Þjóðviljinn - 06.06.1987, Page 13
ERLENDAR FRÉTTIR
Vestur-Þýskaland
Grænir þingmenn mótmæla kjamaflaugum
30 Græningjar sem sœti eiga á sambandsþinginu í Bonn tóku í gær þátt í
mótmælasetu við herstöðþar sem geymdar eru margar af Pershing 1 -A
flaugum Þjóðverja
Sú ákvörðun vesturþýsku
stjórnarinnar að fallast á að
risaveldin eyði meðal- og
skammdrægum kjarnaflaugum
sínum úr Evrópu svo fremi hún
fái haldið 72 Pershing 1-A
flaugum sinum hefur bögglast
fyrir brjósti margra friðarsinna í
Vestur-Þýskalandi.
Græningjum finnst til að
mynda fráleitt að setja slík skil-
yrði og í gær gengu um þrjátíu
þingmenn samtakanna fylktu liði
út af þingfundi og slógust í hóp
með fólla sem hafði í frammi
mótmæli við flugherstöðina í
Geilenkirchen, steinsnar frá
landamærunum að Hollandi. Þar
kvað vesturþýski herinh geyma
um helming Pershing 1-A flauga
sinna en kjarnaoddarnir eru í
vörslu Bandaríkjamanna.
Margt var um manninn í
Geilenkirchen. Um 60 ellilífeyr-
isþegar úr samtökunum „Gráu
hlébarðarnir“ voru mættir til
leiks. Mótmælendur hengdu
borða á hliðið að herstöðinni og
sungu hástöfum baráttusöngva.
í gær féllst sambandsþingið á
þær tillögur stjórnarinnar að
samþykkja eyðingu kjarnaflauga
stórveldanna með fyrrnefndum
skilyrðum.
Græningjar hreyfðu andmæl-
um og á mótmælafundinum í gær
benti einn þingmanna þeirra, Al-,
fred Mechtersheimer, á flugher-
stöðina og sagði: „Okkur verður
ekki svefnsamt þegar við vitum
að samningar um eyðingu kjarna-
flauga eru á næsta leiti án þess að
Kohl og stálhjálmar hans taki í
mál að fórna þessum asnalegu
flaugum sínum“.
Dómsmálaráðherra Bonn-
stjórnarinnar var miður sín af
bræði yfir þeirri ósvífni þing-
mannanna að taka þátt í mótmæl-
unum sem hann sagði að væru
vita ólöglegar. Hann sagði ótrú-
lega svæsið að þingmenn skyldu
misnota friðhelgi sína til að telja
almenningi trú um að annað eins
og þetta yrði látið órefsað.
Þingkonan Angelika Beer
svaraði um hæl: „Það er ekki þar
með sagt að þótt við eigum sæti á
sambandsþinginu séum við hætt
að taka þátt í aðgerðum sem þess-
um.“
-ks.
Amrískar kjarnaflaugar í Vestur-
Þýskalandi. Skilyrði sambands-
stjórnarinnar fyrir eyðingu þeirra
er Græningjum þyrnir í augum.
STAÐAR NEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
algerlega áðuren
að stöðvunarlínu
er komið.
IUMFERÐAR
’RÁÐ
VORI LJÚI J0HNN FISÁÁ
.
DREGIÐ 10. JÚNÍ
Upplag miða 100.000