afskaplega
undarlega fyrir sjónir ef Skipu-
lagsnefnd fólksflutninga áttar sig
ekki á hvað er að gerast í almenn-
ingssamgöngum hér á höfuðborg-
arsvæðinu,“ sagði Guðmundur
Árni Stefánsson bæjarstjóri í
Hafnarfírði í gær.
Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur
sent frá sér harðorð mótmæli
vegna þeirrar ákvörðunar sam-
gönguráðuneytisins að úthluta
Landleiðum h.f. sérleyfi til fólks-
flutninga milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur til næstu fimm ára.
Krefst bæjarráð þess að ráðu-
neytið afturkalli sérleyfið.
Eins og fram hefur komið í
Þjóðviljanum hafa verið uppi
hugmyndir meðal sveitar-
stjórnarmanna á höfuðborgar-
svæðinu um sameiginlegt strætis-
vagnakerfi fyrir allt svæðið,
þ.e.a.s Reykjavík, Mosfellssveit,
Hafnarfjörð og Garðabæ.
í maí 1985 var samþykkt þings-
ályktun á alþingi um að „láta fara
fram könnun á hagkvæmni þess
að samræma rekstur almennings-
farartækja á höfuðborgarsvæð-
inu. Könnuð verði almenn og
þjóðhagsleg hagkvæmni slíks
sameiginlegs samgöngukerfis og
gerð langtímaáætlun um sam-
göngur á svæðinu. Kostnaður
greiðist úr ríkissjóði“.
Könnunarnefndin
Samgönguráðuneytið skipaði
síðan nefnd til að gera könnunina
og áttu sæti í henni; Sveinn
Björnsson forstjóri SVR., Gest-
ur Ólafsson framkvæmdastjóri
Samtaka sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu og Halldór Jóns-
son verkfræðingur í Kópavogi.
Nefndin skilaði áfangaskýrslu í
okt. sl. ogþakkaði samgönguráð-
herra nefndinni skýrsluna og
lagði hana síðan niður, að sögn
ráðneytisstjóra samgönguráðu-
neytisins, vegna þess að fé til að
kosta starf hennar fékkst ekki úr
ríkissjóði. Sveitarfélögin hafa
síðan ítrekað óskað eftir því að
nefndin taki aftur til starfa og
ljúki verkinu og hafa sjálf skipað,
að Reykjavík undanskilinni, full-
trúa í nefnd sveitastjórnarmanna
sem vinna skuli samhliða nefnd
samgönguráðuneytisins og vera
henni til aðstoðar.
Skömmu fyrir lok síðasta al-
þingis voru samþykkt ný lög um
skipulag fólksflutninga og í þeim
er nýmæli, sem er ákvæði er
heimilar ráðherra að veita sér-
leyfi til fólksflutninga innan
þrengri tímamarka en samkv.
eldri lögum. Nú getur ráðherra
veitt sérleyfi til eins árs í einu í
stað fimm ára. Þá getur ráðherra
nú sagt upp sérleyfi sem veitt er
án sérstakra þrengdra tíma-
marka, sé í aðsigi aukin þátttaka
eða samstarf sveitarfélaganna
sjálfra um reksturinn og fellur þá
sérleyfið niður að liðnum tveim
árum frá uppsögn ráðherra.
Hafnarfjarðarstrœtó
Skipulagsnefnd fólksflutninga
heitir nefnd sem skipuð er fulltrú-
um ýmissa hagsmunahópa, svo
sem bænda, ASÍ, sérleyfishafa og
fleiri. Nefndinni er ætlað að meta
sérleyfisumsóknir og leggja til við
ráðherra hverjir skulu hljóta sér-
leyfin.
Sameiginlegt strætisvagnakerfi
á sér mikinn hljómgrunn meðal
bæði almennings og sveitar-
stjórnarmanna á höfuðborgar-
svæðinu og því kom það mörgum
mjög svo í opna skjöldu þegar
sérleyfum var úthlutað fyrir
skömmu að Landleiðum h.f. var
endurúthlutað Hafnarfjarðarsér-
leyfinu án nokkurra tímatak-
marka þannig að í reynd gildir
það til næstu fimm ára. Mosfells-
leiðarsérleyfinu var hins vegar út-
hlutað til eins árs. (Þess skal þó
getið að ráðherra getur, eins og
áður segir, sagt því upp með
tveggja ára fyrirvara).
Bæjarstjórn og bæjarráð Hafn-
arfjarðar hefur mikinn áhuga á
sameiginlegu strætisvagnakerfi
með höfuðborgarsvæðinu og
áður en úthlutun sérleyfa fór
fram óskuðu Hafnfirðingar ítrek-
að eftir því við samgönguráðu-
neytið, bæði bréflega og á fund-
um með ráðuneytismönnum að
sögn Guðmundar Árna Stefáns-
sonar bæjarstjóra, að Hafnar-
fjarðarséríeyfinu yrði úthlutað til
eins árs í senn og sama gerði
hreppsnefnd Mosfellshrepps. Að
sögn Sveins Björnssonar, for-
manns skipulagsnefndar fólks-
flutninga barst nefndinni aldrei
neitt erindi frá Hafníirðingum en
hins vegar frá Mosfellingum.
Hefði því nefndin lagt samhljóða
til að farið yrði eftir beiðni Mos-
fellinga og leyfinu á Mosfellsleið
úthlutað til eins árs en þar sem
engin tilmæli hefðu komið varð-
andi Hafnarfjarðarsérleyfið
hefði því verið úthlutað til fimm
ára.
„Ég hef engar kenningar uppi
um hvað þarna hefur gerst og bíð
skýringa frá ráðuneytinu," sagði
Guðmundur Árni Stefánsson,
„en mér kemur spánskt fyrir
sjónir að þessi fagnefnd sem er
umsagnaraðili til ráðherra skuli
láta eins og hún viti ekkert hvað
er að gerast hér á svæðinu. Það
fór bréf frá okkur til nefndarinn-
ar en hvað um það hefur orðið get
ég ekkert um sagt,“ sagði Guð-
mundur Árni ennfremur.
H! LAUSAR STÖÐUR HJÁ
’l' REYKJAVIKURBORG
Hitaveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða raf-
eindaverkfræðing eða tæknifræðing til starfa við
stjórnkerfi og rafeindabúnað veitunnar. Upplýs-
ingar um starfið veitir Árni Gunnarsson í síma
82400.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 1987.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN