Þjóðviljinn - 06.06.1987, Page 8
MENNING
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. júní 1987
BenedikTKris^ánsson 9amefndar Graphica Atlantica á Kjarvalsstöðum F.v. Sigurður örlygsson, Ingiberg Magnússon, Eyjólfur Einarsson, Ingunn Eydal og
Kjarvalsstaðir
Graphica Atlantica
-stærsta myndlistarsýning hérlendis
Um helgina verður opnuð á Kjarvalsstöðum stærsta sýning
sem haldin hefur verið hérlendis. Eitt hundrað listamenn
sýna um fjögurhundruð grafíkverk
Um helgina veröur opnuö á
Kjarvalsstöðum ein stærsta
myndlistarsýning sem nokkru
sinni hefur veriö haldin hér á
landi. Er þetta alþjóðleg graf-
íksýning og sýna um eitt
hundrað listamenn frá tuttugu
og fjórum þjóðlöndum beggja
vegna Atlantshafsins um
fjögurhundruðgrafíkverk. í
tengslum við sýninguna verð-
ureinnig haldin alþjóðleg ráð-
stefna um grafíklist og verður
fyrri hluti hennar á Kjarvals-
stöðum nú um helginaen
síðari hlutinn á Kirkjubæjar-
klaustri dagana 8. -11. júní.
Sýningin ber nafnið Graphica
Atlantica og má þar kenna þá
hugmynd sem að baki hennar og
ráðstefnunnar liggur, en hún er
sú að kanna hvert stefnir beggja
megin N-Atlantshafsins á sviði
grafíklistar meðal þeirra aðila
sem á einhvern hátt tengjast
grafískri listsköpun. Aðstand-
endur sýningarinnar eru Reykja-
víkurborg og félagið íslensk
grafík, og sagði Ingunn Eydal,
sem á sæti í sýningamefndinni,
þessa sýningu hafa mjög mikið
gildi bæði fyrir íslenska grafík-
listamenn og áhugafólk um
myndlist. „Hér geta menn borið
saman myndlist tuttugu og fjög-
urra landa á einu bretti og sýning-
in er sett þannig upp að slíkur
samanburður sé sem auðveldast-
ur,“ sagði Ingunn. „Það er einnig
ákaflega mikilvægt fyrir lista-
menn að geta fylgst með því sem
er að gerast meðal listamanna,
annarra þjóða og kynnast öðru
listafólki, en í tengslum við sýn-
inguna og ráðstefnuna koma
hingað tæplega sjötíu listamenn
og fyrirlesarar. Meiningin er líka
að reyna út frá sýningunni og ráð-
stefnunni að efla samtök lista-
fólks, t.d. með skiptisýningum,
útgáfu tímarits og þess háttar.“
Graphica Atlantica er yfirlits-
og sölusýning sem á að sýna gott
þversnið af þeim stefnum og
straumum sem nú eiga sér stað í
báðum Atlantsálfum. Vegna legu
landsins þótti tilvalið að hafa
slíka sýningu hér á landi og hafa
erlendir listamenn sýnt því mik-
inn áhuga.
Við val erlendra listamanna á
sýningunni var leitað til ólíkra að-
ila erlendis, svo sem safna, galler-
ía og einstakra listamanna í
mörgum löndum og óskað eftir
að tilgreindir væru listamenn sem
að þeirra áliti gæfu best yfirlit yfir
grafíklist beggja vegna Atlants-
hafsins. Var síðan um 100 lista-
mönnum boðið að sýna þrjú til
fimm verk á sýningunni. Vali ís-
lensku þátttakendanna var aftur
þannig háttað að öllum lista-
mönnum í félaginu íslensk grafík
og öðrum listamönnum sem
vinna í þennan efnivið var boðið
að senda inn verk og úr þeim
valdi síðan valnefnd þá íslenska
hstamenn sem taka þátt í sýning-
unni.
18 íslendingar eiga verk á sýn-
ingunni, listamenn frá öllum
Norðurlöndunum ásamt Fær-
eyjum, frá sextán öðrum Evrópu-
löndum bæði austantjalds og
vestan, og einnig frá Bandaríkj-
unum og Kanada.
Sýningin er sölusýning og
kosta verkin allt frá 50 dollurum
upp í 3200 dollara. Fyrir sýning-
una verður gefin út stór og vönd-
uð sýningarskrá með einni mynd
eftir hvern þátttakanda sýningar-
innar og ásamt greinum um for-
sendur sýningarinnar og sögulegt
yfirlit grafíklistarinnar.
Á ráðstefnuna koma fjölmarg-
ir fyrirlesarar bæði austan um haf
og vestan og munu þeir fjalla um
stöðu grafíklistar í dag, þróun
hennar og framtíð. Allflestir fyr-
irlesaranna munu sýna litskyggn-
ur með fyrirlestrum sínum.
-ing
Listasafn ASÍ
Fislétt sumarsýning
Samsýning ellefu listamanna á veggmyndum og skúlptúrum unnum í
blandaðan efnivið
Guðrún Svava Svavars-
dóttir sýnir í FÍM salnum
og lýkur sýningu hennar
þann 7. júní. Um sýning-
una var Þjóðviljanum send
eftirfarandi umsögn:
Hughrif-
Umsögn
Landiðteygirúrsér, hlykkjast
og bylgjast, rís og sígur.
Straumar vatns og vinda forma
það að vild sinni. Mannsandinn
líkamnast og náttúruöflin togast á
um hans guðlega „sjálf"
Pólitískir vindar og strangir
lífsstraumar taka að móta „hann“
óspart.
„Land og fólk“ er yfirskrift
sýningar í FÍM salnum Garða-
stræti 6, þessa dagana og ber nafn
með rentu.
Myndir Guðrúnar Svövu Sva-
varsdóttur, kvenlegar, látlausar,
ljóðrænar en þrungnar af ást og
huglægri orku, snerta mann
djúpt.
Ándi ljóðsins er hennar aðals-
merki.
Matthías Ólafsson
Guðrún Svava Svavarsdóttir
Það er sumarsvipur á
myndlistarsýningunni sem
opnuð verður í salarkynnum
Listasafns ASÍ við Grensás-
veg nú um helgina. Sýningin
sem kallast Áning, er sam-
sýning ellefu listamanna sem
sýna glerlist, leirlist, textíl,
málmsmíði og fatahönnun.
Markmið sýningarinnar er að
gefa gestum safnsins tækifæri til
að kynnast listgreinum og lista-
mönnum sem ekki eru aðgengi-
leg á söfnum í sama mæli og hefð-
bundnari listgreinar, svo sem
málaralist og höggmyndalist.
Sólveig Georgsdóttir forstöðu-
maður Listasafns ASÍ segir stjórn
safnsins hafa verið sammála um
að vera með sýningu sem ólík
væri stóru grafiksýningunni sem
er að koma upp á Kjarvalsstöð-
um. „Þetta er fislétt sumarsýning
og verkin mjög mismunandi,
enda unnin í ólík efni. Þó kemur á
óvart hve verkin eru samstæð,
sérstaklega í litaskala, og þetta
gefur sýningunni sérstæðan
heildarsvip.
Mikill hluti af gestum safnsins
á sumrin eru erlendir ferðamenn
og við vildum líka gefa þeim kost
á að sjá hve mikil gróska er í þess-
um listgreinum hér á landi,“
sagði Sólveig.
Nokkrir listamannanna sem sýna í Listasafni AS(. F.v. Gestur, Ófeigur, Rúna,
Guðný, Sigrún Guðmunds, Guðrún og Ása á bak við leirskúlptúra Guðnýjar.
Eins og áður sagði sýna ellefu
listamenn á sýningunni. Ása Ól-
afsdóttir sýnir myndvefnað,
Gestur Þorgrímsson sýnir syrpu
af leirvösum undir nafninu
„Rhapsody in Blue“, Guðný
Magnúsdóttir sýnir massífa
leirskúlptúra, Guðrún Gunnars-
dóttir sýnir myndvefnað, Halla
Haraldsdóttir sýnir glerglugga,
Jens Guðjónsson sýnir járnskúlp-
túra, sem og Ófeigur Björnsson.
Sigrún Einarsdóttir sýnir skúl-
ptúra úr handunnu gleri, Rúna
sýnir veggmyndir úr steinleir og
skálar og Sigrún Guðmundsdótt-
ir sýnir föt sem veggskreytingar.
Eins og sjá má er sýningin mjög
fjölbreytt og markast af sérstæðu
samspili andstæðna og hlið-
stæðna. Sýningin stendur til 19.
júlí. _j„„
Frá lesendum